Dagblaðið - 17.03.1981, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
iI
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
[ Ítalía um áramot ]
Árið 1980 reyndist ítölum svo
þungt i skauti að nær enginn þar í
landi sá fram á gleðilegt nýtt ár þegar
áramótin gengu í garð enda var
falskur tónn í þeim ámaðaróskum
sem menn köstuðu hver á annan fyrir
kurteisissakir.
Svo mörg eru þau hneyksli,
hörmungar og önnur óáran sem fyrir
liggja að nægir okkur ítölum út þetta
ár. Það sem verra er: tíminn virðist
hlaupinn frá okkur og ekkert ráðrúm
gefst til að bera smyrsl á sárin sem
opnast æ meir með hverjum mán-
uðinum sem líður.
Ekki má skilja orð okkar svo að
við séum staðráðin í að skýra aðeins
frá neikvæðum hliðum mannlífs á
italíu, en hins vegar værum við ekki
að gera neinum greiða með því að
fela þær staðreyndir.
Ferðalög um jól
Nálægt jólum, þegar áhrif fagn-
aðarerindisins mátti sjá á hverju
götuhorni, hófst óvenjulegt ferðalag
á Suður-haliu. Sú ferð átti næsta lítið
skylt við ferðalag fjárhirðanna
forðum, í leit að vöggu Frelsarans og
friðarhöfðingjans, heldur var hún án
fyrirheits og vonar. Ferðalangarnir
voru íbúar þeirra héraða sem misst
höfðu allt sitt í jarðskjálftunum i
haust og þeir hurfu á brott í grafar-
þögn, með hinar fáu eigur sínar á
bakinu.
Þeir sem eftir þraukuðu, i sárum
eftir heljartök þeirra náttúruafla sem
þeir höfðu búið með í sátt og sam-
lyndi áratugum saman og mótað
höfðu allt lif þeirra, börðust hetju-
legri baráttu gegn óbltðri veðráttu,
fannfergi og kulda. Mafian í Napóli,
hin svokallaða „camorra”, var fljól
að sjá gróðavon í þessum harmleik
sem öðrum og vílaði ekki fyrir sér að
nota sér þjáningar hins hrjáða fólks á
jarðskjálftasvæðunum.
Hneyksli aldarinnar
Glæpamenn smygluðu sér inn á
meðal björgunarliða og með byssum
sínum stöðvuðu þeir sendingar til
svæðanna og höfðu á brott með sér
þær vistir og hjálpargögn sem ætluð
voru fórnarlömbum jarðskjálftans.
En jarðskjálftinn þann 23. növem-
ber kom á hæla eins mesta hneykslis
sem komizt hefur upp um á Ítalíu,
sannkallaðs hneykslis aldarinnar.
Hér er að sjálfsögðu átt við bensín-
málið svonefnda. Árum saman hefur
ríkið verið snuðað um upphæðir sem
nema hundruðum milljarða líra, með
dyggilegri aðstoð nokkurra stjórn-
málamanna og háttsettra manna í
skattaeftirliti ríkisins.
Mörg helztu olíufélög á Ítalíu
höfðu komið sér upp baktjaldasam-
tökum sem gerðu þeim kleift að flytja
inn og dreifa bensíni á ólöglegan
hátt. Upp úr krafsinu höfðu þau að
sjálfsögðu gífurlegar upphæðir.
Þegar Ijóstrað var upp um þetta
hneyksli, komst sömuleiðis upp um
samtryggingu ýmissa þekktra stjórn-
málamanna, sem höfðu rakað sanian
peningum með aðild sinni að bensín-
málinu.
Djúpstæð vantrú
Þar hefur borið hæst Marco
Freato, sem var árum saman einkarit-
ari Aldo Moros, hins myrta for-
manns Kristilegra demókrata. í litilli
íbúð hans í Róm fundust listaverk að
verðmæti milljarðar lira. En Freato
er aðeins einn af fjöldamörgum
framámönnum sem flæktir eru i
þetta hneyksli. Viðbrögð fólks við
þessum uppljóstrunum hafa öll verið
á einn veg og hafa kynt undir djúp-
stæðri vantrú ítala á stjórnkerfi
landsins og ríkjandi stjórnmála-
ástandi.
GLEÐILEGT NYTT AR?
1 síauknum mæli tala menn nú um
siðferðilegar forsendur þess sem fram
fer á ítalska þinginu, en sú hlið
stjórnmála hefur yfirleitt ekki verið
mikið tilumræðu hér um slóðir. Og
með siðferðilegar grundvallarreglur
að leiðarljósi hafa menn nú dregið
fram í dagsljósið ýmsar gerðir stjórn-
málamanna og kerfiskalla til að vega
þær og meta og komast að sannleik-
anum.
hryðjuverkamanna, en var að lokum
sleppt eins og kunnugt er. Út af ráni
hans varð mikill pólitiskur úlfaþytur
sem enn er ekki séð fyrir endann á og
án efa á hann eftir að draga mikinn
dilk á eftir sér. En um þá framvindu
eigum við sennilega eftir að skrifa
siðar. Þetta greinarkorn átti nú aldrei
að verða annað en stutt hugleiðing
um ástand og horfur á Ítalíu um og
eftir áramótin siðustu.
Fabrizw&Daniela
Raschellá
skrifafráítalíu
ítalskir hermenn við björgunarstörf á jarðskjálftasvæðunum — en matvælin lentu í höndum Mafiunnar.
Trúin á lýðræðið
Þótt umræður um bensinmálið
hafi ekki hjaðnað, hurfu þær úr
sviðsljósinu um stund fyrir öðrum at-
burði, ráni Giovanni D’Urso
dómara. í 33 daga sat hann í prísund
Vissulega höfum við lagt áherzlu á-
það sem miður hefur farið. Því er
rétt, svona i lokin, að ítreka það að
allur þorri almennings á ítaliu hefur
ekki enn misst trúna á lýðræðið enda
man fólk gjörla tuttugu ára harð-
stjórn fasista. Sú vitneskja gefur
manni örlitla von, svo og vilja til að
standa vörð um ítalskt þjóðfélag,
sem niðurrifsöflin sækja nú að úr
ýmsum áttum.
Fabrizio& Daniela Raschellá
„Bandaríkjamenn heyja
stríð gegn Afganistan ”
— skrifar
Pravda,
málgagn
sovézka
kommúnista
flokksins
Pravda, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, hefur for-
dæmt ummæli Reagans Bandaríkja-
forseta, sem skilin hafa verið á þann
veg að hann hafi í hyggju að útvega
uppreisnarmönnum í Afganistan
vopn. „Bandaríkin heyja nú óyfir-
lýst stríð gegn Afganistan,” skrifar
Pravda. „Yfirlýsing Bandaríkjafor-
seta getur aðeins skaðað
Afganistan,” skrifar blaðið.
Jafnframt segir blaðið að vopna-
sala Reagans til afganskra
uppreisnarmanna í Pakistan feli í
raun ekki í sér neina breytingu á
utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
„Stjórn Carters neitaði vissulega
að kannast við þá staðreynd að hún
sá gagnbyltingaröflum í Afganistan
fyrir vopnum,” skrifar Pravda.
„Það gerði hún þrátt fyrir að vitað
væri aðstrax eftir byltingunal978 hóf
hún leynilegar áætlanir sínar gegn
Afganistan. í Pakistan er það
alkunna að þar eru margar
miðstöðvar þar sem Bandaríkja-
menn, Kínverjar og fleiri þjálfa
skemmdarverkamenn. Þrásinnis hafa
einnig fundizt vopn í búðum
uppreisnarmanna, sem merkt hafa
verið „Made in USA”.
En núna hafa Bandaríkjamenn
kastað grimunni. Árás Banda-
ríkjanna á Afganistan er nú
viðurkennd. Bandaríkjamenn hafa
tekið stefnuna á illindi,” skrifar
Pravda og segir að stefna Banda-
ríkjastjórnar sé því gjörólík þeirri
friðarstefnu sem Leonid Brésnef
boðaði i ræðu sinni á aðalþingi
sovézka kommúnistaflokksins fyrir
skömmu.
Þar var það sem Brésnef setti fram
þá hugmynd sína að leiðtogar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna hittust að
máli innan skamms til viðræðna um
heimsmálin.
Sovézkir hermenn í Afganistan.
Sovétmenn saka nú Bandaríkjamenn
um að heyja striO gegn Afganistan.