Dagblaðið - 30.04.1981, Side 16

Dagblaðið - 30.04.1981, Side 16
28 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981. Veðrið Qert er ráfl fyrir hngrí norflenátt ( deg og frostj um eit lend. Smáél verfle vlfl norfleusturströndina en bjart ennars staflar. Klukkan 6 voru eustsufleustan 2, heiflekkt og -6 stig í ReykjavSt, norfl- austan 3, hálfskýjafl og -4 stíg á Gufu- skálum, eustan 3, láttskýjefl og -6 stíg á Qaharvlta, sufleustan 3, láttskýjafl og -9 stig á Akureyri, norflvestan 3, láttskýjafl og -9 stíg á Raufarhöfn, norflvestan 4, skýjafl og -4 stíg á Dalatanga, norflan 3, láttskýjafl og -4 stíg á Höfn og norflan 2, úrkoma og -1 stíg á Stórhöffla. í Þórshöfn var skýjafl og 1 stig, alskýjafl og 8 stíg í Kaupmannahöfn, háhskýjafl og 1 stíg (Oeló, rigning og 4 stíg (Stokkhólmi, skýjafl og 12 stíg ( London, skúrir og 8 stíg (Hamborg, rígnlng og 10 stíg (París, halflakkt og 5 stíg í Madrid, þokumófla og 12 stíg í Lissabon og þrumur og 16 stíg (Naw York. Kristin Friðstelnsdóttir, sem lézt 23. apríl, fæddist 27. júli 1896 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ástríður Hann- esdóttir og Friðsteinn Jónsson. Árið 1918 giftist Kristin Einari Gislasyni og áttu þau 2 börn. Kristín verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju i dag, 30. apríl. Gunnar Ormslev hljómlistarmaður, sem lézt 20. april, fæddist 22. marz 1928 í Kaupmannahöfn. Foreldrar hans voru Jens G. Ormslev og Áslaug Jónsdóttir Ormslev. Gunnar ólst upp í Danmörku til ársins 1946 en þá fluttist hann til íslands. Fljótlega hóf hann nám i tannsmíðum hjá Jóni K. Haf- stein og lauk prófi í þeim fræðum. En fljótlega eftir það sneri Gunnar sér al- farið að tónlistinni, aðallega lék hann jazztónlist á saxófón. Gunnar var með- limur í mörgum hljómsveitum, jazz- böndum sem danshljómsveitum, einnig kenndi hann ungum tónlistarmönnum og stjómaöi m.a. Big bandi Skóla- hljómsveitar Kópavogs. Árið 1950 kvæntist Gunnar Margréti Petersen og áttu þau4börn. Þorsteinn Tómas Þórarinsson, sem lézt 20. apríl, fæddist 15. maí 1907 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórar- inn Jónsson og Ingiriður Pétursdóttir. Árið 1932 lauk Þorsteinn prófi frá Vél- stjóraskóla íslands og sveinsprófi í vél- virkjun árið 1941. Meistararéttindi í vélvirkjun hlaut hann árið 1948. Þor- steinn starfaði um margra ára bil hjá Vélsmiðjunni Héðni. Árið 1954 stofn- aði hann heildsölufyrirtæki ásamt syni sinum. Árið 1971 fluttist hann til Tanz- aníu í Afríku og gerðist yfirvélstjóri og tæknilegur ráðunautur hjá stóru fyrir- tæki þar í landi. Árið 1975 fluttist hann til eyjunnar Mauritíus i Indlandshafi og starfaði þar sem verksmiðjustjóri til ársins 1979. Árið 1931 kvæntist Þor- steinn Þóru Guðrúnu Einarsdóttur og áttu þau einn son. Þorsteinn verður jarðsunginn i dag 30. apríl kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Jóhannes Kristjánsson frá Hellu, for- stjóri i Vélsmiðjunni Odda, lézt í fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 29. apríl. Kristján G. Krístjánsson lézt í Elliheim- ilinu Grund 28. apríl. Valur Bragason, Borgarbraut 4 Hólma- vík, léztá Landspitalanum 17. apríl. ísleifur Sveinsson Hvolsvelli verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 2. mai kl. 14. Vélstjórafólag Suðurnesja á móti dragnótarveiflum í Faxaflóa Þar scm nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um dragnótavciðar i Faxaflóa viU fundurinn vara alvarlega við samþykkt þess. Faxaflóinn er uppeldis- stöö helztu nytjaflska okkar og ber að haga veiðum i flóanum samkvœmt því. Eftir aö veiðar með dragnót höfðu veriö leyfðar í Faxaflóa á áru'num 1960 tU 1970 var svo komið aö nœr öUu sjávarlífi haföi veriö eytt. Á þeim fáu árum sem Faxaflóinn hefur veriö friöaður fyrir dragnót hefur lífríki sjávarins í flóanum tekið verulega viö sér. Árangur þann sem náöst hefur meö friöun flóans sl. 10 ár má ekki gera aö engu vegna sérgæöis- viðhorfa fárra manna sem engu eira ef hagnaöar er von, þó um tímabundin gæöi sé aö ræða. Skorar fundurinn þvf á hið háttvirta Alþingi aö feUa fram- komið frumvarp um dragnótaveiðar í Faxaflóa. + Maðurinn minn Árni Magnússon prentari sem andaðist 23. apríl verður jarðsunginn frá Selfoss- kirkju laugardaginn 2. maí kl. 14. Eja Magnússon. Tollvörugeymslan h/f Aðalfundur Tollvörugeymslunnar h/f verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 1981 kl. 17 á Hótel Heklu Rauðarárstíg 18, 105 R. Dagskrá samkvæmt samþykkt félagsins. Stjórnin w I GÆRKVÖLDI Merkiskonur á Vermalandi og í Sao Paulo Mér fannst dagskráin 1 sjónvarpinu í gær heldur ánægjuleg. Hún var að visu fremur uppbyggileg en grínagtug en þannig verður það líka að vera öðru hvoru. Fyrir kvöldmat var barnaefni um fugla og bongo-antílópur sem mig hefði dauðlangað að sjá en kom því ekki við. Það var ekki fyrr en undir níu, sem ég fór að horfa og sá þá síðasta þáttinn um brasilisku konuna Malu. Á eftir honum kom heimildar- mynd um Selmu Lagerlöf svo dag- skráin var sannarlega í merki kvenna. í Brasilíu-þættinum var því lýst hvernig íbúar í blokk brugðust ókvæða við þegar indíánar fóru að venja komur sínar í eina fbúðina. Þeir voru að heimsækja fræöikonu sem þar bjó og hafði lagt sig fram um að kynnast þeirra högum. Flestum hinna íbúanna var jafnilla við indíána eins og Bandaríkjamönnum við svertingja (er það annars ekki farið að lagast?) en Malu og örfáum vinum tókst að koma skynsemisglætu inn 1 höfuðið á þeim. Mannúðin sigraði eins og vera ber. Þá vék sögunni til Vermalands í Svíþjóð og sagt frá Selmu Lagerlöf sem þar fæddist á litlum herragarði sem öldum saman hafði verið i agu ættar hennar. Faðir hennar var létt- lyndur og drakk mikið af púnsi, föðursystir hennar var sjóður af gömlum ættarsögnum en móðir hennar svo fámál að það var ekkert venjulegt. Sem ung var Selma hölt, fámál og feimin, en strengdi þess heit að verða mikill rithöfundur og kaupa ættar- setrið að nýju. Og það tókst: hún varð ein af örfáum konum sem fengið hafa nóbelsverðlaun, og ættarsetrið, Marbacka, er nú safn til minningar um hana. -IHH. Gigtarfólag Suðurnesja Aðalfundur verður haldinn í Tjarnarlundi sunnu- daginn 3. maí kl. 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Kjartan ólafsson héraöslæknir flytur erindi. Kaffi- veitingar. Bindindisfélag ökumanna Aöalfundur Reykjavikurdeildar BFÖ verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 1981 í Templara- höllinni viö Eiriksgötu 2. hæð og hefst hann kl. 20,30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kvikmyndasýning. Kaffiveitingar. Félagar fjölmenniö. Kvenfólag Lágafellssóknar Ný verzlun afl Grensásvegi 12 Eldaskálinn er ný verzlun að Grensásvegi 12. Elda- skálinn hefur á boðstólum eldhús- og baðinnrétting- ar ásamt fataskápum í mjög miklu úrvali frá Invita kökkener í Danmörku. Þá býður verzlunin einnig upp á alls konar inni- og útiskUti ásamt verzlunar- merkingum og gluggaskreytingum. Eigandi Elda- skálans er ErUngur Friöriksson. DB-mynd Slg. Þorri. Fatlaðir, fylkifl lifli 1. maí Stjóm Sjálfsbjargar, félags fatlaöra í Reykjavík og nágrenni samþykkti á fundi nýveriö að taka fuUan þátt l kröfugöngu verkalýðsfélaganna í Reykjavik 1. mal. Stjómin hvetur fatlað fólk að sýna samstöðu sína meö þvi aö fjölmenna i gönguna og styöja meö því jafnréttishugsjónina. Jafnframt hvetur stjórn Sjálfsbjargar í Reykjavík og nágrenni Sjálfsbjargar- félaga um land allt til aö taka virkan þátt í 1. mai aö- geröunum hver i sinni heimabyggð. Þátttakendur eru minntir á aö koma hlýlega klæddir. Þeir sem ekki hafa möguleika aö komast á eigin vegum er bent á aö hafa samband viö skrifstofuna i s. 17868. Lánskjaravtsitala þess á liðnu starfsári. Hæst bcr þar framkvæmdir við nýtt sambýli fyrir vangefna hér í borginni sem opnað var um miðjan september síðastliðinn. Dvelja þar 11 einstakíingar og starfa 5 þeirra á al- mennum vinnumarkaði en 6 eru i vinnu og þjálfun I Bjarkarási. Félagið hefur aö öllu leyti greitt kostnaö við þessar framkvæmdir en margar góðar gjafir hafa borizt heimiUnu. Þá gat formaöur helztu verkefna á þessu ári og nefndi I þvi sambandi framkvæmdir viö nýtt heimili viö Stjömugróf, Lækjarás, sem væntan- lega veröur tekið í notkun með haustinu, svo og áform félagsins um aö koma upp visi aö vemduðum vinnustaö fyrir 10—12 einstaklinga. Þá gat formaöur kaupa á húseigninni Háteigsvegi 6 en ætlunin er að koma þar upp þriöja sambýUnu á næsta ári. Félagið rekur nú þrjú dagvistarheimUi og tvö sambjdi hér í borginni. Stjórn Styrktarfélags vangefinna er þannig skipuð: Formaður: Magnús Kristinsson forstjóri, varaformaður: Davíð Kr. Jensson húsasmiöameistari, ritari: Ragnheiöur S. Jónsdóttir húsmóðir, gjaldkeri: Ámi Jónsson for- stjóri, meðstj. HafUði Hjartarson verk.þj. stjóri. 1 varastjórn: Sigurður Garðarsson verzl.maður, Elísabet Kristinsdóttir skólastj., Hilmar Sigurösson viöskiptafr., Gunnlaug Emilsdóttir húsmóöir, Friðrik Friðriksson húsg. smiöur Félagsmenn eru nú rúmlega 2100. Framkvæmdastjóri félagsins er Tómas Sturlaugsson. heldur aðalfund sinn 4. mai. Venjuleg aöalfundar- störf. Þar sem ákveöið hefur verið að halda matar- fund eru konur vinsamlega beðnar að tilkynna þátt- tökuís. 66602 eða 66486. AA samtökin í dag, flmmtudag, verða fundir á vegum AA-sam- takanna sem hér segir: Tjamargata 5 (s. 91-12010), græna húsið, kl. 14 og 21 (ungt fólk), Tjarnargata 3 (s. 91-16373) rauöa húsiö kl. 21, Laugameskirkja safnaöarheimUi kl. 21 og Kópavogskirkja kl. 21. Akureyri, (96-22373) Geislagata 39.........21.00 Blönduós, Kvennaskóli......................21.00 Dalvik, Hafnarbraut 4......................21.00 Keflavik, (92-1800) Klapparstig 7..........21.00 Patreksfjörður, Ráöhúsinu við Aðalstræti ... 21.00 Sauðárkrókur, Aðalgata 3...................21.00 Seyðisfjörður, Safnaðarheimili.............21.00 Staðarfell Dalasýsla, (93-4290) Staðarfell .... 19.00 Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata 24 ... . 20.30 Vopnafjörður, Hafnarbyggö4.................21.00 Á morgun, föstudag, verða fundir í hádeginu sem hér segir: Tjamargata 5, kl. 12ogl4. Með tilvísun til 39.gr. laga nr. 13/1979, hefur Seðlabankinn reiknað út lánskjaravísitölu fyrir maí- mánuð 1981. Lánskjaravisitala 239 gildir fyrir maí- mánuð 1981. SVR eykur þjónustu sína Frá og meö 4. mai nk. verður ferðatiöni á leið 14 aukin á mestu annatimum, úr 60 min. i 30 min. Er hér um að ræða timann frá kl. 7—9 og 16—19 frá mánudegi til föstudags. Verður brottfarartiminn þessi: Frá Skógarseli kl. 7, 8 og 9 og siöan frá Lækjartorgi kl. 7.40 og 8.40. Síðdegisferöirnar em kl. 16.40, 17.40 og 18.40 frá Lækjartorgi. Aörar ferðir á þessari leiö em óbreytt- ar. Nýlega afgreiddi Nýja bilasmiðjan hf. fjórða strætisvagninn af þeim 20 sem samið hefur veriö um kaup á. Er gert ráö fyrir að 8 vagnar a.m.k. veröi komnir í notkun fyrir nk. áramót. I september er von á þremur strætisvögnum frá Ungverjalandi. Þeir koma yfirbyggðir og þvi strax tilbúnir í umferö. Af þessum vagnakaupum leiðir að teknir eru úr notkun gamlir vagnar sem lokið hafa hlutverki sínu i þjónustu við farþega SVR. Verða þeir nú boðnir til sölu en kaupendur hafa til þessa aðallega verið fiskvinnslustöðvar viðs vegar á landinu. USA og (sland semja um bætur almannatrygginga Samkomulag hefur verið gert milli ríkisstjóma ls- lands og Bandaríkjanna um gagnkvæmar greiðslur bóta almannatrygginga. Rikisborgarar annars ríkisins, sem réttindi hafa öðlazt til greiðslna bóta frá almannatryggingum hins ríkisins, munu nú halda slíkum réttindum þótt þeir flytji búferlum. Fram til þessa hafa þeir islenzkir ríkisborgarar sem starfað hafa i Bandaríkjunum og öðlazt réttindi til greiðslna bóta frá bandarískum almannatrygging- um verið bundnir takmörkunum á greiöslum slikra bóta, hafl þeir yfirgefið Bandarikin og dvalið lengur en 6 mánuöi utan Bandaríkjanna. Aðalfundur Styrktarfólags vangefinna var haldinn i Bjarkarási laugardaginn 28. marz síðastliðinn. Formaður félagsins, Magnús Kristins- son, flutti skýrslu stjómar og gat helztu verkpfna Námskeið fyrir yfirmenn f slökkviliðum Á vegum Brunamálastofnunar rikisins verður dagana 4.—9. mai nk. haldið námskeið fyrir yfir- menn i slökkviliðum. Námskeiöið veröur haldiö á Akureyri, undir umsjón slökkviliðsstjórans á Akur- eyri og brunamálastjóra ríkisins. Mjög hefur verið vandað til námskeiðsins með fyrirlestrum og verklegum æfingum. Undirbúning hefur annazt sérstök fræðslunefnd á vegum stofn- unarinnar. í nefndinni eiga sæti: Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóri i Reykjavík, og Guð- mundur Jónsson, slökkviilðsmaður og formaður Landssambands slökkviliðsmanna. Mikill áhugi er fyrir námskciðinu sem verður full- setiö. Kvenfólag Frfkirkjusafnaflarins Hcldur vorfund sinn mánudaginn 4. mai kl. 20.30 i Iðnó (uppi). Spilaö verður bingó. Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur fund i safnaðarheimilinu viö Bjarnhólastíg fimmtudaginn 30. april kl. 20.30. Dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor talar. Rætt verður um væntan- legt sumarferðalag. Kaffiveitingar. Laugarnessöfnuður Aðalfundur Laugarnessafnaðar verður í Laugarnes- kirkju sunnudaginn 3. mai kl. 15 að lokinni guðs- þjónustu. GENGIÐ GENGISSKRÁNING Feröamanna- Nr. 80 — 29. aprll 1981 gjaldoyrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarikjadodar 6,701 6,719 7,391 1 Starlingspund 14,357 14,396 15,835 1 Kanadadollar 6,599 6,614 6,176 1 Dönsk króna 0,9647 0,9673 1,0641 1 Norsk króna 1,2107 V139 U363 1 Sœnsk króna 1,4100 1,4138 1,5662 1 Hnnskt mark 1,5966 1,6998 1,7698 1 Franskur franki 1,2827 UB62 1,4148 1 Belg. franki 0,1864 0,1869 0,2056 1 Svissn. franki 3,3294 3,3383 3,8721 1 Holienzk florjna 2,7314 2,7388 3,0127 1 V.-þýzkt mark 3,0402 3,0483 3,3531 1 It&tekllm 0,00610 0,00612 0,00673 1 Austurr. Sch. 0,4300 0,4311 0,4742 1 Portug. Escudo 0,1138 0,1141 0,1266 1 Spánskur pesetj 0,0753 0,0756 0,0831 1 Jopanskt yen 0,03124 0,03132 0,03446 1 fraktound 11,114 11,143 12,257 SDR (aóratök dráttarréttindil 811 8,0460 8,0667 * Brey ting frá siöustu skráningu. Símsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.