Dagblaðið - 15.04.1981, Síða 26
38
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
Allir vi/ya komast tilsólaríanda ísuman
„Fólk kemur og heimtar
að borga inn á ferðina”
__ j» _ ■__ a m m jl r m r ■
Svo virðist sem gífurlegur
straumur liggi til sólarlanda í
sumar eftir nokkra lægð
undanfarin tvö ár. Ferða-
skrifstofukóngar sitja ráð-
villtir með nær allar ferðir
sumarsins uppbókaðar. En
hvað veldur? Flestum ber
saman um að kaldur, langur
og leiðinlegur vetur sé orsökn
og má það öruggiega til sanns
vegar færa. Einn „kóngur-
inn” sagði í samtali við DB að
hann skildi bara alls ekki hve
mikla peninga fólk hefði milli
fingranna. „Það kemur
hingað með fulla vasa fjár og
heimtar að borga inn á ferð-
ina. Við höfum bara aldrei
upplifað annað eins.”
Ennþá eru örugglega
margir sem eiga eftir að bóka
sig í sólarlandaferð og þeim
til glöggvunar tókum við
saman helzta úrval ferðaskrif-
stofanna í sumar. Um margt
er að velja og aðeins lítið brot
kemst hér að. Þó reyndum við
að finna álitlegustu staði hjá
hverri ferðaskrifstofu fyrir
sig. Auðvitað bjóða- ferða-
skrifstofurnar upp á fleiri en
einn stað en af öllu því sem
við birtum hér ættu einhverjir
að hafa gagn.
Það skal tekið fram að verð
ferðanna er samkvæmt degin-
um í dag en ferðaskrifstof-
umar hafa allan fyrirvara á
að það geti breytzt. Þá er vert
að geta þess að gjaldeyrir, sé
farið á eigin vegum, er í
kringum 8000 krónur, ef farið
er í hópferð í kringum 5500
krónur. Þetta breytist þó að
sjálfsögðu með genginu.1
Góða ferð. - ELA
Benidorm með Ferðamiðstöðinni:
STAÐURINN SEM NVTUR VIN-
SÆLDA HJÁINNFÆDDUM
„Benidorm nýtur mikilla vinsælda
hjá Spánverjum, þvi er verðlag miðaö
við þeirra greiðslugetu. Þess vegna er
ódýrara á Benidorm en sambærilegum
stöðum á Spáni.” segir Bessi Bjarnason
i auglýsingu um Benidorm. Má vera
að þetta sé rétt þó verðbólga á Spáni
sé gífurleg eftir fráfall Frankós. En
Benidorm hefur upp á margt að bjóða
eins og aðrir staðir á Spáni, auk
sólarinnar að sjálfsögðu.
Ferðamiðstöðin býður upp á margs
konar skoðunarferðir. Ein þeirra er
Guadalest, fjallaferö þar sem ekiö er
upp i fjallaborP með gömlum kastala
frá máratímanum í gegnum appelsínu-
og sítrónulundi. Þá er einnig i boði
ferð i Safarígarðinn á Costa Blanca þar
sem villt dýr ganga um á 1000 ferkm
svæði.
Einnig er í boði skoðunarferð til
Canalobrehella en þeir eru á leiðinni
frá Benidorm til Alicante sem er
höfuðborg héraðsins. Skoðaður er
Santa Barbara kastalinn og farþegum
gefst kostur á að kynna sér vöruúrvalið
í verzlunum í Alicante. Farþegum gefst
einnig kostur á að skoða þriðju stærstu
borg Spánar, Valenciu. Þar er skoðuð
dómkirkjan, sem er í gotneskum stíl frá
13. öld og ýmislegt fleira er þar aö sjá.
Þá er ekki síður um ýmsar
skemmtanir að velja, s.s. sígauna-
kvöld, burtreiðar þar sem riddarar sýna
bardagafimi og síðast en ekki sízt grísa-
veizla. Næturlifið er fjölbreytt á
Benidorm og ýmislegt er þar hægt að
gera á daginn sér til afþreyingar. Hægt
er að fá Íeigöa báta, sjóskiði og bila. í
Benidorm er að finna margvíslega mat-
sölustaði auk þess sem margar
gamaldags enskar krár eru þar.
Ferðamiðstöðin býður upp á tvenns
konar hótel, hótel Rósamar og hótel
Britannia. Bæði þessi hótel eru með
fullu fæði og er verðið frá 6700
krónum miðaö við að tveir séu i her-
bergi f þrjár vikur í júiimánuði. Veröið
er misjafnt eftir því i hvaða mánuði
farið er. Þá býður Ferðamiðstöðin
tvenns konar íbúðarhótel, Hawaii og
Don Miguel. Verðið er frá 6670 miðað
viö tvo i ibúð i 21 dag i júlímánuði.
Flogið er beint til Alicante og flugtimi
rúmar 4 klst. Er þangað er komið er
farið með hópferðabilum til Benidorm
og tekur ferðin um eina klukkustund.
Meðaihiti á Benidorm yfir sumar-
mánuðina er frá27—31 gráðu.
-ELA.
f Benldorm gefst farþegum kostur á að
aka upp i fjallaþorpið Guadalest.
Ofympo býður einnig tí! Benktorm
Ferðaskrifstofan Olympo býður
einnig upp á ferðir til Benidorm, þó
ekki i beinu leiguflugi eins og Ferða-
miðstöðin. Flogið er til London með
Flugleiðum og þaðan til Benidorm.
Farþegar eiga þess kost að stanza i
London í bakaleiö, þó gildir farseðill
ekki lengur en 30 daga i ailt. Verð á
ibúðarhótelum er frá 5800 krónum
yfir sumarmánuðina fyrir manninn
og á hóteli með fullu fæði frá 5600
krónum miðaö við þrjár vikur á
Benidorm. Gisting í London er ekki
innifalin i verðinu en Olympo útvegar
farþeganum hótelgistingu þar ef
hannóskar eftir.
Olympo hefur 4 hótel og 2 íbúðar-
húsnæði upp á að bjóða og eru þau
öll við ströndina. Eins og Ferðamið-
stöðin býður Olympo upp á margvís-
legar skoðunarferðir. Bæklingur um
ferðir til Benidorm á vegum Olympo
verður tilbúinn fyrir farþega nú eftir
páska.
-ELA
Til Búlgaríu með Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar.
BÚLGARAR HALDA UPP Á
1300 ÁRA AFMÆLIRÍKISINS
—ogverður
þettaþvfsann-
kallaðhá-
tíðarárþeirra
„Við bjóðum i fyrsta skipti feröir til
Ungverjalands en straumurinn virðist
ætla að liggja til Búlgarfu,” sagði
Sigurður Sigurðsson hjá Ferðaskrif-
stofu Kjartans Helgasonar. Ferðaskrif-
stofan hefur boðið ferðir til Búlgariu
siðan 1977 og er eftirspurnin eftir þeim
ferðum alltaf að aukast. Búigaria er
vafalaust ekki svo þekkt land hériendis
en margir eru þeir sem vilja kynnast
nýjum stöðum. í ár er mikið hátiðarár i
Búlgaríu þvi ríkið heldur upp á 1300
áraafmæli sitt.
Búlgarar eru eins og flestar þjóðir
upprunnir i Asiu. Þeir teljast til slav-
neskra þjóða og er mál þeirra einnig
slavneskt. Búlgaría er sósialiskt lýð-
veldi með forseta og ríkisstjórn ásamt
þingi i einni deild. Landið er ámóta
stórt og fsland, ströndin liggur við
Svartahaf og íbúar eru um 8,2 millj-
ónir. Mynt þeirra er lev og eru í henni
100 stotinki. Ef ferðamaður skiptir er-
lendum gjaldeyri i Búlgariu fær hann
50% meira fyrir hann en virði hans er.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar
býður margs konar skoðunarferðir,
t.d. til Istanbul, og er sú ferð greidd i
islenzkum peningum áður en farið er.
Aðrar skoðunarferðir eru greiddar í
gjaldeyri. Þar er m.a. 2ja daga ferð
með bifreið til Kortel-Zeravna þar sem
skoðaðar eru ýmsar fornar minjar. Þá
má nefna ferö til Varna Galathea þar
sem skoðað er sjódýrasafn, fomleifar
frá dögum Rómverja og fleira.
Boðið er upp á fjögur hótel i
Búlgariu, þar af eitt þar sem er heilsu-
gæzlustöð, ,,spa-ið”, sem dr. Miriam
Vartanijan veitir forstöðu. fslenzkir
ferðamenn eiga þess kost að njóta
þeirrar sérstæðu meðferðar sem þar er
veitt. Þá er einnig boðið upp á smáhýsi
sem em á Slanjev Brajg sólarströnd-
inni.
Búlgaria á kannski bezt við þá sem
vilja njóta hvfldar og sólar á miili þess
sem farið er I skoðunarferðir. Flogið er
með Flugleiðavél til Kaupmanna-
hafnar. Fyrsta ferð var farin 11. apríl
en frá 25. mai verður flogið vikulega.
Frá Kaupmannahöfn er siðan flogið
með Balkan Airlines til Sofia sem er
höfuðborg Búlgariu. Frá Sofiu er síðan
flogið til Vama eða Burgess eftir þvi á
hvora ströndina ferðamaðurinn fer. í
bakaleið er flogið eins og gefst þá tæki-
færi til viðdvalar i Kaupmannahöfn.
Verðið er frá 7295 krónum yfir sumar-
mánuðina og er þá miöað við þrjár
vikur. Matarmiöar em innifaldir.
-ELA
-«------------------------«K
Sjórlnn er afar tsr og baðstrendur eru
hrelnsaðar daglega yflr sumarið. Lofts-
lagið er milt og á sumrin er hitinn 24—
30 gráður.