Dagblaðið - 16.06.1981, Qupperneq 13
.’» » > /.1 • r í • I > * '• ) í I t » r * i .l n ) )
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
13
Við Eskfirðingar eigum dugmikla
atvinnurekendur og er Aðalsteinn
Jónsson þeirra elztur og jafnframt
stærsti atvinnurekandinn. Á hann
bæði hraðfrystihúsið og loðnu-
bræðsluna, sem skapar þjóðinni mik-
inn gjaldeyri og fólkinu sem vinnur á
vöktum í bræðslunni góð laun. En sú
mikla mengun sem kemur frá loðnu-
bræðslunni er alla að drepa. Þrem til
fjórum sólarhringum eftir að verk-
smiðjan tekur til starfa byrjar mátt-
leysi í fólki, nefrennsli, lystarleysi,
höfuðverkur, hálsbólga og ógleði. Og
æluspýjur sjást víða á götum Eski-
fjarðar. Börn sem fæddust sl. haust
og sváfu úti á daginn allan þennan
harða vetur varð að taka inn tveimur
dögum eftir að byrjað var að bræða
kolmunnann, þegar sól og sumar er
komið, vegna grútarfýlu og uppkasta
barnanna og annars lasleika sem fylg-
ir i kjölfar þessarar miklu mengunar.
Þess má geta að fullorðinn maður féll
í dá vegna kolsýrings í lest í skipi er
veríð var að landa kolmunna á Eski-
firði. Þurfti sá maður að fá súrefnis-
gjöf til að ná sér. Annar fuUorðinn
maður féll í dá vegna fnyks frá kol-
munna er verið var að landa, og þó
stóð hann uppi á dekki. Þurfti að
nota blástursaðferð til að hressa hann
við. Svo megn er fýlan, jafnvel áður
en vinnsla er hafin á hráefninu.
Hreinsitæki
Ég heyrði í þingfréttum í vor um
lög sem voru samþykkt á Alþingi um
hreinlæti í sambandi við meðferð
Kapp er bezt með forsjá
MEGN MENGUN
Á ESKIF1RÐI
Kjallarinn
sjávarafurða og að forðast skyldi alla
mengunarhættu við matvæli. Ég vil
bara spyrja: ,,Hvað þýðir að sam-
þykkja lög og framfylgja þeim
ekki?” Bara láta safnast upp háa
stafla, og þeir eru hærri en smjör-
fjaUið, og er þá mikið sagt.
Á sömu lóð og fiskimjölsverk-
smiðjan er á eru fjögur stór og glæsi-
leg fiskverkunarhús og óttast saltfisk-
framleiðendur um fisk sinn vegna
þessarar miklu dragýldu frá verk-
smiðjunni, og lyktin fer jafnt í hrað-
frystihúsið þar sem fyUsta hreinlætis
er gætt á öUum sviðum.
Reykurinn frá fiskimjölsverk-
smiðjunni smýgur um allt og er búinn
að eyðileggja mikið fyrir okkur Esk-
firðingum. Við Eskfirðingar búum á
miUi hárra fjalla og lítið er undirlend-
ið. Við búum eins og í loftlausu húsi,
og mikU er veðursæld oftast á Eski-
firði, rjómalogn sólarhring eftir sól-
arhring. Ef þessu ófremdarástandi á
að halda áfram, að dæla eitruðu lofti
yfir okkur þá er ekki langt að biða
að Eskfirðingar gangi með súrefnis-
kút og beisli á andliti til að fá súrefni
úr kútnum. Og verða auk þess að
fara þrisvar tU fjórum sinnum á sól-
arhring I öndunarvélar ásamt
mörgum öðrum tækjum og meðulum
sem hægt er að nota til lækninga i
smátima en sjaldnar tU fuUnustu.
Ég hef aUtaf verið hrifin af at-
hafnamönnum og litið upp til þeirra,
en þeir heiðursmenn verða að byrja á
byrjuninni og setja hreinsitæki við
þessar verksmiðjur sinar.
Mér er sagt að bæði í Færeyjum og
Danmörku séu fiskimjölsbræðslur,
en þar má ekki setja verksmiðjuna í
gang fyrr en komin eru fuUkomin
hreinsitæki. Einnig er mér sagt að í
áðurgreindum verksmiðjum finnist
varla bræðslulykt, enda mega verk-
smiðjumar á þeim stöðum ekki taka
við hráefni nema fyrir einn sólarhring
í einu. En á Eskifirði er keppst við að
byggja sem stærstar þrærnar og tank-
ana og yfirbjóða hráefnið svo hægt
sé að bræða sem lengst eldgamalt
hráefni, löngu eftir að skipin eru búin
að landa.
Ég las I blaði 6. júni sl. að fiski-
mjölsverksmiðjan á Eskifirði hefði
ekki starfsleyfi frá áramótum 1978—
79. Ég spyr enn: „Til hvers er verið
að setja heilbrigðisnefndir á hverjum
stað?” Og svo er heilbrigðiseftirlit
Regína Thorarensen
rikisins sem ég vonast tU að taki þetta
fastari tökum en verið hefur hingað
til. Og láti verkin tala og sýni hvað
heilbrigðiseftirlit ríkisins hefur mikil
völd.
Ég hef það fyrir satt að um 600
milljónum sé veitt tU að setja upp
hreinsitæki við fiskimjölsverksmiðj-
urnar úti um landið, en fáir virðast
hafa nýtt sér þessa fjármuni og aUs
ekki á Éskifirði.
Regina Thorarensen.
Esldflrði.
r
Orkunýtingin: „
VIRK YFIRRAD OKKAR
í ORKUFREKUMIÐNAEN
öllum ber saman um nauðsyn þess
að virkja orkuUndir landsins til hags-
bóta fyrir þjóðina. Ljóst er að næstu
áratugi verða hér gifurlegar fram-
kvæmdir við virkjanir og orkufrek
iðjuver.
öllu skiptir hversu á þessum
málum verður haldið. Það mun
skipta sköpum um hvers konar þjóð-
félag fslendingar búa við um alda-
mót.
Verða íslendingar i höfuðdráttum
orkuseljendur til nokkurra fjölþjóða-
fyrirtækja, sem nokkrir fslendingar
hafa sæmilega iaunaða vinnu hjá,
eða munu íslendingar hafa virk yflr-
ráð yfir orkufrekum iðnaði f landinu
sjálfir, sem fullgildir þátttakendur i
markaðsmálum, tæknimálum og
fjármálum sllkra fyrirtækja?
Hér er slíkt stórmál á ferðinni að
menn verða að staldra aðeins við og
hugsa.
Baráttan framundan snýst um virk
yfirráð íslendinga sjálfra á þessu
sviði og er nánast ný landhelgisbar-
átta.
Takist ekki vel til verður fsland
hálfnýlenda erlendra fjölþjóðafyrir-
tækja.
Stefna Fram-
sóknarflokksins
Á flokksþingi sínu 1974 mótuðu
framsóknarmenn þá stefnu, að
fslendingar skyldu eiga meirihluta í
fyrirtækjum sem störfuðu hér á landi
i orkufrekum iðnaði. Framsóknar-
menn telja hins vegar samvinnu við
útlendinga eðlilega og nauðsynlega á
sviði markaðsmála og tæknimála.
Meirihlutaeign fslendinga i slíku
fyrirtæki getur hæglega myndazt á
fáeinum árum.
í flokksþingssamþykkt Fram-
sóknarflokksins 1978 er stefnan
færð nokkru nánar út og þar tekið
fram, að slík fyrirtæki skuli lúta
islenzkum lögum, íslenzkum dóm-
stólum og ekki njóta betri lögkjara en
sambærileg íslenzk fyrirtæki.
Framsóknarmönnum hefur lengi
verið ljóst, að til lítils er fyrir íslend-
inga að eiga meirihluta í verksmiðj-
um, þar sem erlendir aðilar ráða öllu
um kaup aðfanga og sölu afurða.
Þekking fslendinga á þessu sviði og
full þátttaka er auðvitað forsenda
þess, að fslendingar séu fúllgildir
aðilar f slfkri samvinnu.
Það er oft nokkur vandi hjá stjórn-
málaflokki að orða stefnu sina á
einfaldan hátt, þannig að allir skilji
hvað við er átt.
Vinnuhópur i Framsóknarflokkn-
um fann eftir langar umræður um
þessi mál hugtakið „vlrk yflrráð’*,
sem helzt gæti i einföldu máli skýrt
afstöðu framsóknarmanna.
Með því er átt við, að fslendingar
þurfi ekki að eiga verksmiðjurnar
alfarið einir, en hins vegar verði þátt-
taka þeirra að leiða til virkra yflrráða
í öllum sviðum starfseminnar. Hug-
takið felur í sér samvinnu við erlenda
aðila, en færir fslendingum sjálfum
þá ábyrgð, að afla sér þekkingar á
sviði markaðsmála og tækni, sofna
ekki á verðinum, heldur fara með sín
mál sjálfir.
Virk yfirráð
Virk yfirráð fela i sér mikilsverða
stefnu. Hugtakið flytur boðskap um
hvemig uppbyggingu atvinnulífs
framsóknarmenn vilja stefna að og-
þar með þjóðlifs.
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur fluttu á slðasta þingi tillögur
um að sett yrði á fót „orkusölu-
nefnd”. Nafnið eitt segir mikið.
Framsóknarmenn vilja ekki að
fsland verði 1 framtiðinni fyrst og
fremst orkusöluland.
Litum til Kanada. Kanada er lik-
lega hæsti orkunotandi í heimi pr.
íbúa. Landið býr yfir miklum orku-
lindum og hráefnanámum. Þessar
auðlindir eru t miklum mæli í
nýtingu. Eigi að siður em þjóðartekj-
ur Kanadamanna lágar miðað við
þær þjóðir, sem við viljum helzt bera
okkur saman við, vegna þess að orka
og hráefni eru i miklum mæli nýtt af
erlendum fjölþjóðafyrirtækjum.
Kanadamenn selja orku og fá sæmi-
lega vel launaða vinnu, en arður
fyrirtækjanna rennur í miklum mæli
út úr landinu. Þetta fyrirkomulag
vilja framsóknarmenn ekki á
fslandi.
Framsóknarmenn vilja ekki að
fsland verði hálfnýlenda erlendra
fjölþjóðafyrirtækja. Framsóknar-
menn leggja þvi áherzlu á vlrk yflr-
ráð fslendinga sjálfra yfir fyrirtækj-
um, sem nýta innlenda orku.
Þetta þýðir að við verðum sjálfir
að axla ábyrgð. Verðum sjálfir að
fást við tæknimálin og afla okkur þar
þekkingar með markvissum skrefum.
Auðvitað er samvinna við erlenda
aðila eðlileg og sjálfsögð. Hér er
mikið verkefni framundan. Hér er
um nýja sjálfstæðisbaráttu að ræða.
Sjálfstæðisbaráttu smáþjóðar lýkur
aldrei.
Hvað er nœst?
Við nýtingu orkunnar eru tveir
kostir, ef horft er til allra næstu ára,
en auðvitað fleiri og fjölbreyttari ef
lengra er litið.
1. Stækkun þeirra iðjuvera sem nú
eru 1 landinu, álvers og málm-
blendiverksmiðju.
2. Nýjar verksmiðjur, þ.e. kísil-
málmverksmiðja og álverksmiöja.
Lengra fram í framtiðinni er siðan
möguleiki á magnesiumframleiðslu,
framleiðslu innlends eldsneytis,
natriumklórat o.s.frv.
Framsóknarmenn setja skilyrði
fyrir stækkun núverandi iðjuvera.
Margir telja stækkun þessara iðju-
vera hagkvæma vegna þeirra
aðstæðna, sem þar eru þegar fyrir
hendi, svo sem höfn, vegir o.s.frv.
Ef stækka á álverið þarf hins vegar
að breyta ýmsum grundvallar-
atriðum. Þar leggja framsóknarmenn
áherzlu á eftirfarandi:
1. Endurskoðun og hækkun orku-
verðs og ýmissa ákvæða samnings
í ljósi fenginnar reynslu.
2. tslendingar fái eignaraðild að
álverinu og virka stjómar-
aðstöðu. Meirihlutaeign gæti
komið á ákveðnum árafjölda.
3. tslendingar fái þegar vinnu
við markaðsmál verksmiðjunnar
til þess að byggja upp þekkingu'
og reynslu hérlendis á þvi sviði.
4. Viðræður um iðnað 1 tengslum við
álverið, svo sem úrvinnsluiðnað,
rafskautaverksmiðju o.s.frv.
Áherzlu ber að leggja á, að endur-
skoðun álsamningsins er mikiö
hagsmunamál tslendinga.
Varðandi stækkun málmblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga:
1. Við samninga um 3. og 4. ofn
verksmiðjunnar verði ákveðið, að
tslendingar komi inn i kaup
aðfanga og sölu afurða verk-
smiðjunnar, til þess að öðlast
þekkingu og reynslu á því sviði.
Endurskoðun sölulauna og
greiðsla fyrir tækniþekkingu kemur
þar með.
Um nýja kostl er þetta að segja:
Athugun á kísUmálmverksmiðju
við Reyðarfjörð er vel á vegi. Ef tU
vUl væri unnt að leggja frumvarp um
slika verksmiðju fyrir Alþingi fyrir
þinglok vorið 1982.
KisUmálmverksmiðja gæti tekið tU
starfa 1985—86.
Enginn vafi er á, að áliðnaðurinn
getur skilað tslendingum miklum
hagnaði. Við athugun á reikningum
Elkem kemur i ljós, að samanlagt
síðustu 5 ár skilar áldeUdin 71% af
hagnaði fyrirtækisins fyrir skatta. t
þessu stóra fyrirtæki eru hins vegar
margar deildir. ÁldeUdir hafa aðeins
um 18% af veltu fyrirtækisins á
þessum tima.
Áliö er léttur málmur og lfklegt að
notkun hans muni aukast mjög í
framtíðinni á timum orkukreppu.
Álver í meirihlutaeigu tslendinga
hlýtur að vera vænlegur kostur. Vilji
noröanmenn ekki slika verksmiðju
kæmi vel til greina að staðsetja hana
á Suöurlandi, t.d. nálægt Þorláks-
höfn.
Mengunarvarnir má stórefla og
hafa fuUa gát á náttúruverndar-
sjónarmiðum og umhverfismálum.
^ „Baráttan framundan snýst um virk yfir-
ráð íslendinga sjáifra á þessu sviði og er
nánast ný landhelgisbarátta. Takist ekki vel til
verður Island hálfnýlenda erlendra fjölþjóða-
fyrirtækja.”
Kjallarinn
GuðmundurG.
Þórarmsson
Auðvitað mega íslendingar ekki hafa
ÖU sin egg í sömu körfu, en álfram-
leiösla tslendinga yrði innan við 1%
af heUdarframleiðslu og ætti ekki að
vera áhætta um sölu.
Auðvitað verða tslendingar að
taka einhverja áhættu. Hana þarf að
meta vandlega hverju sinni.
Á þessu stigi er ekki ástæða til aö
fjölyrða um kosti, sem liggja lengra
fram i framtiðinni.
En ekki má slaka á vinnu við
athugun slíkra kosta.
Þjóðareining
MikU nauðsyn er, að tslendingar
nái samstöðu i þessu mikla
framtiðarmáli, sem skipulag orku-
nýtingar er.
Margt bendir tU, að aðrir stjórn-
málaflokkar séu að nálgast
Framsóknarflokkmn um stefnu-
markið virk yfirráð.
Sjálfstæðismenn og alþýöuflokks-
menn hafa oft túlkað andstöðu gegn
eignaraðild íslendinga að iðjuverum I
orkufrekum iðnaði. Talið áhættuna
of mikla..
Á nýafstöðnu Orkuþingi skildi ég
fuUtrúa Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks svo að þeir hafi mjög nálgast
stefnumið Framsóknarflokksins og
„vlrk yflrráO” gætu orðið það sem
flokkarnir sameinast um. Framsókn-
armenn hafa lagt áherzlu á að virkja
svo hratt sem unnt er með skynsam-
legum hætti.
Á Orkuþingi fannst mér á fuUtrúa
Alþýðubandalagsins, að Alþýðu-
bandalagið hefði nálgast Fram-
sóknarflokkinn mjög varðandi
virkjunarhraða og samvinnu viö er-
lenda aðila um tæknimál, markaðs-
mál og minnihluta eignaraðild.
Hér er um nýja landhelgisbaráttu
að ræða. Vlrk yflrráO eru markið,
sem við eigum að keppa að. Með þvi
móti leggjum við grunn að bættum
lifskjörum og fögru mannlífi i þessu
landi.
GuOmundur G. Þórarinsson
alþingismaOur.
V