Dagblaðið - 16.06.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
3
YMSUM HEFUR
ORÐIÐ HÁLT
Á MÖLINNI
— Erla Ingvarsdóttir svarar reykvískum
bflstjóra
Erla Ingvarsdóttir hringdi:
Reykviskur bílstjóri kýs að hafa
nafnleynd er hann svarar mér í DB
10. júní sl. og skil ég það vel. Það
gladdi mig bara að einhver viðbrögð
skyldu verða við þessum orðum
mínum.
Þegar hægri umferð var innleidd
voru bílstjórar hvattir til að aka með
bros á vör en ég hugsa að þau séu fá
brosin sem utanbæjarbílstjórar fá í
umferðinni í Reykjavík, þó að vissu-
lega séu til gleðilegar undantekning-
ar. Mér skilst á svari bílstjóra að ég
hefði alveg getað sleppt að tala um
það sem ég er ekki dómbær á en hann
segir m.a.: — Jafnvel þeir sem eru
vanir umferðinni og fæddir og upp-
aldir í Reykjavík eiga fullt í fangi
með aksturinn.
Nú vill svo til að ég er fædd og
uppalin i Reykjavík og flutti ekki út á
land fyrr en fyrir nokkrum árum
þannig að ég tel mig dómbæra í þessu
sambandi. Ég legg til að bilstjóri
reyni það sjálfur að fá bíl með utan-
bæjarnúmeri og aka honum í um-
ferðinni í Reykjavík í einn dag eða
svo. Bílstjóri hefði getað sleppt því að
minnast á tryggingar. Landinu er
skipt í þrjú áhættusvæði, sem öll
miðast við tíðni slysa, og Stór-
Reykjavíkursvæðið er með alhæstu
slysatíðnina á iandinu. Mismunurinn
á iðgjaldi er 30—40% en ekki allt að
helmingieins og bílstjóri segir. Full-
Kærleikur
Guðs og
pólítíkin
ÁttavUltur i póiitlklnni skrifar:
Ég tel mig vita hvað felst í hugtak-
inu kristinn maður. Það er sá sem
trúir ekki einungis á Jesúm Krist sem
Guðs eingetinn son, heldur er einnig
reiðubúinn að taka upp krossinn og
feta í fótspor meistara sins. Maður
sem hræðist hvorki menn né málleys-
ingja og er reiðubúinn til þess að
fórna lífinu fyrir vini sína og mann-
réttindi þeirra, eins og Robert Sands
gerði á dögunum í ensku fangelsi.
En getur einhver sagt mér hvað
kommúnisti eða sósialisti er, eða sá
maður sem hvorki er kommúnisti eða
sósíalisti? Af hverju ásaka þessir
menn stöðugt hver annan fyrir að
vera „rauður”, „grænn” eða
„gulur”? Hvar er kærleikur Guðs i
öllum þessum umræðum?
yrðingar bílstjóra um að utanbæjar-
fólk sé verri ökumenn eru fáránlegar
því að þegar fólk á malbikinu hefur
komið út á land hefur því oft orðið
hálft á mölinni enda oft ekið eins og
um malbik væri að ræða.
Ég er sammála þeim sem vilja að
Ómari Ragnarssyni sé falið að gera
smáþætti fyrir sjónvarp um umferð-
armál, um það hvernig eigi að keyra
og hvernig eigi ekki að haga sér i
umferðinni. Þá gætu allir landsmenn
hafa gott af, sama af hvaða þjóð-
flokki þeir eru.
Ég vil að lokum taka fram að ég ek
um á bíl með X-númeri en ekki F-
númeri eins og misritazt hefur í DB.
Hver er mun-
urinná
fimmtudegi
og föstudegi?
Steinka á Lóni skrifar:
Elskulega fólk. Hvað er 18 ára
takmarkið eiginlega? Það á víst að
heita að maður sé nógu þroskaður til
að gifta sig þegar 18 ára afmælisdag-
urinn er liðinn en samt ekki nógu
þroskaður til að fara inn á skemmti-
staði á laugardagskvöldi. Af hverju
ættu þeir sem eru á milli 18 og 20 ára
aldurs ekki að fá að drekka vín á
laugardagskvöldi eins og á
fimmtudagskvöldi. Eru kannski
fimmtudagskvöldin ætluð fólki sem
er á þessum aldri og á það bara að
vera heima þess á miili og horfa á
sjónvarpið. Ég gæti tekið Klúbbinn
sem dæmi. Þar mega þeir sem eru 18
ára og eldri fara inn á fimmtudags-
kvöldum og drekka vín eins og þeir
geta í sig látið og það er auðvitað
sjálfsagt. En svo kemur föstudagur
og á eftir honum laugardagur og
hvað þá? Jú, þá verður þú að gjöra
svo vel að vera með skírteini upp á að
þú sért orðin(n) 20 ára. Gæti einhver
frætt mig á því hvað er svona ólikt
með fimmtudegi og t.d. föstudegi?
Nei, það getur enginn af þvi að þeir
eru alveg eins. Þeir hafa bara sitt
hvort nafnið.
Ég veit að þeir eru margir sem eru á
sama máli og ég en hvað skyldu vera
margir á móti og hvaða skýringar
ætli þeir geti gefið? Það væri gaman
aö vita.
Furðuleg vinnu-
brögð í Svínahrauni
— Ekki svo dýrt, segir Rögnvaldur
Jónsson hjá Vegagerðinni
7878—0126 hringdi:
Ég var að koma að austan, yfir
Svínahraunið og veitti því athygli að
þar stóðu vegaframkvæmdir yfir.
Mér fundust vinnubrögðin þó fremur
skritin, því að þarna lögðu menn slit-
lag yfir veginn á löngum kafla þar
sem málaðar höfðu verið akreina-
linur fyrir aðeins einni viku. Nú
þykist ég vita að það kosti eitthvað að
mála þessar línur á slitlagið og því
spyr ég: Eru þetta forsvaranieg
vinnubrögð?
Rögnvaldur Jónsson hjá Vegagerð
ríkisins sagði að þessar framkvæmdir
ættu sér sína eðlilegu skýringar. Það
væri stefna Vegagerðarinnar að mála
eins mikið af akreinalínum á vorin og
tök væru á. Þegar línurnar á veginum
í Svínahrauni voru málaðar var ekki
vitað hvenær malbikunarvélar fengj-
ust frá Reykjavíkurborg. Vélarnar
fengust svo nú fyrir skömmu og þvi
var lagt slitlag yfir línumar.
Rögnvaldur sagði að hér hefðu ekki
farið miklir fjármunir til spillis, því
að tiltölulega ódýrt væri að mála
miðlfnu á vegi.
Við teljum
að notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
VOLVO 245 GL ÁRG. '80
EKINN 33 ÞÚS.,SJÁLFSKIPTUR KR. 155.000
VOLVO 245 GL ÁRG. '80
EKINN 30 ÞÚS., BEINSKIPTUR KR. 150.000
VOLVO 245 GL ÁRG. '79
EKINN 22 ÞÚS., BEINSKIPTUR KR. 126.000
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
EKINN 47 ÞÚS., BEINSKIPTUR KR. 120.000
VOLVO 244 DL ÁRG. '79
EKINN 32 ÞÚS., BEINSKIPTUR KR. 115.000
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
EKINN 19 ÞÚS., SJÁLFSKIPTUR KR. 128.000
VOLVO 244GLÁRG. '78
EKINN 60 ÞÚS., SJÁLFSKIPTUR KR. 100.000
VOLVO 343 DL ÁRG. '77
EKINN 60 ÞÚS., SJÁLFSKIPTUR KR. 60.000
Okkur vantar nýlega
bíla í umboðssölu
VOLVO frá VELTIRHF
Suðurlandsbraut 16, R.
Sími 35200.
Spurning
dagsins
(SpurtáEakMMO
Hvernig líður
þórídag?
Þorieifw M. SigurÖMon sjómaflur:
Ágætlega. Fjármálin eru 1 lagi, i bili.
Ólafur Hreggvlðsson sjómaflur: — Mér
hefur aldrei iiðið eins vel.
Guflnl Krlstlnsson sjómaður: — Vel,
enda er ég að fara á ball eftir langa úti-
vist.
Kristinn Aðalsteinsson framkvæmda-
stjóri: — Bara vel. Það er að koma
helgi og þá er fri hjá öllum nema mér.
*
Astrid Elllngsen: — Mér líður afskap-
lega vel. Mig vantar bara fleiri klukku-
stundir i sólarhringinn.