Dagblaðið - 16.06.1981, Page 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JONÍ 1981.
27
(i
í)
Útvarp
Sjónvarp
Þórshafnarbúar eru meðal þeirra er njóta góös af byggöastefnunni.
BYGGÐASTEFNA? - sjónvarp kl. 21,45:
HEFUR BYGGÐASTEFNAN GENGIÐ OF
LANGT OG DÆIMH) SNÚIZT VIÐ?
— hef ur dreif býlið f organg?
f kvöld verður umræðuþáttur I
beinni útsendingu um byggðastefnuna,
kosti hennar og annmarka.
Stjómandi verður Sæmundur Guð-
vinsson fréttastjóri og mun hann ræða
við þá Davíð Oddsson borgarfulltrúa,
Stefán Valgeirsson alþingismann,
Benedikt Gröndal alþingismann og
Loga Kristjánsson, bæjarstjóra f Nes-
kaupstað.
Sæmundur Guóvinsson fréttastjóri
stjórnar umiæðuþætti um byggöastefn-
^ Sjónvarp
i
Þriöjudagur
16. júnf
19.45 Fréttaágrip á táknnSS*.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýalngar og dagskrá.
20.35 Sögur úr slrkus. Teiknimynd.
Þýðandi Guöni Kolbeinsson.
Sögumaður Július Brjánsson.
20.45 Um loftln blá. Heimildamynd
um þjálfun flugmanna. Þýðandi
Bogi Arnar Finnbogason.
21.20 Óvænt cndalok. Opnl glugg-
Inn. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
21.45 Byggöastefna? Umræðuþátt-
ur I beinni útsendingu um byggða-
stefnuna, kosti hennar og ann-
marka. Stjórnandi Sæmundur
Guðvinsson blaðamaður.
22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
17. júní
19.45 Fréttaágrlp á táknmáll.
20.00 Fréttlr og veður.
20.20 Auglýslngar og dagskrá.
20.30 Þjóðhátfðarávarp forsætls-
ráöherra, dr. Gunnars Thorodd-
sen.
20.40 ÞJóöllf. í þættinum verður
þess minnst, að 75 ár eru liðin, sið-
an fyrsta kvikmyndahúsið tók til
starfa hér á landi, og sýndar
nokkrar stuttar myndir frá þeim
tíma. Einnig kemur Þingvalla-
svæðið mjög við sögu, og er m.a.
mynduð þjóðsagan um Jóru I
Jórukleif. Rætt verður við dr. Sig-
urð Þórarinsson jarðfræðing um
jarðsögu Þingvalla og fleira. Loks
kemur stór jasshljómsveit í sjón-
varpssal. Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir. Stjóm upptöku
Valdimar Leifsson.
21.45 Rod Stewart. Poppþáttur,
gerður á tónleikum 1 Los Angeles.
22.50 Dagskrárlok.
Stutt spjall verður við Eggert Hauk-
dal, alþingismann og stjórnarformann
FRANZISCA
GUNNARSDOTTIR
Framkvæmdastofnunar, og ef til vill
verður rætt við fleiri.
Með byggðastefnunni hefur tekizt að
stöðva fólksflótta utan af landi til
Reykjavíkur og nágrennis með þvi að
stuðla að eflingu atvinnulffs lands-
byggðarinnar.
Að sumra áliti hefur þetta samt
gengið of langt og dæmið snúizt við,
þannig að dreifbýlið hafi forgang, m.a.
að ódýru lánsfé Byggðasjóðs. Reykvfk-
ingar benda á að nú hafi meðalaldur
hækkaö 1 höfuðborginni, meðaltekjur
séu lægri og fólki hafi fækkað. Þeir
benda ennfremur á að Byggðasjóður
láni með svo hagstæöum kjörum að
lfkja megi lánum til dreifbýlisins við
styrki eðagjafir.
Búast má við lfflegum umræðum þvf
sjónarmiðin eru ólfk og hagsmunirnir
ekki sfður.
-FG
KAMMERTÓNLEIKAR — útvarp annað kvöld kl. 20:
0KTETT EFTIR
FELIX MENDELSS0HN
—félagar í Sinfóníuhljómsveit Berlínar leika
Annað kvöld leika félagar í Sin-
fóniuhljómsveit Berlinar Oktett f Es-
dúr op. 20 eftir Felix Mendelssohn.
Þýzka tónskáldið Mendelssohn
(1809—47) hét fullu jafni Jacob Lud-
wig Felix Mendelssohn-Bartholdy og
fæddist í Hamborg. Foreldrar hans
voru efnafólk og afi hans var hinn
frægi heimspekingur Moses Mendels-
sohn.
Drengurinn komst snemma i htikið
uppáhald hjá landa sfnum Goethe,
hinu mikla skáldi, vegna afburöa-
greindar sinnar, áhugasemi og ætt-
jarðarástar. Mendelssohn hóf tón-
smíðar 12 ára gamall og innan
tveggja ára tímabils hafði hann samið
tvær einþættar óperur, orgelverk,
strengjakvartetta, sónötur og kant-
ötu.
Mendelssohn var ætíð önnum kaf-
inn enda allt i senn tónskáld, kennari,
pfanóleikari og stjórnandi. Hann
ferðaðist mikiö um þvera og endilanga
Evrópu og gætir áhrifa þeirra ferða-
laga vfða I verkum hans. Sérstakt dá-
læti haföi hann þó á Englandi, sem
Þýzka tónskáldið, pianóleikarinn, tónlistarkennarinn og stjórnandinn
Feli\ Mendelssohn (1809—47).
hann heimsótti einum tíu sinnum, að
ógleymdum ferðum hans til Skot-
lands.
Árið 1829 stóð Mendelssohn fyrir
uppfærslu á Mattheusarpassfu landa
sfns, Bach, og stjórnaði verkinu. Þá
hafði verið tiltölulega hljótt um hið
mikla tónskáld f ein áttatfu ár frá
dauða þess en þetta varö svipstundis
til að endurvekja áhuga á verkum
Bach og til þess aö Bach-félagið var
stofnað. Tilgangur þess var aö standa
að heildarútgáfu á verkum snillings-
ins.
Mendelssohn varö snemma frægur
stjórnandi og var mjög framtaks-
samur um að stofna til tónlistar-
hátíða, meðal annars, og þær hljóm-'
sveitir sem hann tók að sér að stjórna
gerði hann að afburðahljómsveitum.
1842 tók hann að sér skipulagningu
tónlistarskólans f Leipzig og geröi
hann brátt að þeim bezta i Þýzka-
landi.
Þrátt fyrir aðrar annir sínar var
hann mjög afkastamikiö tónskáld,
ágætlega drátthagur aö auki og tókst
einhvern veginn einnig að sjá af tölu-
veröum tima til þess að leika sér við
bömin sin fjögur.
Dauði systur hans, Fanny, varð
honum mikiö áfall. Hún var efnilegt
tónskáld og pfanóleikari en lézt langt
fyrir aldur fram. Mendelssohn hafði
ætið átt við viðkvæmt heilsufar að
strfða. Fráfall systurinnar varð
honum um megn og hann andaöist
fáeinum mánuöum sföar, 38 ára að
aldri.
-FG
IF
ÁÐURFYRRÁ
ÁRUNUM”
—útvarp
kl. 20,30:
Gilið
mitt \
kletta-
þröngum
— frásöguþáttur eftir
Frímann Jónasson
Ágústa Björnsdóttir, um-
sjónarmaður Áður fyrr á árun-
um, hafði þetta aö segja:
„Höfundur frásagnarinnar,
sem flutt verður í þættinum f dag,
er Frímann Jónasson fyrrverandi
skólastjóri. Hann er Skagfirðing-
ur að uppruna, fæddur árið 1901.
Frimann var um skeið skólastjóri
við barnaskólann á Strönd á
Rangárvöllum, barnaskólann á
Akranesi og síðast við Kópavogs-
skóla.
Hann hefur samiö nokkrar
bækur fyrir börn og unglinga og f
einni jreirra, Þegar sól vermir
jörð, er sú bernskuminning sem
segir frá f þessum þætti. Kafli
bókarinnar heitir Gilið mitt f
klettaþröngum og rifjar Frimann
þar upp þegar unglingar á heima-
slóðum hans hugðust fegra um-
hverfið við bæinn sinn með þvi að
setja þar niður reyniviöarhríslu.
Hrlslan óx f klettagili þarna spöl-
korn frá. Ekki tókst þetta að
vonum, enda aðstæður allar
heldurerfiðar.”
Knútur R. Magnússon les frá-
sögnina og einnig kvæðið Reyni-
viðarhríslan eftir Ármann Dal-
mannsson, sem var landskunnur
skógræktarmaður. (Endurt. frá
morgni).
-FG
Ágústa Björnsdóttlr, stjórnandl
Áður fyrr á árunum.
S VERÐLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI ^
-é*-
J£ 'j!' <
Magnús E. Baldvinsson
Laugavagi Q — Raykjavlk — Slml 22804
^^/////IIHWWWW^S^
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bœtt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Vcnll»réfsi-
A\;irluifliiriiin
Opið til klukkan 22.00
þriðjudaga ogfóstudaga.
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.