Dagblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
d
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
33 stjómarþingmenn
brugðust Thatcher
er atkvæði voru greidd um fjárlagaf rumvarpið
Meirihluti brezku rikisstjórnarinn-
ar féll niður i fjórtán atkvæði i gær,
sem án efa er mesta uppreisnar-
tilhneiging innan íhaidsflokksins
eftir að Margaret Thatcher varö for-
sætisráðherra i mai 1979.
Eftir mjög heitar umræður um
frumvarpið í fjóra daga þar scm
gagnrýni kom fram bæði frá
stjórnarandstæðingum og stuðnings-
mönnum stjórnarinnar ákváðu um 30
íhaldsþingmenn að mótmæla því
atriði frumvarpsins sem mestum deil-
um hafði valdið, þ.e. 15 prósent
hækkun oliuverðs.
Átta stjórnarþingmenn greiddu at-
kvæði gegn hækkuninni sem þeir
sögðu aö kæmi einkum mjög illa við
iðnaðar- og sveitahéruð. Talið var að
20—25 þingmenn íhaldsflokksins
hefðu setið hjá.
Oiiuhækkunin var samþykkt með
295 atkvæðum gegn 281.
Meðan á umræðunum um fjár-
lagafrumvarpið stóð ákvað einn
þingmaður íhaldsflokksins að segja
sig úr flokknum og ganga i lið með
hinum nýja jafnaðarmannahópi upp-
reisnarmanna úr Verkamannaflokkn-
um.
íhaldsmaðurinn Christopher
Brocklebank-Fowler varð þar með
fyrstur íhaidsmanna til að ganga til
liðs við jafnaðarmennina en búizt er
við að þeir gangi formlega frá stofn-
un nýs flokks síðar í þessum mánuði.
íran:
Khomeini
kemur
Bani-Sadr til
hjálpar
Abolhassan Bani-Sadr, forseti
írans, virðist hafa unnið nokkurn sigur
í baráttunni gegn ríkisstjórn landsins.
Trúarleiðtoginn Ayatolah Khomeini
hefur lýst því yfir að öllum beri að
viðurkenna forsetann sem yfirmann
hersveita Iandsins.
N-íriand:
BERNADETTA
ÍPÓLITÍKINA
Bernadetta Devlin hefur nýlega lýst
þvi yfir að hún ætli að snúa sér að
stjórnmálum á ný og mun ef til vill gefa
kost á sér við næstu alþingiskosningar
á írlandi.
Fyrir tólf árum var hún kosin á þing,
þá ekki nema 21 árs gömul. Síðan dró
hún sig í hlé, en hyggst nú freista
gæfunnar á ný.
Fyrir skömmu urðu hún og eigin-
maður hennar fyrir árás, þar sem
skotið var að þeim á heimili þeirra og
slösuðust þau töluvert alvarlega.
llpg
Mótmælaaflgerfllr hafa verifl mjög tíflar i Vestur-Þýzkalandi afl undanförnu og hefur þrásinnis komið til átaka á milli
ungra mótmælenda og lögreglu. Mótmælin hafa einkum beinzt gegn stefnu rikisstjórnarinnar i húsnæflismálum og að
fjölmargar fbúðir skuli standa auðar.
Karl Gústaf, konungur.
SVÍAKÓNGUR
FÆR FULLT
TRÚFRELSI
Fullt trúarbragðafrelsi kann nú að
verða innleitt í Svíþjóð. Kirkjuráðið,
sem er æðsta stofnun sænsku þjóð-
kirkjunnar, leggur nú til breytingu á
sænsku stjórnarskránni þannig að
konungur landsins geti játað þá trú sem
honum kann að þóknast.
Allt frá tíma Gústafs Adolfs hefur
stjórnarskráin kveðið á um að
konungur iandsins skuli fylgja „hinni
hreinu evangelísku kenningu”. Síðar
var því bætt í stjórnarskrá landsins að
kirkjumálaráðherra landsins skuli
fylgja „hinni hreinu evangelísku
kenningu”. Siðar var því bætt í
stjórnarskrá landsins að kirkjumála-
ráðherra landsins skuli einnig tilheyra
sænsku þjóðkirkjunni. Nú leggur
kirkjuráðið það hins vegar til að hann
megi tilheyra hvaða trúflokki sem er.
Pólland:
Verkföllum af
lýstíRadom
Félagar Einingar í pólsku iðnaðar-
borginni Radom hafa afboðað verkföll
og fallizt á að eiga viðræður við ríkis-
stjórn landsins í Varsjá í dag. Áður
hafði þeim tekizt að knýja fram af-
sagnir tveggja af æðstu embættis-
mönnum héraðsins.
8
REUTER
i
Vantar
iðnadarhúsnœdi
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, 50 til 150 ferm, til
leigu eða kaups.
Upplýsingar í síma 99-6053.
Háffhúseign
Til sölu er hálf húseign í Norðurbænum í Hafnarfirði, samtals að flat-
armáli um 210 ferm. íbúðarhæð með 4 svefnherbergjum m.a. Eignin er
öll hin vandaðasta að gerð. í kjallara er m.a. ákjósanleg aðstaða til
dægrastyttingar eða setustofa er á auðveldan hátt er hægt að tengja
aðalhæðinni. Eignin getur verið laus til afnota innan skamms tíma.
Rúmgóður bllskúr fylgir. Bein sala.
Upplýsingar í síma 22870.
Lisbeth F. BrudaI
sálfræðingur
flytur fyrirlestur um norræna rannsókn um
Fæðingarstofnanir á Norðurlöndum
Starfsreglur er snerta feður og systkini.
í Norræna húsinu miðvikudaginn 18. mars kl.
20.30.
Fólagsmáfaráðune ytíð.
Hvaðan koma vopn skæruliða íEI Salvador?
VOPN TIL SKÆRUUÐA
FARA UM NICARAGUA
—segir utanríkisráðherra landsins, Miguel Brockmann
Utanríkisráðherra Nicaragua,
Miguel D’Escoto Brockmann, sagði í
París í gær að skæruliðum vinstri
manna í E1 Salvador bærust vopn sem
færu um Nicaragua. Hann kvaðst hins
vegar ekki vita hvaðan þessi vopn
kæmu en Nicaragua væri ekki á
nokkurn hátt viðriðið málið.
„Mér er ljóst að franska stjórnin
hefur fallizt á sönnunargögn Banda-
ríkjanna fyrir því að vopnin fari um
Nicaragua,” sagði hann við fréttamenn
á flugvellinum í París áður en hann
hélt til Managua.
„Vopnin fara um Nicaragua en
enginn veit hvaðan þau koma og stjórn
Nicaragua á þarna engan hlut að
máli.”
D’Escoto Brockmann sagði að hann
hefði gert utanríkisráðherra
Frakklands, Jean Francois-Poncet,
þetta ljóst á klukkustundarlöngum
fundi þeirra í gær. Hann bætti við:
„Bandaríkjamenn vilja réttlæta eigin
íhlutun (í E1 Salvador) með því aö
halda því fram að aðrar þjóðir séu
einnig að blanda sér í málin.”
Stjórnarhermenn i El Salvador sýna fréttamönnum vopn er tekin voru at skærulið-
um vinstri manna. Bandarikjamenn hafa haldið þvi fram afl Sovétmenn standi afl
baki vopnasendingunum til skærulifla i E1 Salvador mefl aflstofl Kúbumanna.