Dagblaðið - 16.06.1981, Side 8
Norðmaður f jármagnaði hass fyrir 24 milljónir:
REIKNAÐ MEÐ HASSSKORTI
í KRISTJANÍU Á NÆSTUNNI
!
r
f-
— Danska lögreglan hafði upp á fá f íknief nahring sem flutt hafði 600 kíló af hassi milli
Hollands og Danmerkur
28 ára gamall Norðmaður hefur i
marga mánuði fjármagnað stærsta
hlutann af öllu því hassi sem er i um-
ferð á stærsta og frjálsasta hassmark-
aði i Norður-Evrópu, hinu svokall-
aða friríki Kristjaníu i Kaupmanna-
höfn.
Norðmaðurinn situr nú i fangeisi í
Danmörku ásamt unnustu sinni og
þremur félögum, 28 ára gamalli
finnskri konu, manni hennar og 56
ára gömlum Hollendingi. Þau voru
öll handtekin i lok apríl um leið og
lögreglan iagði hald á 70 kiló af hassi
og 1,7 milljónir danskra króna í
reiðufé. Það var þó ekki fyrr en nú
fyrir nokkrum dögum að fíkniefna-
lögreglan í Kaupmannahöfn skýrði
frámálinu.
„Rannsókn málsins er i fullum
gangi og þess vegna getum við ekki
greint frá nöfnum hinna hand-
teknu,” sagði Ejlertskov Petersen,
lögregluforingi í fíkniefnalögregl-
unni, i samtali við norska Dagblaðið.
„Ég get þó sagt að við erum nokkuð
vissir um að hafa fundið mikilvæg-
ustu flutningsleið hassins til Krist-
janíu. Það verður örugglega skortur
á hassi í Kristjaníu ánæstunni,” segir
lögregluforinginn.
Lögreglan telur að sá flokkur sem
nú hefur verið afhjúpaður hafi á
fjórtán daga fresti flutt 60—70 kíló
af hassi milli Amsterdam i Hollandi
og Kristjaniu í Kaupmannahöfn.
Talið er að hópurinn hafi alls flutt
um 600 kíló af hassi að andvirði um
30 milljónir íslenzkra nýkróna. Ekki
er ljóst nákvæmlega hversu stór hluti
þess hefurhafnaðíKristjaníu.
„Afhjúpun fíkniefnahringsins er
árangur óvenjulegs samstarfs hinna
ýmsu deilda Kaupmannahafnarlög-
regiunnar,” segir lögregluforinginn.
Það var lögreglustjórinn i Kaup-
mannahöfn sem stofnaði vinnuhóp,
sem skipaður var fulltrúum úr hinum
ýmsu deildum lögreglunnar, með það
fyrir augum að kanna alla þá glæpa-
starfsemi sem á sér stað i og um-
hverfis Kristjaniu.
Á timabili hafði lögreglan grun um
nýja hasssendingu. Hollenzka og
vestur-þýzka lögreglan fylgdust með
bifreið sem keyrði frá Amsterdam til
Danmerkur og á sama tíma fygldist
lögreglan með bifreiðinni sem hin 28
ára gamla fínnska kona keyrði. Hún
keyrði frá Kaupmannahöfn suður á
bóginn en nálægt Ringsted á Sjáiandi
varð hún taugaóstyrk og sneri við. Á
sama tíma hafði bifreið sú er lagði á
stað frá Hollandi komið til Ringsted.
Lögreglan ákvað að láta til skarar
skríða. Báðir bilarnir voru stöðvaðir.
í bifreið þeirri er kom frá Hollandi
fundust 70 kg af hassi. Hjá finnsku
konunni fundust 1,7 millj. danskra
króna i reiðufé, sem er nokkurn
veginn kaupverð þessa magns af
hassi.
Eftir nokkrar yfirheyrslur viður-
kenndi konan að hún hefði ætlað að
nota peningana til að greiða hassið og
að 28 ára gamall Norðmaður hefði
látið hana fá peningana. Þegar lög-
reglan handtók Norðmanninn og
unnustu hans fundust 30.000 kr. í
viðbót.
Lögreglan teiur að það athyglis-
verða í máli þessu sé það að Norð-
maðurinn bjó ekki sjálfur í Krist-
janíu. Fíkniefnalögreglan hefur oft
gert húsleit í Kristjaniu til þess að
leita að hassi en aldrei hefur fundizt
neitt mikið magn hjá neinum einum
aðila heldur hafa það bara verið smá-
skammtar. En nú hefur það verið
upplýst að magnið var geymt hjá
Norðmanninum, sem bjó ekki sjálfur
í Kristjaniu, og flutt inn í Kristjaníu 1
smáskömmtum. Þar með er gátan um
stærstu og frjálsustu nýlendu
Norður-Evrópu i hassmálum leyst.
Lögreglan telur að Norðmaðurinn
hafi fjármagnað stærsta hluta send-
ingarinnar. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar hefur Norðmaðurinn
búið i Danmörku í mörg ár. Fikni-
efnahringurinn hefur haft umsvif um
alla Skandinavíu. Frá bæki-
stöðvunum i Holiandi hafa sendingar
farið til Þýzkalands. í Amsterdam
hefur lögreglan handtekið þrjá menn
er taldir eru viðriðnir þetta máh 'Hjá
einum þeirra fundust 156 kg af hassi.
Lögreglan telur að þessi fikniefna-
hringur sé einn sá stærsti sem hefur
verið afhjúpaður. En jafnframt telur
lögreglan að fíkniefnadreifingin
verði komin á stað aftur eftir
skamma stund.
Fíkniefnadreifing er geysilega vel
skipulögð. Erlendir peningamenn
hafa á sínum snærum fullt af fólki
sem ekki þekkir hvert annað sem ann-
ast þessa dreifingu og ef einhver er
handtekinn fer dreifingin yfir á aðra
aðila hringsins.
í febrúar siðastliðnum afhjúpaði
lögreglan í Noregi, Danmörku og
Hollandi fíkniefnahring frá Amster-
dam til Noregs, sem fór gegnum
Jótland. í litlum bæ á Jótlandi gerði
lögreglan upptæk 85 kg af hassi, sem
trúlega átti að fara til Osló.
Lögreglan er enn að rannsaka það
mál og ekki er talið að þessi tvö mál
tengist hvort öðru.
Ibúar Kristjaniu kunna að verða að búa við hassskort á næstunni.
I Kristjaniu hefur lögreglan fram að þessu aðeins fundið litió magn af hassi i einu. Nú telur hún sig hins vegar hafa haft upp á
aðaldreifingaraðilanum.