Dagblaðið - 17.03.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
«
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Átðk í Af ríkuríkjunum Surinam og Máritaníu:
TVÆR BYLTINGARTIL-
RAUNIRIAFRÍKU
— Báðar virðast þær hafa f arið út um þúfur
Uppreisnarhersveitir í Vestur-
Afríkurikinu Máritaniu og Suður-
Afríkuríkinu Surinam hafa reynt að
taka völdin í sínar hendur. Ríkis-
stjórnir beggja landanna sögðu í gær
að byltingartilraunirnar hefðu farið
út um þúfur.
Algeirska fréttastofan APS hafði
það eftir B’Neijara, forsætisráðherra
Máritaníu, að tveir hershöfðingjar,
sem studdir hefðu verið af Marokkó-
mönnum, hefðu staðið á bak við
stjórnarbyltingartilraunina í gær-
morgun.
APS-fréttastofan sagði að þrír
menn hefðu látið lífið í byltingar-
tilrauninni, þar af einn af leiðtogum
byltingarmanna, fyrrum ráðherra,
sem hafi framið sjálfsmorð.
Stjórn Surinam segir að einn af
leyniþjónustumönnum hersins hafi
afhjúpað byltingartilraunina á
sunnudag og hafi einn af samsæris-
mönnunum látið iífið.
Fréttastofan APS sagði að fyrrum
menntamálaráðherra Máritaníu,
Mohammad Abdelkader Ould Bah,
og fyrrum yfirmaður flughers
landsins hefðu framið sjálfsmorð
með því að taka inn eiturtöflur eftir
að þeir voru handteknir. Báðir höfðu
þeir verið búsettir í Marokkó og for-
sætisráðherra Máritaníu lýsti bylting-
artilrauninni sem yfirgangi sem
Marokkómenn stæðu á bak við.
Samband Máritaníu og Marokkó
hefur verið mjög slæmt frá því í ágúst
1979 þegar Máritaníumenn rufu sam-
komulag við Marokkó um að heyja
stríð gegn Polisario-skæruliða-
hreyfingunni sem berst fyrir sjálf-
stæði Vestur-Sahara og nýtur til þess
stuðnings Alsírmanna.
Sovétmönnum
aðkenna
— segja Bandaríkjamenn
Bandarikjamenn sökuðu í gær
Sovétmenn um að bera að hluta til
ábyrgð á því hve seint gekk að fá gísl-
ana lausa úr höndum pakistönsku flug-
ræningjanna sem héldu yfir 100 farþeg-
um í gíslingu í þréttán daga eða fram á
laugardag og myrtu einn gíslinn í
Kabúl.
33 prósent Frakka
vilja dauðarefsingu
—sjö dæmdir fangar bíða þess nú livort
dauðadómnum verði f ullnægt með
fallöxinni
Sjö dauðadæmdir fangar bíða nú í
fangelsum í Frakklandi, eftir því hvort
dómunum verði fullnægt.
Tveim vikum fyrir forsetakosning-
arnar, tekur Valerie Giscard d’Estaing
afstöðu til tveggja náðunarbeiðna.
33% af frönsku þjóðinni vilja halda
dauðarefsingu, en í nóvember í fyrra
var kosið í Evrópuráðinu, um hvort
aðildaríkin myndu afnema dauðarefs-
ingu. Var meirihlutinn fylgjandi því.
Frakkar eru eina þjóð Vestur-
Evrópu sem enn hefur dauðarefsingu
og dauðarefsingunni er fullnægt með
því að hálshöggva fangann.
Þessi spurning, hvort halda skuli við
dauðarefsingu í landinu, kann að
skipta miklu í kosningarbaráttunni
fyrir forsetakosningarnar.
Þyngstu dómar ífóstureyðingarmálum í Frakklandi:
Svo kann afl fara að fallöxin verfli tekin i notkun að nýju i Frakklandi innan
skamms. Myndin er tekin af opinberri aftöku þar i landi árið 1929.
HlRabæp
" Siðumúla 22 - Tjarnargötu 17,
Simi 31870 Keflavik Sími 2061
Yfírtæknir fékk sex
ára fangelsisdóm og
missti læknisleyfíð
— Fóstureyðing f ramkvæmd á 8. mánuði meðgöngutamans
Þyngstu dómar er kveðnir hafa verið
upp í fóstureyðingarmálum í Frakk-
landi voru kveðnir upp nú fyrir
skömmu. Ákæruvaldið og dómarar
voru sammála um það að dómunum
væri ætlað að hafa áhrif til varnaðar
þannig að lögin um fóstureyðingar.sem
sett voru 1975, verði virt.
Yfirlæknir á deildinni sem fram-
kvæmdi fóstureyðingarnar fékk sex ára
fangelsisdóm og missti lækningaleyfi
sitt ævilangt. Aðrir læknar fengu dóma
frá árs fangelsi, skilorðsbundið, til
fimm ára fangelsi, og misstu starfsleyfi
sín frá fimm árum til ævilangt.
í Frakklandi er heimilt að fram-
kvæma fóstureyðingu, ef konan er ekki
gengin með nema í 10 vikur. Á þessari
deild í París, voru aðgerðirnar gerðar
löngu eftir tilsettan tíma. í einu til-
vikinu var fóstureyðing framkvæmd á
áttunda mánuði meðgöngutimans.
Þjáningar ibúa Mið-Amerikurikisins El Salvador hafa verifl miklar á undan-
förnum mánuðum vegna borgarastyrjaldarinnar sem geisar i landinu. Að sjálf-
sögðu kemur styrjöldin ekki sizt niflur á börnum og öðrum Iftilmögnum. Stór hluti
ibúanna býr við matarskort og ekkert lát virflist á hörmungum þjóflarinnar.
4 ■
■ m '
REUTER