Dagblaðið - 26.01.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
17'
I
Iþröttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Valssigur í raf magnaðri spennu
—Valur hleypti aukinni spennu í úrvalsdeildina í körfu með 73-72 sigri í Njarðvík
Körfuknattleikur, úrvalsdeild,
UMFN—Valur, 71-72 (44-36)
Njarðvikingum ætlar seint að takast
að festa báðar hendur á íslands-
meistarabikarnum. Undanfarin ár
hefur oft legið nærri, en á lokasprett-
inum hafa þelr misstigið sig og misst af
lestinni. Hvort sama verður uppi á
teningnum í ár er ekki alveg vist en i
leiknum við Val suður i Njarðvik á
föstudagskvöldið gátu Njarðvikingar
svo til alveg tryggt sér titillnn með þvi
að sigra Valsmenn. Sú von varð að
engu þvi Valsmenn stóðu uppi sem
sigurvegarar að leikslokum með 73
skoruð stig gegn 72. Liðsmenn UMFN
tóku ósigrinum karlmannlega og ósk-
uðu mótherjunum til hamingju með
unninn leik. Þrátt fyrir tapið hafa
Njarðvíkingar ennþá fjögurra stiga for-
skot í deildinni. „Vissulega hefði verið
þægilegt að fá átta stiga forskot með
þvi að sigra Val,” sagði Bjarni Valtýs-
son, stjórnarmaður UMFN, ,,en
ósigurinn skapar spennu að nýju og
færir okkur meiri tekjur,” og klappaði
um leið á streituskjóðuna. Einnig tjáði
hann okkur að áhorfendur hefðu verið
á sjöunda hundrað og komust færri að
en vildu.
Það leit út fyrir að Njarðvíkingar
Staðan í
úrvalsdeildinni
Staðan í úrvalsdeildinni er nú þannig
eftir tvo síðustu leiki:
ÍR-ÍS
Njarðvík-Valur
Njarðvík
Valur
KR
ÍR
ÍS
Ármann
14 12
14 10
13 8
15 7
14 4
83—63
72—73
2 1382—1151 24
4 1232—1154 20
5 1133—1043 16
8 1238—1255 14
10 1135—1226 8
14 1 13 1044—1335 2
Jón bjargaði
æfingunni
Frá Halli Simonarsyni i Lundi i gær:
Þegar vitað var að Víkingar kæmust
ekki til Lundar fyrr en kl. 20 á laugar-
dagskvöld hafði Eysteinn Helgason,
formaður handknattleiksdeildar Vík-
ings, sem staddur var í Kaupmanna-
höfn, samband við formann Lugi og
óskaði eftir að æfingatíminn sem
Víkingur átti um daginn yrði færður
aftur. Formaður Lugi taldi það úti-
lokað — húsinu lokað kl. 18 og engu
hægt að breyta. Eysteinn hafði þá sam-
band við Jón Hjaltalín, sem hefur
dvalið hér siðan á fimmtudag og var
hann fljótur að kippa málinu í lag. Fór
í íþróttahúsið — talaði við forstöðu-
manninn og rétti honum viskíflösku og
fékk æfingatíma kl. 21. Strákarnir fóru
þangað fljótt eftir komuna og æfðu í
tæpar 2 klukkustundir.
ætluðu að ganga með sigur af hólmi.
Þeir höfðu átta stiga forustu í hléi.
Danny Shouse var í miklum ham
framan af leiknum, skoraði átta af
fyrstu tólf stigunum — seinustu körf-
una fyrir hlé — þá „tróð” hann með
miklum tilþrifum, við gífurleg
fagnaðarlæti áhorfenda. En hann var
ávallt í strangri gæzlu Brad Miley og.
varð því oft að hafa mikið fyrir þvi að
skora, enda kom að því að hann tók að
þreytast í byrjun seinni hálfleiks. Skot-
fimin brást og það virtist hafa 'smit-
andi áhrif á samherjana sem brást illa
bogalistin hvað eftir annað. Skoruðu
aðeins fjögur stig á fyrstu 9 mínútum
seinni hálfleiks á meðan að Valsmenn
hittu í hverju skoti, sérstaklega Rík-
harður Hrafnkelsson, sem var bezti
maður Valstiðsins. Áður en heima-
menn höfðu áttað sig voru gestirnir
búnir að jafna metin, 48-48, og náðu
svo yfirtökunum um sinn. Með harð-
fylgi Guðsteins Ingimarssonar og
seinna Danny Shouse, sem kom inn á
eftir stutta hvild, náðu Njarðvíkingar
aftur yfirhöndinni, 68-64, en Pétur
Guðmundsson sýndi hvers virði hann
er Valsliðinu, átti stærstan þátt í sigrin-
um. Þegar 17 sek. voru eftir var staðan
73-72 Valsmönnum í vil. Danny Shouse
reyndi i örvæntingu að brjótast í gegn
en Valsvömin var vel skipulögð —
hvergi smugu að finna. Langskot hans
á seinustu sek. geigaði og Valsmenn
fögnuðu sigri með miklum stríðsdansi.
Þar með var lokið einhverjum bezta
og skemmtilegasta leik í Njarðvík —
leik mikils hraða, skemmtilegs spils,
hörku varnarleiks, en hittnin mátti vera
betri. Þess ber þó að gæta að varnar-
Ieikurinn var það sterkur að tinrii til að
stilla sigtin var ekki rúmur, sérstaklega
kom það heimamönnum úr jafnvægi.
„Ég held að við hðfum leitað heldur
mikið að Pétri Guðmundssyni áður en
við skutum,” sagði Gunnar Þorvarðar-
son, fyrirliði UMFN,” af ótta við að
honum tækist að hremma knöttinn í
allri sinni lengd, þótt Jónas gætti hans
vel.” Og víst er um það að Pétur náði
mörgum fráköstum og það gerði Jónas
reyndar líka, en til að gera Pétur óvirk-
an hefði varla dugað annað en helzt
einhver á „stultum” í UMFN-liðinu,
svo hátt gnæfðu hendur hans yfir aðra
leikmenn.
Hreggviður Ágústsson, unglingalandsliðsmarkvörður úr Eyjum, hefur nú ákveðið að ganga til liðs við FH. Á myndinni með
honum eru fyrir miðju Magnús Jónsson, formaður knattspyrnudeildar FH, og til vinstri Þórir Jónsson, sem bæði hefur þjálf-
að og leikið með FH undanfarin sumur.
Blikamir missa nú enn
eina fjöður úr hattinum
— Ingólf ur Ingólfsson ætlar að ganga til liðs við Eyjamenn.
Heimir orðaður við ísf irðinga
Eftir því sem vifl komumst næst I sækni framherji þeirra Breiðabliks-
mun það vera næsta vist afl hinn mark- | manna, Ingólfur Ingólfsson, gengur til
Stórgóður árangur
Guðmundar í Svíþjóð
stökk 2,06 m í hástökki innanhúss á móti í Finspáng
Guðmundur R. Guflmundsson, há-
stökkvarinn úr FH, sem nú er vifl nám i
Sviþjóð gerfli sér litið fyrir og stökk
2,06 metra á innanhússmóti, sem fram
fór i Finspáng fyrir réttri viku.
Þess má geta að þetta er næstbezti
árangur íslendings i hástökki innan-
húss — aðeins Jón Þ. Ólafsson hefur
stokkið hærra. Guðmundur var vel
upplagður er keppnin í Finspáng fór
fram og fór hann yfir allar hæðirnar í
1. tilraun.
Það má því búast við bættum
árangri Guðmundar i hástökkinu i
sumar og er ekki fjarri lagi að ætla að
hann höggvi nærri íslandsmeti Jóns,
2.11 m, áður en langt um iíður. Met
jóns er nú með þeim elztu i frjálsum
íþróttum hérlendis.
-SSv.
liðs við Eyjamenn fyrir keppnistimabil-
ið. Er þvi útlitið hjá Blikunum ekki allt
of bjart. Þeir hafa misst Sigurfl
Grétarsson út til Þýzkalands og farí svo
að hann snúi heim verður hann ekki
löglegur fyrr en i ágústbyrjun.
Þá þykir það næsta öruggt að Blik-
arnir missi báða miðverði sína út til
Svíþjóðar, Einar Þórhailsson hyggur á
frekara nám í Svíþjóð og þá mun Bene-
dikt Guðmundsson einnig hafa Sví-
þjóðarför í huga.
f einu dagblaðanna var greint frá því
fyrir helgi að svo kynni e.t.v. að fara að
Heimir Bergsson frá Selfossi gengi til
liðs við Eyjamenn. Áður hefur Heimir
verið orðaður við FH en við höfum
fyrir víst að Magnús Jónatansson, sem
þjálfa mun fsfirðinga i sumar, hafi rætt
við Heimi um að leika með ísfirðingum
í sumar.
-SSv.
f jafnspennandi leik og þessum, þar
sem fast er sótt og hart varizt, hljóta að
koma upp atvik þar sem mikið reynir á
hæfni dómaranna og menn ekki á eitt
sáttir um úrskurð þeirra. Þeir Jón Otti
og Erlendur Eysteinsson dæmdu svo
sannarlega erfiöan leik en skiluðu hlut-
verki sínu meistaralega.
Stigin: UMFN, Danny Shouse 29,
Guðsteinn Ingimarsson 12, Jónas
Jóhannesson 11, Gunnar Þorvarðarson
9 Valur. Pétur Guðmundsson 22, Rík-
harður Hrafnkelsson 20 Brad Miley 12.
Torfi Magnússon 10. -emm.
Tilboös-
verð á kinda-
bjúgum
KJÖTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHUD - SiMI 35645
ANTIK
HRINGSTIGAR
cAii aH
>i*A
Hæð að vild
Þvermál 122 cm
Uppl. gefur Jón,
sími 11630
BORGARTUN118
REYKJAVÍK SfMI 27099
SJÓNVARPSBÚÐIN
QgGfíKvI®
o <N 7800 7410
22" 8550 8120
26" 9925 9430
Verð Staðgr.