Dagblaðið - 17.03.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
Fasteignaverzlunin út úr úHiakreppunni?
„Útborgunin gæti lækkað úr
75 f30-40 prósent”
— segir Gunnar Helgi Hálfdánarson framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins
sem kynnir nýjar leiðir ífasteignaviðskiptum
„Við vonumst til að geta opnað fast-
eignaverzlunina á sama hátt og okkur
tóskt að opna verðbréfamarkaðinn,”
sagði Gunnar J. Friðriksson, formaður
Fasteignamarkaðs Fjárfestingarfélags-
ins hf., á fundi með blaðamönnum í
gær þar sem kynntar voru nýjar leiðir
á fasteignamarkaði.
Það er nýtt dótturfélag Fjárfest-
ingarfélagsins sem mun með rekstri
fasteignasölu reyna að losa fasteigna-
verzlunina í landinu úr þeirri úlfa-
kreppu sem hún er sögð hafa verið í að
undanförnu. Talað hefur verið um að
ungt fólk sé að hverfa af fasteigna-
markaðinum og á blaðamannafundin-
um i gær voru orsakir þess meðal ann-
ars raktar.
Gunnar Helgi Hálfdánarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins,
benti á að verðbólgan í landinu væri ein
af höfuðorsökum þess að á fasteigna-
markaðinum hafa nú alllengi tiðkazt
afar ósveigjanlegir greiðsluskilmálar
þar sem útborgun hefur verið um og
yfir 75% og eftirstöðvar til 4—5 ára á
18—20 prósent vöxtum meðan verð-
bólgan er 50—60 prósent á ári.
„Það hefur myndazt breitt bil á milli
kaupanda og seljanda. Menn ráða ekki
við hina miklu útborgun. Þetta er
orðinn þröskuldur. Ljóst er að seljandi
sem vill 75% útborgun og kaupandi
sem getur aðeins greitt 30% geta ekki
átt viðskipti,” sagði Gunnar Helgi
Hálfdánarson.
Svarið sem Fasteignamarkaður Fjár-
festingarfélagsins mun kynna á næst-
unni felst í sveigjanlegri skilmálum sem
geta byggzt á verðtryggðum eftir-
stöðvum.
Talsmenn fyrirtækisins bentu á að
kostir hins nýja fyrirkomulags væru
þeir helztir fyrir seljandann að skil-
málar eru raunhæfir; eftirstöðvar rýrna
ekki. Óþarfi yrði að kaupa nýja fast->
eign um leið og sú gamla er seld. Með
sölu fasteignar gæti fullorðið fólk
skapað sér lífeyri og verðtryggð skulda-
bréf væri hægt að selja þyrfti eigandinn
á fé að halda.
Fyrir kaupandann væru helztu kost-
irnir þeir, að útborgun lækkar,
greiðslufrestur verður lengri á eftir-
stöðvum, greiðslubyrðin verður jafnari
og léttari fyrstu árin og greiðsluskil-
málar sveigjanlegri og í samræmi við
fjárráð og þarftr.
Aðspurður sagðist Gunnar Helgi
vonast til að ef þessi nýja leið yrði ofan
á í fasteignaviðskiptum gæti útborgun
fasteigna almennt lækkað úr 75% í
30—40% þegar tímar líða.
Þingmenn
mættu illa
Allsögulegur fundur var í neðri deild
Alþingis í gær. Hftir miklar bjöllu-
hringingar setti Alexander Stefánsson
fundinn i fjarveru Sverris Hermanns-
sonar forseta. Tók Alexander 3. mál á
dagskrá fyrir, þ.e. „Fiskveiðilandhelgi
íslands, frumvarp, framhald 1. um-
ræðu”.
Enginn kvaddi sér hljóðs og var
frumvarpið afgreitt til 2. umræðu og
nefndar.
Alexander forseti hringdi nú aftur
ákaft bjöllunni en fáir bættust í salinn.
Stóð þá Alexander upp, tók út af dag-
skrá 1. og 2. mál, svo og 4. og sleit
síðan fundi. Þingmenn urðu undrandi
við. Alexander skýrði þetta með því að
framsögumenn ofantaldra dagskrár-
mála væru ekki mættir og gegndu ekki
hringingu.
Fundurinn stóð 10 mínútur og þar af
fór helmingur tímans í að „hringja
inn”. Framsögumenn um frumvörp til
almannatrygginga, vernd bama og
ungmenna og um fjáröflun til vega-
gerðar mættu ekki. Heill dagur þings-
ins fór til ónýtis.
í efri deild var ástandið litlu betra en
Helgi Seljan hélt þó sínu striki. Eitt
mál, „Eiturefni og hættuleg efni”, var
afgreitt án umræðu til neðri deildar.
Sjávarútvegsráðherra fylgdi einu frum-
varpi úr hlaði óundirbúinn með ðrfáum
orðum. Síðan afgreiddi Helgi tvö önn-
ur mál án umræðu, tók eitt mál af dag-
skrá og sleit fundi. Hafði fundur þá
staðið i 20 mínútur — hringingar taldar
með. - A.St.
Framkvæmdastjóri hinnar nýju fast-
eignasölu, sem er til húsa að Skóla-
vörðustíg 11, er Pétur Þór Sigurðsson
lögfræðingur. -GAJ
Nokkrir aðstandendur hinnar nýju fasteignasöiu.
Frá vinstri Gunnar J. Friðriksson stjómarfor-
maður, Eyjótfur K. Jónsson og Hjörtur Hjartarson
úr stjórn Fjárfestingarfólagsins, Pátur Þór
Sigurðsson framkvœmdastjóri, ingilaifur Einars-
son sðlustjóri, Gunnar H. HáHdánarson fram-
kvœmdastjóri Fjárfestingarfálagslns og Vaigeir
HaHvarðsson. DB-mynd BjamleHur.
NYJAR
LEIÐIR
Á FASTEIGNA-
MARKADI
Fjárfestingarfélag íslands hf. hefur stofnað
dótturfélag og hafið rekstur fasteignasölu
sem nefnist Fasteignamarkaður
Fjárfestingarfélagsins hf.
Fasteignamarkaður Fjárfestingarfélagsins hf. mun annast kaup og
sölu fasteigna og leggja sérstaka áherslu á að kynna nýjar leiðir og
valkosti við fjármögnun í þeim viðskiptum.
Takmarkið er að auðveida fólki viðskipti með því að gera
greiðsluskilmála sveigjanlega. í því skyni verður lögð áhersla á að
kynna verðtryggingu í fasteignaviðskiptum, hvernig hún eykur
möguleika kaupenda og tryggir hag seljenda.
Jafnframt verður kappkostað að veita ítarlegar upplýsingar og
leiðbeina um allt það sem fylgir kaupum og sölu fasteigna og
fjárráðstafanir tengdar þeim viðskiptum. Verður þar m. a. byggt á
áralangri reynslu starfsmanna Fjárfestingarfélag íslands hf. í
fjármálaráðgjöf. Er það von félagsins að með stofnun hins nýja
fyrirtækis megi stuðla að heilbrigðara fjármálalífi á íslandi og
auðvelda viðskipti með fasteignir.
Opið verður mánud.
— föstud. kl. 09 — 18
og fyrst um sinn
laugard. og sunnud.
kl.13-17.
Hafið samband við skrifstofu okkar. Fáið sendan
upplýsingabækling um nýjar leiðir á
fasteignamarkaði. Starfsfólk okkar mun fúslega
veita allar frekari upplýsingar.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 11
101 REYKJAVÍK SÍMI 28466
(HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVÍKUR)
Fasteignamarkaöur
Fjárfestingarfélagsins hf
Lögfræðingur: Pétur ÞórSigurðsson
;