Dagblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981.
17
BÆKUR
OGTÍMARIT
GANGLERI
SLOKKVILIÐSMAÐURINN
BLAO LANOSSAMBANDS SLÖKKVIUDSMANNA
HAKON BJARNASON
RÆKTAÐU
GARÐINN
ÞINN
LEIDBEININGAR
UM TRJARÆKT
„Resktaðu garðinn
þinn" f nýrri útgáfu
Ut er komin á vegum Iðunnar ný út-
gáfa, endurskoðuð, á bókinni Rækt-
aðu garðlnn þinn, leiðbeiningar um
trjárækt eftir Hákon Bjarnason fyrrum
skógræktarstjóra. Bók þessi kom út
fyrir tveimur árum og sýndi sig að
þörfin fyrir slíka bók var mikil því að
upplag fyrstu útgáfu er nú þrotið. Nýja
útgáfan er lagfærð eftir því sem þurfa
þótti. — f bókinni er gerð nokkur grein
fyrir sögu trjáræktar á íslandi, og skal
þá tekið fram að bókin fjallar um trjá-
rækt í görðum en ekki ræktun skóga.
Höfundur fjallar um gerð trjánna og
næringu, segir frá uppeldi trjáplantna,
gróðursetningu, hirðingu og grisjun.
Þá er skýrt frá skaða á trjám og sjúk-
dómum. Ennfremur eru í bókinni stutt-
ar lýsingar á 28 tegundum lauftrjáa, 24
runnategundum og 17 barrviðum sem
rækta má í görðum hér á landi. Fylgja
umsagnir um lífsskilyrði hverrar teg-
undar hérlendis, eftir þvi sem reynslan
hefur leitt í ljós. Aftast eru skýringar á
trjáanöfnum og skrá um heimildarrit.
Ræktaðu garðinn þinn er 128 blað-
síður. Oddi prentaði.
2. tbl. Húsfreyjunnar
1981 er komið út
April-júní hefti Húsfreyjunnar kom
nýlega út, útgefandi er Kvenfélagasam-
band íslands. í blaðinu eru ýmsar
greinar og frásagnir, m.a. er fjallað um
öryggi á heimilum, hannyrðaþáttur er í
blaðinu að vanda, Jenný Sigurðardóttir
fjallar um pakkamat, birt er framhald
af bréfum Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
sem hún skrifar frænda sínum. Einnig
er fjallaö um breytingaskeiðið svo-
kallaða hvort það sé goðsögn eða ekki.
Mormónsbók er komin
út á íslenzku
Mormónsbók hefur nú verið gefin út á
íslenzku og er útgefandi hennar Kirkja
Jesú Krists hinna síðari daga heilögu
(Mormónakirkjan).
Bók þessi kom fyrst út á enska tungu
áriö 1829 eftir að Jósep Smith hafði
þýtt hana af frummáli, sem var endur-
bætt egypzka, en hún var letruð á gull-
töflur. Kom bókin þá út í 5000 ein-
tökum en i dag er Biblían eina bókin
sem seld er i fleiri eintökum í heimin-
um. Útkoma bókarinnar þá vakti
mikiö umtal og óróa og þá sérstaklega
vegna fullyrðingar Jóseps Smith um
uppruna hennar. Bókin hefur verið
gefin út á fjölda tungumála um allan
heim.
Bókin segir frá uppruna og sögu
frumbyggja Ameríku, Indíánanna, og
annarra sem lifðu þar i álfu og styðja
hinar miklu rústir og fornminjar, sem
fundizt hafa þar á síðustu árum, þá
sögu svo ekki er um villzt. Segir bókin
frá trú þessa fólks og trúarlífi, siðum
þess, erjum og styrjöldum. í henni eru
margar trúarkenningar en fyrst og
fremst er bókln annað vitni um Jesú
Krist, frelsara okkar, og er megintil-
gangur hennar aö varðveita trúarlega
lífsspeki, fullvissa lesanda sinn um
raunveruleika Guðs og staðfesta að
Jesús er Kristur, frelsarinn. Sá lesandi,
sem leitar slíkra hluta, mun finna þá
þar í ríkum mæli.
Bókin er 559 bls. að stærð og skiptist
hún í fimmtán meginhluta eða kafla
sem allir, að einum undanteknum,
nefnast bækur en síðan skiptast í kapí-
tula og vers. Fjöldi tilvísana er í bók-
inni ásamt góðum efnislykli.
Bókin er prentuð hjá Prentsmiðjunni
Odda hf. Hún verður ekki til sölu í
bókabúðum en hægt er að fá hana hjá
Kirkju Jesú Krists hinna síöari daga
heilögu aö Skólavörðustíg 46.
3. hefti Samvinnunnar
er komið út
3. hefti Samvinnunnar kom nýiega út.
Ritstjóri blaðsins er Gylfi Gröndal.
Margt efnis er í blaðinu, t.d. er farið i
heimsókn til Gunnars Sveinssonar
kaupfélagsstjóra hjá Kaupféiagi Suður-
nesja. Fram koma sjónarmið átta
manna um stefnuskrá samvinnuhreyf-
ingarinnar. Herbergi með útsýni nefn-
ist létt smásaga eftir Hal Dresner, þýð-
andi er Þorleifur Þór Jónsson. Einnig
birtist þýdd grein í blaöinu um tölvu-
tæknina og hvaða áhrif hún getur haft
hjá fyrirtækjum. Ýmislegt annaö efni
er í blaðinu svo sem fastir þættir eins
og Vísnaspjall, Verðlaunakrossgáta
o.fl.
Áfangar — Tímarit um
ísland, útiveru og ferða-
lög
Nýlega kom út annað tbl. 2. árg. tíma-
ritsins Áfanga. Útgefendur eru útgáfu-
fyrirtækið Um allt land. Ritstjóri er
Sigurður Sigurðarson. Ýmsar greinar
eru i ritinu sem tengjast ferðalögum og
w
nrnnnnr
5E— mmm mmmumm
Tftnaritið Gangleri
Tímaritið Gangleri, fyrra hefti 55. ár-
gangs, er komið út. Meðal efnis má
nefna greinar um Pascal og Tagore.
Grein er eftir Guðmund Finnbogason
um bjartsýni og svartsýni. Aldous Hux-
ley skrifar um manninn og trúarbrögð
og sagt er frá leyndardómi Bermúda-
þríhyrningsins. Gangleri er 96 bls.
íþróttablaöid
ÍÞRÓTTM ft úmif S kr <»JN>
—r ....ni.rusfe
Slökkviliðsmaðurinn er
kominn út
Nýlega kom út 1. tbl. blaðs Landssam-
bands slökkviliðsmanna og er þetta 8.
árgangur. í blaðinu eru ýmsar greinar,
sem tengjast störfum slökkviliðs-
manna, svo sem grein um_ slysatíðni
imeðal slökkviliðsmanna, birtur er
kafli úr bók um reykköfun, fjallaö er
um brunann i Brautarholti 4, einnig er
fjallað um börn og brunahættu á heim-
ilum. Sagt er frá brunavörnum í Stykk-
ishólmi og rakin er saga eldvarna þar.
Ýmsar fleiri greinar eru í blaðinu.
útivist. Má þar nefna frásögn Jóns
Gauta Jónssonar um vörðuleit i
Ódáðahrauni. Tómas Einarsson kynnir
gönguleiðir á Vesturlandi. Lýst er
helztu ökuslóðum á hálendi íslands í
grein sem nefnist Hálendiö heillar.
Guðmundur Gunnarsson segir frá leið-
um og stöðum i Ódáðahrauni. Auk
þess má nefna viðtal við hinn
góðkunna Úlfar Jacobsen og segir
hann frá ferðum sinum um hálendi ís-
lands. í blaðinu er mikill fjöldi mynda
og þó nokkrar i lit.
<€
íþróttablaðið
er komið út
5. tbl. hins sívinsæla íþróttablaðs kom
nýlega út. í blaðinu er ýmislegt efni.
M.a. er fjallað um íþróttalíf á Selfossi.
Einnig er viðtali við Hannes Eyvinds-
son Ísiandsmeistara í golfi, Gunnar
Bender skrifar um útilíf. Leikmenn
fyrstu deildar liöa í knattspyrnu eru
teknir tali og spáð um deildina í sumar.
Loks má nefna grein er fjallar um
ruddaskap í knattspyrnu.
I fyrsta sinn á íslandi - Hinir heimsfrægu „AMERICAN
Miðaverð Kr 40.00 tyrir fullorðna
kr. 20.00 fyrir born 12 ára og yngri.
Umboðsmenn GM, VauxhaH á íslandi. — Stærstí bilaframleiðandi i heimi — Véladeild Sambandsins.