Dagblaðið - 16.06.1981, Side 6
Skrrfstofuhúsnæði
120 m2 skíifstofuhúsnæði á 5. hæð í lyftuhúsi í Múlahverfi
til leigu. Húsnæðið er tilbúið undir tréverk, sameign og
bílastæði frágengin. Til greina kemur að leigja húsnæðið í
núverandi ástandi eða fullfrágengið, eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 82112.
Hvergerðingar —
ferðamenn
Komið og bragðið á fjölbreytilegum matseðli
okkar. Nýr seðill. Rauði salurinn opinn um helg-
ar.
Veitingahúsið HVER-iNN.
VANTAR ÞIG STUÐ?
Þá skaltu tala við okkur. Nú um þetta leyti erum
við að halda upp á eins árs afmæli okkar með ein-
staklega hljómfögrum og kraftmiklum hljóm-
tækjum og sex mismunandi gerðum af ljósaút-
búnaði.
Frískir, ferskir en samt reyndir diskótekarar.
Ath. Öll tónlist er frá Karnabæ í Glæsibæ.
Diskótekið Rokkrós
c/o Gisli Þór Reynisson,
Simi frá kl. 9 ti! 786010 og 7 til 11.30 43291.
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur
Mánudagur
ÞriöjudaRur
Fimmtudaí>ur
Föstudattur
15. júní
16. júni
18. júní
16. júni
R-1 til R-250
R-251 til R-500
R-501 til R-750
R 751 til R-1025
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga
við bifreiðaeftirlitið að Bíldshöfða 8, kl. 08:00 til
16:00.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygging sé í
gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunar-
gjald ber að greiða við skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borginni, er
skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram fyrr-
nefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar
umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr
umferð hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli.
11. júní 1981.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
d
DAGBLAÐID. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
Erlent
Erlent
I
Þúsundir fyrrverandi fanga nasisfa komnir til ísrael:
ff
Helförín má
ekki gteymasf'
—Gyðingar taka sérhverja ógnun við tilveru sína alvariega
eftir reynsluna af Hitler, sagði Yitzhak Navon, forseti ísraels
Þúsundir gyöinga sem sluppu lif-
andi úr útrýmingarbúðum nasista
komu saman i ísrael 1 gær i fyrsta og
ef til vUl jafnframt slöasta sinn.
Meira en sex þúsund manns frá 23
löndum komu saman i þeim tUgangi
aö fagna þvi að hafa sloppið lifandi
úr „helför” gyðinga í siðari heims-
styrjöldinni. Meö föngunum fyrrver-
andi var talsverður hópur barna
þeirra.
Yitzhak Navon, forseti ísraels,
sagði við komu fanganna fyrrverandi
tU Jerúsalem: „Ef eitthvert svar er tU
við helförinni þá get ég aðeins
ímyndað mér eitt, þ.e. gyðingarikið.
Navon sagði að gyðingum heföi
lærzt að taka alvarlega hótanir
„brjálaðra” leiðtoga eða samtaka.
„Þetta er minningarhátið. Við
erum aö fagna þvi aö við skulum vera
lifandi,” sagði Ernst Michel, for-
maður bandarisku samtakanna, i
samtali við blaöamann við upphaf
hinnar fjögurra daga löngu samkomu
fanganna fyrrverandi.
Michel sýndi litinn stein, sem hann
hafði í fórum sínum. Á steininn voru
rituð nöfn þeirra ættingja hans sem
drepnir voru af nasistum.
Margir þeirra gyðinga sem komu
saman til þessa fundar voru saman I
vinnubúðum eða útrýmingarbúðum
nasista allt tU stríðsloka.
„Við erum að verða gömul og hel-
förin má ekki gleymast,” sagði
Stephan Greik, formaður hóps sem
kallar sig Alþjóðleg samtök fyrrum
félaga i útrýmingarbúðum nasista.
Navon, forseti ísraels, sagði að
gyðingar tækju alvarlega sérhverja
ógnun við tilveru slna eftir reynsluna
af Hitler. Hápunktur samkomunnar
verður hópganga gyðinganna að grát-
múmum þar sem kveikt verður á
kertum tU minningar um þær sex
miUjónir gyðinga sem létu lífið i hel-
förinni.
Willy Brandt, fyrrum kanslari V-Þýzkalands, skoðar minningarsafn um „helför”
gyðinga í Israel.
Pierre Trudeau.
Varar Sovét-
menn við að
beita valdi
Pierra Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, varaði Sovétmenn í gær við að
beita -'aldi í Póllandi. Jafnframt lýsti
Trudeau yfir áhyggjum sinum vegna
fjármálastefnu Bandaríkjanna gagn-
vart öðrum þjóðum. „Sovétrikin ættu
að vita að valdbeiting með vopnum er
tapaöur leikur fyrir þá og aUan heim-
inn,” sagði Trudeau í itarlegri ræðu
um utanrikismál sem hann flutti 1
kanadiska þinginu i gær.
Keegan vill
gefa hjartað
Kevin Keegan, fyrirliði enska knatt-
spyrnulandsUðsins, er reiðubúinn að
gefa hjarta sitt. Hann er í hópi 15 þús-
und Englendinga sem geta bjargað lífi
18 ára gamaUar stúlku, Lotta Wang-
ström, sem bíður þess nú að fá nýtt
hjarta.
Keegan er i hópi fjölmargra Breta
sem bera á sér sérstakt kort þar sem
segir að ef viðkomandi lendir i dauða-
slysi þá sé hann fús til að láta hjarta sitt
af hendi við einhvem þann sem þarf á
nýju hjarta að halda.
Fyrstu kortin voru gefm út fyrir einu
ári og Keegan er sem sé i hópi þeirra
sem ganga með slikt kort.
I
REUTER
i
Bandaríkin
fordæma
Israelsmenn
Búizt er við að Bandaríkja-
menn muni taka undir fordæm-
ingu í garð Israelsmanna fyrir
árásina á kjamorkuverið i írak
er Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna fjallar um máUð. Hins vegar
er taUð fuUvíst að Bandaríkja-
menn muni standa gegn sérhverri
tUlögu um refsiaðgerðir gagnvart
fsrael.
Kevin Keegan.
Hótaðiað
myrðaReagan
Maður sem sagður er hafa hótað að
myrða Reagan, forseta Bandarlkjanna,
mun i dag sæta geðrannsókn.
Bandariska leyniþjónustan segir aö
37 ára gamaU maður að nafni O.D.
Simpson hafi verið handtekinn siðast-
Uðinn laugardag. Hann er sakaður um
að hafa hringt á simstöð og hótað að
myrða forsetann. Slmstöðin lét lögregl-
una vita og samtaUð var rakið til heim-
Uis 1 Norður-Miami þar sem Simpson
var síðan handtekinn.
Það er ekki skylda að þú færir öll þín
bankaviðskipti til okkar. En gefðu okkur
Átaksfólki tækifæri til að sanna okkur
með því að hefja reynsluviðskipti.