Dagblaðið - 26.01.1981, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
I
Efiia til minningartónleika um Lennon
Eistnavefjur
og lœrakonfekt
Þá er þorrinn genginn i garð með
tilheyrandi áti á alls kyns þjóðlegum
matföngum: sviðasultu, magálum,
slátri, hákarli, súrsuðum bringum,
súrum hval, harðfiski, hangikjöti,
flatkökum og rúgbrauði með viðbiti
og fleiru og fleiru gómsætu. Að
ógleymdu tári af ísköldu brennivíni.
Kaupmenn og veitingamenn hamast
við að bjóða matmönnum sem girni-
legasta fyllingu í þorratrogin. Ein-
hvern tíma kom það fyrir að kaup-
manni einum óaði að auglýsa
hrútspunga til sölu með sínu rétta
heiti og kallaði þessi gómsætu líffæri
í staðinn millilærakonfekt. Annar
kaupmaður auglýsti á dögunum ,,úr-
vals súrmat í þorrablótið”. Þar á
meðal eitthvað sem hann kallaði
eistnavefjur, hvað sem það nú er.
Ónefndur Hafnfirðingur með upp-
hafsstafina SSv las auglýsinguna og
spáði í hvað fyrir nokkuð þessar
eistnavefjur væru. Komst hann helzt
að því að það væru súrsuð hrútseistu
sem beikonsneið væri vafið um og
kokkteilpinna stungið i gegnum!
Hvað um það: Gleðilegan þorra og
góða matarlyst.
Finnur
i fjölhsefi tónUsta,™*"‘dTtti' °™yngur meö hljómsveitinniog
,ne hans, Helene harmön,kuleikari. AHreö
hennar eru Jóhannes J jóhannsson sem leikur a
nleikari og söngvar/Ofl hljómsveit nú um háHs ars
hnur hefur ekki prlgramm aö undanförnu og
^ZTeZT^umhloröurlandánms.nn^
íslendingur.
ASGEIR
TÓMASSON
Reagan og
pólitíkin
í Kananum
Fjölmargir íbúar á SV-horninu
fylgdust af áhuga með beinum út-
sendingum Keflavikurútvarpsins af
gíslamálinu og valdatöku Reagans
vestur þar. Var í þeim fréttapistlum
m.a. lýst nákvæmlega hátíðahöldun-
um í Washington þegar kvikmynda-
leikarinn fyrrverandi tók við embætti
og var að heyra að allt væri þar með
miklum glæsibrag. Snemma á þriðju-
dagsmorguninn síðasta sagði enda
einn þulurinn: ,,Ef sami glæsileikinn
hefði verið yfir kvikmyndum
Reagans i Hollywood í gamla daga og
innsetningarathöfninni í dag hefði
Ronald Reagan aldrei þurft að fara
útípólitík!”
— Ágóðinn rennur til Geðverndatfélags Islands
Útsýnarkvöld
á Sögu:
Úrslitin
snerust við
Áramótafagnaður ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar var haldinn á Hótel
Sögu á sunnudaginn fyrir rúmri viku,
á sama tíma og Víkingar kepptu við
sænska liðið Lugi í handbolta. Aðr
vonum voru sumir Útsýnargestir með
hálfan hugann inni í Laugardalshöll á
meðan þeir fylgdust með skemmtiat-
riðunum.
Úrslit leiksins bárust fljótt á Sögu
og kynnirinn, Þorgeir Ástvaldsson,
tilkynnti að Víkingar hefðu unnið
Lugi með eins marks mun. Mikil
gleði greip um sig meðal gesta og
mikið var skálað fyrir Víkingunum.
Morguninn eftir komst Þorgeir að
því sér til mikillar skelfingar að
honum höfðu verið bornar rangar
upplýsingar. Hann hefur nú lofað því
að kanna tvisvar allar slikar tilkynn-
ingar áður en hann les þær upp. —
Til þess eru slysin að læra af þeim.
munu Rúnar Júlíusson og Gunnar
Þórðarson syngja. Sigurður Skúlason
leikari byrjar hljómleikana með því
að lesa Imagine í íslenzkri þýðingu.
Einnig flytur hann frumort ljóð sem
ort er í minningu Johns Lennon.
Lágt miðaverð
Óttar Feiix Hauksson sagði að verð
aðgöngumiða yrði fimmtiu krónur.
„Við viljum hafa verðið í lágmarki
svo að unga fólkið hafi efni á að
koma. Það hefur sýnt sig að undan-
förnu að tónlist Lennons á miklu
fylgi að fagna meðal þess.
Ef uppselt verður á hljómleikana
sýnist mér að ágóðinn, eftir að sá litli
kostnaður, sem verður, hefur verið
greiddur, verði um tuttugu til þrjátíu
þúsund krónur,” sagði Óttar.
- ÁT
Þegar Jakob Magnússon tónlistar-
maður var á ferð hér á landi á dögun-
um var hann með í fórum sínum rúm-
lega þriggja klukkustunda langa
kvikmynd sem bandarískur her-
maður tók hér á landi á stríðsárun-
um. Myndin er í litum, óvenju
góðum að sögn þeirrasem hafa séð
hana.
Baldur Hermannsson hjá frétta- og
fræðsludeild sjónvarpsins skoðaði
kvikmynd Bandaríkjamannsins.
Hann kvað hana ómetanlega heimild.
Baldur sagðist ekki vita til þess að
Jakob hafi gert sjónvarpinu tilboð
um filmuna, en kvaðst vona að hægt
yrði að sýna hana í einhverri mynd
áður en allt of langt um liði.
„Þarna er um rúmlega þriggja
klukkustunda efni að ræða,” sagði
Baldur. „Það er hægt að vinna film-
una á marga vegu, — hún er í raun
og veru aðeins hráefni. Það kom mér
mjög á óvart er ég sá filmuna að
Bandaríkjamaður skyldi hafa tekið
slík ógrynni af myndum á Íslandi, og
ekki gott að segja hvað lá að baki
því.”
Þessi óvænta búbót í heimildar-
kvikmyndir um ísland fyrr á árum
var tekin á árunum 1943-44. Hún er
að miklum hluta tekin i Reykjavík,
en einnig eru nokkur atriði utan af
landi. Meðal annars fílmaði Banda-
ríkjamaðurinn íþróttahátíð á Mela-
vellinum. Þar sést ýmsum þjóðkunn-
Óttar Fefíx Hauksson ber hitann
og þungann af undirbúningi minn-
ingarhljómleikanna um John
Lennon. DB-mynd.
um íslendingum bregða fyrir, þeirra
á meðal Sveini Björnssyni forseta og
Pétri Péturssyni útvarpsþul.
Enginn vafi er á því að filma þessi
hefur mikið sögulegt gildi. Þá er eng-
inn vafi á því að hún á eftir að rifja
upp margar minningar þeirra sem
voru upp á siti bezta hér á landi á
fimmtá áratugnum.
- ÁT
Það var Jakob Magnússon sem
fann rúmlega þriggja klukku-
stunda langa litmynd sem banda-
rískur hermaður fók hér á landi á
stríösárunum.
höfum ákveðið að láta ágóðann af
hljómleikunum renna til Geðverndar-
félags íslands. Með hliðsjón af því
hvemig dauða Lennons bar að þótti
okkur viðeigandi að sú stofnun nyti
peninganna.”
Stór hópur hljóðfæra-
leikara og söngvara
Óttar sagði að fyrirkomulag
hljómleikanna yrði þannig að ein
hljómsveit sæi um allan undirleik.
Hana skipa Ásgeir Óskarsson,
Hrólfur Gunnarsson og Engilbert
Jensen, sem allir leika á ásláttar-
hljóðfæri. Finnbogi Kjartansson
leikur á bassa, Magnús Kjartansson á
píanó og Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júliusson og Tryggvi Hilbner á
gítara. — Gunnar og Rúnar hafa
unnið að undirbúningi hljómleikanna
meðÓttari.
Þá kemur einnig mikið lið söngv-
ara við sögu. Þeir eru Ari Jónsson,
Jóhann G. Jóhannsson, Pálmi Gunn-
arsson, Björgvin Halldórsson,
Magnús Sigmundsson og Jóhann
Helgason. Magnús og Jóhann sjá
einnig um allar bakraddir. Einnig
Merkileg litkvikmynd
frá stríösárunum
fannst í Bandaríkjunum
Um það bil tuttugu manna hópur
hefur tekið höndum saman um
hljómleika til minningar um Bítilinn
John Lennon. Þeir verða haldnir í
Austurbæjarbíói þriðjudaginn 3.
febrúar. Á dagskránni verða tuttugu
og fjögur lög, öll eftir Lennon.
Flestir þekktustu dægurtónlistar-
menn landsins koma þarna fram.
„Við erum þegar komnir vel á veg
með undirbúning hljómleikanna,”
sagði Óttar Felix Hauksson i samtali
við blaðamann Dagblaðsins. Óttar
hefur tekið að sér að sjá um skipu-
lagningu þessa viðburðar. „Við
FÓLK