Dagblaðið - 26.01.1981, Qupperneq 6
6
STILL Esslingen lyftarar
uppgerðir frá verksm. Til afgreiðslu nú þegar. Rafmagns: 1,5 t, 2 t,
2,51 og 3, tonna. Disil: 3,51,41 og 6 tonna. Greiðslukjör.
STILL einksumboð á íslan Ji
K JÓNSSON & CO. HF. §,
Hverfigötu 72,
simi 12452 og 26455.
Verkstjóri — Frystihús
Óskum eftir að ráða verkstjóra í frystihús á Suðurnesjum
fyrireinn af viðskiptavinum okkar. Upplýsingar veitirGísIi
Erlendsson.
lf ) rekstrartækni sf.
' U Siðumúla 37 - Sími 85311
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvala erlendis
á árinu 1982 fyrir fólk, sem starfar á ýmsum svið-
um félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félags-
málaráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 1. mars
n^' Féiagsmáiaráðuneytið,
22.janúar 1981.
Sedrus húsgögn
Iðnvogum
Súðarvogi 32, sími84047
Nú er tækifæri að gera góð kaup. Lítið notuð húsgögn á
tækifærisverði. Sófasett frá 1100,00 kr. 2ja manna sófi og
tveir stólar á 3850,00, sófaborð á 700,00, sófasett með
póleruðum örmum á 2500,00. Hillur, svefnbekkir, stakir
sófar, innskotsborð og margt fleira. Einnig ný sett frá kr.
5355,00 og tveggja manna á 3195,00, eins manns frá 1560.
Hvíldarstólar á 2295,00 krónur.
Lítið inn hjá okkur eða hringið. Það borgar sig.
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í fram-
leiðslu og afhendingu á einangruðum stálpípum og
greinistykkjum. Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu Hitaveitu Suðurnesja Brekkustíg 36 Ytri-
Njarðvík og Verkfræðistofunni Fjarhitun hf. Álftamýri
9 Reykjavík gegn 200 króna skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja þriðju-
daginn 17. febrúar 1981 kl. 14.00.
KS FURUNÁLAFREYÐIBAÐ
jafn ómissandi
fæst um
Heildsölubirgðir:
KRISTJANSS0N HF.f
Símar 12800 og 14878.
Ekkja Maós Zedong, fyrrura leið-
toga kínversku þjóðarinnar, var í gær
dæmd til dauða fyrir „gagnbyltingar-
glæpi”. Er dómurinn hafði verið
kveðinn upp varð að draga ekkjuna
út úr réttarsalnum þar sem hún kast-
aði sér í gólfið og hrópaði ókvæðis-
orð að dómurunum.
Zhang Chunqiao, fyrrum borgar-
stjóri í Shanghai, var einnig dæmdur
til dauða. Báðir dómarnir voru þó
með þeim fyrirvara að þeir skyldu
ekki koma til framkvæmda fyrr en
eftir tvö ár og þá mætti breyta þeim í
ævilangt fangelsi ef ástæða þætti til.
Jiang Qing, hin 67 ára gamla ekkja
Maós formanns, var handjárnuð er
dómurinn var kveðinn upp.
Athygli vakti að Hang Hongwen,
sem er langyngstur fjórmenninganna,
var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hong-
wen, sem er 48 ára gamall, var vara-
formaður kínverska kommúnista-
flokksins á tímum menningarbylting-
arinnar. Hann játaði á sig flesta þá
glæpi sem klíkunni voru gefnir að
sök og þótti í alla staði mjög sam-
starfsfús við þá er stýrðu réttarhöld-
unum. Það hafði því verið búizt við
að hann fengi mildari dóm. Fyrrum
áróðursstjóri kínverska kommúnista-
flokksins, Yaou Wenyuan, var
dæmdur í tuttugu ára fangelsi. Chen
Boda, hinn 76 ára gamli fyrrum
einkaritari Maós formanns, var
dæmdur í átján ára fangelsi.
Jiang Hua, forseti dðmstólsins sem kvað upp dómana yfir fjórmenningaklik-
unni.
Hinir sakborningarnir fimm, Lin
Biao-klíkan svonefnda, voru dæmdir
í sextán til átján ára fangelsi fyrir
byltingartilraun.
Jiang Qing lenti margsinnis í orða-
sennu við saksóknarann meðan á
réttarhöldunum stóð en Zhang
Chungqiao sat undir sex vikna löng-
um y firheyrslum án þess að mæla orð
af vörum. Hann svaraði ekki þeim
spurningum sem til hans var beint.
Hann var einnig þögull er dauðadóm-
urinn var kveðinn upp yfir honum.
Samkvæmt kínverskum lögum má
fresta fullnustu dauðadóma í tvö ár
og breyta þeim þá i lífstíðarfangelsi
ef hinn dæmdi þykir hafa iðrazt
gerða sinna.
Jiang Qing: dauðadómur.
Zhang Chunqiao: dauðadómur.
Wang Hongwen: ævilangt fanglesi.
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
Réttarhöldin yf ir f jórmenningaklíkunni:
Ekkjan hlaut
dauðarefsingu
— Jiang Qing kastaði sér í gólf ið og var borin út í járnum
Pólskir verka-
menn aövaraðir
Aðstoðarutanríkisráðherra Pól-
lands, Marian Dobrosielski, varaði
í gær pólska verkamenn við því, að
stöðugur órói á vinnumarkaði í landinu
,væri tekinn að grafa undan áliti lands-
ins út á við.
Milljónir Pólverja mættu ekki til
vinnu síðastliðinn laugardag til að
leggja áherzlu á kröfur Einingar um
fjörutíu stunda vinnuviku. Er talið að
þjóðhagslegt tap af völdum verkfallsins
hafi numið tæpum 400 milljónum is-
lenzkra nýkróna.
Rikisstjórn landsins hefur boðið
verkamönnum fri annan hvern laugar-
dag en segir að efnahagur landsins þoli
engan veginn fjörutíu stunda vinnu-
viku. Verkamenn segja hins vegar, að
stjórnvöld séu með þessari afstöðu að
ganga á bak gefinna loforða. Verka-
menn hafa sem málamiðlun boðizt til
að vinna einn laugardag í mánuði.
Guð blessi Ameríku!
— hrópuðu gíslarnir við heimkomuna
Bandarísku gislarnir 52 eru nú loks-
ins komnir til fjölskyldna sinna, 449
dögum eftir að herskáir franir réðust á
bandariska sendiráðið í tran og
hnepptu starfsmenn þess í gislingu.
Þeir fá að vera í tvo daga með fjöl-
skyldum sínum en siðan eiga þeir að
taka þátt í opinberri móttökuathöfn í
Washington.
Gíslunum var fagnað gífurlega við
komuna til Bandaríkjanna. Fólk
veifaði bandarískum fánum og gulum
borðum til að fagna heimkomu þeirra.
Er gislarnir stigu út úr flugvélinni við
komuna til Bandarikjanna hrópuðu
þeir: „Guð blessi Ameríku!” og
„Þökkum Guði fyrir að við erum
komnir heim!”
Það voru fjölskyldur þeirra, sem
tóku á móti þeim á flugvellinum. Hin
opinbera móttaka mun fara fram í
Washington eins og áður sagði.
Fréttamönnum var haldið í nokkurri
fjarlægð frá gíslunum er þeir hittu fjöl-
skyldur sínar. Höfðu gislarnir óskað
þess enda gáfu þeir tilfinningum sínum
algjörlega lausan tauminn að sögn
þeirra er viðstaddir voru endurfundina.