Dagblaðið - 26.01.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Kennedy
yngri
sýndi
k snarrœði
Robert F. Kennedy yngri þótti sýna
mikið snarræði er hann hljóp uppi
vasaþjóf, sem reyndi að stela peningum
af samferðamanni Kennedys á neðan-
jarðarbrautarstöðinni á Manhattan í
síðustu viku.
Kennedy var á ferð með gömlum
kunningja John F. Kennedys heitins
fyrrum Bandaríkjaforseta, LeMoyne
Billings að nafni. Billings, sem er 63 ára
gamall, sagði svo frá atburðinum:
„Maður nokkur rakst utan í mig og
Bobby tók eftir því að hann stakk
hendinni 1 vasa minn og tók þaðan
seðlaveski mitt.”
Kennedy, sem er nýorðinn 27 ára
gamall, hrópaði á nærstaddan lestar-
vörð og kallaði á hjálp. Síðan elti hann
þjófinn upp í verzlun fyrir ofan járn-
brautarstöðina og felldi hann þar í
gólfið með aðstoð lestarvarðarins.
Robert F. Kennedy yngri stundar
lögfræðinám við Virgina Law School
og er helzta von Kennedy-ættarinnar á
sviði stjórnmála næstu kynslóðar.
Bjór-
stofan
Ronald
Reagan
fbúar í smáþorpinu Ballyporeen á fr-
landi hafa ekki ráðið við sig síðan Ron-
ald Reagan tók við forsetaembætti í
Bandaríkjunum. Þá dönsuðu þeir á
götum úti í grenjandi rigningu og loks
þegar þeir komu inn úr rigningunni sáu
þeir, að við svo búið mátti ekki standa
og skírðu bjórstofu þorpsins í höfuðið
á hinum nýja forseta og létu hana heita
Ronald Reagan. Ástæðan fyrir öllu
þessu tilstandi er sú, að langafi forset-
ans, Michael O’Reagan, bjó í Bally-
poreen til 1849 en hann flúði til Banda-
ríkjanna vegna hungursneyðar á ír-
landi.
Þremenn-
ingaklíka
í bylt-
ingarhug
Nú þegar fjórmenningaklíkan í
Beijing hefur verið dæmd fyrir glæpi á
tlmum menningarbyltingarinnar er ris-
in upp svonefnd þremenningaklíka í
Verkamannaflokknum brezka. Eftir að
breytingar voru samþykktar á reglum
um kjör flokksleiðtoga á aukaþingi
flokksins um helgina þykir mjög liklegt
að þremenningaklíkan gangi úr Verka-
mannaflokknum og stofni kosninga-
bandalag með Frjálslynda flokknum.
Skoðanakannanir sýna, að það yrði
stærsti stjórnmálaflokkur Bretlands.
Eins og í Kina er það kvenmaður, sem
fremst er í „klíkunni”. Konan sú heitir
Shirley Williams og er fyrrum mennta-
málaráðherra.
Jackie
vildi
giftast
Sinatra
Nokkur bandarísk blöð hafa að und-
anförnu haldið því fram að Jackie
Onassis (Kennedy) hafi gengið með
grasið í skónum á eftir Frank Sinatra
söngvara og viljað giftast honum en
hann hafi ekkert viljað með hana hafa.
Sinatra hefur verið mjög í sviðsljósinu í
fjölmiðlum í Bandaríkjunum vegna
mikilla uppljóstrana sem átt hafa sér
stað varðandi Mafíuna. Þar kemur í
ljós að Sinatra hefur veríð góðkunningi
margra af helztu mafíuforingjunum.
Sviptingar f brezkum stjómmálum:
Klofningur Verkamanna-
fíokksins blasir nú við
Fjórir fyrrum ráðherrar úr Verka-
mannaflokknum brezka hafa
myndað sósíal-demókratískan bar-
áttuhóp, sem talinn er geta verið vísir
að nýjum stjórnmálaflokki í Bret-
landi.
Ákvörðun ráðherranna fjögurra
kemur í kjölfar ákvörðunar auka-
þings Verkamannaflokksins að
breyta reglum um formannskjör. Var
sú ákvörðun talin mikill sigur fyrir
harðlínumenn á vinstri væng flokks-
ins. Þeirri ákvörðun vilja ráðherr-
arnir fjórir ekki una. Þeir eru Ðavid
Owen, Shirley Williams, William
Rodgers og Roy Jenkins, fyrrum for-
seti stjórnarráðs Efnahagsbandalags
Evrópu.
Michael Foot, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, hefur hvatt upp-
reisnarmennina til að yfirgefa fiokk-
inn en ýmsir aðrir úr vinstri væng
flokksins hafa látið þá skoðun 1 ljós,
aö ekki sé nein eftirsjá í þeim. Að
minnsta kosti sjö þingmenn Verka-
.mannafiokksins lýstu þegar 1 stað
stuðningi sinum við hinn nýja hóp.
Talið er hugsanlegt að hópurinn
nýi myndi stjórnmálaflokk á sósíal-
demókratískum grunni og gangi
siðan 1 kosningabandalag við Frjáls-
lynda flokkinn.
1981 l.fl.
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
Fjármálaráðherra, f. h. ríkissjóðs, hefur
ákveðið að bjóða út til sölu innanlands
vertryggð spariskírteini að fjárhæð allt
að 20 millj. kr. Kjör skírteinanna eru í
aðalatriðum þessi: Skírteinin eru lengst
til 22 ára, bundin fyrstu 5 árin. Þau bera
vexti frá 25. þ. m., meðalvextir eru um
3,25% á ári. Verðtryggingin miðast við
breytingar á lánskjaravísitölu, sem tekur
gildi 1. febrúar 1981.
Um skattskyldu eða skattfrelsi skírteina
fer eftir ákvæðum tekju- og
eignarskattslaga eins og þau eru á
hverjum tíma, en nú eru gjaldfallnar
vaxtatekjur, þ. m. t. verðbætur, að fullu
frádráttarbærar frá tekjum manna, enda
séu tekjur þessar ekki tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi,
sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980.
Skírteinin eru framtalsskyld.
Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum,
500, 1.000,5.000 og 10.000 krónum
og skulu þau skráð á nafn. Sala hefst
26. þ. m. hjá Seðlabanka íslands, einnig
hjá bönkum, bankaútibúum og
sparisjóðum um land allt, svo og
nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja
frammi hjá þessum aðilum. Athygli er
vakin á því, að lokagjalddagi
spariskirteinail.fi. 1968erhin25.þ. m.
og hefst innlausn skírteina í þeim flokki
mánudaginn 26. þ. m. hjá Seðlabanka
íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík.
Janúar1981
SEÐLABANKIISLANDS