Dagblaðið - 26.01.1981, Page 16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir
Manchester United og Liver-
pool eru ú r leik í bikamum!
—töpuðu bæði leikjum sínum í 4. umferð bikarsins þrátt fyrir hetjulega baráttu. Ipswich íbasli með
Shrewsbury og Leicester náði ekki nema jöfnu á heimavelli gegn Exeter
Everton var það lið, sem mesta
athyglin beindist að I ensku knatt-
spyrnunni á laugardag. Goodison liðið
lagði þá Liverpool að velli, 2—1, f
bikarkeppninni og var sá sigur mjög
sanngjarn þó svo Liverpool hafl gert
harða hrið að marki Everton undir
lokin. Enginn var þó ánægðari en Mick
Lyons, fyrirliði Everton. Þetta var
fyrsti sigurleikur hans gegn Liverpool
og þó hefur hann mætt Englands-
meisturunum 20 sinnum — aldrei
sigrað fyrr en nú. Everton hóf leikinn
með óskaplegum látum og náði strax
tökum á miðjunni og á 16. minútu
kom fyrra markið. Eftir mikinn
darraðardans i vítateig Liverpool
sendi Peter Eastoe knöttinn i átt að
marldnu. Áhöld eru um hvort hann
hafl skorað eða hvort Avi Cohen hafi
potað knettinum innfyrir marklínuna i
örvæntingarfullri tilraun sinni til að
forða frá marki. Eftir þetta hafði
Everton tögl og hagldir i leiknum og
ekki bætti úr skák hjá Liverpool er
Kenny Dalglish varð að fara af Eeikvelli
vegna meiðsla. Jimmy Case kom i hans
stað og hleypti miklum krafti í leik
Liverpool.
En það var samt Everton sem skor-
aði aftur. Imre Varadi sendi knöttinn í
netið á 60. mín. Liverpool sótti mjög
í sig veðrið eftir markið og á 78. mínútu
tókst Case að minnka muninn. Loka-
kaflann sótti Liverpool nær látlaust.
Hver sóknarlotan á fætur annarri buldi
á vörn Everton, sem var ekki allt of
örugg á köflum. Sóknarákafi Liver-
pool gerði það að verkum að vörnin var
galopin og Varadi var mikill klaufi er
hann komst einn í gegn á 87. mínútu.
Hann lék á Clemence í markinu og autt
markið biasti við honum. Skotið
geigaði illilega og boltinn sigldi yfir
þverslána. Það kom þó ekki að sök og
Everton hélt fengnum hlut þar til flauta
dómarans gall. Mikill fögnuður greip
um sig á meðal áhangenda liðsins og
mörg hundruð þeirra hlupu inn á leik-
vanginn og föðmuðu leikmenn
Everton. E.t.v skiljanlegt þar sem yfir-
H
Trevor Francis skoraði sigurmark
Forest gegn United.
burðir Liverpool í innbyrðis viðureign-
um liðanna sl. áratug hafa verið
ótrúlegir. En kíkjum á úrslitin í
Englandi áður en við höldum lengra:
Enski bikarinn
4. umferð
Barnsley-Enfield 1 — 1
Carlisle-Bristol City 1 — 1
Coventry-Birmingham 3-2
Everton-Liverpool 2—1
Fulham-Charlton 1—2
Leicester-Exeter 1 — 1
Manchester C.-Norwich 6—0
Middlesbrough-WBA 1—0
Newcastle-Luton 2—1
Nottingham F.-Manchester U. 1—0
Notts. County-Peterbrough 0—1
Shrewsbury-Ipswich 0—0
Southampton-Bristol R. 3—1
Tottenham-Hull 2—0
Watford-Wolves 1 — 1
Wrexham-Wimbledon 2—1
2. deild
Bolton-Derby 3—1
Cambridge-Sheffield Wed. 0—2
3. deild
Brentford-Walsall 4—0
Chester-Millwall 0—1
Gillingham-Chesterfield 1—0
Huddersfield-Rotherham 1—0
Plymouth-Oxford 3—0
Portsmouth-Blackpool 3—3
Swindon-Reading 3—1
4. deild
Southend-Northampton 0—0
Aldershot-Wigan 0—1
Bournemouth-Torquay 1 — 1
Darlington-Bury 2—1
Doncaster-Hartlepool 1—2
Halifax-Stockport 2—0
Lincoln-Crewe 2—1
Mansfield-Port Vale 5—0
Rochdale-T ranmere 3—1
York-Hereford 1—2
Nottingham Forest mátti teljast
heppið með að halda forskoti sínu gegn
Manchester United. Forest skoraði eina
mark leiksins á 14. mínútu er Trevor
Francis hafði betur í baráttu við Gary
Bailey og skallaði í netið eftir horn-
spyrnu John Robertson. Forest réð’
algerlega gangi leiksins í fyrri hálfleik
en í þeim síðari snerist dæmið við.
United fékk þó engin verulega opin
færi.
Sorg og gleði
Eiginkona John Bond, fram-
kvæmdastjóra Manchester City, og
móðir Kevin Bond, bakvarðar hjá
Norwich, komst í klípu á laugardag.
Eiginmaðurinn kom kampakátur heim
eftir 6—0 sigur sinna manna á liði
sonarins, sem var að vonum niður-
brotinn. Ekki fer frekari sögum af
viðbrögðum eiginkonunnar/móður-
innar en City tók Norwich í karphúsið
svo um munaði og framfarir liðsins
undir stjórn John Bond eru ótrúlegar.
Norwich tókst að halda í við heimaliðið
fram að 20. mínútu en þá skoraði
Kevin Reeves fyrsta markið. Hann var
sem kunnugt er áður miðherji
Norwich. Gerry Gow bætti öðru við á
25. mínútu og á lokamínútu fyrri hálf-
leiksins skoraði fýrirliðinn, Paul
Power. Og markaregnið hélt áfram.
Steve McKenzie skoraði á 74. minútu.
Paul Bennett á 77. mín. og bak-
vörðurinn Bobby McDonald setti
punktinn yfir i-ið með sjötta markinu
á 90. mínútu.
Ipswich íbasli
Ipswich lenti í verulegum vand-
ræðum með 2. deildarlið Shrewsbury,
sem erfitt hefur átt uppdráttar í vetur.
Litið var um marktækifæri í leiknum
en engu að síður mikill hraði og hama-
gangur. Það næsta sem menn komust
því að skora var á 78. mín. er Paul
Cooper, markvörður Ipswich, varði
glæsilega þrumufleyg frá Biggins.
Ipswich ætti að sigra örugglega er liðin
mætast aftur á Portman Road á
morgun.
Tottenham lenti einnig í miklum
vandræðum með Hull, sem situr á
botni 3. deildarinnar. Þó leikið væri á
heimavelli Spurs, White Hart Lane,
virtist það ekki breyta neinu. Hull lék
stífan varnarleik og í markinu varði
Tony Norman eins og berserkur. Það
var ekki fyrr en á 83. mínútu að
Tottenham skoraði fyrra mark sitt.
Garry Brooke var þá nýkominn inn á
fyrir Osvaldo Ardiles og lét sig ekki
muna um að skora með sinni fyrstu
spyrnu á markið. Liltu síðar bætti
Steve Archibald öðru marki við — hans
20. í vetur.
Úlfarnir áttu einnig erfitt uppdrátt-
ar á útivelli gegn Watford. Þó Úlfarnir
væru mun sterkari aðilinn á vellinum
virtist það ætla að duga þeim skammt
því Gerry Armstrong kom Watford yfir
á 45. mínútu. Það tók Úlfana hins veg-
ar ekki nema 6 mínútur að svara fyrir
sig og var þar að verki John Richards
eftir góðan undirbúning Mel Eves.
Andy Gray lék með Úlfunum eftir
langa fjarveru og gerði mikinn usla í
vörn Watford, án þess þó að skora
mark.
Spenna á
Highfield Road
Mikil spenna var í Coventry, þar í
sem heimaliðið og Birmingham
mættust. Coventry komst í 2—0 með
mörkum Gerry Daly og Andy Blair en á
upphafsmínútum síðari hálfleiksins
jafnði Birmingham. Fyrst skoraði
Worthington úr vítaspyrnu og síðan
Alan Ainscow. Leikmenn Birmingham
voru ekki búnir að jafna sig er dæmd
var vítaspyrna á þá. Mótmæltu þeir
henni mjög kröftuglega en allt kom
fyrir ekki. Gerry Daly skoraði af öryggi
úr henni og þannig lauk leiknum.
West Bromwich Albion, sem
veðmangarar töldu líklegasta liðið til
sigurs í bikarnum í ár, féll út á
Ayrsome Park í Middlesborough. Það
var Bailey sem skoraði fyrir Boro í fyrri
hálfleiknum — hans fyrsta mark fyrir
Boro. Albion sótti látlaust í síðari hálf-
leiknum en tókst ekki að skora hvað
sem reynt var. I ákafanum gleymdu
þeir hins vegar vörninni og á 83.
mínútu komst Bosco Jankovic einn upp
allan völl og var að lokum brugðið
innan vítateigs. Vítaspyrna dæmd en
Tony Godden varði spyrnu David
Armstrong með tilþrifum. Það kom þó
Albion ekki til góða, því tapið varð
staðreynd, er blásið var til leiksloka.
Aðrir leikir
Eina utandeildaliðið, sem eftir er i
bikarnum, Enfteld, á enn möguleika
eftir hetjulega baráttu við eitt af efstu
liðum 3. deildarinnar, Barnsley.
Barnsley leiddi 1—0 þar til langt var
liðið á leikinn. Áhugamannaliðið lét þó
sinn hlut ekki átakalaust og tókst að
jafna fyrir leikslok.
Leicester gengur alls staðar jafnilla.
Náði aðeins jafntefli gegn Exeter á
Filbert Street. Martin Henderson kom
Leicester yfir en Fuller jafnaði fyrir
smáliðið. Leicester gæti hæglega lent í
vandræðum með Exeter á útivelli er
liðin mætast á miðvikudagskvöld.
Charlton hafði betur i viðureign
sinni við nágrannaliðið Fulham. Shaw
og Hales skoruðu fyrir Charlton en
Gordon Davies minnkaði muninn fyrir
Fulham. Coaty kom Carlisle yfir gegn
Bristol City en Mabbutt jafnaði áður
en yfir lauk. Mick Martin og Ingham
skoruðu mörk Newcastle gegn Luton
og þetta var annar sigur Newcastle á
Luton á einni viku. Robbie Cooke kom
Peterbrorough áfram i 5. umferðina er
hann skoraði sigurmarkið á Meadow
Lane í Nottingham. Steve Moran
virðist vera gersamlega óstöðvandi og
þessi ungi piltur hefur nú skorað hátt í
20 mörk í jafnmörgum leikjum fyrir
Southampton. Hann skoraði tvö gegn
Bristol Rovers og Williams gerði hið
þriðja. Williams svaraði fyrir Bristol
Rovers og botnliðið í 2. deildinni getur
vel við unað. Þeir Steve Fox og gamla
kempan Dixie McNeil skoruðu mörk
Wrexhamgegn Wimbledon. -SSv.
STAÐA HAMBURGER STYRKIST
—Bayem og Dortmund gerðu jafntef li á meðan Hamburger vann Niirnberg
Frá Hilmari Oddsyni, fréttaritara DB i
Múnchen:
Hamborg styrkti stöflu sina verulega
á toppi Bundesligunnar um helgina
með naumum sigri gegn Núrnberg á
sama tima og Bayern stóðu i ströngu
gegn Borussia Dortmund. Hamborg
hefur nú stigi meira á toppnum og á
leik til góða og baráttan stendur enn
nær eingöngu á milli þessara tveggja
liða. Litum nú á úrslitin:
Leverkusen — Köln 1-1
Dússeldorf — Uerdingen 4-2
Dortmund — Bayern 2-2
Karlsruher — Bochum 0-0
Stuttgart — Kaiserslautern 1-0
1860 MUnchen — Duisburg 1-3
Schalke 04 — Gladbach 2-2
Hamborg — Nörnberg 1 -0
Bielefeld — Frankfurt frestað_
Það var Felix Magath sem skoraði
eina mark Hamborgar af vítateig gegn
Miiller steinlá
50 m f rá marki
Ekkert virtist geta komið i veg fyrir
sigur Peter Múller frá Svlss er hann
geystist áfram siðustu metrana i hinni
erfiðu braut í Wengen fyrir neðan tind
Eiger-fjallsins um helgina. Múller átti
aðeins um 50 metra ófarna i markið
er hann steinlá eftir 30 metra stökk.
Hægra skiðið skrikaði undan honum og
sigurinn fór fyrir bi. Toni Búrgler,
landi hans, hirti efsta sætið fyrir vikið.
Weirather frá Austurriki varð annar og
Steve Podborski varð þriðji — nánar á
morgun.
Nilrnberg en í heildina þótti leikurinn leiksins á 60. minútu hinum 35.000 Hamborg 18 14 2 2 46-19 30
slakur. öðru máli gegndi um leik Dort- áhorfendum til óblandinnar ánægju. Bayern 19 12 5 2 45-24 29
mund og Bayern. Þar var uppselt, Förster-bræðurnir og Möller voru frá- Stuttgart 19 10 5 4 39-25 25
54.000 áhorfendur, og kuldahrollur fór bærir hjá Stuttgart en hjá Kaiserslaut- Kaisersl. 18 10 3 5 35-21 23
um þá í nepjunni er Breitner skoraði ern var það sem oft áður Briegel sem Dortmund 18 8 4 6 38-30 20
strax á 4. mínútu fyrir Bayern eftir að mest bará. Frankfurt 17 8 3 6 31-32 19
Höness hafði „blokkerað” varnar- Bittcher skoraði bæði mörk Schalke Köln 18 6 6 6 32-30 18
mann af. Siðan jafnaði Wagner á 25. 04 gegn Gladbach en þeir Hannes og Leverkusen 18 4 9 '5 27-24 17
mínútu eftir að Burgsmilller hafði átt Mathuas svöruðu fyrir gestina. Hans Duisburg 18 5 7 6 26-29 17
þrumuskot að marki. í síðari hálfleikn- Engels skoraði mark Kölnar gegn ■ Karlsruher 19 4 9 6 25-35 17
um skoraði Huber úr vítaspyrnu fyrir Leverkusen, sem náði forystu með Nörnberg 19 6 4 9 31-32 16
Dortmund eftir að Augenthaler hafði marki Norðmannsins Lars Arne Ök- Bochum 18 3 10 5 24-27 16
brugðið Abramczik illa. Fjórum min. land. DUsseldorf komst í 4-0 gegn Gladbach 18 6 4 8 26-36 16
fyrir leikslok tókst svo Kraus að jafna Uerdingen með mörkum Seel, Weikl, Dösseldorf 18 5 5 8 31-38 15
fyrir Bayern og þar við sat. sjálfsmark Held og Wenzel en loka- 1860Mönchen 18 5 4 9 27-35 14
Stuttgart sigraði Kaiserslautern í kaflann svöruðu þeir Kanders og Uerdingen 18 4 5 9 27-36 13
hörkuleik og komst við það í 3. sætið. Hahn. Schalke 04 18 4 4 10 26-49 12
Það var Kelsch sem skoraði eina mark Staðan er nú þannig í Bundesligunni: Bielefeld 17 2 5 10 23-37 9
L0KEREN SK0RAÐI10IMORK
— Standard vann góðan sigur á útivelli og sækir á
Það gekk ekkert lítið á í belgísku 1.
deildinni í gær. Lokeren sigraði
Berchem 10-1 og FC Liege, semvarog
er reyndar enn næstneðst i deildinni
sigraði Winterslag 5-0. Arnór
Guðjohnsen lék ekki með Lokeren
gegn Berchem sem hóf keppnistíma-
bilið afar vel. Hlaut 8 stig úr fyrstu 5
leikjunum en hefur síðan aðeins hlotið
6 stig úr 13 leikjum. Úrslitin urðu þessi
í gær:
Anderlecht—Gent 2—0
Courtrai—Molenbeek 0—3
Beerschot—Lierse 1—1
FC Liege—Winterslag 5—0
Beringen—CS Brugge 2—1
Lokeren—Berchem 10—1
FC Brugge—Beveren 3—0
Waterschei—Standard 1—2
Antwerpen—Waregem 0—0
Standard Liege vann góðan sigur á
Waterschei og þar sem Beveren steinlá
fyrir FC Brugge munar nú aðeins einu
stigi á Beveren og Standard. Ander-
lecht virðist vera óstöðvandi með öllu.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Anderlecht
Beveren
19 15
19 12
2 38—12 32
3 33—15 28
Standard
Lokeren
Molenbeek
FC Brugge
Lierse
Waregem
Gent
Winterslag
Courtrai
Antwerpen
CS Brugge
Berchem
Beringen
Watershcei
FC Liege
Beerschot
19 11
19 10
19 10
18
18
19
19
19 8
19
18
19
18
19
18
18
19
3 11
2 11
3 11
3 13
39—23 27
38—20 23
29—28 22
37—26 20
29— 24 20
23 —24 19
33—28 18
23 —29 18
24—31 17
24—31
30— 38
18—38 14
27—42 13
33—46 12
26—31 11
16—32 9
17
16