Dagblaðið - 26.01.1981, Side 11
II
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
r
„Fjöldaf ramleidd handavinna fyllir allar búðir:
Gefur ekki svig-
rúm fyrir neitt
nema eftiröpun”
—segja útgef endur tímarítsins Hugur og hönd
„Að verða fyrir áhrifura af okkar
gömlu menningu, en notfæra hana á
nýjan hátt, það finnst okkur
skemmtilegast,” sagði Gerður Hjör-
leifsdóttir verzlunarstjóri íslenzks
heimilisiðnaðar, en ársrit Heimilis-
iðnaðarfélagsins Hugur og hönd er
nýkomið út í 15. sinn.
Það verður fegurra með hverju ári.
hann sér sjálfur eina slíka — eftir
minni. Á öðrum stað er mynd af
hnefatafli úr tré, en við slik töfl styttu
víkingar sér stundir. Leikreglur
fylgja.
Að vanda eru margar prjónaupp-
skriftir með myndum. Sumar gamal-
dags, eins og barnaklukka úr eingirni
eins og allar litlar stúlkur gengu í á
Við hnefatöfl sem þessi er álitið að vík-
ingar hafi skemmt sér þegar ekki gaf
byr til ránsferða.
Veggmynd eftir Sunnevu Hafsteinsdóttur út frá nokkrum Ijóðlinum eftir Hannes
Sigfússon. Segir þar frá þvi hvernig nóttin kemur i sigurkufli með gullhnappa og
hvolfist yfir borgina. Húsin eru bótasaumur úr lituðu lérefti, gluggar þrykktir á,
en neðst sýnir dökk tjullslæða borgarmengun og umferðarfnyk.
Þýzkalandi og fyllir hér allar búðir.
Þess konar dót veitir ekki svigrúm
fyrir neina sköpunargáfu og býður
ekki upp á annað en eftiröpun,”
sagði Vigdís Pálsdóttir handavinnu-
kennari sem ásamt Gerði og þrem
öðrum er í ritnefnd blaðsins Hugur
og hönd.
Þjóðleg munstur byggð á fornum
hefðum fást hjá Heimilisiðnaðar-
félagi íslands. Má til dæmis nefna
gömul útsaums- og vefnaðarinunst-
ur, sem Halldóra Bjarnadóttir hefur
safnað. Voru þau endurútgefin
skömmu eftir 100 ára afmæli hennar
og eru orðin mjög vinsæl af ungu
stúlkunum, sem nota þau i vesti,
peysurogannaðútprjón. -IHH
Virðingin fyrir fyrsta flokks hand-
verki einkennir alla umfjöllun, og
það kemur vel fram hvernig hefja má
ótrúlegasta efni í æðra veldi, þegar
hugvitssemin er nóg.
Þannig skyldi maður ekki hafa
haldið að úr nælongarni, sem notað
er til að vélbinda hey, mætti gera að-
dáunarverða nytjamuni. En í blaðinu
er frásögn af Ástu Ásgeirsdóttur, sem
notar garnið sem uppistöðu í finustu
gólfmottur. Og forsíðumyndin sýnir
myndverkið Ljósaskilti við jökul-
röndina eftir Hólmfríði Árnadóttur
— gert úr striga og silkigarni.
Smíðisgripir og
prjónavörur
Fyrsta greinin i ritinu segir frá
blindum smið í Mosfellssveit, sem
fékk að þreifa á vélsög í Reykjavík og
þegar hann kom heim til sín smíðaði
striðsárunum. Aðrar alveg í nýjustu
tískunni eins og dömuvesti með
óreglulegu munstri í sjö litum. Og
enn aðrar sameina nýtt og gamalt
eins og taska hekluð í beinum linum
nútímans — skreytt drekamunstri úr
fornöld.
Ófrumleg fjöldafram-
leiðsla f tonnatali
Það nýstárlegasta í blaðinu eru
kannski litmyndir af veggmyndum
sem unnar eru af miklu hugmynda-
flugi af ungum kennslukonum. Þar
er meðal annars notaður bóta-
saumur, en um þann saum hefur
verið sagt að hann sé listgrein sem
sprottin sé af sárri fátækt. „Okkur
langaði til að örva fólk til að gera
eitthvað annað heldur en kaupa sér
tilbúna handavinnu, sem er fram-
leidd i tonnatali af stórfyrirtækjum i
Sólsetur eftir Friðu Kristinsdóttur. Ullareinskefta meó refilsaumi, en það er ein
elzta útsaumstegund sem varðveitt er i Evrópu og finnst á teppi sem gert er um
innrás Normanna I England árið 1066. Refilsaumur er einnig notaður í elztu ís-
lenzku altarisklæðunum.
CASIO BYLTING í ÚRA-FRAMLEiÐSLU
i Svona
eða
svona
SAMA ÚRIÐ MEÐ TVÖ ANDLIT
AA81 býður upp á:
Klukkutíma, mín., sek., mánaðardag, vikudag.
Sjátfvirka dagatalsleiðróttíngu um mánaðamót.
Að hægt só að hafa tvo tíma samtímis.
Niðurteljara frá 1. mín. tílklst
Vekjara.
Hljóðmerki á háffum og heilum tíma.
Rafhlöðu sem endist í ca. 18 mánuði.
Árs ábyrgð og viðgerðarþjónustu.
Er högghett og vatnshett
Gkr. 99.950.- Nýkr. 999,50.-
CASIOUMBOÐIÐ
BANKASTRÆTI8
SÍMI27510
CASIO verð á úrum er frá gkr. 39.950 til 99.950
CASIO vasatölvur frá gkr. 18.900.
TitlB
M—1200 býður upp á:
• Klukkutima, min., sek.
• Mánuð, mánaðardag, vikudag.
• Vekjara með nýju lagi alla daga
vikunnar.
• Sjálfvirka dagatalsleiðróttingu
um mánaðamót
• Bœði 12 og 24 tíma kerfið.
• Hljóðmerki á klukkutima fresti
með „Big Ben " tón.
• Dagatalsminni með afmælislagi.
• Dagatalsminni með jólalagi.
• Niöurteljara frá 1 min. til klst.
og hringir þegar hún endar á
núlli.
• Skeiðklukku með millitima.
• Rafhlöðu sem endist i ca. 2 ár.
• Árs ábyrgð og viðgerðarþjón-
ustu.
• Er högghelt og vatnshelt.
Gkr. 99.950.-
Nýkr. 999,50.-