Dagblaðið - 17.03.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ1981.
MARIA GIACOBBE
segir frá Sardiníu og sýnir litskugga-
myndir þriðjudag 17. mars kl. 20.30.
Verifl velkomin
Norræna húsifl
SJÚKRAHÚSIÐ
á Egilsstöðum
auglýsir eftir sjúkraliðum
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-
1400.
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferóinni.
UUMFERÐAR
RÁÐ
✓
SENDING AFÞESSUM
V/NSÆLU SUMARSKÚM
Pinto Teg. 4469/2
Hvítt stærðir: 36—41
Verðkr. 132.50
Pústsendum
samdmgurs
Teg.3417
Hvítt stærðir: 19—39
Verð frá 106.90 — 148.40
SKÓ VERZLUN
DOMUSMEDICA
SÍM118519
Seiðurinn magnaður i Krísuvlk. Seiðkarlinn Þorgrim nef (á palli f miðið) leikur Björn Einarsson.
DB-myndir Helgi Már Halldórsson.
MEÐ FORNESKJU-
TAUTÁ VÖRUM
Silja Aðalsteinsdóttir f hlutverki seiðkerlingar.
Seiðkarlinn Þorgrímur nef tíndi
grös og sveppi úr skjóðu sinni og lét
falla í hverinnn. Skeggi, aðstoðar-
seiðkarl, gekk kringum hann meö
forneskjutaut á vörum og viðstödd
voru líka karlar og konur sem fylgd-
ust með seiðmögnuninni af innlifun.
Þau höfðu lambhúshettur á hausnum
svo rétt grillti í andlitsbjórinn.
Við þetta undu menn sér í Krisuvík
á sunnudaginn þegar fyrsta atriðið í
ísfilm-kvikmyndinni Útlaginn var
fest á fílmu. Ágúst Guðmundsson,
leikstjóri myndarinnar og einn eig-
enda ísfilm, bjó til kvikmyndahand-
rit eftir sögu kappans Gísla Súrssonar.
Þó kvikmyndagerð á lslandi hafi þótt
þrekvirki hingað til er þó óhætt að
segja að hér sé ráðizt í stærra verk-
efni en áður hefur þekkzt hér á landi,
svo stórt að mörgum þykir nóg um og
velta því fyrir sér hvort þetta sé ekki
bara hreint óráðsflan. Hvort ekki sé
nær að velja sér smærri og auðveld-
ari (ódýrari!) verkefni. Ágúst Guð-
mundsson svaraði þessum vangavelt-
um þannig þegar DB átti tal við hann
ígær:
,,Ég get i sjálfu sér verið sammála
því að hér er ráðizt í anzi stórt verk-
efni en það er nú einu sinni svo að í
þessum „bransa” verður alltaf að
taka á sig áhættu. Manni líður eins
og fjárhættuspilara: þeim mun meiri
áhætta sem við tökum þeim mun
skemmtilegra að lifa!
En án gamans. Við gerum okkur
fulla grein fyrir áhættunni sem fylgir
en höfum þann metnað að leggja út í
ævintýrið. Jú, það má segja að við
gerum ráð fyrir að þetta gangi með
því að koma myndinni á markað
erlendis líka. En þrátt fyrir það erum
við fyrst og fremst að framleiða
mynd fyrir íslendinga.”
Þess er vænzt að víg Þorgríms nefs
verði kvikmyndað í lok vikunnar.
Það átti að gerast í gær en var frestað
vegna veðurs. Búið var að kalla út
allan mannskapinn klukkan 5 i fyrri-
nótt, tína til dót og búa leikara undir
töku. En þá mögnuðu veðurguðir
seið á ísfilm og öllu var slegið á frest.
í næstu viku er fyrirhugað að
dvelja í Hítardal í Borgarfirði við
kvikmyndun. Það verða strangir
dagar, sagði Ágúst. En eftir það
kemur hlé, eða þar til í maímánuði að
stúdíóvinna hefst i Reykjavík.
Fjöldi manns vinnur að gerð Útlag-
ans. Ágúst leikstýrir eins og fyrr er
getið. Honum til aðstoðar er Ingi-
björg Briem. Sigurður Sverrir Páls-
son kvikmyndar, Oddur Gústafsson
sér um hljóðupptöku, Hannes
Jóhannesson er aðstoðarhljóðmaður,
Ragnheiður Harwey stjómar förðun,
Jón Þórisson. stjórnar leikmynda-
gerð, svo einhverjir séu nefndir. Jón
Hermannsson er framkvæmdastjóri
ísfilm. Jón, Ágúst Guðmundsson og
Indriði G. Þorsteinsson eru eigendur
ísfilm.
Fjöldi atvinnu- og áhugaleikaara
kemur fram í Útlaganum. Aðalhlut-
verkið, Gísla Súrsson, leikur Arnar
Jónsson.
- ARH
Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökumaður og Ágúst Guðmundsson leik-
stjóri. Sigurður Sverrir kvikmyndaði Land og syni á vegum ísfilm og hlaut
fyrir það menningarverðlaun Dagblaðsins f ár. Hann kvikmyndaði líka
Punktur, punktur, komma, strik sem frumsýnd var i Reykjavik um helgina.