Dagblaðið - 26.01.1981, Qupperneq 27
27
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
VIDEO
*
*
nen
Kv
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
til leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali í stuttum og löngum útgáfum, bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt
Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
orðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease, God
father, Chinatown o.fl. Filmur til sölu og skiptá.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 |Klapparstig«megin)
KVIKMYNDIR
-k
*
*
SJONVARPSBUÐIN
20" 8.700 8.265
22" 9.450 8.978 |fj
26" 11.225 10.660
IÞRÓTTIR—sjónvarp kl. 20,45:
Ólíklegt að myndir
frá handboltalands-
leikjum verði
komnar til landsins
Leikarinn Kenneth Moore segir sögu þyrlunnar.
ÞETTA FLÝGUR ALDREI - sjónvarp M. 22,05:
Heimildarmynd
um sögu þyrlunnar
— hugmyndir um lóðf lugstæki eldri en menn grunar
Ólíklegt er að mynd frá sigurleik
íslands gegn Vestur-Þýzkalandi verði
komin tU landsins fyrir íþróttaþáttinn
í kvöld. Það er rangt sem kom fram í
einu dagblaðanna fyrir helgi að
þýzka sjónvarpið hefði tekið upp all-
an leikinn. Að sögn Bjarna Felix-
sonar voru ekki teknar upp nema 5—
6 mínútur af leiknum og verður sá
kafli sýndur við fyrsta tækifaeri.
Sjónvarpið á von á mynd af lands-
leik Dana og Islendinga sem fram fór
sl. föstudagskvöld frá danska sjón-
Varpinu. íslenzka sjónvarpið hefur
einnig gert ráðstafanir til að fá mynd
af leik Lugi og Víkings.
Fari svo að myndir af þessum leikj-
um verði komnar til landsins fyrir
íþróttaþáttinn verða þær að sjálf-
sögðu sýndar. Annars er í ráði að
sýna eitthvað frá blakleikjum helgar-
innar og einnig borðtennis. -KMU
Síðast á dagskrá sjónvarps í kvöld er
brezk heimildamynd um þyrluna.
Nefnist hún Þetta flýgur aldrei.
Leonardo da Vinci var árið 1493
þegar farinn að gera sér hugmyndir um
lóðflugstæki. Hann taldi þá að hægt
væri að smíða tæki sem gæti hafið sig á
loft lóðrétt ef vel væri til þess vandað.
,,Ef skrúfu er snúið svo hratt að af því
komi pilsaþytur mun tækið hefja sig
upp,” skrifaði Leonardo.
í kringum aldamótin síðustu voru
margir að gera tilraunir með lóðflugs-
tæki. Árið 1907 tókst Frakka nokkr-
um, Louis Breguet, að smiða tæki sem
hann kallaði Gyroplane. Það lyftist
rúmlega metra frá jörðu.
Rússinn Igor Sikorsky smíðaði árið
1909 í Moskvu þyrlu knúða bensin-
hreyfli. Ekki flaug hún. En seinna
fluttist hann til Bandaríkjanna og
gerðist þar mikilvirkur flugvélasmiður.
Hann hannaði m.a. fyrstu fjórhreyfla
flugvélina. í seinni heimsstyrjöldinni
fékk Sikorsky aftur áhuga á þyrlusmíð)
og í dag er nafn hans tengt órjúfanleg-
um böndum við þyrluna.
Stærsti kostur þyrlunnar er sá, að
hún getur hafið sig lóðrétt til flugs.
Hún þarf þvi ekki flugbraut heldur
getur hún lent svo að segja hvar sem er,
jafnvel á sjó. Þyrlan er því mjög hent-
ugt björgunartæki enda hefur starfs-
svið hennar fyrst og fremst verið á þvi
sviði. Þyrlan hefur einnig verið notuð
við erfið flutninga- og byggingastörf og
að sjálfsögðu í hernaði. Hún er hins
vegar dýr í rekstri og því aldrei verið
notuð að ráði i farþegaflugi.
Þýðandi og þulur myndarinnar er
Þórður Örn Sigurðsson.
-KMU
ráði er að sýna úr I. deild karla I blaki i iþróttaþxttinum.
DB-mynd S.
Útvarp
Mánudagur
26. janúar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Mánudagssyrpa —
Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 SiðdegUtónlelkar. Kjell
Bækkelund leikur Pianólög eftir
Christan Sinding /David Bartov
og Inger Wikström leika Dansa
fyrir fiðlu og pianó eftir Erland
von Koch / Maria Littauer.
Gyðrgy Terebesi og Hannelore
Micheí leika Trió op. 32 fyrir
pianó, flðlu og selló eftir Anton
Arensky.
17.20 Vlð öU. Barnatími Kristinar
Unnsteinsdóttur og Ragnhildar
Helgadóttur um börn með sér-
þarfir. Þátturinn var unninn i
samvinnu við þrjá sérkennara,
Margréti Sigurðardóttur, Berg-
þóru Gísladóttur og Silvíu Guð-
mundsdóttur. (Áður útv. i febrúar
1976).
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Guðni Kolbeins-
son flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Magnús Finnbogason bóndi á
Lágafelli i Austur-Landeyjum
talar.
20.00 Endurtekið efni. Björn Th.
Björnsson ræðir við Aðalbjörgu
Sigurðardóttur um Einar Bene-
diktsson skáld. Samtalið var
hljóðritað á aldarafmæii Einars
1964 og var i fyrsta sinn útv. 26.
desember sl.
20.20 Lög unga fólksins. Hildur
Eiriksdóttir kynnir.
21.45 Útvarpssagan: „Mín llljan
frifl" eftir Ragnhelöl Jönsdóttur.
Sigrún Guðjónsdóttir les (7).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Hreppamil, — þ<ur um
m&lefni sveltarfélaga. Rætt við
Þorstein Vilhjálmsson formann
staðarvalsnefndar og sagðar
fréttir frá sveitarstjórnum. Stjórn-
endur. Kristján Hjaltason og Ámi
Sigfússon.
23.00 Fr& tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói 22.
þ.m. Síðari hluti. Stjórnandi:
Paul Zukofsky. Sinfónla nr. 11 D-
dúr op. 38 eftir Robert Schumann.
— Kynnir: Jón Múli Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriöjudagur
27. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10
Bæn. 7.15 Letkfimi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Morgun-
orð: Margrét Jónsdóttir talar.
Tónleikar.
8.55 Daglegt m&l. Endurt. þáttur
Guðna Kolbeinssonar frá kvöld-
inu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Pétur
Bjarnason les þýðingu sina á
„Pésa rófulausa” eftir Gösta
Knutsson (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Sj&varútvegur og sigllngar.
Umsjón: Ingólfur Arnarson. Rætt
verður um sölu- og markaðsmál.
10.40 Einsöngur: Sigriður Ella
Magnúsdóttir syngur lög eftir Ing-
ólf Sveinsson, Maríu Brynjólfs-
dóttur, Einar Markan og Sigfús
Halldórsson; Óiafur Vignir Al-
bertsson leikur á píanó.
11.00 „Áður fyrr & árunum”.
Ágústa Björnsdóttir sér um þátt-
inn. Um Básendaflóðið í janúar
1799. Lesari með umsjónarmanni
er Guöni Kolbeinsson.
11.30 Búdapest-kvartettinn lelkur
Strengjakvartett nr. 16 í F-dúr op.
135 eftir Ludwig van Beethoven.
Mánudagur
26. janúar
19.45 Frétta&grip i t&knm&ll.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskri.
20.35 Fr& dögum goðanna. Þriðji
þáttur. Dedaios. Þýðandi Kristin
Mamyla. Sögumaður Ingi Karl
Jóhannesson.
20.45 IþrótUr. Umsjónarmaður Jón
B. Stcfánsson.
21.15 Vinlr i við&ttu. Breskt gaman-
leikrit. Leikstjóri Robert Chet-
wyn. Aðalhlutverk Robert
Stephens, Eleanor Bron, Neville
Smith, Patricia Heywood,
Terence Rigby og John Cassidy.
Formaður félagsins „Vinir í við-
áttu” býður nokkrum félags-
mönnum heim til sín, því að hann
ætlar að færa sönnur á, að llf sé á
öðrum hnöttum. Þýðandi Ragna
Ragnars.
22.05 hetta flýgur aldrei. Klnversk
börn léku aðíitlum þyriivængjum
fyrir mörg þúsund árum, en þessi
heimitdamynd sýnir.að ekki gekk
það átakaiaust fyrir sig að koma
vélknúnum þyrlum á loft i fyrsta
sinn. Nú á tímum koma þær að
miklum notum í hernaði, viö
ýmiss konar björgunarstörf og
flutninga við erfið skilyröi. Þýð-
andi og þulur Þórður örn Sigurös-
son.
22.50 Dagskrárlok.