Dagblaðið - 26.01.1981, Síða 28
frjálst, nháð dagblað
íslendingur í Kaupmannahöfn:
FANGELSAÐUR FYRIR
ÁRÁS Á LÖGREGUJÞJÓN
— grýtti f lösku í andlit lögreglumannsins, sem hlaut I jótt sár af
Ungur sjómaður frá SA-horni
landsins situr nú í fangelsi í Kaup-
mannahöfn eftir að hafa grýtt flösku
í andlit lögregluþjóns á laugardags-
kvöld.
Tildrögin voru þau að lögreglan
var kvödd á veitingahús í borginni til
að fjarlægja sjómanninn, sem hafði í
frammi dólgslega hegðun. Er lög-
reglan gerði sig líklega til að fjar-
lægja hann grýtti hann flösku i
andlit eins lögreglumannsins, sem
hlaut ljótt sár af.
Sjómaður þessi kom með hádegis-
vélinni á laugardag til Kaupmanna-
hafnar og hálfri klukkustund eftir að
hann hafði skráð sig inn á hótel í
miðborginni hafði hann verið rændur
öllum fjármunum.
-SSv/hsim. Kaupmannahöfn.
MÁNUDAGUR 26. JAN. 1981.
Skákþing
Reykjavíkur:
Jón L. er
enn efstur
í 6. umferð Skákþings Reykja-
vikur, sem tefld var í gærkvöld,
gerðu bræðumir Jón L. og Ásgeir Þ.
Árnasynir jafntefli, Bragi Halldórs-
son vann Karl Þorsteins, Björgvin
Víglundsson vann Hilmar Karlsson
og Sævar Bjarnason vann Dan
Hansson.
Jón L. er efstur með 4 vinninga og
einni skák hans var frestað, Bragi
Halldórsson er mcð 4 vinninga og
Helgi Ólafsson með 3 vinninga.
Hann hefur þó aðeins lokið þremur
skákum og er staðan á mótinu mjög
óljós vegna biðskák og frestaðra skák
vegna veikinda keppenda.
í B-flokki er Guðmundur
Halldórsson efstur með S vinninga. Í
C-flokki eru efstir Páll Þórhallsson
og Sveinn I. Sveinsson með 5 vinn-
inga. í D-flokki er Jón Steingrimsson
efstur með 4,5 vinninga af 5 mögu-
legum og Eggert Ólafsson er með
fullt hús í E-flokki, 6 vinninga af 6
mögulegum og sömu sögu er að segja
af Arnóri Björnssyni i ungiinga-
flokki. -GAJ.
Gunnar Thoroddsen forsætisriðherra.
GunnarThoroddsen,
forsætisráðherra:
„Styrkir
okkur
ístarfi
íríkis-
stjórninni”
„Þetta eru góð tíðindi. Ég fagna
niðurstöðum skoðanakönnunar Dag-
blaðsins, bæði hvað varðar stuðning
við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
og fylgi ríkisstjórnarinnar almennt,”
sagði Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra í morgun.
„Ekki sízt finnst mér fagnaðarefni
að sjá að viðhorf sjálfstæðismanna til
ríkisstjórnarinnar eru á þessa leið.
Samflokksmenn mínir í stjórnarand-
stöðunni verða að endurskoða allt sitt
ráð með þetta í huga. Svo mikill stuðn-
ingur sjálfstæðisfólks styrkir okkur
mjög í starfi sem að rikisstjóminni
stöndum.” -ARH
Matthías A. Mathlesen alþingismaður.
Matthfas A. Mathiesen,
þingmaður
Sjálfstæðisflokks:
„Sjónar-
spil
stjórn-
arinnar”
„Þessar niðurstöður sýna mér að
þjóðin var búin að bíða lengi eftir að
ríkisstjórnin aðhefðist eitthvað og
kæmi með tillögur sínar til úrbóta þeim
hrikalegu vandamálum sem við blasa,”
sagði Matthías Á. Mathiesen þing-
maður úr stjórnarandstöðuarmi Sjálf-
stæðisflokksins í morgun.
„Bráðabirgðaráðstafanirnar sem
kynntar voru á gamlárskvöld eftir
nærri eins árs valdaferil ríkisstjórnar-
innar hafa fengið jákvæðar viðtökur,
jákvæðari en efni standa til. Ef ég
þekki rétt til þessara mála, er það mat
mitt að eftir eigi að koma í ljós hvert
sjónarspil er hér á ferðinni. Enda ráð-
herrar þegar farnir að draga í land
varðandi áhrifamátt þessara ráðstaf-
ana.” -ARH
Horfði á
bfl sinn
fuðra upp
Akureyringur einn mátti horfa upp
á það i gær að Ford Fairmont bifreið
hans árgerð .1978 gjöreyðilagðist í
eldi. Korn eldurinn upp i mælaborði
bifreiðarinnar er maðurinn var að
gangsetja bifreiðina og mátti hann
þakka fyrir að sleppa út úr bílnum
óskaddaður.
Bíllinn brann allur inn og ofantil
og er gjörónýtur. Tókst að slökkva
eldinn áður en hann náði bensíntank-
inum.en þáhafðiillafarið.
Bíleigandinn hafði komið á bil
sínum að Búðagili en þar á hann
hesta í húsi. Er hann var að hverfa á
braut aftur varð óhappið, sem enn er
með öllu óskýrt. Tjón mannsins er
áætlað9—lOmilljónirgkr. -A.St.
Tízkan næsta sumar...
Sjaldan hefur nokkur tízkusýning
vakið jafnmikla athygli og sýning
danska sýningarflokksins á vor- og
sumartízkunni frá 1N WEAR og
Matinique í Hollywood um helgina.
Var troðfullt hús á öllum sýningum og
komust færri að en vildu. Sýningar-
samtökin voru óvenjuleg að mörgu
leyti og öðruvísi en við eigum að venj-
ast. Hressileiki, lífleg framkoma og lát-
bragðsleikur sýningarfólksins varð til
þess að íslendingarnir fögnuðu þeim
óspart. Ekki má gleyma tízkunni sjálfri
sem einkenndist af léttum frjálslegum
fatnaði svokölluðum „High tech
safarí” stil, sem ryður sér mjög til rúms
víðs vegar um heim. Eins og sjá má á
myndinni virðast gestir í Hollywood
skemmta sér ágætlega, sérstaklega eru
stúlkurnar kímnar á svip enda kannski
ekki upp á hvern dag sem karlmenn
hérlendis sjást í fatnaði sem þessum.
En hver veit, þegar fötin eru komin í
tízku á annað borð veit maður aldrei
við hverju mábúast.
-ELA/DB-mýnd Ragnar Th.
Bátakjarasamningar:
Enginn f und-
urboðaður
Biðstaða er nú í samningamálum
sjómanna, enginn fundur boðaður á
næstunni. Boðað hefur verið verkfall
hjá togarasjómönnum 9. febrúar og
16. febrúar hjá bátaflotanum. Að
sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkis-
sáttasemjara i morgun hafa engar
viðræður farið fram og er óvist
hvenær næsti fundur verður
boðaður.
Fundur verður með sáttasemjara
og vinnumálanefnd ríkisins og starfs-
fólki ríkisverksmiðjanna kl. 16 i dag.
Vcrkfalli hjá ríkisverksmiðjunum
hefur þrívegis verið frestað undan-
farnadaga. -ELA.
Alþingiídag
Alþingi kemur saman að nýju i dag
eftir jólalcyfi þingmanna.
Rifjuð upp liðin tíð
— Dagsbrún 75 ára og VR 90 ára
Verkamannafélagið Dagsbrún hélt
upp á 75 ára afmæli sitt í Lindarbæ í
gær. Þangað hafði verið boðið öllum
Dagsbrúnarmönnum, mökum þeirra
og velunnurum félagsins.
Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar í 20 ár eða frá 1961, sté í
ræðustól og minntist upphaflegu
markmiða félagsins. í tilefni
afmælisins afhenti Eðvarð styrktar-
félögum fatlaðra og aldraðra
peningagjafír með ósk um að þær
mættu hjálpa til við eflingu þessara
félaga. Glatt var á hjalla á samkom-
unni og greinilega var mikið um það
að gamlir kunningjar hittust þar eftir
langan tíma. Á sama tíma hélt
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
upp á 90 ára afmæli sitt á Hótel
Sögu. -GSE.
Þeir muna tlmana tvenna þessir kallar og höfðu um ýmislegt að spjalla þegar þeir
hittust 1 Lindarbæ i gær á 75 ára afmæli Dagsbrúnar. DB-mynd Sigurður Þorri.