Dagblaðið - 25.05.1981, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1981.
29
fflxyfu: mc4 plojtli
Blcyjur én plastt
EFN/SLÝSINtí
AíW'íuwí í
/——7...../
Z~V
Þnr>'!pappír
Þerrípoppir
SíSSS-‘~“
Q
feíSl®®:
SKEWMUVH3URS ÓIM,’?B140
Bossableyjurnar koma i skemmtilegum plastpokum með haldi, svo að þeir eru
hentugir til þess að halda á heim úr verzluninni. Á þeim er efnislýsing eins og sjá
má, en hins vegar er ekki tekið fram um hver sé æskileg stærð barna fyrir þessar
bleyjur. Þessar bleyjur eru ekki með plasti, en í fréttatilkynningu segir að plast-
fóðraðar bleyjur komi á markaðinn siðar.
DB-mynd Einar Ólason
Meybam,
einsog
hálfs mánaðar
Standast ekki samanburð við amerískar
bleyjur
Bleyjurnar gegnblotna allar og
halda bleytunni að barninu. Þunnar
og lausar í sér. Reynd var notkun
tveggja bleyja í einu og fór á sömu
leið. Þær blotnuðu báðar í gegn.
Barnið var í gúmbuxum utan yfir
bleyjuna, en ytri föt blotnuðu. (Taka
ber meö í reikninginn að leggir stúlk-
unnar eru smáir enn og fylla ekki út í
fótagötin á gúmbuxunum. Orðið
fótagöt, sem ekki eru til i orðabók-
um, er notað hér i stað skálma, en
skálmar eru ekki á þessum buxum.)
Þessar bleyjur standast ekki
samanburð við amerískar pappírs-
bleyjur sem hafa verið notaðar á
barnið. Amerísku bleyjurnar drekka
bleytuna vel í sig og halda henni vel
frá barninu. Þær eru með plasti á
þannig að ytri föt blotna síður. Þær
eru þó sjálfsagt mun dýrari en Bossa-
bleyjurnar, en slíkt ætti að jafna sig
út ef nota þarf tvær slíkar í einu.
Eldra barn en hér var um að ræða
þarf örugglega tvær í einu og plast
utan yfir.
í samanburði við taubleyjur skal
þess getið að þann einn og hálfan
mánuð sem barnið hefur verið meðal
vor hefur það aðeins tvisvar gegnvætt
slíka bleyju. Hins vegar rennvætir
barnið Bossableyjuna í hvert skipti.
Myndi varla nota slíkar bleyjur
nema í hallæri. Ónothæfar sem
næturbleyjur.
Eins og sveina er siður vætir þessi ungi maður ekki nema annan hluta bleyjunnar.
Bakhlutinn er þurr.
DB-myndir: J.R.
Útlenda bleyjan stóð sig betur en sú
íslenzka. Hún drakk meira í sig og
lagðist ekki eins saman.
Tilraun III.
Þriggja mánaða snáðinn
Kostir: létt, fyrirf erðarlítil og fellur vel að baminu
Gallar: skreppur saman við fyrsta vætuvott og getur hleypt
framhjá
Bleyjurnar voru reyndar á tæplega
þriggja mánaða strákhnokka.
Umræddur herramaður er í stærra
lagi miðað við aldur eða rúm 7200
grömm og 66 sentimetrar að lengd.
Bleyjurnar voru reyndar sem dag-
bleyjur eingöngu og í hnýttu bleyju-
plasti. Stærðin er mjög heppileg og
þurrar falla þær ágætlega að
barninu. Strax við fyrstu vætu falla
þær mjög saman, og sé ekki skipt
strax um þá blotna utanyfirbuxur
fljótt. Af þessum sökum er ljóst að
þær henta ekki sem næturbleyjur.
Þessi gerð sem reynd var er án plast-
hlifðarlags, sem trúlega hindrar það
að bleyjan dragist eins saman við
vætu.
Kostir Bossableyjunnar eru:
Bleyjan er létt, fyrirferðarlítil og
fellur vel að barninu.
Gallar bleyjunnar eru: Hún
skreppur saman strax við fyrsta
vætuvott og getur þá hleypt vætunni
framhjá. Við mikla vætu hleypur
bleyjan í hnökra.
Efni í ódýrar byggingar
Bogaskemmur 20X11 = 220 ferm. Hæð 5,5 m. Viðbótarlengdir 2,5X11 = 27,5 ferm. Einnig frítt standandi bíl-
skúrar 6,51 X 2,85 = 18,55 ferm. Hæð 2,41. Viðbótarlengdir 2,17X2,85 = 6,18 ferm.
Útvegum staðlað efni (klæðning m/innbrenndri málningu) I þessar byggingar og fleiri frá Hollandi með stuttum fyrir-
vara. Mjög hagkvæmt verð. j
byggingar
sem reisa á
í sumar þarf
að panta sem
fyrst
Nánari uppl.
FJALAR HF.
Ægisg. 7 Rvík,
Bílskúr simar 17975/76. Bogaskemma