Dagblaðið - 16.06.1981, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1981.
LAUSAR STÖÐUR
Staöa fulltrúa og staða ritara á skrifstofu Tækniskóla íslands eru lausar
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðúneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. fyrir 12. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið, 12. júni 1981.
Offsetljósmyndun
Óskum að ráða mann í offsetljósmyndun og
filmuumbrot. — Uppl. gefur yfirverkstjóri.
Hilmir h.f.,
Síðumúla 12.
Útboð
Hitáveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir tilboðum í
virkjun við Deildartungu — safnæðardaélustöð.
Útboðsgögn verða afherit á Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen Ármúla 4, Reykjavik og Berugötu 12, Borgarnesi
og Verkfræði- og teiknistofunni Heiðarbraut 40, Akranesi
gegn 1000 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitunnar Heiðar-
braut 40, Akranesi, þriðjudaginn 30. júní kl. 11.30.
VERKFRÆÐISTOFA
SIGURÐAR THORODDSEN HF.
ÁRMÚLA 4 REYKJAVÍK - SÍMI84499
SKÓLASTJÓRI -
YFIRKENNARI -
KENNARAR
Lausar eru stöður skólastjóra og yfirkennara við grunn-
skóla Akraness (Grunnskólann við Vesturgötu), umsókn-
arfresturer til 30. júní.
Ennfremur eru lausar nokkrar almennar kennarastöður
við grunnskóla Akraness. Æskilegar kennslugreinar: stærð-
fræði 7., 8. og 9. bekkur, enska og danska, sérkennsla og
kennsla yngri barna. Umsóknarfrestur er til 30. júní.
Upplýsingar gefa Hörður Ó. Helgason formaður skóla-
nefndar sími 93-2326 (í hádegi og á kvöldin), Guðbjartur
Hannesson skólastjóri sími 2723 á kvöldin, og Ingi Steinar
Gunnlaugsson skólastjóri í síma 1193 á kvöldin.
Skólanefnd.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
vekur athygli félagsmanna sinna á námskeiði
sem haldið verður samkvæmt ákvæðum í kjara-
samningi og veitir rétt til kauphækkunar.
Námskeiðið er ætlað afgreiðslufólki, sem hefur
náð efsta þrepi í 9., 11. og 13. launaflokki. Þó
getur vinnuveitandi heimilað námsfólki að sækja
námskeiðið eftir styttri starfstíma.
Námskeiðið verður haldið 22. júní til 10. júlí í
Verzlunarskóla íslands.
Þátttökugjald er greitt af vinnuveitendum og
ber þeim að skrá afgreiðslufólk á námskeiðið hjá
Kaupmannasamtökum íslands fyrir 18. júní nk.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
tm ~ ------
Tregða kerfísins
Einar Ólason hringdi:
Mig langar til að vekja athygli á því
hvað kerfið getur verið þungt i
vöfum. Þannig er mál með vexti að
ég á inni 103 krónur hjá veðdeild
Landsbankans en þessar krónur eru
vextir af sparimerkjum. Sparimerk-
in fékk ég að taka út fyrir nokkrum
árum vegna íbúðarkaupa og fékk ég
til þess sérstaka undanþágu. Ég hélt
því að mér væri heimilt að taka þessa
vexti út Hka en svo mun þó ekki vera.
Ég hringdi í veðdeildina vegna þessa
máls en þar var mér sagt að tala við
Húsnæðismálastjórn. Starfsfólk þar
sagði mér að ég gæti ekki náð þessum
peningum út vegna þess að ég væri
ekki að kaupa ibúð en mér var bent á
að tala við skattstjóra og biðja um
undanþágu. Hjá skattstjóraembætt-
inu var mér svo tjáð að engin undan-
þága fengist þar sem ég væri ekki i
sambúð og hefði ekki fyrir fjölskyldu
að sjá. Það lítur því út fyrir að ég fái
ekki þessa peninga fyrr en eftir
nokkur ár en ekki á ég von á að verð-
gildi þeirra verði neitt sérstaklega
hátt þá.
103 krónur eru e.t.v. ekkl há upphæð
en ekkl vex verðgildi þeirra á næstu
árum.
Ósanngjamt far-
gjald með Akraborg
Óskar Þór Óskarsson, Borgarnesi,
slcrifar:
Ég hef farið nokkrum sinnum með
traktorsgröfu með Akraborginni og
hefur mér fundizt fargjaldið nokkuð
hátt. Ég spurði því hvað það kostaði
að flytja vörubil með skipinu og kom
þá í ljós að það er talsvert ódýrara.
Ég spurði hvort hægt væri að fá vél-
ina flutta á sama taxta og vörubflarn-
ir, enda ekki ósanngjarnt að minum
dómi, þar sem grafan er a.m.k. einum
til tveim metrum styttri en venjulegur
vörubill og tekur því minna gólfpláss.
Stýrimaðurinn á Akraborginni taldi
það af og frá að það væri hægt og
ætlaði ég því að fara frá borði með
gröfuna og keyra hana fyrir Hval-
fjörð til Reykjavfkur. í þeim svifum
ber þar að mann, líklega fram-
kvæmdastjórann, og segir hann mér
að ég geti fengið gröfuna flutta á
vörubílataxta.
27. mai sl. fór ég svo aftur með
gröfuna frá Akranesi til Reykjavíkur
og var þá auðsótt mál að fá gröfuna
flutta á vörubílataxta, sem er 215
krónur. Kannski hefur stýrimaðurinn
munað eftir mér en hann sagði að
gjaldskráin hefði hækkað þennan
dag.
Raddir
lesenda
4. júní sl. fer ég svo enn til
Reykjavíkur en þá var annar stýri-
maður á vakt. Yngri maður sem vissi
vel hver hafði völdin um borð. ’Eg
mælist sem fyrr til þess að fá gröfuna
flutta á vörubílataxtanum en svarið
var þvert nei. Mér þótti þetta ósann-
gjarnt og sagði að ég borgaði ekki
nema samkvæmt vörubílataxtanum.
Hann sagði þá að ég færi ekki með
skipinu og fór svo að rukka aðra
sem þama voru. Ég beið þarna
nokkra stund og þegar hann kom svo
aftur þá spurði hann hvort ég vildi
greiða uppsett gjald. Ég sagðist neyð-
ast til þess og borgaði 350 kr. fyrir og
var ég mjög ósáttur við þessi mála-
lok.
Á nótunni hér á myndinni sést hvað Oskar varð að greiða samkvæmt hærri taxt-
anum en miöarnir sem liggja ofan á nótunni eru kvittun fyrir fyrri ferð, að upphæð
samtals 215 kr.
s
Hallbjörn er frábær
—segir fýlupoki sem hreifst m jög af söngvaranum í Óðali
Fýlupokl skrifar:
Við Reykvíkingar urðum þeirrar
ánægju aðnjótandi fyrir stuttu að fá
að sjá og hlýða á hinn frábæra
„kántrý-söngvara” Hallbjörn Hjart-
arson kynna plötu sína „Kántrý” í
Óðali. Það er óhætt að segja að hann
hafi komið Reykvíkingum á óvart,
því að hér er tvímælalaust á ferðinni
einn fjörugasti og skemmtilegasti
skemmtikraftur sem fram hefur
komiö lengi.
öll framkoma Hallbjarnar var
með þeim hætti að hann hreif alla
með sér. Framkoma hans var blátt
áfram og mikill hressileiki yfir allri
hans sviðsframkomu, þannig að allir,
jafnvel fýlupokar, hrifust með.
Hljómplata Hallbjarnar er auöheyr-
anlega unnin með þvi hugarfari að
láta gæðin ganga fyrir og víst er aö
við gerð hennar hefur ekkert veriö
sparað. Söngur Hallbjarnar er frá-
bær og raddbeiting hans og tilfinning
i túlkun texta er eftir efni og innihaldi
hvert sinn. Þá er textaframburður
hans einstaklega skýr og einhver sá
bezti sem ég hef heyrt á íslenzkri
hljómplötu. Það er hverjum manni
ljóst sem hlustar á þessa plötu aö
Hallbjörn er frábær lagahöfundur og
söngvari og raddsviö hans breitt og
röddin tær.
Ég vil mælast til þess við útvarpið
að það geri meira að því að kynna
plötu Hallbjarnar í stað þess að íeika
endalaust ýmis innihaldslaus lög og
þvælur, s.s. Eirík Fjalar. Það má
heita svo að maður opni ekki fyrir út-
varpið án þess að heyra þessa vitleysu
í tima og ótima. Ég vonást svo til
þess að Óðal eða eitthvert annað veit-
ingahús sjái sér fært að leyfa okkur
að sjá Hallbjörn sem fyrst og veit ég
að ég mæli fyrir munn margra.