Dagblaðið - 16.06.1981, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
Kristín Bjamadóttir leikur í kvikmynd um erfidismenn þá sem lögðu
jámbrautir um Jótland á stríösárunum fyrri:
Óður til farandverka-
manna fortíðarinnar
— sem unnu hörðum höndum til þess að seinni kynslóðir gœtu brunað
þœgilega um landið
Kristín Bjarnadóttir leikkona er
nýfarin til Jótlands að leika í kvik-
mynd um danska farandverkamenn á
stríðsárunum fyrri, nánar tiltekið þá
sem unnu við aö leggja járnbraut yfir
Jótland.
Ekki fannst öllum það þarflegt
uppátæki, fremur en bændum hér á
landi siminn. Margir sögðu að það
væri út i hött að bæta samgöngur á
Jótlandi, þar sem varla byggi nokkur
maður! Og verkamennirnir, sem við
þetta strituðu, þóttu ekki par finir.
Þetta voru harðjaxlar, oftast af
fátæku bergi brotnir og sjaldnast
fjölskyldumenn, þvi járnbrautar-
byggingin tók langan tíma. Þeir
fluttu sig með henni og áttu ekki fast
aðsetur. Stritið var mikið og kaupið
lágt, en þeir hugguðu sig við brenni-
viniö og drukku mikið af því. í dag-
legu tali voru þeir kallaðir
„Börsterne” (Ribbaldarnir) og svo
heitir myndin.
Efni hennar snýst um samfélag
þessara manna og vináttuböndin sem
skapast milli þeirra. Inn i það bland-
ast ástamál. í þorpi þar sem þeir hafa
viðdvöl búa þrjár systur og ein þeirra
verður ástfangin af ungum „brautar-
ribbalda”. Það er ekki einfalt mál,
því hún er nefnilega gift malaranum
i þorpinu, en það er nokkur
virðingarstaða. Eldri systir hennar,
Ingeborg, er leikin af Kristinu. Hún
reynir að afstýra ógæfunni og tala
um fyrir yngri systur sinni. En við
vitum að velmeintar fortölur stoða
lítið, þegar hjartað er alelda.
Leikstjórar verða hjónin Svend og
Line Grönlykke og hafa þau áður
gert kunnar myndir, m.a. „Balladen
om Carl-Henning.” Þau segja:
„Þessi mynd Börsterneá að verða
eins konar óður til járnbrautarverka-
manna fortíðarinnar, sem með striti
sinu gerðu okkur nútímamönnum
kleift að bruna fyrirhafnarlaust til
vinafunda meðan við njótum þess í
makindum að skoða fagrar sveitir
Jótlands og kannske dreypa á svo
sem einu brennivínsstaupi á meðan. ”
Þvi farandverkamennirnir drukku
sinn lifselexír ekki í staupum heldur
flöskum, enda var brennivínið þeirra
eina vopn gegn vinnuþreytu og
einstæðingsskap. Þetta vopn snerist i
höndunum á þeim, þegar verð á
brennivíni tífaldaðist í lok fyrri
heimsstyrjaldar. Þeir höfðu þá ekki
efni á aö drekka nema brennsluspritt
og eyðilögðu þannig líf sitt og heilsu.
Kunnir leikarar, eins og Jesper
Klein, Erik Paaske og Hans Jörgen
Lembourn, taka að sér hlutverk
ribbaldanna í myndinni. Ásthrifna
malarakonan verður leikin af Stine
Ekblad, sem er finnsk-sænsk. Hún
hefur undanfarin tvö ár samfleytt
flutt „Ástarsögu aldarinnar” eftir
Mörtu Tikkanen í ýmsum leikhúsum
í Finnlandi og Sviþjóð. En Þjóðleik-
húsið hefur einmitt ráðið Kristínu til
að flytja þessi ljóö í eigin þýðingu á
Litla sviðinu í haust undir stjórn
„Eg leik Ingeborg og reyni árengurslaust að vara yngri systur mina við
afleiðingunum af ástamálum hennar, þvi malarafrú á að sjálfsögðu ekki
að vera að dandalast með brautarribbalda," segir Kristin.
Mynd: Valdis Óskarsdóttir.
Kristbjargar Kjeld, svo þær tvær
mun ekki skorta umræðuefni.
Framleiðandi
ASA-film.
myndarinnar er
-IHH.
Steinar Berg eftir hljómleikana með Any Trouble
Togast á í mér hvort ég á að halda
fleiri hljómleika
„Það er að togast á í mér hvort ég
á að halda áfram á þessari braut eða
ekki,” sagöi Steinar Berg ísleifsson
hljómplötuútgefandi þegar blaða-
maður DB spurði hann að því hvort
léleg aösókn á hljómleika ensku
hljómsveitarinnar Any Trouble yrði
til þess að hann hætti við frekari
hljómleikaáform.
, ,Ég er frekar hissa á þeim dræmu
móttökum sem hljómsveitin fékk.
Aftur á móti er ég mjög ánægður
með hversu góð hún var. Þeir sem
komu á hljómleikana kunnu vel að
meta það sem þeir heyrðu,” sagöi
Steinar.
Any Trouble lék á fimm hljómleik-
um hér á landi. Tvennir voru haldnir
á Hótel Borg, einir í Laugardalshöll
og tvennir úti á landi. Einstaklega
lítill spenningur virtist vera hjá fólki
að sjá hljómsveitina og heyra. Til
dæmis var Laugardalshöllin hálf-
tóm þrátt fyrir að þar kæmu fram
þrjár hljómsveitir með þeirri ensku.
—- Steinar Berg var inntur eftir því
hvort það væri ef til vill röng stefna
að flytja til landsins lítt — eða
óþekktar hljómsveitir.
„Nei, ég tel svo ekki vera,”
svaraði hann. „Ég hygg að það sé mun
skynsamlegra að fá hingað óþekktar
hljómsveitir sem þó hafa sýnt það og
sannað að þær hafa eitthvað til sins
ágætis. Þess háttar hljómleikahald er
þó aðeins bundið við Hótel Borg og
svipaða staði að stærð. Vandamálið
er aðeins það að fá gestina á staðinn
Steinar Berg Isleifsson og B. A. Robertson. — Vandamálið erþað að hann
er rosalega dýr, segir Steinar. — Við erum um þessar mundir að velta fyrir
okkur möguleikunum á hljómleikum með honum.
DB-mynd: Sigurður Þorri.
til að hlusta á þessar hljómsveitir.
Það verður að finna eitthvert ráð til
sliks.”
Skozki popparinn B. A. Robertson
sem var hér á landi á dögunum haföi
góð orð um að koma aftur síðar á
árinu og halda hljómleika með slnum
mönnum. Steinar var að því spurður
hvort einhver skriður væri kominn á
það mál.
„B.A. Robertson hefur gert okkur
tUboð. Vandamálið er bara það að
hann er atveg rosalega dýr. Við erum
um þessar mundir að velta fyrir
okkur möguleikunum á að halda með
honum hljómleika en ennþá get ég
ekkert sagt um hvort af því verður.
Eins og ég sagði áður hygg ég að
gáfulegra sé að halda hér hljómleika
með óþekktum efnilegum hljóm-
sveitum en þeim stóru. Ég er fyrst og
fremst útgefandi en ekki hljómleika-
haldari. Ef enginn annar sýnir þessu
máli áhuga þá býst ég nú frekar við
þvi að ég reyni eitthvað frekar í
þessum málum.” -ÁT-
Einar og Philip í
þekktu brezku riti
Um siðustu mánaðamót héldu þeir Einar Jóhannesson klarinettleikari
(Jóhannesar Arasonar þular) og Philip Jenkins pianóleikari og góðvinur
íslands hljómleika i hinni þekktu Wigmore Hall í London en þar lóku þeir
m.a. verk eftirJón Þórarinsson, Áskel Másson og Þorkel Sigurbjörnsson.
Aðsögn Einars varþessum tónleikum vel tekið af gagnrýnendum.
í tilefni þessara hljómleika birti eitt vinsælasta vikurit Breta, Observer
Colour Supplement, stutt viðtal við þó fólaga þar sem þeir skýrðu í
örstuttu máli frá tónlistarþróun á íslandi. Skýrir pistillinn hér að ofan sig
vonandi sjátfur.
Al.
FOLK
Kalli og
Tolli halda
Þjóð-
leikhúss
rokk
Mikið hljómleikahald er nú fyrir-
hugað í Þjóðleikhúsinu 29. og 30.
júni. Eiga þar að koma fram fjöl-
margir listamenn á hálfrar þriðju
stundar hljómleikum, bæði úr hópi
popptónlistarmanna og þeirra sem
hafa haldið sig við klassiska tónlist.
Má þar nefna hljómsveitina Mezzo-
forte, Ólöfu K. Harðardóttur,
Magnús Eiríksson, Gunnar Þórðar-
son, Karl Sighvatsson og fleiri.
Það er raunar Karl sem er pottur-
inn og pannan i hljómleikahaldinu
ásamt með gúanórokkaranum og
farandverkamannaforingjanum Þor-
táki Morthens (bróður Bubba)!
Undirbúningur er sagður vera í
fullum gangi fyrir þessa tvenna
hljómleika. Þjóðleikhúsið er kjörinn
staður fyrir hljómleikahald, það
sannaðist eftirminnilega á hljóm-
leikum Þursaflokksins fyrir ári siðan.
Rafmagnsveita
Reykjavíkur
60 ára 27. júní 1981
Rafmaflnsvelta Reykjavfkur efnlr til kynnls-
feröar og fréttamannafundar fimmtudaglnn
16. júní 1981 í tilefni 60 ára afmœlis
fyrlrtœkislns 27. Júní nk.
Kynnisferöin hefst kl. 13.00 aö Ármúla 31 og
ekið veröur aö ýmsum mannvlrkjum og
vinnustööum Rafmagnjveltunnar, m.a. aö
Rafstöölnni vlö Elliöaar. Aö þvf loknu, um kl.
16.30, veröur fréttamannafundur í Félags-
heimillnu vlö Elliöaér. •/
Aöalsteinn Quöjohnsen rafmagnsstjóri,
Haukur Pélmason framkvœmdastjórl tœkni-
méla og Elrlkur Briem fjérmélastjóri munu
fara meö fréttamönnum í kynnisferöina og
sltja fundinn.
Rafmagnsveitan vsntir þess aö þér sjéiö
yöur fœrt aö taka þétt í þessart kynningu é
starfsemi fyrlrtœkisins.
VirÖIngarfyllst,
AðalstoJnn Guðjohnsen
rafmagnsveitustjórl.
Gúrkutíð
á gamla Mogga
Sumarmánuðirnir eru gjarnan
kallaðir gúrkutíð i blaðamennsku og
má stundum sjá þess merki í blöðun-
um. Líklega hefur þó aldrei sézt
gleggra dæmi um þessa gúrkutíð en í
80 siðna helgar-Mogga sem út kom á
laugardagskvöldið en dagsettur
sunnudag. Þar birtist í heilu lagi
orðsending sem ritstjórnum allra
blaða, útvarps og sjónvarps, hafði
borizt frá rafmagnsstjóranum í
Reykjavik. Tilkynningin var um
kynnisferð og fréttamannafund í til-
efni af 60 ára afmæli Rafmagnsveitu
Reykjavikur og eingöngu ætluð rit-
stjómum blaðanna. En gamli Moggi
lét sig ekki muna um það og og birti
klausuna alla.
Eitthvað kemur nú gúrkutíðin mis-
jafnlega niður á blöðunum!
Sigurjón ^
foss-seti
Þegar Elliðaámar voru opnaðar
með pompi og pragt um daginn þótti
mönnum Sigurjón Pétursson, forseti
bæjarstjómar, sitja nokkuð frekt að
beztu veiðistöðunum. Kalla þeir
hann nú foss-seta.