Dagblaðið - 25.05.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1981.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1981.
17
16 ,
íþróttir
jþróttir
iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Reynirfékk
bæði stigin
2. deild. SandgerOisvöllur,
ReyniriÞróttur, N. 1:0 (0:0).
Ari T. Arason, mlðherjl Reynis i
Sandgerði, tryggði liðl sinu bœði stigin
i leik þeirra gegn Þrótti frá Neskaup-
stað með kolispyrnumarki þegar um
stundarfjórðungur var til leiksloka.
Var það eina mark leikslns. Ari fékk
knöttinn úr hornspymu og tókst að
þessu sinni að koma honum örugglega
inn fyrir marklinuna þó svo að honurn
væri þjarmað bæðl af markverði og
varnarmönnum. Áður hafði Ari farið
likt að. Það var á 4. min. leiksins en
knötturinn small á læri varnarmanns
sem margir töldu að staðlð hefði fyrir
innan marklinu. Vel staðsettur línu-
vörður var hins vegar á annarri skoðun
og taldi að knötturinn hefði ekki farið
aliur inn fyrir marklinuna.
Þrátt fyrir sterkan mótvind voru
heimamenn mun meira í sókn fyrri
hálfleikinn en áttu i miklum erfiðleik-
um með að komast i gegnum þétta vörn
austanmanna sem stjórnað var af Guð-
mundi Ingvasyni. Auk þess greip hinn
sikviki markvörður Þróttar, Ágúst
Þorbergsson, vel inn í leikinn með
góðum úthlaupum og öruggum
gripum. Mesta hættan skapaðist úr
hornspyrnum Reynismanna, sem voru
margar, svo og aukaspyrnum — úr
einni þeirra lenti knötturinn í þverslá
og þaðan niður á marklínu eftir spyrnu
Sigurjóns Sveinssonar rétt fyrir hlé.
f seinni hálfleik bjuggust flestir við
að róðurinn yrði Reynismönnum
léttur, undan strekkingnum, en það fór
á aðra leið. Leikurinn jafnaðist þótt
knattspyrnan væri ekki upp á marga
fiska, mest miöjuhnoö, með einstaka
háspyrnum út fyrir völlinn, enda aðal-
áherzlan lögð á varnarleikinn af beggja
hálfu þar til heimamenn höfðu skorað.
Þá loksins vöknuðu Þróttarar og náðu
undirtökunum og voru endemis klaufar
að jafna ekki metin. Þeir Guðmundur
Ingvason og Hörður Rafnsson komust
i opin færi en kiknuðu þá í hnjá-
liðunum svo að Jón örvar Arason átti
ekki í neinum erfiðieikum með að verja
lin skot þeirra.
Of snemmt er að spá um hvaða sess
þessi lið eru líkleg til aö skipa í 2. deild-
inn aö hausti en hitt er ljóst að brýna
þarf vel bitlausa sóknarmenn þeirra ef
þau ætla sér efri sætin. Dómari var
Halldór Gunnlaugsson og dæmdi vel.
Ingólf ur vann
bezta af rekið
— á sundmóti Ármanns
Ingólfur Gissurarson, ÍA, vann bezta
afrekið i sundmóti Ármanns í Laugar-
dalslaug I gær. Synti. 200 m fjórsund á
2:23,4 min. Hlaut 642 stig. Hin 13 ára
Guðrún Thema Ágústsdóttir, Ægi, —
fædd 14. júni 1967, svo allur missldin-
ingur með aldur hennar sé úr sögunni
— var aðeins stigi á eftir. Sigraði i 200
m bringusundi á mjög góðum tíma,
2:55,6 min. Hlaut 641 stig og þetta er i
fyrsta skipti, sem hún syndir Innan við
3 min. i 50 metra laug i 200 m bringu-
sundinu. Ingi Þór Jónsson, ÍA, vann
þriðja bezta afrekið. Synti 100 m flug-
sund á 1:03,6 min. sem gefur 619 stig.
Árangur var allþokkalegur á þessu
fyrsta útimóti ársins og keppni mikil
vlðast.
-hsim.
Standard
og Lokeren
í úrslitin?
Fyrri leikirnir i undanúrslitum belg- !
isku bikarkeppninnar voru háðir i gær.
Standard Liege sigraðl Waterschei 5—2 ,
á útlvelli. Ásgelr Sigurvlnsson lék mjög :
vel en skoraðl ekld. Ralf Edström
skoraði tvö af mörkum Standard,
Tahamata eitt. Lierse og Lokeren '■
gerðu jafntefll 1—1 i Lierse. Siðari
leikir liðanna verða nk. sunnudag og ;
allar likur á að það verðl „fslendinga- :
liðin” Standard og Lokeren sem lelka ;
til úrslita i blkarkeppninni.
- hsim.
Auðvelt hjá
Völsungi
— Sigraði Selfoss 4-0 á
Húsavíkí2. deildinni
Völsungur hafði mikla yfirburði i
fyrsta lelk sinum á helmavelli i 2. deild
á lelktimabiiinu. Vann Selfoss 4—0
eftir 1—0 i hálfleik. Selfyssingar veittu
frekar lltla mótspymu, áhugalausir að
þvi er virtist.
Olgeir Sigurðsson skoraði fyrsta
mark leiksins úr vítaspyrnu i fyrri hálf-
leik. Var felldur innan vítateigs og
skoraði sjálfur örugglega úr vítaspyrn-
unni. Fleiri urðu mörkin ekki ( fyrri
hálfleik en þrjú í þeim síðari. Fyrst
skoraði Sigurður Iliugason gott mark,
þá Olgeir annað mark sitt en fjórða
markið var sjálfsmark Selfyssinga.
Jón Gunnlaugsson fyrrum landsliðs-
miðvörður frá Akranesi þjálfar og
leikur með Völsungi. Sterkur mjög i
vörninni og mikil ánægja með hann
sem þjálfara. Greinilegt að Jón getur
náð langt á því sviði ef hann leggur
þjálfun fyrir sig. í fyrsta sinn sem Völs-
ungur nýtur þjálfunar eins og gerist hjá
liðunum f 1. deild.
ísfirðingar
hlutu stigin
gegn Þrótti
— Sigruðu 2-1 í 2. deild
á ísafirði á laugardag
ísfirðingar hlutu bæði stigin i viður-
eign sinni við Þrótt, Reykjavík, á
malarvellinum á tsafirði á laugardag.
isflrðingar hafa þvi hlotið þrjú stig úr
tveimur fyrstu leikjum sinum i 2. delld.
Þróttur aðeins eltt stig. Leikurinn á
laugardag var frekar jafn. ÍBÍ betri
aðiiinn i fyrri hálfleik, Þróttur i þeim
siðari og jafntefli hefðu kannski verið
réttlátustu úrslitin. ÍBÍ sigraðl 2—1.
Ísfírðingar náðu fljótt forustu í
leiknum. Fengu þá hornspyrnu, sem
Kristinn Kristjánsson tók vel. Gaf vel
fyrir markið og Haraldur Leifsson
skallaði í mark. Gott mark. Jón Odds-
son, frjálsíþróttamaðurinn kunni, sem
lék með KR ( fyrrasumar, skoraði
síðara mark ÍBÍ. Það var einnig skoraö
í fyrri hálfleik. Jón brauzt 1 gegn með
hraða sínum og skoraði með þrumu-
skoti. í siðari hálfleiknum voru Þrótt-
arar sterkari. Hörður Andrésson
skoraði fljótlega en Þrótturum tókst
ekki að fylgja þvi eftir og jafna. Fengu
til þess allgóð tækifæri og reyndar má
það sama segja um ísfirðinga. Það var
talsvert um marktækifæri í leiknum.
Jón Oddsson skoraði annað mark ís-
firðinga.
Staðaní2. deild
Úrslit i lelkjum 2. deildar um helglna
urðu þessi:
Haukar— ÍBK 1—6
Völsungur — Selfoss 4—0
Fylkir — Skallagrlmur 0—1
Ísafjörður — Þróttur R 2—1
Reynir — Þróttur N 1—0
Staðan er nú þannig:
Kefiavik 2 2 0 0 8—1 4
Völsungur 2 110 5—1 3
ísafjörður 2 110 2—1 3
Skallagrimur 2 110 1—0 3
Reynir 2 110 1—03
Þróttur N 2 10 1 2—1 2
Þróttur R 2 0 11 1—2 1
Haukar 2 0 11 2—7 1
Fylkir 2 0 0 2 0—3 0
Selfoss 2 0 0 2 0—6 0
Páll Olafsson slasað-
ist á Þróttaræf ingu
—og þrír leikmenn liðsins í knattspymunni meiddust á ísafirði
Páll Óiafsson.
,,Ég veit ekkl hvað ég kem til með að
eiga lengi i þessu. Verð eflaust frá
vinnu f nokkrar vikur en ég fer f læknis-
skoðun á morgun. Þá ætti þetta að
koma betur i Ijós,” sagði Páil Ólafs-
son, landsliðsmaðurinni kunni i hand-
knattleiknum, þegar DB ræddi við
hann i gær. Páll slaS&ðist á knatt-
spymuæflngu á föstudag og er nú i
gifsi frá úlniið nokkuð upp fyrir oln-
boga á vinstri handlegg.
,,Ég vona að þetta hafi ekki nein
áhrif í sambandi við handknattleikinn
enda er hægri handleggurinn þar þýð-
ingarmeiri fyrir mig. Ég féll á malar-
vellinum og rifnaði talsvert. Liðpokar
slitnuðu ekki en ég var settur i gifs til
að halda þessu i réttum skorðum. Enn
er óvíst hvað ég þarf að hafa gifsið
lengi,” sagði Páll ennfremur.
Páll Ólafsson er snjall knattspyrnu-
maður. Hefur verið einn bezti maður
Þróttar í meistaraflokki undanfarin ár.
Hann lék ekki með Þrótti í Reykjavik-
urmótinu í vor, byrjaði knattspyrnuæf-
ingar seint vegna handknattleiksins.
Skoraði hins vegar grimmt í leikjum
með Þrótti i 1. flokki og lék fyrsta leik
liðsins í 2. deild gegn Reyni, Sandgerði.
Vegna meiðslanna gat Páll ekki
leikið með Þrótti í 2. deild á ísafirði á
laugardag. Þróttur varð fyrir áföllum í
þeim leik. Arnar Friðriksson fékk
slæmt högg á nefið undir lok leiksins.
í fyrstu var óttazt að hann hefði nef-
brotnað og var hann fluttur á sjúkra-
GEIR VAR STERKAST-
UR Á HVALEYRINNI
Geir Svansson, GR, tryggðl sér mik-
ilvæg stig til landsliðs er hann sigraði
örugglega i Þotukeppninni á Hvaleyr-
arholtsvellinum um helgina. Lék hann
36 holurnar á 144 höggum. Þetta var
annars stór dagur fyrir GR sem átti
þrjá efstu menn en það hafðist ekki
átakalaust.
Þeir Óskar Sæmundsson, GR,
Hannes Eyvindsson, GR, og gamla
kempan Sigurður Héðinsson, GK, voru
allir jafnir í 2. sætinu með 147 högg og
urðu að leika bráðabana. Strax á 1.
holunni tryggði Óskar sér 2. sætið í
keppninni. Lék á 3 — einu undir pari.
Sigurður var aðeins um 3 fet frá holu
eftir annað högg sitt en Hannes ein 14
fet. Ekki munaði nema þumlungi aö
Hannes setti niður i sínu pútti en fór á 4
höggum. Sigurður fór hins vegar illa aö
ráði sinu — hitti ekki ofan í holuna af
til þess að gera stuttu færi. Fór því
einnig á 4. Hann og Hannes léku þá
aðra holu en skildu jafnir þar. Loks á
þriöju holunni tókst Hannesi að hrista
„þann gamla” af sér með hnitmiðuðu
innáskoti — feti frá stöng. Setti ofan í i
þriðja höggi en Sigurður þurfti 4 högg.
Röð efstu manna varð annars þessi:
högg
1. GeirSvansson, GR 144
2. Óskar Sæmundsson, GR 147
3. Hannes Eyvindsson, GR 147
4. Sigurður Héðinsson, GK 147
5. Sveinn Sigurbergsson, GK 151
6.-8. Páll Ketilsson, GS 152
6.-8. Gylfi Kristinsson, GS 152
6.-8. Sigurður Pétursson, GR 152
9.-11. Þorbjörn Kjærbo, GS 153
9.-11. Július R. Júliusson, GK 153
9.-11. Eirfkur Þ. Jónsson, GR 153
{ keppninni með forgjöf sigraði Sig-
Slíkt leyfist ekki
f okkar landsliðum
Að keppninnl lokinni tók landsliðs-
einvaldurinn Kjartan L. Pálsson til
máls fyrir sina hönd og Stefáns Stef-
ánssonar ungllngalandsliðselnvalds.
Gagnrýndi hann harðlega nokkra
kylfinga — bæði í karla- og unglinga-
landsliðinu — fyrir óíþróttamannslega
hegðun. Sáust þeir grýta kylfum og
boltum i bræði sinni auk þess sem
blótsyrði fuku oft í stórum stil. „Sjáum
við Stefán einhvern ykkar gera slíkt er
engin spurning um að dagar þess kylf-
ings eru taldir í landsliði undir okkar
stjórn,” sagði Kjartan. -SSv.
Öster með 4
stiga forystu
—Teitur með mark í miðri viku en
skoraði ekkiígær
„Þetta gekk skinandi vel hjá okkur i
kvöld,” sagði Teitur Þórðarson er vlð
ræddum við hann að heimili hans i
Váxjö i gærkvöld. „Við slgruðum
Djurgaarden 3—1 og höfum nú unnlð
alla okkar leikl — 7 að tölu. Erum
langefstir i Allsvenskan. Höfum 14 stig
en næsta lið, Sundsvail, hefur 10.
„Mér tókst ekki að skora í þessum
leik. Fór út af snemma eftir hálfleik
eftir aö hafa hlotið meiðsl i samstuði
við varnarmann Djurgaarden. Jan
Mattson varð einnig að fara út af vegna
meiðsla. Það skipti þó litlu þvi við
vorum mun betri allan timann og sann-
ast sagna man ég varla eftir öster-lið-
inu eins góðu og nú. Það voru þeir
Tommy Eveson, Nyman og Björklund
sem skoruöu fyrir okkur (kvöld.”
Teitur skoraði hins vegar sigurmark
öster i 2—1 sigri gegn Aatvidaberg á
miðvikudagskvöld. „Það er hálf leiðin-
legt að vera að yfirgefa félagið þegar
svona vel gengur en ekki tjáir að fást
um það. Ég vildi fara frá öster, reyna
fyrir mér annars staðar, og fékk mitt
tækifæri og tók þvi,” sagöi Teitur, sem
á nú aðeins eftir 2 leiki með öster áður
en hann kemur heim í stutt frí og fer
svo beint til Lens í Frakklandi þar sem
I nýr heimur bíður hans.
Heilmikil veizla var hjá Teiti i gær-
kvöld og voru þar saman komnir allir
leikmenn félagsins i eins konar kveðju-
hófi sem Teitur hélt til að þakka þeim
fyrir samveruna sl. þrjú og hálft ár.
Teitur hefur ekki misst einn einasta leik
úr í Allsvenskan — leikið 85 leiki og
skorað 37 mörk.
-SSv.
urður Héðinsson á 135 höggum nettó.
Gfsli Sigurvergsson, GK, varð annar á
138 höggum og þriðji Gylfi Kristins-
son, GS, á 142. Hann var með sama
nettóskor og Páll Ketilsson og Sigurður
Sigurðsson, báðir GS, en hafði betri
árangur á sfðustu 9 holum keppninnar
og það var látið ráða úrslitum.
-SSv.
30 17 10 3 46—15 44
30 14 14 2 43—20 42
30 14 10 6 31- -21 38
30 14 8 8 41- -24 36
30 9 14 7 28- -25 32
30 8 14 8 29- -30 30
30 11 12 7 32—27 29
30 6 17 7 24—27 29
30 8 10 12 26—29 26
30 10 10 10 36—33 25
30 6 13 11 24—39 25
30 7 11 12 18- -34 25
30 8 9 13 25- -33 25
30 4 17 9 19- -25 25
30 5 13 12 18- -31 18
30 6 4 20 19- -46 16
i m
húsið á ísafirði. Varð hann þar eftir
þegar Þróttarar héldu heim á ný eftir
leikinn við ÍBÍ. í ljós kom hins vegar að
Arnar hafði ekki nefbrotnað. Þá hlutu
tveir aðrir leikmenn Þróttar meiðsli í
leiknum, Jón Pétursson og Jóhann
Hreiðarsson, miðverðirnir sterku.
Meiðsliþeirraeruekkitalinalvarleg. '
-hsim.
Juventus
meistari
Torino-liðið Juventus varð i gær it-
alskur meistari i knattspyrnu. Sigraði
þá Florentina 1—0 á heimavelli en
Roma gerði jafntefli 1—1 á útivelli.
Varð i öðru sæti. Niður i 2. deild féllu
Brescia, Perugia og Pistoise. Loka-
staða var þannig:
Juventus
Roma
Napoli
Inter
Fiorentina
Cagiiari
Bologna
Catanzaro
Torino
Avellino
Udinese
Ascoli
Como
Brescia
Perugia
Pistoiese
Aðdragandinn að sigurmarkinu. Björn Axelsson (sá minnsti á myndinni) hefur skotið
að marki Fylkis. Á leið sinni kom knötturinn við á einum varnarmanna Fylkis og gjör-
Dreytti um stefnu. A innfelldu myndinni hirðir Ögmundur Kristinsson knöttinn von-
svikinn úr netinu. DB-myndir Bjarnleifur
Mark nýliðans tryggði
Skallagrími sigurinn!
Björn Axelsson skoraði sigurmarkið gegn Reykjavíkurmeisturum Fylkis
Það sannast áþreifanlega á Fylkis-
i mönnum að Reykjavikurmeistaratign i
knattspymu tryggir hvorki eitt né neitt.
Þeir máttu á laugardag bita i það súra
epii að tapa 0—1 fyrir nýliðum Skalla-
grims á Melaveiii i leik sem bæði liðin
gátu hæglega unnið.
Það var ungur nýliði, Björn Axels-
son, aðeins 17 ára gamall, sem skoraði
sigurmarkið á 80. mín. Hann átti þá
skot á mark Fylkis sem virtist ekki ætla
aö skapa mikla hættu. Á leið sinni fór
knötturinn í einn varnarmanna Fylkis
og snarbreytti um stefnu. ögmundur
Kristinsson, markvörður Fylkis, var
kominn i öfugt horn og átti ekki mögu-
leikaáaðverja.
Markið kom eftir talsverðan sóknar-
þunga Skallagrimsmanna sem færðust
allir í aukana síðasta hálftimann.
Garðar Jónsson, þeirra bezti leik-
maður, átti tvö ágæt færi skömmu
áður en tókst ekki að skora. Bezta færi
leiksins féll samt Fylkismönnum í skaut
en á ótrúlegan hátt tókst þeim að skjóta
framhjá þegar auðveldara var að
skora.
Það var helzt að bakvörðurinn, Guð-
mundur Bjarnason, ógnaði Skalla-
grimsmönnum eitthvað. Á 16. min. átti
hann bylmingsskot efst i stöngina og
skömmu síðar þrumuskot i hliðarnetið.
Hann var, ásamt Antoni Jakobssyni,
bezti maður Fylkis.
Um 40 manna stuðningsmannahópur
fylgdi Borgnesingunum að heiman og
lét vel í sér heyra. í leikslok var engu
líkara en Borgnesingar hefðu unnið
heimsmeistaratitilinn — slík voru læt-
in. -SSv.
Geir Svansson lék mjög yfirvegað á Hvaleyrinni og sigraði sannfærandi.
Blikarnir
heppnir
á Akureyri
— Jafntef li Þórs og
Breiðabliks 1-1
Frá Guðmundi Svanssyni, Akureyri.
Þórsarar sýndu það á föstudags-
kvöld i leik sinum við Breiðablik i 1.
delld hér á Akureyri að þeir eru til alls
visir i sumar. Jafntefli varð 1—1 og
Kópavogsliðið var heppið að ná öðru
stlginu úr leiknum. Það byrjaði með
miklum kraftl elns og það ætiaði að slá
vopnin úr höndum heimamanna en það
fór á annan veg. Það voru Þórsarar
sem náðu yflrtökunum og léku vel og
það án Amar Guðmundssonar — áður
KR — sem á við meiðsll að striða.
Fyrsta stundarfjórðunginn voru
Blikarnir meira í sókn en síðan fór Þór
að sækja i sig veðrið. Marktækifærin
létu þá á sér standa en litlu munaði að
Þór skoraði á 22. mín. Guðmundur
Skarphéðinsson tók aukaspyrnu og
Jónas Róbertsson skallaöi knöttinn í
stöng og bjargað var í horn. Eftir horn-
spyrnuna átti Guðjón Guðmundsson,
áður FH, skot á mark en Ólafur
Bjömsson bjargaði á Jínu. Sóknár-
þungi Þórs jókst stöðugt en leikmönn-
um liðsins tókst ekki að binda enda á
sóknarloturnar. Blikarnir komust ekki
mikið áleiðis. Sóknarlotur þeirra stönz-
uðu yfirleitt á sterkri vörn Þórs.
Einkum var Þórarinn sterkur.
Þórsarar voru einnig mjög ákveðnir
framan af siðari hálfleik og Guð-
mundur Sigurbjömsson dómari sleppti
* . \
• ““ ' ' -
V" <" '
■
. *
Guðmundur Skarphéðinsson með knöttinn rétt áður en hann skoraði mark Þórs.
þá ljótu broti Guðmundar markvarðar
Ásgeirssonar, Breiðabliki, á Jón Láms-
son. Þar átti dómarinn að bóka mark-
vörðinn.
Á 58. mín. lék Jón Lár. upp kantinn
og sendi knöttinn fyrir rrtark Blikanna.
Guðmundur Skarphéðinsson skaut
framhjá en þremur mln. siðar skoraði
Þór. Guðmundur Skarphéðinsson
;prjónaði sig gegnum vörn Blika og
spyrnti knettinum i markið framhjá
Guðmundi markverði. Rétt á eftir barst
knötturinn inn i vitateig Þórs og þar
bjargaði Eirikur með góðu úthlaupi frá
Jóni Einarssyni. Þór geystist i sókn og
Guðmundur Ásg. bjargaði vel góðu
skoti frá Jóni Lár.
Sóknir Blikanna urðu hættulegri.
Eiríkur sló knöttinn yfir markið eftir
skot Helga Bentssonar en fimm mín.
síðar jöfnuðu Blikarnir. Mikil þvaga
við markteig Þórs. Knötturinn gekk
manna á milli en f lokin tókst Sigurjóni
Kristjánssyni að pota knettinum í
DB-mynd GSv.
markið framhjá Eiríki, sem sá ekki
knöttinn. Jafntefli 1—1 þvi lokaminút-
urnar tókst liðunum ekki að skora.
Leikmenn Þórs voru jafnir í þessum
leik, ívið beztir Þórarinn, Guðmundur
Jónasson, Nói og Eirikur. Hjá Biikun-
um voru Ólafur og Vignir Baldursson
sterkustu mennirnir og einnig léku þeir
Jón, Helgi og Sigurjón ágætlega í sið-
|ari hálfleik. Guðmundur dómari slapp
jsæmilega vel frá leiknum.
-GSv.