Dagblaðið - 26.01.1981, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
15
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
KRvannÞór
á Akureyri
KR sigraði Þór 16-13 í 1. deild
kvenna á Akureyri um helgina eftir að
hafa leitt 8-7 i hálfleik. Þótt munurinn
yrði ekki meiri hafði KR leikinn alltaf í
hendi sér og Þórsstúlkurnar ógnuðu
sigrinum aldrei. Munar miklu fyrir KR
að Kristbjörg Magnúsdóttir, eiginkona
Axels Axelssonar er farin að leika með
liðinu aftur. Hún var markahæst með 6
mörk, en þær Jóhanna og Hansína
skoruðu 3 hvor. Hjördís 2, Karólína
og Brynja 1 hvor. Fyrir Þór skoruðu
þær Valdís og Þórunn 4 hvor, Soffía Qg
Dýrfinna 2 hvor og Anna Gréta 1.
Staðan er nú slæm hjá Þór á botni 1.
deildarinnar.
Sjöbrend varð
Evrópumeistari
Amund Sjöbrend frá Noregi varð í
gær Evrópumeistari i skautahlaupi í
samanlögðu. Það var þó aðeins fall
Evrópumeistarans Van Der Duim frá
Hollandi i lokagreininni sem tryggði
Norðmanninum sigur. Vegna þrengsla
verðum við að birta frekari úrslil á
morgun.
Kveiktu í járn-
brautarvögnui
Æstir aðdáendur Herthu Berlín
gengu berserksgang í Hanover eftir að
lið þcirra hafði lapað 0-4 fyrir Aachen í
þýzku 2. deildinni. Kveiktu þeir í járn-
hrautarlest og eyðilögðu 3 farþega-
vagna. Tjónið er talið nema 1,2 milljón
um marka og í látunum slösuðusl 6
manns. Tveir aðdáenda liðsins voru
handteknir á leikvellinum sjálfum með
bensínsprengjur.
Janus skoraði
fyrir Fortuna
Janus Guðlaugsson á nú hvern stór-
leikinn á fætur öðrum í Þýzkalandi og
hann skoraði eitt marka Fortuna Köln i
3-0 sigri gegn Rot Weiss Kssen um
helgina. Janus hefur verið nokkuð í
fréttum í „lokal" blöðum i Þýzkalandi
að undanförnu og orðrómur hefur
verið á kreiki þess efnis að hann muni
innan skamms ganga til liðs við lið úr i
Bundesligunni. Janus skoraði einnig
mark í 2-2 jafntefli Fortuna gegn FC
Köln í æfingaleik fyrir nokkru og átti
þá góðan leik. Homburg sigraði lngol-
stadt 3-1 í Suðurdeildinni i gær og er nú
þari 12. sæti.
2. deildin íblaki
Einn leikur fór fram um helgina í 2. i
deild karla í blaki. Hvergerðingar j
héldu til Eyja og léku þar við heima-
menn. Eyjamenn reyndust sterkari,|
unnu með þrem hrinum gegn einni.
Leik Þróttar, Neskaupstað, og \
UMSE sem fara átti fram á Norðfirði í |
gær, var frestað.
Keppnin í 2. deild fer fram í tveim |
riðlum, Suðvesturlands- og Norð-
austurlandsriðli. Tvö efstu liðin i I
hvorum riðli mætast síðan í úrslita-1
keppni. Fer hún fram í Reykjavík j
dagana 27.-28. marz nk.
Staðan í 2. deild er nú þessi:
Suðvesturlandsriðill
Þróttur b
ÍBV
HK
Hveragerði
Samhygð
Norðausturlandsriðill
UMSE
ÍMA
Bjarmi
Þróttur Nes
5 5 0 15—4 10 J
5 4 1 12—4 8i
5 2 3 10—9 4'
5 1 4 4—14 2
4 0 4 2—12 0 i
2 2 0 6—2 4 ;
2 1 1 4—3 2
3 1 2 4—7 2
1 0 1 1—3 0
-KMU.
H
Leikaðferðir í íslenzka blakinu eru orðnar nokkuð þróaðar. sérstaklega hjá Þrótti. Á
myndinni sézt gott dæmi. Valdemar Jónasson stekkur upp rétt við uppspilarann.
reiðubúinn að taka „stuttan bolta”. í stað þess að gefa á Valdemar, scndir uppspilar-
inn, Gunnar Árnason, langa scndingu yfir á Barða Valdimarsson sem er að leggja af
stað í uppstökk. Framarinn, Baldur Tumi Baldursson fylgist með. DB-mynd: S.
Stenmark varð
í 3. sætinu
Þrátt fyrir að hafa forystu eftir fyrri
umferð svigsins í Wengen í Sviss í gær
varð Ingemar Stenmark að gera sér
þriðja sætið að góðu er upp var staðið.
Bojan Krizaj frá Júgóslavíu keyrði
siðari umferðina af geysilegum krafti og
kom í mark á 1:34,27 sek. Marc
Giardelli frá Luxemborg varð óvænt
annar á 1:34,69 og Stenmark þriðji á
1:34,84 sek. Stenmark hefur nú forystu
í stigakeppninni um heimsbikarinn og
hefur 150 stig. Peter Muller hefur 140
stig, hann hlaut slæma bylfu í bruninu
eins og sjá má í annarri frétt.
Leverkusen
fékk stórskell
„Mér gekk sjálfum ágætlega í leikn-
um gegn Gummersbach en við steinlág-
um 17-28,” sagði Viggó Sigurðsson er
við slógum á þráðinn til hans í gær-
kvöid. „Ég skoraði 4 mörk en það
dugði okkur skammt. Áttum aldrei
möguleika.” Göppingen er nú efst í
Bundesligunni á ný eftir sigur gegn
Huttenberg en Dankersen tapaði um
helgina fyrir Giinsburg og staða liðsins
er nú slæm við botninn. Leverkusen er í
8. sæti deildarinnar eftir góðan sprett
undanfarið. -SSv.
Bett skoraði
James Bett var á meðal markaskor-
ara Rangers um helgina er liðið sigraði
Airdrie 5-0 á útivelli i bikarnum. Þessi
sigur var nokkuð stór og óvæntur því
liðin höfðu þrivegis mætzt í vetur og
alltaf skilið jöfn. Derek Johnstone
skoraði tvö marka Rangers, Aberdeen
vann nauman sigur á Raith 2-1 en
Celtic sigraði örugglega í sínum leik og
komst áfram.
Hallur Sfmonarson skrifar frá Lundi:
Ekki tókst Fram að
stöðva sigurgönguna
—vann þó hrinu af Þrótti í 1. deild blaksins
Engin óvænt úrslit urðu í 1. deild
karla í blaki um helgina. ÍS vann Vik-
ing 3-0 og Þróttur vann Fram 3-1. Leik
UMFL og Vikings sem fara átti fram á
föstudag var frestað vegna skafrenn-
ings sem var á veginum til Laugarvatns.
Víkingur—ÍS
Gamli jálkurinn Friðbert Trausta-
son, átti stærstan hlut í sigri ÍS á Víking
í Hagaskólanum í gær. Hann var
drjúgur við smössin, auk þess sem hann
barðist vel í vörninni. ÍS-liðið hafði öll
tök á leiknum og Víkingur komst ekki
upp með neitt. Það var helzt í 2. hrinu
sem Stúdentum var ógnað, þeir unnu
hana engu að síður, að vísu naumlega,
15-13. Fyrstu hrinu vann ÍS 15-8 og þá
þriðju 15-5.
Tæplega tveggja
stunda blakleikur
Víkingsstúlkurnar stefna nú hrað-
byri að íslandsmeistaratitlinum í
kvennablakinu. í gær lögðu þær
hættulega andstæðinga að velli er þær
sigruðu Þrótt i æsispennandi leik, 3-2.
Er Víkingur eina liðið í kvennablakinu
sem ertaplaust.
Leikur Víkings og Þróttar er með
þeim lengri sem sézt hafa. Samtals var
leikið í 111 mínútur, þar af var ein
hrina 25 mínútna löng.
Víkingur hóf leikinn af krafti og
vann fyrstu hrinu nokkuð örugglega
15-6. Þróttur svaraði fyrir sig í næstu,
vann 15-13. Þá þriðju vann Vikingur
15-8 en Þróttarstúlkurnar voru langt
frá þvi að gefast upp, þær börðust sem
ljón i fjórðu hrinu og tókst að merja
sigur, 15-13. Úrslitahrinuna unnu síðan
Víkingsstúlkurnar 15-7 eftir að
Þróttur hafði komizt i 7-3.
I Víkingsliðinu bar einna mest á
Ásdísi Jónsdóttur en Jóhanna
Guðjónsdóttir var traust að venju. Hjá
Þrótti kom Hulda Laxdal bezt út.
Staðan í kvennablakinu er nú þessi:
Víkingur
ÍS
Þróttur
ÍMA
Breiðablik
5 0 15—7
-KMU.
Suðurnesjamenn sterkir
á af mælismóti ISÍ í gær
Fyrri hluti afmælismóts Júdósam-
bandsins fór fram í gær í íþróttahúsi
Kennaraháskólans. Bjarnl Friðriksson,
Ármanni, sigraði eins og vænta mátti í
95 kg flokki og í 86 kg flokki sigraði
Sigurður Hauksson úr Keflavík. Annar
Keflvíkingur, Ómar Sigurðsson, sigr-
aði í 78 kg flokknum og enn einn af
Suðurnesjum, Gunnar Jóhannesson úr
Grindavik vann 60 kg flokkinn. í 71 kg
flokknum sigraði Ármenningurinn
Hilmar Jónsson hins vegar. -SSv.
Eitt mark til viðbótar hefði
f leytt Víking f undanúrslitin
—en íslandsmeistaramir urðu að sætta sig við 17-17 jafntefli í æsispennandi leik gegn Lugi í Lundi
í gærkvöldi þar sem Víkingur hafði yfirhöndina 14-12, er 15 mín. vom til leiksloka
Frá Halli Símonarsyni, Lundi, í gær-
kvöld:
í einhverjum mest spennandi leik
sem undirritaður hefur séð, jafntefli
17-17, bar Lugi sigurorð af Víkingi í 8-
liða úrslitum Evrópukeppni meistara-
liða hér í Lundi í gærkvöld. Samanlagt
varð markatalan 34-33 úr báðum leikj-
unum Lugi í vil. Það gat ekki munað
minnu. Eitt mark til viðbótar hjá Vík-
ingum í gær hefði tryggt þeim réttinn
til þátttöku í undanúrslitum keppninn-
ar. Vissulega voru möguleikar til þess
og vissulega áttu Svíarnir líka mögu-
leika á að auka muninn.
Heimaleikurinn varð Víkingum að
falli. Ef aðeins hefði verið komizt hjá
markinu klaufalega á lokamínútunni í
Laugardalshöll hefði Víkingssigur
verið í höfn á fleiri mörkum skoruðum
á útivelli. Það voru mörg ef-in í þessum
tveimur leikjum íslandsmeistara Vík-
ings og Svíþjóðarmeistara Lugi. Á
fjórða hundrað íslendingar voru á
meðal áhorfenda á leiknum og sögðu
leikmenn Vikings eftir leikinn að í þeim
hefði oftast heyrzt meira en hinum
sænsku stuðningsmönnum Lugi, sem
létu þó vel í sér heyra og studdu vel við
bakið á sínum mönnum.
Tvennt skipti sköpum í leiknum i
gær; góð byrjun Lugi, sem komst í 4-1,
og síðan þegar staðan var 14-12 fyrir
Víking og Árna Indriðasyni var vikið af
velli á 47. mínútu. Lokamínúturnar
voru ofsaleg barátta beggja liða — allar
jafnteflistölur frá 14-14 og upp í 17-17.
Svíarnir skoruðu á undan, en Steinar
Birgisson jafnaði metin þegar 40 sek.
voru til leiksloka. Leikið var maður á
mann og allt í einni hringiðu á gólfinu.
En Svíum tókst að halda knettinum og
sigurinn var þeirra. Vikjum nú nánar
að gangi leiksins.
Gangur leiksins
Víkingarnir voru varla komnir í gang
er Heinonen skoraði, 1-Oeftir aðeins 40
sek. Víkingar fengu í næstu sókn víta-
kast en Mats Ohlson, markvörður
Lugi, gerði sér lítið fyrir og varði frá
Páli. Lugi náði knettinum eftir ranga
sendingu Guðmundar Guðmundssonar
og Heinonen skoraði aftur, 2-0 eftir
aðeins 80 sek. Þorbergur minnkaði
muninn i 2-1 en Claes Ribendahl
svaraði um hæl, 3-1. Þetta var hans
eina mark í leiknum. Thomas Sjögren
bætti fjórða markinu við. Síðan varði
Ohlson frá Þorbergi og Ribendahl var
vikið af velli í 2 mín. fyrir að standa of
nálægt í aukakasti. Páll Björgvinsson
lagaði stöðuna í 4-2 á 6. mín. og síðan
fengu Svíarnir á sig leiktöf. Steinar
skoraði þriðja mark Vikings eftir að
Þorbergur hafði átt þrumuskot í stöng-
ina.
Þegar hér var komið sögu tóku Vík-
ingar Ribendahl úr umferð en Þorbergi
„Eftir höfðinu
dansa limimir”
„Eftir höfðinu dansa limirnir,”
sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálf-
ari er við spurðum hann álits á tapinu
gegn Dönum á föstudagskvöld í Ribe.
„Strákarnir voru orðnir uppgefnir eflir
strembna leiki gegn V-Þjóðverjunum
og það lagðist allt á eitt hjá okkur. Við
létum verja frá okkur 11 sinnum í
dauðafærum á meðan Danirnir sölluðu
á okkur mörkum. Vörnin var slök og
markvarzlan þá um leiö og segja má að
við höfum aldrei komizt í gang.”
Margir hafa undrazt hið stóra tap,
17-29, fyrir Dönunum á laugardag eftir
hinn góða árangur gegn heimsmeistur-
um V-Þjóðverja. Strangt ferðalag nótt-
ina fyrir leikinn við Dani sat illa í leik-
mönnum er til leiksins kom þannig að
ekki varð við neitt ráðið. „Því er hins
vegar ekki að neita að danska liðið kom
okkur mjög á óvart með stórskemmti-
legum leik. Liðið hefur tekið geysileg-
um framförum frá því á NM í haust —
á því leikur enginn vafi,” sagði Hilmar.
í dag mun Hilmar útnefna landsliðs-
hóp fyrir leikina þrjá gegn Frökkum í
þessari viku, en sá fyrsti þeirra verður á
miðvikudag. -SSv.
var vísað af leikvelli í 2 mín. fyrir sams
konar brot og Ribendahl áður. Þrátt
fyrir að Víkingar væru aðeins 5 tókst
þeim að ná forystunni með tveimur
glæsilegum mörkum Steinars, sem
brauzt í gegn af fítonskrafti en David-
son jafnaði, 5-5, eftir 12 mínútur. Á
eftir fylgdi kafli þar sem ekkert gekk
upp hjá liðunum. Ohlson varði frá Þor-
bergi, Páll komst einn upp en varið var
frá honum og loks átti Guðmundur
skot í stöng. Til að bæta svo gráu ofan
á svart var Þorbergi vísað af leikvelli í
annað sinn og ekki nema 14 mín. búnar
af leiknum. Tóku Víkingar það ráð að
láta Þorberg elta Ribendahl, en þeir
Páll og Guðmundur höfðu haft það
hlutverk fram að því.
Lugi komst síðan í 6-5 með marki
Heinonen og André bætti því sjöunda
við, 7-5. Steinar minnkaði muninn í 6-7
en Jonson kom Lugi í 8-6 eftir 18 mín.
Á eftir fylgdi langur kafli hjá liðunum
þar sem barizt var grimmilega en ekkert
skorað. M.a. varið frá Þorbergi og
6 tíma ferð varaði
Í38 klukkustundir
Frá Halli Símonarsyni í Lundi i gær:
Hin stutta ferð íslandsmeistara Vík-
ings til Lundar tók langan tima. Þegar
komið var til Ábbottsinch-flugvallar í
Glasgow á föstudagsmorgun var til-
kynnt að einhver bið yrði á áframhald-
andi flugi til Kaupmannahafnar.
Síðan var tilkynnt að ekkert yrði
fiogið til Hafnar. Flugleiðavélin hélt
aftur heim án farþeganna, sem urðu
eftir í Glasgow og gistu þar á góðu
hóteli. Kl. 13 á laugardag var svo
haldið með SAS flugvél til Kaup-
mannahafnar en þó með viðkomu I
Stavangri. Farið var með bát til Malmö
og síðan með lest til Lundar. Komið
þangað kl. 20 á laugardagskvöld eftir
38 klukkustundir frá því leikmenn
lögðu af stað frá heimilum sínum i
Reykjavík. Ferð sem talið var að tæki
ekki nema 6 tíma. Þess má geta að nýj-
ustu flugvélar gátu lent í Kaupmanna-
höfn — þokan kom ekki í veg fyrir
lendingu t.d. flugvéla Lufthansa þar.
Stúdentar börðust vel i leiknum. Þeir
sóttu stíft á Víkinga og ekkert var gefið
eftir í vörninni. Fyrir utan Friðbert var
ÍS-liðið nokkuð jafnt.
Víkingarnir voru ákaflega mistækir.
Þeir áttu það til að setja boltann fal-
lega í gólfið en þess á milli sáust svoköll-
uð Tumasmöss, þ.e.a.s. srnöss sem
fóru langt út í vegg. Enginn bar af í
Víkingsliðinu.
Þróttur—Fram
Ekki tókst Frömurum að stöðva
sigurgöngu Þróttar. Þó höfðu þeir gott
tækifæri til þess því Þróttarar voru
ákaflega slakir. Með yfirvegaðri leik er
aldrei að vita nema Framarar hefðu
getað klipið stigin af Þrótti.
Hvorki fleiri né færri en 5 uppgjafir
fóru í súginn hjá Fram í fyrstu hrinu.
Þróttur vann hana 15-6. Aðra hrinu
vann Þróttur 15-9 en Fram tók þá
þriðju 15-13. Framkvæmdi Sigurður
Björnsson 6 síðustu uppgjafir Fram,
frá 9 og upp í 15. Lokahrinuna hafði
Þróttur, 15-8.
Staða Þróttar í blakinu í dag er svip-
uð stöðu Víkings í handboltanum. En
leikur Þróttar í gær var ekki mjög
sannfærandi, þó liðinu hafi tekizt að
sigra Fram hefði það ekki haft Stúdent-
ana meðsamaleik.
Gunnar Árnason gerði Frömurum
margan grikkinn með laumum sínum.
Annars voru Þróttarar allir í meðal-
mennskunni og mistök liðsins fjöl-
mörg. Þó voru mistök Framar enn
fleiri, sérstaklega var smössunum
klúðrað illilega. Enginn bar af í því liði.
Bezti maður leiksins var dómarinn,
Björgólfur Jóhannsson. Aðstoðar-
dómari hans var Haukur Valtýsson.
Staðan í 1. deild karla er nú þessi:
Þróttur 10 10 0 30—6 20
ÍS 9 7 2 23—11 14
Víkingur 9 3 6 16—21 6
Fram 10 3 7 14—25 6
UMFL 8 0 8 4—24 0
-KMU
„Þetta var stórsigur fy rir
íslenzkan handknattleik”
— sagði Jóhann Ingi Gunnarsson eftir leikinn. Viðtöl að neðan við f jölmarga
Frá Halli Símonarsyni i Lundi í gær:
Eftir leikinn sveif Dagblaðið á leik-
menn beggja liða svo og nokkra aðra
og spurði þá álits á leiknum. Fyrstur
varð á vegi minum Kristján Sigmunds-
son, sem varði mark Víkinganna af
stakri prýði allan leikinn.
„Skot Svíanna voru erfiðari nú en
heima. Greinilegt að þeir hafa mjög
kynnt sér markvörzlu mína. Þeir skor-
uðu nú litið úr langskotum — því
meira með gegnumbrotum og úr horn-
unum. Maður getur kannski ekki beint
verið óánægður með frammistöðuna,
jafntefli 17-17, en þegar ég hugsa til
þess að hefði ég varið einu skoti meira
værum við komnir í undanúrslitin
verður ánægjan minni.”
Vona að landsliðið verði
byggt upp á Víkingum
Næst hitti ég Jón Hjaltalín, en hann
er nú staddur í Lundi. „Þessi viðureign
Vikings og Lugi tapaðist í heimaleikn-
um. Ég er þó ekki sáttur við þýzku
dómarana þegar þeir slepptu vítakasti á
Svíana eftir Ijótt brot á Árna. Þá voru
10 mín. eftir og ég hef ekki séð öllu
augljósara vitabrot. Bæði lið voru
mjög örugg í leik sínum, náðu góðum
leikfléttum. Þó fengu Víkingar ekki að
leika sinn eðlilega leik. Svíarnir alltaf
seigir og bíða eftir marktækifærunum.
Hinn ungi Heinonen kom mjög á
óvart. Lék sinn langbezta leik með
Lugi hingað til. Hefur litið skorað í
Allsvenskan. Þá varði markmaður Sví-
anna, Mats Ohlson, tvívegis á mikil-
vægum augnablikum þegar staðan var
14-12 fyrir Víking. Ég vona að íslenzka
landsliðið verði byggt upp á Vikingun-
um. Þýðingarmikið að geta stillt upp
svo samstilltu liði. Sjö Víkingar í byrj-
unarliðinu gæti verið mikill styrkur.”
„Ég er ósáttur við dómarana að fá
ekki vítakast þegar greinilega var gripið
í handlegginn á mér,” sagði Árni Ind-
riðason, „en við brottreksturinn var
kannski ekkert hægt að segja. Dómar-
arnir dæmdu yfirleitt vel og voru sjálf-
um sér samkvæmir,” bætti Árni við.
Góð barátta
„Það var geysilega góð barátta í öllu
liðinu til siðustu mínútu,” sagði Páll
Björgvinsson. „Ég get eingöngu kennt
mér um að sigur vannst ekki. Mér mis-
tókst að skora úr vítakasti og skoraði
ekki tvívegis eftir að hafa komizt frir í
gegn. Og þá er ekki talað um fyrri leik-
inn þegar ég var útilokaður. Þessi
leikur gat farið alla vega. Það eru vissu-
lega mikil vonbrigði að komast ekki
áfram. Við höfðum gert okkur miklar
vonir — kannski ekki beint leikmenn
liðsins heldur íslendingar í heild. Það
setti talsverða pressu á liðið. Þá vil ég
þakka áhorfendum fyrir þátt þeirra —
hann var frábær. Að koma hingað til
Lundar að styðja svo vel við bakið á
okkur yljaði okkur um hjartarætur.”
Jöfn lið
„Þetta var góður leikur og liðin voru
mjög áþekk að getu,” sögðu v-þýzku
dómararnir Wilfried Petens og Edgar
Reichen. „Sterkar liðsheildir hjá
báðum liðum en enginn afburðaleik-
maðúr.”
„Ég taldi víst að möguleikarnir væru
svona 50-50,” sagði Claes Ribendahl,
,,og reiknaði með jöfnum leik.” Vík-
ingur er mjög sterkt lið — það vissi ég
áður en að leikjunum við þá kom. Éger
vissulega tnjög ánægður með úrslitin,
en við eigum enga möguleika á að
komast i úrslitin.”
Vil fá Júgóslavana
„Ég er himinlifandi meðminn þátt,”
sagði Thomas Heinonen, stjarna Lugi.
„íslenzka liðið er mjög gott með Aðal-
steinsson sem bezta mann. Ég hélt fyrir
leikinn að möguleikar okkar væru öllu
meiri, eins og kom e.t.v. á daginn, og í
undanúrslitunum vil ég helzt mæta
Júgóslövunum.”
„Þetta var frábær leikur,” sagði
Kurt Wadmark, formaður Lugi. „ís-
lenzka liðið var mun betra — lék mun
fágaðri sóknarleik. Vikingsliðið er mun
betra en ég hélt það væri. Dómararnir
voru góðir. Ja, det var mycket braa,”
sagði hann, en hann var þarna ásamt
formanni sænska handknattleikssam-
bandsins.
Mjög góður leikur
„Þetta var mjög góður leikur af
hálfu Víkinganna, en ástæðan fyrir því
að Víkingur komst ekki áfram var sú
að Páll náði sér ekki á strik í sókn-
inni,” sagði Jóhann Ingi Gunnarsson,
fyrrverandi landsliðsþjálfari. „Það var
heppni hvoru megin sigurinn lenti. Vík-
ingur á fullt eins erindi í undanúrslitin
og Lugi. Leikurinn var í heild sigur
fyrir íslenzkan handknattleik. Það er
gott aðnájafntefli við Lugi á útivelli.”
Loks hitti ég fyrir Bertil Anderson,
þjálfara Lugi. „Ég er afar ánægður
með þessi úrslit. Liðin léku bæði
taktískan handknattleik og þó ég hafi
ekkert vitað um liðið fyrir leikina gegn
Víking þekkti ég öll þessi pólsku kerfi
og gat hagað undirbúningi liðsins sam-
kvæmt því. Markvarzlan var góð hjá
báðum liðum og það jafnaðist upp.
Víkingur er lið, sem aldrei lætur deigan
.síga og þess vegna gátum við aldrei
slakað á. Ef ég þarf að segja það þá vil
ég helzt fá Júgóslavana í undanúrslitun-
um. Af íslenzku leikmönnunum kom
Birgisson mér mest á óvart. Hann rétti
okkur knöttinn 5 sinnum á silfurfati í
fyrri leiknum en nú var hann geysilega
sterkur, bæði í vörn og sókn.”
Steinari. Loks fékk Lugi vítakast á 25. |
mínútu en skot Ribendah! hafnaði
marksúlunni. Á næstu mínútu skoraðil
Árni gullfallegt mark af línunni er hannl
vippaði yfir Ohlson. Davidson komf
Lugi þá í 9-7 og svo fengu Vikingarj
vítakast. Ohlson gerði sér hins vegarl
lítið fyrir og varði frá Árna. Víkingarl
fengu knöttinn aftur en Ohlson varðil
skot Steinars. Rétt fyrir lok hálfleiksins|
komst Andrén í dauðafæri á línunni enl
Kristján varði skot hans með tilþrifum. |
Sannir Víkingar
Það var greinilegt að Bogdan Kowal-|
czyk hafði talað yfir hausamótunum ál
sinum mönnum í hálfleik þvi Víking-jt
arnir komu tvíefidir til leiks eftir leik-
hlé. Guðmundur minnkaði muninn í 8-
9 eftir 40 sek. og rétt á eftir var klaufa-
lega dæmt mark af Þorbergi. Hann I
iafnaði metin hins vegar á 6. mín. s.h., f
9- 9- Og síðan komst Víkingur yfir, 10-
9, Árni Indriðason úr hraðaupphlaupi!
eftir sendingu Steinars. Heinonen vari
svo enn á ferðinni fyrir Lugi og jafnaði!
10- 10, en tvö mörk Þorbergs á skömm- í
um tíma komu Vikingum í 12-10. |
Geysilegur hávaði var nú hjá íslenzku:
áhorfendunum, sem iðulega yfir-
gnæfðu Sviana með hrópum sínum.
Heinonen var ekki hættur og skoraði |
11. markið en Þorbergur svaraði með
marki úr vítakasti eftir að brotið hafði!
verið á Steinari, 13-11. Sjögren (víti):
lagaði stöðuna í 12-13 og siðan lét Páll
verja frá sér er hann komst einn upp
allan völl á 15. mín. Þorbergur kom þó !
Víking I 14-12 en þá var Árna vikið af|
leikvelli og það hafði alvarlegar af-:
leiðingar. Víkingar misstu taktinn og:
Kosak skoraði 13-14 og Hanson;
jafnaði, 14-14. Mikill darraðardans;
stiginn og menn voru undrandi er;
brotið var mjög gróflega á Árna, fljót- i
lega eftir að hann kom aftur inn á, á\
línunni en ekkert dæmt. Siðan varði
Ohlson frá Steinari og Páli og loks var
dæmdur ruðningur á Guðmund og|
Kosak kom Lugi í 15-14 á 25. mín. s.h.
Þorbergur jafnaði, 15-15, er 4 mín.i
voru eftir. Hanson skoraði 16-15 og 3:
mín. eftir og síðan var Ribendahl vísaðj.
af leikvelli.Þorbergur jafnaði enn, 16-P
16 og tvær og hálf mínúta eftir. John-[j
son skoraði 17. mark Lugi er 70 sek.;
voru eftir og lokakaflanum hefur áðurj
verið lýst. Lugi hélt knettinum út leik-|
tímann og tókst reyndar að skora mark|
en flautað hafði verið til leikslokal
einum 3 sek. áður.
Varnarleikur beggja liða var mjögl
góður yfirleitt — mikil barátta. Enj
sóknarleikurinn hefur oft verið beittaril
hjá Víkingi. Svíar virtust gjörþekkja|
hvert einasta leikkerfi þeirra og klipptui
hornamennina bókstaflega út úr leikn-
um. Auk þess höfðu þeir mjög strangarj
gætur á Þorbergi allan tímann — léku|
mjög framarlega. Varnarleikurinn varf
aðall Víkingsliðsins, en einstaklings-
framtakið réð meira i sókninni. Mark-j
varzlan góð. Steinar var frábær i fyrrij
hálfleiknum, en þá tókst Svíum að verj-j
ast skotum Þorbergs. Annað hvortj
varði vörnin eða Ohlson í markinuj
Þorbergur náði sér hins vegar mjög vels
á strik í siðari hálfleiknum og skoraðig
þá 7 mörk. Svíunum tókst ekki að
stöðva hann þá þrátt fyrir gæzluna.l
Það er athyglisvert í leiknum að Riben-j
dahl, frægasti leikmaður SvíannaJ
skorar aðeins eitt mark. Nýtt fyrir hann
í leik. Hins vegar sló Thomas Heinonen
í gegn — hefur aldrei leikið slíkan leik|
áður. „Við áttum að sigra i þessum leik
þvi Steinar skoraði 5 mörk — maður-|
inn með hvað minnstu leikreynsluna,’
sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Vík-j
inganna í leikslok.
Mörkin skiptust þannig: Víkingur^
Þorbergur Aðalsteinsson 8/1, Steina
Birgisson 5, Árni Indriðason 2, Guð-I
mundur Guðmundsson og Páll Björg-:
vinsson 1 hvor. Lugi: Heinonen 6,;
Davidson 2, Jonson 2, Sjögren 2)
Kosak 2, Hanson, Andrén og Ribem
dahl 1 hver.
Iþróttir
Stórleikur
íkörfu íkvöld
í kvöld fer fram stórleikur í körfunni
þar sem Valur og KR mætast í Höllinni
kl. 20. Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu Njarðvík á föstudagskvöld og
eru vafalitið í vígahug. KR-ingar hafa
eitthvað misst flugið að undanförnu en
þeir eru eina liðið, auk Vals, sem borið
hefur sigurorð af Njarðvík. Það ætti
því að geta oröið fjör í kvöld þegar
„Njarðvíkurbanarnir” mætast.
Grosswallstadl
er úr leik
Calipisa og Nettelstedt gerðu jafn- J
tefli, 20-20, í síðari leik iiðanna í Ali- j
cante á Spáni í gær. Nettelstedt vann
fyrri leikinn 25-14. Leikurinn var liður i
Evrópukeppni bikarhafa og í umferð- |
inni á undan sigraði Nettelstedt Hauka
21-18 og 17-12. Á sama tima sigraöi
CZKA Moskvu Grosswallstadt 24-20 á
heimávelli Þjóðverjanna, sem áltu
aldrei möguleika. Munurinn var um
tima 7 mörk en CZKA vann fyrri leik-
inn með 6 marka mun.
•
Feyenoord
slegið úr
bikarnum
„Það var ægilegt að horfa upp á
þetta,” sagði Pétur Pétursson við DB í
gær eftir að Feyenoord hafði verið
slegið út úr bikarnum á eigin heimavelli
af smáliðinu Haarlcm. „Heppnin var I
svo sannarlega með Haarlem,” sagði
Pélur. Feyenoord komst yfir, 1-0, en
Haarlem jafnaði á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Aftur komst Feyenoord yfir,
2-1, en Haarlem jafnaði á lokamínútu
leiksins. Þá var framlengt og enn komst
Feyenoord yfir, 3-2. Þegar dómarinn :
bjóst til að blása í flautuna til merkis j
um leikslok jafnaði Haarlem, 3-3. Þá
fór fram vitaspyrnukeppni og þar
sigraði Haarlem. Ajax malaði Twente
5-1 og AZ ’67 vann áhugamannalið 5- íj
2.
•
Siggi Gunn. til
búinn í slaginn
„Ég geri mér vonir um að Siggi ieikil
næsla lcik með Leverkusen gegn>
Dietzenbach um næstu helgi,” sagðij
Viggó Sigurðsson í spjalli við DB í gær.jj
„Hann hefur náð sér vel á strik að und-
anförnu og er oröinn góður af meiðsl-|
unum. Hann lék með varaliöinu 11111
hclgina og skoraði 5 mörk, þannig aðj;
hann á að vera tilbúinn í slaginn
aftur.” Sigurður meiddist sem kunnugtl
er á æfingu í byrjun október og hefur
verið frá keppni þar til fyrir skömmu.
, •
„Eg var bara
aðprófa
unglingana”
„Ég var bara að prófa mig áfran
með unglingalandsliðið,” sagði Vlado
Stenzel eftir tapleikinn gegn íslandi i sli
viku. Nær ekkert hefur verið sagt frá
landsleikjunum í þýzkum blöðum.
Stenzel lét þó hafa það eftir sér í einu
stórblaðanna að það væri heimska hjá
DHB (handknattleikssambandi V-
Þýzkalands) að setja leiki eins og þessa
gegn íslandi á með engum fyrirvara.
Bundesligu-liðin neituöu að lána leik-
menn sina i slika gervileiki. Þess má
geta í leiðinni að V-Þjóðverjar unmj
Dani fyrir skömmu og geröar voru
breytingar á því liði fyrir leikina gegn
íslandi.
Aðalfundur
Framhaldsaðalfundur handknattl
leiksdeildar Vals fer fram kl. 20 í kvöld
í félagsheimilinu að Hliöarenda.