Dagblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
Fermingaveizlumar f ram undan:
Hve mörgum komum við fyrir?
Þegar byrjað er að hugsa fyrir
veizlu er eitt af því fyrsta hve margir
komi í veizluna og hvernig eigi að
koma þeim fyrir.
Þegar búið er að ákveða hve
mörgum á að bjóða er naest á dag-
skrá að ákveða hvernig borðhaldið '
skuli fara fram. Annaðhvort sitja j
allir til borð eða haft er „standandi”
borðhald, þ.e. diskar og matur eru á
einu borði og gestirnir sækja matinn
þangað og setjast síðan niður í
stofunni og næstu herbergjum og
snæða.
Við skulum gera ráð fyrir að
ákveðið hafi verið að láta gestina
setjast til borðs og þá kemur að því
að ákveða hvernig þeim skuli raðað
niður. (mynd 1)
Þegar búið er að ákveða hvaða
herbergi hússins verði notað fyrir
borðhaldið, er rétt að athuga hvaða
húsgögn er hægt að færa og hver
þeirra verða kyrr. Til að gera sér
grein fyrir þessu er be/.t að teikna her-
bergið upp á blað. Það skulum við
gera á þann hátt að mæla herbergið
og teikna það upp í mælikvarðanum
einn á móti tíu. Hver metri er sama
og tíu sentimetrar á blaðinu. Þegar
búið er að teikna herbergið, þá
teiknum við inn þau húsgögn sem
ekki er hægt að flytja.
Mælið 80 sentimetra (8
sentimetra á teikningunni) frá
veggjum og þeim húsgögnum, sem
verða kyrr. Það svæði sem eftir
verður innan þess ramma er plássið
sem hægt er að reikna með fyrir
borðin. Það þarf að reikna með átta-
tíu sentimetrum meðfram veggjunum
til að komast að borðunum og bera
fram matinn.
Hægt er að raða borðunum á
margan hátt, bæði má hafa mörg lítil
borð, eða eitt langt borð, en bezta
nýtingin næst með því að raða
■ borðunum f T eða U, allt eftir því
hvernig stofan er í laginu. U lagið er
sú uppröðun, sem oftast gefur bezt
pláss og nýtingu.
V .........
Hve þröngt skulu sáttir sitja?
Þegar raðað er til borðs vill oft brenna við að of þröngt sé raðað og út úr því verða mörg óþörf olnbogaskot
sessunautanna.
Þegar raðað er við borðið er bezt að leggjamálband á borðið og raða stólunum eftir því.
4$ sentimetrar ó mann er of lítið
Þegar koma á mörgum fyrir á litlu plássi er freistingin oft mikil að raða stólunum of þétt. Ef við erum að raða í
bamaafmæli, þar sem allir eru af minni gerðinni, er hugsanlega hægt að hafa aðeins 45 sm á milli gesta, en það er
of þröngt fyrir flesta fullorðna. Það er því betra að sleppa tveim til þremur gestum frekar en að raða þeim svo þétt.
55 sentimetrar sleppa vel
Þegar raðað er í opinberar veizlur þá er oft ekki gert ráð fyrir meira plássi á hvern gest en 55 sentimetrum. Að vísu
sleppa gestirnir að mestu við olnbogaskot frá nágrannanum, en samt eru. . .
60 sentimetrar á mann það bezta
Innanhússarkitektar hafa í mörg ár verið sammála um það að 60 sentimetrar séu bezta plássið fyrir hvem mann við
matarborðið. Langflest matarborð sem teiknuð hafa verið síðari ár gera einmitt ráð fyrir því. Því er bezt að gera ráð
fyrir því plássi þegar raðað er niður sætum við veizluborðið.
Svo þarf afl leggja rétt á borðl
Þegar búið er að raða til borðs þá þarf að leggja á borðið miðað við þann mat sem bera á fram. Reikna þarf með
plássi fyrir mataráhöldin.Vissulega eru til strangar reglur um það hvernig leggja skuli á borð í fínum veizlum en í heima-
húsum má reikna með að haga seglum eftir vindi. Þó er rétt að mataráhöldum sé raðað eftir því sem gert er ráð fyrir að
þau séu notuð.
Einhvern næstu daga lítum við á það hér á síðunni hvernig raða skuli mataráhöldum niður og brjóta megi sérvíettur á
snotran hátt.
Lítið eittum borð:
Kringlótt
eða
ferkantað?
Fyrst við erum á annað borð að tala
um borð og pláss við þau er ekki úr vegi
að kíkja nánar á þau og velta þeim dálítið
fyrir sér.
Að sjálfsögðu á maður ekki að velja
borð eftir því þótt maðúr fái stundum
gesti. Borð er nú einu sinni hlutur, sem er
til staðar alla daga og þarf því að,
uppfylla vissar kröfur.
En samt sem áður fær maður jú öðru
hvoru gesti, og því er rétt að taka þá með
í reikninginn þegar valið er borð.
Hvort maður velur kringlótt eða fer-
kantað borð er smekksatriði hjá hverjum
og einum. Hvort um sig hefur sína galla
og kosti.
Kringlótt borð hefur þann kost að
það er þægilegra að sitja við það og allir
sjá alla. Einnig er auðveldara að koma
fleirum við kringlótt borð. Það tekur
einnig aðeins minna pláss en ferkantað,
(sjá myndina). F.n þótt það taki sjálft
minna pláss, þa þarf það sitt pláss í her-
berginu því við kring'ótt borð myndast
,,dauð” hom, nema að það standi frítt
útiágólfi.
Einnig er mikið atriði hvernig fætur
eru á borði. Fæturnir verða að vera
þannig að þeir séu ekki fyrir og eðlilegt
setpláss séviðborðið.
Aður en við kaupum okkur borð þarf
því að skoða vel hvernig hægt er að sitja í
kringum það.
Flest borð eru 75-85 sentimetrar á
breidd, en lengdin getur verið breytileg.
Á myndunum sjást nokkrar gerðir af
borðum, allt eftir því hve margir eiga að
sitja við þau.
Ferkantað borð á minnst að vera
100 x 100 sm. Við kririglótt borð sem er
110 sm í þvermál geta setið 4-5 manns
Sé þvermálið 120 sm geta setið við það 6
manns og sé þvermálið 130 sm er hægt
að koma þar fyrir 8 manns, en að vísu fer
þetta eftir því hvernig fæturnir á
borðinu eru.
-400 — -120 - - 135 -•