Dagblaðið - 16.06.1981, Side 5
DAGBLAÐID. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
5
ÓVÍST HVER AFDRIF
GERVASONIS VERDA
—gæti lent í fangelsi þrátt fyrir valdatöku Mitterrands
Frá Sigriði M. Vlgfúsdóttur,
fréttarilara DB i Paris:
PatrickGervasonidvelst um þessar
mundir i Paris. Til Frakklands kom
hann frá Kaupmannahöfn þegar
hann frétti um sigur Mitterrands í
frönsku forsetakosningunum. Hann
hafði, sem kunnugt er, ekkert vega-
bréf til að komast inn i landið en fékk
í stað þess sérstakt leyfisbréf hjá
franska konsúlatinu i Kaupmanna-
höfn til að komast inn i Frakkland.
Gervasoni var stöðvaður við
frönsku landamærin og haldið þar í
fjórar klukkustundir. Að þvi búnu
var honum sleppt með því skilyrði að
hann gæft sig fram við herdómstól i
Marseilles i Suður-Frakklandi.
Enginn ákveðinn dagur var hins
vegar nefndur í þvi sambandi.
Hver framvinda máls Gervasonis
veröur er nokkuð á huldu. Valdataka
Mitterrands er talin munu breyta ein-
hverju um stöðu mála, en hve miklu
er óljóst. Þannig eru aðallega
nefndir þrir möguleikar um afdrif
Gervasonis: Að honum verði gefnar
upp sakir og verði þar með frjáls
maður á ný; að hann fari í herfang-
elsi í tvö ár eins og aðrir þeir sem
hingað til hafa neitað að gegna her-
þjónustu; og í þriðja lagi er hugsan-
legt að hann fái strangari dóm og
lengri fangavist fyrir að yfirgefa
Frakkland.
Stuðningsmenn Gervasonis i
Frakklandi segja að á hverju ári neiti
tiu þúsund ungir menn að gegna her-
þjónustu.
í dag verður blaðamannafundur
með Gervasoni og fleiri aðilum sem
svipað er ástatt um. Er hugsanlegt að
efnt verði til einhvers konar mót-
mæla, e.t.v. farið i kröfugöngu að
honum loknum. -KMU.
Fjölgar hiá áHftamömmu
—ogfleirifugjum
Það þykir tiðindum sœta þegarýjölgar ó tjörninni og þó ekki sízt hjá áiftamömmu. Undanfarin ár hefur hún nefnilga alveg
slepptþví. Sveinn Ijósmyndari DB rak þó augun í að eitthvað vteri að gerast í tjarnarhólmanum og varfljóturað skella linsu i
vélina. Það var greinilegt að von var á nýjum .jarnarungum og álftamamma gœtti vel hreiðursins. Álftapabbi var á nœstu
grösum, henni til halds og trausts.
Minnisvarði um drukknaða
sjómenn á Eskifirði
— Einstaklingar og fyrirtæki gáfu tæpar 20 milljónir gkr. til minnisvarðans
Á sjómannadaginn var afhjúpaður á
Eskifirði minnisvarði um drukknaða
sjómenn frá Eskiftrði. Við athöfnina
stóðu félagar úr björgunarsveitinni
Brimkló heiðursvörð. 13 ára gömul
stúlka, Anna Herdís Eiriksdóttir, af-
hjúpaði minnisvarðann og i lok at-
hafnar lögðu tvær sjómánriakonur
blómsveig aö minnisvarðanum. Var
athöfnin afar hátiöleg og fór fram i sól-
skini og góðu veðri.
Minnisvarðann gerði danskur lista-
maður, búsettur i Reykjavik, Aage
Nielsen-Edwin. Sýnir hann sjómann,
krjúpandi meö húfu sina milli hand-
anna, biðja sjóferðarbæn. Listamaður-
inn verður 83 ára i sumar. Hann var
viðstaddur athöfnina.
Minnisvarðinn er reistur af frjálsum
framlögum einstaklinga og fyrirtækja.
Gáfu margir rausnarlega. Heildar-
kostnaður við gerð og uppsetningu
verksins er nálægt 20 miiljón gkr.
Við athöfnina flutti sr. Davíð
Baldursson sóknarprestur ritningarorð
og Helgi Hróbjartsson, sjómannafull-
trúi þjóðkirkjunnar, flutti bæn. Aðal-
steinn Valdimarsson, form. minnis-
varðanefndar, flutti ávarp og afhenti
Eskifjarðarbæ: listaverkið til varð-
veizlu.
Áskell Jónsson bæjarstjórí tók viö
gjöfinni og þakkaði öllum sem þar
hefðu vel að unnið.
Að öðru leyti fór sjómannadagurínn
á Eskifirði fram með hefðbundnum
hætti, m.a. meö kappróðri og stakka-
sundi. Nýlunda var að Markús B. Þor-
geirsson sýndi björgunarnet sitt. Fékk
hann lof og þakkir fyrír, enda ferðast
hann á eigin kostnað til að kynna sitt
öryggis- og björgunarnet. -Emll
HAFPy^FEET
Nýtt og nytsamt.
Þú setur HAPPY FEET sólana í skóna og þeir gefa
þér þægilegt iljanudd (Zoneterapi), sem örvar líffær-
in og dregur úr vöðvaþreytu.
Tugþúsundir Dana hafa framúrskarandi góða
reynslu afHAPPY FEET.
HAPPY FEET eru framleiddir í Kína og byggja á
aldagamalli reynslu Kinverja af akupunktur.
Prófaðu HAPPY FEET og þú munt sannfærast.
Kynningarverð kr. 69,10 auk burðargjalds. 14 daga
skilaréttur: Ef þú ert ekki á ánægðurfur) með árang-
urinn, endursendir þú sólana og færð peningana til
baka.
SÓLINN
ZONETERAPI
Verð aðeins 78 kr. auk burð-
argjalds.
PÖNTUNARSÍMI75253
Siálfvirkur simsvari tekur vió pöntun pmni utan skrrfstofutima.
Póstverzlunin AKRAR
Pósthólf 9140129 Rvk.
Sólteppið
Notaðu sólteppið I sólbaðið. Þú getur
legið á teppinu eða hengt það upp og
það endurkastar sólargeislunum á lík-
amann, alveg eins og sjórinn eða snjór-
inn.
Þú verður ótrúlega 'fljótt sólbrún(n)
með sólteppinu.
Dvergsaumavélin
sfvinsæla.
Tilvalin i ferðalagið,
sjálfsögð á sjóinn.
Krakkarnir sauma dúkkufötin auðvcld-
lega með dvergsaumavélinni.
Verð aðeins 79 kr. auk burðargjalds.
FUNDARBOÐ
Stjórn Átaks boðar til fundar að Hótel Sögu,
Súlnasal, fimmtudaginn 18. júní nk. Fundurinn
hefst kl. 20.30.
Dagskrá fundarins verður á þessa leið:
1. Lögð fram drög að samstarfssamningi við Útvegsbanka íslands.
2. Lagabreytingar.
3. Stjórnarkjör.
4. Önnurmál.
Átaksfólk fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Albert Guðmundsson
Hilrnar Helgason Guðmundur J. Guðmundsson
Guðmundur G. Þórarinsson Edvald Berndsen Jóhanna Siguröardóttir.
víðð
7
he«lsu!
Til hamingju ef svo er. En getur ekki
hugsazt aö þú og þínir þurfi einhvern
tímann á áöstoð Ataks aö halda. Vertu
félagi. Tryggðu framtíöina. Hringduj
síma 29599 og fáöu nánari upplýsingar.