Dagblaðið - 26.01.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
r
v*
CAsto h m
Lennon-hjónin töldu
sig hafa þekkzt
á fyrra tilverustígi
FX-310
Kunnugir telja að trú Yoko á lif eftir dauðann hafi reynzt henni mikill styrkur er
John féll fyrir morðingja hendi.
BÝÐURUPPA:
• Algebra og 50 visindalegir
möguleikar.
• Siekkur á sjálfri sér og
minnið þurrkast ekki út
• Tvœr rafhlöður sem endast i
1000 tima notkun.
• Almenn brot og brotabrot
• Aðeins 7mm þykkt i veski.
• 1 árs ábyrgð og viðgerðar-
þjónusta.
CASIO
Bankastræti 8, simi 27510.
John og Yoko voru miklir áhangendur Edgar Cayce:
—og trúðu staðfastlega a lif eftir dauðann
John Lennon og Yoko Ono áttu
sameiginlega sterka trú á endur-
holdgun og voru þess fullviss að þau
myndu sameinast á ný sem elskendur
í næsta lífi, að því er nánir vinir
þeirra segja.
Sameiginleg trú þeirra á líf eftir
dauðann gerði það að verkum að
Lennon var alveg óhræddur við
líkamlegar, jarðneskar hættur og
þessi trú hefur einnig verið Yoko
mikill styrkur eftir að Lennon var
myrtur og raunar er það trúnni að
þakka að hún hefur ekki alveg fallið
saman.
John og Yoko hafa á undan-
förnum árum verið miklir áhang-
endur bandaríska miðilsins, Edgar
Cayce, sem er af mörgum talinn
fremsti miðill 20. aldarinnar.
Náinn vinur hjónanna, sem oft
heimsótti þau í íbúð þeirra í Dakota
byggingunni í New York, hafði þetta
um málið að segja: „Samband John
og Yoko var mjög andlegt og þau
trúðu bæði staðfastlega á líf eftir
dauðann.
Þau trúðu raunar á margt, eins og
til dæmis á stjörnuspeki og talna-
speki en fyrst og fremst fylgdu þau
Cayce. Þau voru einlægir fylgjendur
hans.
Auðvitað var dauði Johns mikið
áfall fyrir Yoko en ég er viss um að
sú trú hennar að hann sé ánægður á
öðruni stað veitir henni mikinn
styrk.
Ég held að hún trúi því, að þau
muni sameinast á ný. Það er nokkuo
sem margir trúa á er þeir missa ná-
kominn ástvin. Og ef ást þeirra
kemur þessu máli eitthvað við þá
gæti þettajafnvel gerzt.”
Cayce, sem dó árið 1944, hafði
skrifað fjölmargar bækur og John og
Yoko lásu þær allar. Endurholdgun
lesið allar bækur hans.
og sú kenning að hægt sé að hafa
samband við framliðna á miðils-
fundum eru grundvallarþættir í
beimspeki hans.
„Yoko hlýtur að trúa því að þegar
hún deyr muni hún sameinast John í
nýju lífi ef hún fylgir kenningum
Edgar Cayce,” segir miðillinn
Kebrina Kinkade sem er sér-
fræðingur i kenningum Cayce. ,,Þau
gætu verið saman um alla eilífð.
Cayce kallaði fólk eins og John og
Yoko sálufélaga. Þau eru á sama
andlega sviðinu.”
Sem nemendur Cayce trúðu
Lennon-hjónin því að þau hefðu
þekjpt á fyrra tilverustigi. „Fólk
velur ástvini sína vegha einhvers sem
gerzt hefur í fortíðinni. Það er
kenning Cayce,” segir Kinkade.
„Þetta er einnig kenning
Maharishi Mahesh Jóga og allrar ind-
verskrar heimspeki sem Yoko og
John lögðu stund á. öll trú þeirra
snerist um líf eftir dauðann.”
Cayce, sem er þekktur sem
„faðir” nútíma sálkönnunar, tók
þátt í andatrúarfundum til þess að ná
sambandi við anda framliðinna.
„Hann kom sjálfum sér í draumá-
stand með tækni sem líkist sjálfdá-
leiðslu og ritari skráði niður það sem
hann sagði,” segir Kinkade.
John og Yoko. tóku þátt í anda-
trúarfundum oftar en einu sinni. Þau
tóku meira að segja þátt í einum með
fyrrverandi eiganda Dakota-
íbúðarinnar áður en þau ákváðu að
kaupa.
Yoko var sjálf náinn vinur
brezkrar konur að nafni Deziah Holt.
Breti þessi bjó í New York og var
skyggn. Hún heimsótti hana
reglulega og aðeins fjórum mánuðum
fyrir dauða hans varaði Deziah hana
við að John ætti „mikla erfiðleika”
framundan og hann þyrfti að vara sig
á ókunnum mönnum sem hétu „Bell,
Richardeða Mark”.
John var hins vegar illa við líf-
verði og aðrar hömlur á frelsi sínu og
lét ekki verða neina breytingu á því.
Það kostaði hann lífið.
Á viðskiptaferð til Evrópu fá-
einum vikum fyrir dauða Lennons,
sagði Deziah vinum sínum frá því að
hún hefði miklar áhyggjur af John
Lennon og hefði varað Yoko Ono
við.
„Það eru miklir erfiðleikar
framundan hjá honum og ég veit ekki
hvort John tekur nokkurt mark á því
þegar Yoko segir honum það,” sagði
hún.
Deziah Holt var svo náinn vinur
Lennon-hjónanna, að hún dvaldi
stundum vikum saman hjá þeim og
fimm ára syni þeirra, Sean, í lúxus-
ibúð þeirra í Dakota.
Deziah vildi hvorki staðfesta né
neita því að hún hefði varað Yoko
Ono við er bandaríska blaðið Star
spurði hana að því: „Ég^ nota
skyggnigáfu mína ekki mér til tekna
og ég tala ekki um einkalíf vina
minna.”
John hafði verið varaður við ókunnum
mönnum sem hétu „Bell, Richard eða
Mark”. Myndin er tekin er John
áritaði plötu fyrir Mark Chapman,
sem nokkrum klukkustundum siðar
myrti hann.
oftar en einu sinni.
En hún viðurkenndi að hún væri
náinn vinur Lennonfjölskyldunnar
og sagði: „Ég dái þau bæði og elska
þau innilega og ég mundi aldrei
gera neitt sem gæti skaðað þau. ”
Vegna áhuga Lennons á hinu yfir-
náttúrlega og lífi eftir dauðann velta
margir nánir vina hans þvf nú fyrir
sér hvort Yoko muni reyna að ná
sambandi við hann fyrir milligöngu
miðils. Deziah Holt segist ekki hafa
neina hugmynd um það.
„Þau munu alltaf vera saman á
sinn hátt,” sagði hún. „Samband
þeirra var svo náið og ég tel að það
muni alltaf verða þannig. En ég veit
t>Vlfi hvorí YoWo mnn revníi aA ná