Dagblaðið - 16.06.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
FRKHUK NYTUR STUÐNINGS
Ákvörðun Friðriks Ólafssonar,
forseta Alþjóðaskáksambandsins,
FIDE, um að fresta heimsmeistara-
einviginu á milli Karpovs og Kort-
snojs um einn mánuð hefur að
vonum vakið mikla athygli. Friðrik
hefur með ákvörðun sinni gefið
sovézkum yfirvöldum frest til 30.
september til aö ákveða hvort fjöl-
skyldu Kortsnojs verður leyft að yfir-
gefa Sovétríkin.
Friðrik hefur lýst þvi yfir að hann
byggi ákvörðun sina á lögum FIDE
sem segi að báðir keppendur i heims-
meistaraeinviginu skuli standa jafnir,,
en svo sé ekki á meðan fjölskylda
Kortsnojs sé haldið i Sovétrikjunum.
Dagblaðiö leitaði álits nokkurra
þekktra manna úr skáklffi hérlendis á
ákvörðun Friðriks Ólafssonar og fara
svör þeirra hér á eftir.
-KMU.
RETT AÐ VINNA AÐ ÞESSU
AF FESTU EN MEÐ GÁT
eins og Friðrík hefur gert, segir dr. Ingimar Jónsson, forseti Skáksambands
íslands
,,Ég er sammála Friðriki i því sem
hann er að gera. Ég held að þetta sé
það rétta. Hann vill leysa þetta mál
áður en einvígið hefst. Með þessari
frestun gefur hann Sovétmönnum
ákveðinn tima og taskifæri,” sagði
dr. Ingimar Jónsson, forseti Skák-*
sambands íslands, um ákvörðun
Friðriks Ólafssonar, forseta Alþjóða-
skáksambandsins, að fresta einvigi
Karpovs og Kortsnojs um einij
mánuð.
Óttast þú að ákvörðun Friðriks
geti leitt til klofnings Alþjóðaskák-
sambandsins?
„Þetta er eflaust viðkvæmt mál en
það er af og frá að þessi frestun Ieiði
til klofnings. Ef deilan harðnar má
búast við einhverjum erfiðleikum. Ég
held þó að ekki sé mikil hætta á
ferðum.”
Finnst þér að Friðrik eigi að setja
kröfuna um að fjölskylda Kortsnojs
fái að flytjast frá Sovétríkjunum sem
algjört skilyrði fyrir að einvigið fari
fram?
„Það er rétt að vinna að þessu eins
og Friðrik hefur gert; af festu en með
gát. Friðrik þekkir þetta manna bezt
og veit hvað hann má ganga langt en
þetta er erfitt mál,” sagði dr.
Ingimar.
-KMU.
Dr. Ingimar Jónsson: „Friðrik veit
hvað hann má ganga langt.”
DB-mynd: HV.
Ég fagna þessari
ákvörðun Friðriks
— segir Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands
Norðuríanda
KÆMIEKKIILLA
ÚT AÐ SVIPTA
Jón L. Ámason: „Trúl ekkl öðru en
að Sovétmenn reyni að leysa þetta
mál.”
Slæmt ef
einvígið
færi ekki
KARPOV TITLINUM fram
segir Guðmundur Sigurjónsson stórmeistarí
„Ég fagna þessari ákvörðun
Friðriks og hinni skorinorðu stefnu
sem hann hefur tekið í þessu við-
kvæma mannréttindamáli,” sagði
Einar S. Einarsson, forseti Skáksam-
bands Norðurlanda.
,,Ég vil geta þess að i stjórn Skák-
sambands Norðurlanda er til umfjöll-
unar ályktunartillaga sem bæði Skák-
samband íslands og Noregs hafa
skrifað undir. Sá texti gengur mjög í
sömu átt og beinlfnis sagt að þessi
sambönd líti svo á að staða keppenda
sé ekki jöfn þegar fjölskyldu annars
sé haldið i gislingu. Með þessu er
verið að veita stefnu Friðriks stuðn-
ning.”
Hefur Friðrik verið of linur
gagnvart Sovétmönnum?
,,Ég tel að þetta mál hafi gengið
tiltölulega hægt en það er ekki gott
að dæma um það. Ég held að þetta
hafi tekið núna góða og rétta stefnu.
En allt tekur sinn tíma. Það er ekki
þrautalaust að ná einhverju sam-
bandi við Sovétmenn um þetta mál.”
„Óttast þú klofning Alþjóðaskák-
sambandsins?
„Ég imynda mér nú að það komi
ekki til þess þó að einhver ágrein-
ingur verði um þessa ákvörðun. En
það mun hrikta í stoðum sam-
bandsins.”
Telur þú rétt að krafan um fjöl-
skyldu Kortsnojs verði sett sem skil-
yrðifyrir einvíginu?
,,Ég held að það verði að meta
þaö. Mér finnst sjálfum að þetta sé
undirstaða þess aö einvigið geti farið
fram við jafnar og réttar aðstæöur.
Þetta mál kemur væntanlega mjög
til umræöu á FIDE-þinginu sem hefst
i Bandaríkjunum 19. júlí næstkom-
andi. Þaö verður kannski frekar
þingsins að ákveða um nánari
aðgerðir,” sagði Einar S. Einarsson.
-KMU.
„Ég er alveg sammála Friðriki að
gera þetta,” sagði Guðmundur Sigur-
jónsson stórmeistari í samtali við
blm. Dagblaðsins.
„Ég óttast ekki klofning FIDE.
Flestir skákmenn, sem ég hef rætt við
erlendis, telja að ekki muni koma til
klofnings. Skákmenn í Austur-
Evrópu álíta jafnvel að þetta sé þeim
sjálfum fyrir beztu. Rússar hafa
miklu meiru aö tapa ef FIDE
klofnar. Það er auðvelt að vera án
þeirra. Þeir munu þvi hugsa sig um
tvisvar áður en til klofnings kemur.
Þeim hafa verið sett álíka skilyrði i
öðrum iþróttum. Ég hef heyrt um
svipað í sambandi við tennis. Rússar
hafa frekar gefið eftir. Erlend sam-
skipti eru miklu mikilvægari fyrir
þá.”
Telur þú að þeir muni þá iáta
undan?
,,Enn er of fljótt að segja til um
það. Það er spurning um hvað FIDE
ætlar að ganga langt. Hvort til
dæmis Karpov verði sviptur titlin-
um.”
Telur þú að svipta eigi Karpov
heimsmeistaratitlinum láti Sovét- .
menn ekki undan?
„Ég held aö það kæmi ekki illa út
fyrir skákmenn almennt ef slikt yrði
gert,” sagði Guðmundur Sigurjóns-
son. -KMU.
Guðmundur Slgurjónsson: „Kússar
hafa melru að tapa ef FIDE
klofnar.”
DB-mynd: Einar Ólason.
— segir Jón L Ámason
skákmeistari
„Þetta er spor í rétta átt, sýnir að
FIDE er aivara í hug, að samtökin
ætla að gera eitthvað í máli Korts-
nojs. Þetta setur þrýsting á Rúss-
ana,” sagði Jón L. Árnason skák-
meistari.
„Fide hefur talið nauösynlegt að fá
einhvem botn í þetta mál til að jafn-
ræði sé með keppendunum.”
Á að gera mál Kortsnojs að skil-
yrði fyrir því að einvigið fari fram?
„Það er spuming hve langt eigi að
ganga. Það er kannski of djúpt i ár-
inni tekið að gera þetta að skilyröi.
Það gæti farið svo að einvígið færi
ekki fram og báðir litu á sig sem
heimsmeistara. Það yrði slæmt því
útlit er fyrir skemmtilegt og spenn-
andi einvígi.
Ég trúi ekki öðm en að Sovétmenn
reyni að leysa þetta mál því annars
gæti svo farið aö samúðin yrði öll
Kortsnojs megin og það á Karpov
ekki skilið,” sagði Jón L. Árnason.
-KMU.
Friðrík hefur leikið
biðleik á Rússa
— segir Jón Þorsteinsson lögfræöingur
Elnar S. Einarsson:
stoðum FIDE.”
,Hrikta mun f
„Mér lizt ekki illa á ákvörðun
Friðriks. Hann hefur leikið biðleik á
Rússana. Annars þekki ég ekki stöö-
una. Maður treystir því að Friðrik
geri það og leiki rétt,” sagði Jón Þor-
steinsson lögfræðingur, fyrrverandi
alþingismaöur og gamalreyndur
skákmaður. Hann var spurður hvort
hann óttaðist klofning Alþjóöaskák-
sambandsins:
„Framtiðin verður að skera úr um
það.”
Ef Sovétmenn þrjózkast við telur
þú þá að til gréina komi að svipta
Karpov heimsmeistaratitlinum?
„Maður veit ekki hvaða aöstæður
kynnu að koma upp. Annars ætti
maður að hafa það að einkunnar-
orðum sem Abba Eban, fyrrum utan-
ríkisráöherra ísraels, sagði: Ég svara
ekki spurningum sem byrja á EF.”
-KMU.
Jón Þorsteinsson: „Treysti þvf að
Friðrlk þekki stöðuna og leiki rétt.”
Þátttaka þín í Á TAK/ er einfö/d ákvörðun
um að sparrfé þínu skufí varið tfí að skapa
fegurra og betra mannfíf.