Dagblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981.
g
Útvarp
27
Sjónvarp
»
ÚR LÆÐINGI — sjónvarp kl. 21,05:
Verðum við einhverju
nær um Maríus á Völlum?
Þeir sem sáu fyrsta þátt sakamála-
myndaflokksins Úr læðingi bíða án
efa spenntir eftir þeim næsta sem
verður sýndur í kvöld. Rannsóknar-
lögreglumaðurinn Sam Harvey virðist
nefnilega flæktur í mjög dularfulla
morðgátu og einu vísbendingarnar sem
hann hefur eru tvö nöfn, Hogarth og
Maríus á Völlum.
Foreldrar Sams voru skotnir úr þyrlu
sem flaug lágt yfir bílaleigubíl þeirra.
Bílaleigubíllinn var merktur fyrirtæki
með nafninu Maríus á Völlum en við
rannsókn reynist það fyrirtæki ekki til.
Nafnið Hogarth kemur einnig tvisvar
fyrir í þættinum, í bæði skiptin á dular-
fullan hátt. Og þegar starfsstúlka hjá
bílaleigufyrirtæki neitar að kannast við
að hafa nefnt Hogarth á nafn lízt Sam
ekki á blikuna.
Nágrannakona foreldra Sam hafði
verið fengin til að líta eftir húsi þeirra
og kom hún nokkuð við sögu í fyrsta
þætti. Sá þáttur endaði einmitt á því að
hún kom í heimsókn til Sam með poka i
hendinni sem á stóð Maríus á Völlum.
í þættinum í kvöld byrjar Sam
náttúrlega á því að spyrja hana hvar
hún hafi fengið þennan poka. Hún
segir honum þá nokkuð undarlega sögu
um innbrot en ekki er rétt að upplýsa
meira um efnið tii að draga ekki úr
spennunni.
Kristmann Eiðsson er þýðandi þátt-
anna.
-KMU.
Sam Harvey rannsakar dularfulla
morðgátu.
ÞORVALDUR VÍDFÖRLIK0ÐRÁNSS0N - útvarp á morgun kl. 11:
Víkingablóð rann í æðum
fyrsta ísl. kristniboðans
Séra Gísli Kolbeins prestur i
Stykkishólmi byrjar i fyrramálið lestur
söguþátta um fyrsta íslenzka kristni-
boðann, Þorvald viðförla. Lesari með
honum er systir hans, Þórey Kolbeins.
Gisli Kolbeins hefur i mörg ár
fengizt við rannsóknir á heimildum um
Þorvald Koðránsson sem fékk viður-
nefnið víðförli. Þorvaldur var fæddur
og alinn upp i Húnavatnssýslu, sonur
höfðingja á Stóru-Giljá í Þingi. Sem
höfðingjasyni sæmdi hélt hann ungur í
viking og var um tíma i liði Sveins
Danakonungs. Fljótlega sneri hann þó
baki við vikingalífinu, fór suður um
lönd til Saxlands þar sem hann kynnt-
ist Friðriki biskupi. Friðrik var
trúboðsbiskup, hafði ekkert fast
aðsetur heldur var vígður til að boða
kristna trú meðal heiðingja. Svo fór að
Þorvaldur tók skírn hjá honum og
héldu þeir báðir til íslands árið 981 í
þeim tilgangi að kristna þjóðina.
Þeir félagar dvöidu fyrsta veturinn á
Stóru-Giljá, hjá Koðráni, föður Þor-
valds. Að sjálfsögðu var fyrsta
verkefnið að skíra Koðrán. Koðrán var
hins vegar ekki á því að taka skírn, trú
hans á Óðin og Þór var meiri en svo að
hægt væri að kasta henni fyrir róða á
einu augnabliki. Sagt er að hann hafi
haft átrúnað á steini einum miklum er
Gullsteinn var kallaður og stóð í
grennd við bæinn. Á hann að hafa sagt
að ef hann tæki skírn myndi verndar-
vættur sinn, sem bjó í steininum,
reiðast sér. En Friðrik biskup gekk þá
að steininum og tók að sy.lgja yfir
honum. Við það klofnaði steinninn og
að sjálfsögðu sannfærði það Koðrán
um má't hinnar nýju t úarog lét hann
þegar skírast.
Um vorið fluttust Þorvaldur og Friðrik
til Lækjamóts i Viðidal, þar scm þeir
bjuggu næstu þrjú árin. Þaðan fóru
þeir í kristniboðsferðir í ýmsar áttir,
einkum um Vestur- og Norðurland.
Þeim varð nokkuð ágengt og tóku
margir skírn, þó enginn
goðorðsmaður. Þorvaldur gegndi
aðallega hlutverki túlks, biskup skildi
ekki málið. En brátt myndaðist and-
staða gegn þeim og ortu menn um þá
nið, þar sem látið var að þvi liggja að
kynhegðun þeirra væri óvenjuleg.
M.a. varð þessi vísa til:
Hefir börn borit
byskup níu.
Þeirra es allra
Þorvaldr faðir.
Séra Gisli Kolbeins.
Þorvaldur, sem þótti reyndar
ribbaldi mikill, reiddist mjög þessu sem
von var, því fátt var verra í þá daga en
láta yrkja um sig níð. Drap hann þvi
tvo menn sem hlut höfðu átt í
kveðskapnum. Ekki urðu vígin til að
auka á vinsældir þeirra og hrökkluðust
þeir að lokum af landi brott. Fátt er
vitað um Friðrik biskup eftir þetta, en
Þorvaldur fór suður um lönd, til
Miklagarðs og síðan til Garðaríkis þar
sem hann ílentist og dó. -KMU.
KIRKiAN—sjónvarp kl. 21,35: NEMENDALEIKHÚSIÐ
Að hvaða ttsk&A kamur Peysufatadagurinn
nw i■ vauu gcigiii viviiiMi eftir Kjartan Ragnarsson
LÍkIíioii í nn+ím^niim Sýning miðvikudag kl. 20.
ivinvjaii i nuiimanum s Miðasala opin i Lindarbæ fré kl. 16—19 alla daga, nema laugar-
daga. Miðapantanir i sima 21971 á sama tima.
— umræðuþáttur um stöðu íslenzku kirkjunnar
Gunnlaugur Stefánsson guðfræði-
nemi og fyrrverandi alþingismaður
stjórnar í kvöld umræðuþætti um
stöðu íslenzku kirkjunnar.
Þátttakendur verða Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona, Árni
Gunnarsson alþingismaður, Björn
Björnsson prófessor og séra Þorbergur
Kristjánsson, sóknarprestur í Digranes-
prestakalli. Auk þess verður skotið inn
í þáttinn stuttum viðtölum við Geir
Gunnarsson alþingismann, séra Sigurð
Hauk Guðjónsson, sóknarprest í Lang-
holtsprestakalli, og Gunnar Benedikts-
son.
Sjálfsagt má búast við fróðlegum
umræðum um kirkjuna í þjóðfélagi
nútímans. Áhrif kirkjunnar á mann-
lifið eru ekki eins mikil í dag og þau
voru fyrr á öldum en hins vegar er ekki
eins víst hvort nauðsyn hennar er minni
í nútímanum, á tímum örra breytinga
og hraða.
-KMU.
BÍLASALAN SKEIFAN
Skeifunni 11- Símar 84848og 35035.
Tll sölu Toyota MKII árg. 1977, akinn aflains 56 þúa. km. Eínn aigandi
frá upphafl. Sérstakt eintak.
Trésmiöir óskast strax
í innivinnu
Reynir h/f, byggingarfélag
Smiðjuvegi 18 — Sími 71730 eða 71699
á skrifstofutíma — á kvöldin 23398