Dagblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1981.
11
öll spjót standa nú á íslenzkum stjómmálamönnum:
Er beitarærgildið óbætan-
legt hvað sem í boði er?
,,Um fátt er eins mikið deilt hér á
landi um þessar mundir og röð og stað-
setningu vatnsaflsvirkjana. Er það
raunar að vonum, svo mikilvægar sem
þær eru f margvislegu tilliti. Á þessu
sviði er augljóslega mikil þörf á stefnu-
mörkun, mun itarlegri en að virkjað
skuli utan eldvirkra svæða eins og
stendur í stjórnarsáttmála núverandi
rikisstjórnar”.
Þannig fórust Jakobi Björnssyni,
orkumálastjóra, m.a. orð á nýafstöðnu
Orkuþingi.
„Til þess að móta slika virkjunar-
stefnu i viðasta skilningi þess orðs, þar
sem það er látið ná yfir bæði vatnsorku
og jarðhita, þarf áð minum dómi að
gera þetta fyrst:
1. Móta síefnu í byggðamálum að
því er tekur til staðsetningar stórra
orkunotenda, t.d. ákveða hvaða vægi
slik sjónarmið eigi að hafa i hlutfalli
við kostnað orkunnar.
2. Stjómvöld verða að ákveða inn-
byrðis vægi orkukostnaðar annars
vegar og hins vegar þátta eins og
náttúrufarslegra áhrifa af virkjunum,
áhrifa þeirra á aðra efnahagsstarfsemi,
á búsetu og á samfélag manna i ná-
grenni virkjunarstaða.
Hvemig ber t.d. að meta beitarær-
gildi sem glatast undir miðlunarlón?
Eftir þeim arði sem það skilar þjóðar-
búinu? Eftir þvi hvaö það kostar að
bæta það með ræktun og uppgræðslu?
Eða er kannske beitarærgildi; gróið
land, óendanlega mikils virði, þannig
að alls ekki megi fórna því hvað sem i
boði er í staðinn.
3. Ákveða verður hvaða öryggis-
kröfu beri að gera til orkuiðnaðarins.
Ákvarðanir i þessum efnum em hápóli-
tiskar. Að búa rafmagnsnotanda i af-
skekktri sveit sama öryggi gagnvart raf-
magnsleysi og notanda í Reykjavik er
svo dýrt að varla er sá stjómmála-
maður til sem reiðubúinn er að láta
þjóðarbúiö axla þann kostnað.
Jakob benti á nauðsyn stefnumörk-
unar um nýtingu jarðhitasvæða í eigu
rikisins, einkum um það hvort rikið
sjálft ætlar aðstandafyrir vinnslu hita-
orkunnar og seíja i heiidsölu eða leyfa
öðrum að vinna hana.
Afstöðu þarf að taka til þess_á hvers
vegum oliuhreinsun á íslandi verði, ef
til hennar kemur á íslandi.
Loks þarf að skipuleggja oliuleit á
landgrunninu. Ákveða þarf hvaða hlut
rikið ætlar sér i sjálfri leitinni og hvort
útlendingum skuli heimiluð slik leit
og þá með hvaöa skilyrðum og undir
hvers konar eftirliti. Leiði leitin til
vinnslu þarf ekki siður að skipuleggja
þau mál. Þar er timi til stefnu. Leitar-
málið þarf að afgreiða fyrst.
„Sldpulag allra þessara þátta ætti að
marka um leiö og orkulög verða endur-
skoðuð,” sagði Jakob Bjömsson.
Jakob benti á stefnumótum Svia i
kjarnorkumálum og taldi hana til fyrir-
Hvaráað virkja?
— Hveráaðvinna
jarðhitann? Hveráað
standaað
olíuhreinsun hér?
— Hveráaðfáleyfir
til olíuleitar við ísland?
myndar. Þar endaði almenn umræða
með leiðbeinandi þjóðaratkvæða-
greiðslu. Stjórnvöld urðu að taka loka-
ákvörðunina. Ég tel að við hér á íslandi
getum margt lært af því dæmi og not-
fært okkur 1 þvi verki sem framundan
er við að móta alhliða heilsteypta
islenzka orkumálastefnu,” sagði Jakob
orkumálastjóri.
•A.St.
Orkumálastjóri harðorður á Orkuþingi:
„LETTLYNDIR EF EKKI
KÆRULAUSIR í OUUMÁLUM”
— ísland eina land Evrópu sem enga viðlagaáætlun hefur íolíumálum
„Við Islendingar erum furðu létt-
lyndir — að ég segi ekki kærulausir — í
olíumálum,” sagði Jakob Björnsson
orkumálastjóri er hann ræddi annan
meginþátt eldsneytismálastefnunnar,
þ.e. kaup á eldsneyti, aðflutning og
birgðahald.
„Fram til þessa hefur naumast verið
litið á þann þátt sem orkumál heldur
viðskiptamál, enda hefur hann heyrt
undir viðskiptaráðuneytið einvörð-
ungu, en ekki iðnaðarráðuneytið sem
fer með orkumál að öðru leyti. Vita-
skuld eru kaup á oliu mikilsverður
þáttur í utanríkisviðskiptum okkar, en
olíumál eru hvarvetna í heiminum einn
mikilvægasti þáttur orkumála. Svo er
vitaskuld hér einnig þar sem nærri
helmingur seldrar orku er í formi olíu-
vara.
Mér er ekki kunnugt um að hér á
landi sé tii nein viðlagaáætlun um við-
brögð við truflunum i olíuflutningum
til landsins, enda þótt augijóst sé að
afleiðingar slikra truflana gætu orðið
afskapiega afdrifaríkar. Þær gætu
beinlínis lamað mikilvægustu atvinnu-
grein okkar, fiskveiðarnar. fsland er
eina landið, þar sem ég þekki til, sem
enga slíka áætlun hefur. Hér þarf
hugarfarsbreytingu. Við erum miklu
háðari olíu en svo að við getum látið
vera að huga aö örygginu i oliuað-
föngum til landsins. Hér þarf stefnu-
Óvíst hvort innlent
eldsneyti getur nokkru
sinni keppt við erlent
— segir Jakob Bjömsson orkumálastjóri
mótun af hálfu stjórnvalda. Birgða-
málin þarf að taka til gaumgæfilegrar
skoðunar og athuga hvaða þátt
innlend oliuhreinsun getur átt i að auka
öryggið. Komast þarf að niðurstöðu
um hvort rétt sé að ísland gerist aðili að
Alþjóða orkustofnuninni, olíusam-
tryggingu Vesturlanda,” sagði Jakob.
Hann benti á að einnig þyrfti að
móta stefnu hvernig huga beri að tveim
ólikum þáttum, ódýru eldsneyti og
öruggum aðföngum. Stefnumörkun
þarf að taka um hvort sölumöguleikar
á fiskafurðum eigi að ráða oliukaupum
og hvort taka eigi tillit til pólitísks
þrýstings í ákvörðun um oliukaup, t.d.
frá Suður-Afríku, sagði orkumála-
stjóri. -A.St.
fttondingar nýta nú s«m ivmr 1200 mngavatta-
orku af jarðhitaorkullndlnnl til húsahitunar. Tl
annarra nota, þor með talin raforkuvlnnaia, ar
nýtt aam avarar 500 magavöttum. 8amkvaamt
nýjaata matí á jarðhltaorkuHnd íalanda namur
nýtíngln nú 1,4 prómlll aða 1,6 þúaundaata hlut
orkuHndarlnnar.
„Sjálfsagt er talið að nýta vatnsorku
og jarðhita i staö olíu alls staðar þar
sem það er hagkvæmt. Um þetta eru
landsmenn sammáia og eftir fá ár má
heita að olía verði horfin úr hitun
húsa,” sagði Jakob Björnsson i erindi
sinu á lokadegi Orkuþings.
„Róðurinn verður þyngri í iðnaðin-
um, en þó benda athuganir til að hag-
kvæmt geti verið að nýta raforku að
hluta i stað olfu i fiskimjölsverk-
smiðjum.
t samgöngum er enn örðugra að nýta
innienda orku og ekki fyrirsjáanlegt að
það verði unnt svo neinu nemi hérna
megin aldamóta vegna þess aö strjál-
býli og fámenni útilokar notkun raf-
magnsjárnbrauta og hálinuvagna með
viðráðanlegum kostnaði. Rafbilar, sem
nýtt gætu hið almenna vegakerfi, eru
ekki á almennum markaði.
í fiskveiðum eru ekki fyrirsjáanlegir
tæknilegir möguleikar á nýtingu vatns-
orku eða jarðhita,” sagði orkumála-
stjórinn.
Orkumálastjóri sagði að framleiðsla
á innlendu eldsneyti hefði nokkuð verið
athuguð að undanförnu. Niðurstaðan
væri að það yrði verulega dýrara en
innfluttar oifuvörur sem stendur.
Hækkað oliuverð gæti breytt hlutföll-
um, en innflutt gervieldsneyti kynni
lika að verða ódýrara en innlent. Jakob
kvað mjög öra þróun eiga sér stað i
þessum efnum og stórþjóðimar
kostuðu miklu fé til rannsókna á fram-
leiðslu gervieldsneytis. Taldi hann rétt
að tslendingar fylgdust með þróuninni
án þess að kosta umtalsveröu fé til
hennar sjálfir, slikt væri alitof áhættu-
samt. Kvað Jakob óvfst vera, eins og
nú stæði, hvort innlent eldsneyti gæti
nokkurn tima orðið samkeppnisfært
við erlent. -A.St.
l'S O
cis
. .*> *
sss
S'S
'5 2
ei
°g
Örfá eintök enn fáanleg. »
Bókin er gefin út x rúmlega 200
eintökum. Mjög góS handbók
í viðskiptalífinu.
Verð kr. 1.490,-
&
e
Nafnnúmeraskrá mun stærri en áður og
heimildargildi betra. þar sem hér er um
endanlegar tölur að ræða.
LETUR H.F. Sími 23857.
Grettisgötu 2, Pósthólf 415, Reykjavík.
ÁTAK er ÁTAK, sem á sér enga hfíð-
stæðu eða fyrirmynd. Verum framsýn.
Verum jákvæð. Verum með frá upphafi.