Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 20
20
Flugfélag Norðurlands er
b jargvætturinn þegar Vetur konungur
lokar Múlavegi:
Vindsperrur
ur ollum
attum
á Ólafsfirði
- segir flsgeir Asgeirsson fréttaritari
Dagblaðsins á staðnum
„Flugið hefur bjargað okkur.
Hingað er flogið alla daga nema laug-
ardaga og sunnudaga. Drangur hefur
þó skilað sér tvisvar í viku eins og
venjulega, en það þykir ekki nóg,”
sagði Ásgeir Ásgeirsson fréttaritari
Dagblaðsins á Ólafsfirði í samtali í
gær.
Vetur konungur sýnir Ólafs-
firðingum lítii vinarhót. Þar hefur
tiðin verið ryðsjótt, eilífir
umhleypingar og vindsperrur úr
ölium áttum. Múlavegur lokast oft
vegna snjóa. Bæði rennir í skafla sem
loka veginum eða á hann falla
snjóflóð. Flugfélag Norðurlands er
því bjargvættur byggðarlagsins að
mikiu leyti og tryggir
samgönguöryggið. Flugskilyrði til
Ólafsfjarðar virðast afar góð.
Sjaldan fellur niður flug þangaö frá
Akureyri og þvi berast morgunblöðin
frá Reykjavík kaupendum sínum í
Ólafsfirði oft í hádeginu sama dag og
þau koma út!
Atvinnulífið á Ólafsfirði er i á-
gætu lagi. Hjólin snúast í takt við
fiskirí og sjósókn. Afli togaranna
hefur aö vísu ekki verið alveg nógu
góður og rýr hjá netabátum. Einn
200 tonna bátur rær með línu og
sækir langt á miðin. Hann hefur flutt
að landi 8—14 tonn úr róðri.
Og fiskarnir eru ekki undir steini
hjá Ólafsflrðingum í menningar-
málunum. Leikfélagið á itaðnum er
tvítugt um þessar mundir, er með
öðrum orðum komið á rikisaldurinn.
1 tilefni af því var frumsýnt á
föstudaginn leikritið Hart í bak eftir
Jökul Jakobsson undir stjórn
Kristjáns Jónssonar. Kristján er
gamall kunningi leikfélagsmanna og
hefur lagt þeim áður gott liö í starfi.
Ekki má gleyma skíðaíþróttinni.
Ólafsfiröingar eru manna liprastir
við að standa á skiðum. Eiga
stökkmenn I sérflokki, göngumenn
sem fáir hafa roð við og
frambærilega menn í alpagreinum.
Norskur þjálfari hefur verið þar í
vetur við að að leiðbeina i
alpagreinum. Haukur Sigurðsson
göngumeistari leiðbeinir í sinni grein
og Björn Þór Ólafsson konungur
stökkvaranna þjálfar þá sem leggja
fyrir sig þá íþrótt. Þeir mega því
biðja fyrir sér skíðamennirnir, sem
eiga eftir aö mæta Ólafsfirðingum í
keppnum f vetur.
Fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott. Snjórinn lokar
Múlavegi og hleöst upp á göturnar.
Hann hefur likaþann kost að Ieggjast
yfir fjöli og láglendið i Firðinum,
skiðaunnendum til ánægju. Ólafs-
firðingar búa vel að sínu skiðafólki,
keppnisfólki jafnt sem þeim sem
stunda þetta eingöngu sér til
hressingar. Enn sem komið er er lítið
um að ferðamenn komi til Ólafs-
fjarðar á skiði. Ef til vill breytist það
þegar nýja hótelið er fullbúið. Það er
ekki langt í að herbergin i
byggingunni veröi til reiðu fyrir þá er
sækja vilja Ólafsfjörð heim.
-ARH.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
Æ, skelfing getur hann veríð napur — en samt styttist nú alltaf til vorsins.
DB-mynd: Einar Ólason.
Eskifjörður: -
GÓDUR AFU
TOGARANNA
— vantar fólk í f rystihúsið
Síðan um áramót hefur verið gott
fiskirí hjá togurunum og sæmilegt
hjá minni bátum þegar gefið hefur á
sjó, en gæftir hafa verið frekar
slæmar eins og oft vill verða á
þessum árstima.
Frá áramótum til 20. febrúar
hefur Hólmanesið SU 1 fengið 506
tonn, aflaverðmæti 1.762.120 kr.
Hásetahlutur er orðinn 31.212 kr.
Skipstjóri á Hólmanesinu er Sigurður
Magnússon.
Á sama tíma hefur Hólmatindur
SU 220 fengið 544 tonn, afla-
verðmæti 1.923.026 kr., hásetahlutur
33.041 kr. Skipstjóri á Hólmatindi er
Árbjörn Magnússon.
Hér er mannekla, það vantar fólk
í frystihúsið. Já, það eru ekki allir á
landinu jafnheppnir og Eskfirðingar
að eiga athafnamann eins og
Aðalstein Jónsson.
Ég las nýlega frétt þess efnis að á
Djúpavogi hafi ekki borizt fiskur á
land síðan um áramót.
Loðnubræðslan hér er búin að
taka á móti 32 þús. tonnum af loðnu
en loðnubræðslan á Reyðarfirði
hefur enga loðnu fengið á 'þessu ári.
Enda er hún ríkiseign. Ég held að ein-
staklingsframtakið sé það langheil-
brigðasta, og er ég á sama máli og
Jón Sólnes fyrrum alþingismaður, að
hver eigi að gera út á eigin ábyrgð og
kostnað.
-Regína, Eskifirði.
Þrjú framboð í
Háskólanum?
— kosið til stúdentaráðs
ogháskólaráðs
11. marz
Pólitískar fylkingar stúdenta i Há-
skóla íslands eru óðum að vígbúast
vegna kosninga til stúdentaráðs og há-
skólaráðs miðvikudaginn 11. marz. Að
vanda er von á framboðslistum frá
hægrimönnum íVöku, félagi lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, og Félagi vinstri
manna. Auk þess bendir ýmislegt til að
þriðji framboðslistinn sjái dagsins ljós.
Aðhonum standi einkum alþýðuflokks-
og framsóknarmenn og óháðir. Hópur-
inn kýs að kalla sig umbótasinnaða
stúdenta.
Frestur til að skila framboðum
rennur út um mánaðamótin. Vinstri
menn ræddu kosningaundirbúning á
fundi á mánudagskvöldið og umbóta-
sinnar á sunnudaginn.
Margur maðurinn hefur tekið sína
fyrstu undanrásaspretti í pólitík í Há-
skólanum. Ófáir fyrrum forystumenn
úr stúdentapólitík eru í dag í forystu
stjórnmálasamtaka eða hagsmunasam-
taka — eða eru jafnvel komnir um sinn
inn í húsið gráa við Austurvöll. -ARH.
\
HÁSKÓLATÓNLEIKAR
Hóskólatónleikar í Norræna húsinu 21. febrúar.
Einleikari á gftar: Arnaldur Amarson.
Efnisskrá: Heitor Villa-Lobos: Æfingar nr. 1, 4,
5,8,9 og tóM; Manuel Maria Ponce: 12 prelúdl-
ur; Agustin Barrios Mangore: Danza Para-
guaya.
Framhjá fáum hefur víst farið
hversu mikil gróska hefur verið í gít-
arleik hér á landi undanfarið, sem og
í öðrum greinum hljóðfæraleiks. Á
síðustu árum hefur kvatt sér hljóðs
ný kynslóð ungra gítarleikara, sem
ýmist hefur nýlega lokið framhalds-
námi erlendis eða stundar það enn.
Einn þessara ungu manna er Arnald-
ur Arnarson, sem hélt tónleika á
vegum Tónleikanefndar Háskólans í
Norrænahúsinu á laugardag.
Á hersýningu
Það þarf meira en lítið áræði til að
leika helftina af etýðum Villa-Lobos í
einni striklotu á einleikstónleikum,
en af áræði virðist Arnaldur eiga
nóg. Þótt hver æfinganna sé með sín-
um svip eru þær keimlikar. Sama
Arnaldur Arnarson gítarleikari.
máli gegnir um prelúdíur Ponces og
þegar þeim er raðað upp næst á eftir
æfingum Villa-Lobos fer prógramm-
ið að líta út eins og lið á hersýningu
— löng röð af mönnum í sams konar
einkennisbúningum. Efnisskrá af
þessu tagi er hins vegar geislandi gott
prófverkefni og má vera að Arnaldur
hafi einmitt ætlað sér að styrkja sig
fyrir slík átök með verkefnavali sínu.
En með efnisskrá af þessu tagi er gít-
arleikarinn berskjaldaður gagnvart
áheyrendum sínum og gagnrýnend-
um, því að í fyrrnefndum verkum er
ákaflega litið um felustaði þar sem
hægt er að skjóta sér á bak við ein-
faldar tæknibrellur og glansa á auð-
veldan hátt. Út af fyrir sig er það af-
rek að komast klakklaust í gegnum
slíka efnisskrá.
Hann þorir
Arnaldur stóð sig með stakri prýði
í slag sínum við verkefnin. Hann er
hispurslaus og áræðinn í leik sínum.
Hann þorir að láta hvína í strengjum
og að gefa tilfínningum lausan taum,
þótt á stundum sé það á kostnað full-
komnunar í leik. Sem slíkur sker
hann sig úr hinum alþjóðlega hópi
ungra perfektionista í gítarleik, sem
eru því miður allt of algeng fyrirbæri.
Vonandi tekst engum skóla að kæfa
þennan neista með Arnaldi, þótt að
sönnu eigi hann eftir að fínslípa leik
sinn frekar. í síðasta verkinu og
aukalögum skerpti hann enn frekar
þá mynd sem ég hef gert mér af
honum sem gítarleikara — Hann
þorir að leggja líf og sál í leik sinn.
-EM.
V