Dagblaðið - 17.03.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
Skrefatalningarmálið verður
hvergi „flokksmár’
Skrefatalning símagjalda verður væntanlega ekki „flokksmál” M.a. er nú talað um 6 mínútna skreflengd í stað þriggja í upp-
hjá neinum þingflokkanna. DB ræddi við formenn þeirra allra hafi og nú er talað um talningu á öllum símsvæðum en ekki
í gær og spurði þá um afgreiðslu málsins innan þingflokkanna. bara á 91-svæðinu. En hér fara á eftir svör þingflokksfor-
Kom í ljós að mönnum sýnist sitt hvað en bent var á að málið mannanna:
hefði tekið miklum breytingum frá þvi það var fyrst hugsað.
Páll Pétursson form. þingflokks Framsóknar:
Réttlátt að lengja 8
sekúndna skref
ATU
STEINARSSON
Tel að framsóknarmenn standi
á kostnað talningar
„Málið hefur verið rætt í'þingflokki
Alþýðubandalagsins en verður þar ekk-
ert flokksmál,” sagði Ólafur Ragnar
Grímsson form. þingflokksins.
„Það sem fyrst og fremst ber að
keppa að er jöfnun símgjalda utan-
bæjarmanna annars vegar og gjalda á
þéttbýlissvæðunum. í skrefatalningar-
málinu er starfandi fjögurra manna
nefnd þingmanna Reykvíkinga. Hún
hefur fengið ýmsar upplýsingar frá
póst- og símamálastjóra. M.a. er upp-
lýst að meðallengd símtala á Reykja-
víkursvæðinu nú sé um 2,5 mínútur.
Einnig er það upplýst að við upphaf
skrefatalningar verði lengd hvers skrefs
6 mínútur.
Það er einnig upplýst að aðeins 14%
símtala i Reykjavík séu lengri en 2,6
minútur. Það virðist réttlátt að skref
upp á 6 mínútur teljist sanngjörn gegn
því að þau skref sem stytzt eru núna í
samtölum frá ýmsuni stöðum á landinu
verði lengd. Stytztu skref á landinu nú
eru 8 sekúndur. Það er réttlátt að þau
verði lengd á kostnað þess að 6
mínútna skrefgjald verði tekið upp í
Reykjavík og nágrenni,” sagði Ólafur.
- A.St.
Páll Péturs-
son: „Hvenær
lækkar nokkur
hlutur hér á
landi?”
saman með skref atalningunni
„Það hefur engin formleg ákvörðun
verið tekin um málið í þingflokki
Framsóknarflokksins,” sagði Páll
Pétursson form. þingflokksins. „Ég á
hins vegar ekki von á öðru en að menn
standi saman með skrefatalningunni.
Mér sýnist að málið miði að jöfnuði
símakostnaðar,” sagði Páll.
manna kæmi hinn mikli mismunur í
ljós. Það er orðið úrelt að verðleggja
símtöl eftir vegalengdum. Við viljum
jafna lífsaðstöðuna hér á landi og ný
málinu. Það er gamalt fólk úti á landi
líka sem þarf síma og á mikið undir
símanum. Það er vitað mál að skrefa-
talning kemur einhverjum illa en það er,
ekki réttlátt að hálf þjóðin geti talað
saman sln á milli án nokkurra verulegra
símgjalda en hinn helmingurinn ekki,”
sagði Páll.
Ólafur R. Grímsson form. þingflokks
Alþýðubandalags:
viðhorf í þessu máli, t.d. að skrefataln-
ing fari fram á svæðum úti á landi
einnig, breyta ekki okkar afstöðu í
Hann kvaðst geta sagt fyrir sitt leyti
að þegar hann væri heima hjá sér á
Höllustöðum gæti hann talað við
u.þ.b. 50 manns á sams konar gjaldi og
hálf þjóðin á 91-svæðinu gæti spjallað
sin á milli. „Ef ég ætla heiman frá mér
að spjalla við einhvern utan 50 manna
hópsins kostar það stórfé,” sagði-Páll.
- A.St.
Ólafur Ragnar Grímsson: „Það sem
fyrst og fremst ber að keppa að er jöfn-
un simgjalda.”
— Er það jöfnuður að þínum dómi
að hækka símgjöld á Reykvíkingum
eða búizt þið við að símgjöld úti á
landsbyggðinni lækki?
„Hvenær lækkar nokkur hlutur hér
á landi?” sagði Páll og bætti við: „Ef
úttekt væri gerð á simakostnaði lands-
Sighvatur Björgvinsson: „Ég er ekld
fylgjandi þvi að aðeins sé teldð upp
nýtt gjald I þéttbýli til að hækka gjöld á
simnotendum þar.”
Sighvatur Björgvinsson
form. þingfl.
Alþýðuflokks:
Aðrar leiðir
miklu betri til
jöfnunar
símgjalda en
talningin
„Þetta er ekki flokksmál hjá okkur
alþýðuflokksmönnum,” sagði Sig-
hvatur Björgvinsson formaður þing-
flokksins. „Við höfum varla rætt
málið í þingflokknum ennþá.
Ég er að sjálfsögðu með því að sím-
gjöld landsmanna séu jöfnuð en ég er
ekki fylgjandi því að aðeins sé tekið
upp nýtt gjald í þéttbýli til að hækka
gjöld á símnotendum þar,” sagði
Sighvatur.
Hann kvað alþýðuflokksmenn vilja
fara aðrar leiðir í þessum efnum og
minnti m.a. á framkomna tillögu frá
alþýðuflokksmönnum um að komið
yrði upp ,,frí”-númerum í aðsetri
stjórnarstofnunar þannig að hver
landsmaður gæti hringt i stjórnarskrif-
stofur án gjalds.
„Landsbúum er enginn greiði gerðúr
með því að setja upp skrefamælingu.
Símkostnaður lækkar ekki á iands-
byggðinni þó að hann hækki á mestu
þéttbýlissvæðunum,” sagði Sighvatur.
- A.St.
ÓlafurG. Einarsson (S):
Hærri sfmgjöld án
vísitöluhækkunar
— er augljós tilgangur málsins
„Skrefatalningarmálið getur ekki
talizt flokksmál hjá þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins,” sagði Ólafur G.
Einarsson form. þingflokksins. „En
málið hefur verið rætt á þingflokks-
fundum og það á eftir að ræða það
enn frekar á þeim vettvangi.
Ég hef áður látið þá skoðun í ljós að
ég tel í þessu máli að verið sé að fara í
kringum okkar vísitölukerfi. Megintil-
gangurinn er að auka tekjur símans án
þess að sú hækkun hafi áhrif á vísitöl-
una. Málinu er lætt inn á Alþingi m.a. í
þessum tilgangi,” sagði Ólafur.
Ólafur sagði að þó því væri borið við
að tilgangur málsins væri sá að jafna
ætti símgjöld á landsmönnum væri
augljóst að hér væri einungis verið að
skapa símanum auknar tekjur án vísi-
töluhækkunar.
- A.St.
Óiafur G. Einarsson: „VeriO er aO fara
í kringum okkar visitölukerfi.”
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 4? - Sími 15105
Fyrir námsfólk jafnt og aðra sem
við vinnu sína sitja er mikilvæg
undirstaða árangurs að sitja
rétt og þægilega. Stóll frá Stáliðjunni
er því góð gjöf handa
fermingarbarninu, góður
stuðningur áður
en lengra er haldið.
STAUÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGl, SÍMI 43211