Dagblaðið - 16.06.1981, Qupperneq 28
Læknadeilan enn óleyst:
„Deilan viröist harðna
án samtaka"
„Ef ríkisstjórnin teflir á tæpara
vað i þessu máli, þá er hún í alvar-
legri hættu,” sagði virtur yftrlæknir í
viðtali við DB. Hann sagði: „Neyð-
arþjónusta er orðið raunhæfara orð
en menn gera sér grein fyrir á flest-
um sviðum. Sérstaklega á þetta við
um svæfmgar, gjörgæzlu alla og
skurðlækningar. ”
,,Það tekur alla vikuna að komast
niður á einhvern fastan grundvöll til
iausnar deilunni,” sagði einn æðsti
maður heilbrigðisþjónustunnar í við-
tali við DB. „Það tekur langan tima
að ná upp þeim töfum sem hrannast
upp á hverjum degi við samdrátt i
eðUIegum afköstum, sem heilbrigðis-
þjónustan verður nú að þola,” sagði
þessi embættismaður.
„Deilan virðist harðna án sam-
taka. Staðan i viðræðum lækna við
fjármálaráðuneytið er, að minnsta
kosti út á við, þögn,” sagði einn yfir-
lækna stærsta sjúkrahúss landsins í
viðtaU við DB. Hann sagði: „Læknar
hringja til okkar, sjúklingar hafa
sjálfir samband. Okkur er gersam-
lega um megn að leysa máUn að
nokkru eðUlegu marki við þessar að-
stæður. Ríkisstjórnin er vonandi að
gera sér grein fyrir þessu ástandi. ”
„Menn verða að gera það upp við
þekkingu sina og samvizku hvar
hjálpar er mest þörf. Fóstureyðingar,
sem ákveðnar voru, eru sumar hverj-
ar orðnar ótimabærar og naumast
framkvæmanlegar,” sagði yfirlæknir
á kvensjúkdómadeild i viðtali við
DB.
„f þessu virðist fuU harka af hálfu
fjármálaráðuneytisins gagnvart þeim
sem lagt hafa áherzlu á Læknaþjón-
ustuna sem verktakafyrirtæki,”
sagði einn áheyrnarfulltrúi í samn-
ingaviðræðunum. Hann sagði það og
ljóst að hópar háskólamenntaðra
manna hjá ríkinu, sem hefðu enga
möguleika til að auka tekjur sinar á
annan hátt en meö grunnkaupshækk-
unum, myndu segja upp samningum
og starfi á stundinni ef sérstaklega
yrði samið við lækna og gengið að
kröfum þeirra.
-BS.
Veðurspáin fyrir
17-júní:
Ljómandi
fyrir höfuð-
borgina
Þjóðhátíðarveðrið 17. júni verður
mjög þolanlegt fyrir íbúa Suður- og
Vesturlands, aö sögn Veðurstofunn-
ar. Gert er ráð fyrir áframhaldandi
hægri norðaustanátt fyrripart
dagsins, sem þýðir að léttskýjað
verðui og sólskin sunnan- og vestan-
lands og ':aisaveður fyrir norðan og
austan. En upp úr hádegi þjóð-
hátlðardagsins fer að þykkna upp
sunnanlands fyrir tiistilli lægðar sem
nálgast landið úr vestri. Mun vindur
þá snúast í sunnanátt, létta til
norðanlands en undir miðnætti fer að
rigna á sunnanveröu landinu. -KMU
MMBIAÐIÐ:
Afgreiösla Dagblaösins verður
opin til kl. 22 í kvöld. Lokað verður á
morgun, þjóöhátiðardaginn 17. júní.
Blaðið kemur aftur út á fimmtu-
daginn, 18. júnf. Dagblaöið óskar
öllum lesendum sinum ánægjulegrar
þjóðhátiðar.
Fáklœddi göngumaóurinn ungi kominn ifang lögregluþjóns — og búinn að tína tvoflfla handa mömmu. DB-mynd: S.
Léttklæddur á morgungöngu
Vorið hljóp í beran bossann á litl- unni, hafði rétt ekið niður ljósastaur hann ætti heima — þangað sem
um vesturbæingi í gær svo hanni við að sjá snáða en jafnaði sig síðan honum var komið. Móðir hans varð
stökk að heiman, klæddur aðeins og tókst að lokka þann stutta inn i' aö sjálfsögðu hvumsa við — hún vissi
ofan mittis. Ljósmyndari Dagblaðs- verzlun þar hjá. Þangaðkom lögregl- ekki betur en hann væri inni i her-
ins, sem ók fram á hann á Vesturgöt- an og gat veitt upp úr stráksa hvar bergi að leika sér. -0V.
„Það þjóð-
legaer
toppurinn
ídag”
„Það sem er þjóðlegt, það er
toppurinn i dag”, eru einkunnarorð
Finna friks frá Hrakhólum 1 öldudal.
Fmni frfk, öðru nafni Ómar Þor-
finnur Ragnarsson, mun i sumar
ferðast um með Sumargleðinni undir
stjórn Ragnars Bjarnasonar. Þetta
verður i 11. sinn sem Sumargleði-
menn leggja land undir fót og aö
þessu sinni betur undirbúnir en
nokkru sinni áður. Ný plata, Sumar-
gleðin syngur, kemur I verzlanir um
þessar mundir og það er því ekki
nema von að létt sé yfir Finna frík á
meðfylgjandi mynd.
- ESE / DB-mynd Gunnar Öm.
Islendingur
myrturí
Gautaborg:
Tildrög hnífs-
stungunnar óljós
Fjörutiu og tveggja ára gamall
fslendingur, Ingvar Þorgeirsson, var
stunginn til bana í Gautaborg aö
kvöldi 9. júní sl. Norsk kona situr í
gæzluvarðhaldi, grunuð um morðið.
Hjálmar W. Hannesson, sendi-
ráðunautur í islenzka sendiráðinu í
Sviþjóð, sagði i morgun, að sendi-
ráðið hefði ekkert heyrt af málinu
fyrr en I gær. Ingvar hafði búið lengi
1 Gautaborg, a.m.k. 9 ár. Lögreglan
tilkynnti því nánasta ættingja um at-
burðinn en það er bróðir Ingvars sem
einnig býr í Gautaborg.
Þorsteinn Ingólfsson, sendifulitrúi
1 utanrikisráðuneytinu, sagði i
morgun, að enn hefði ekki borizt
skýrsla frá lögreglui* i i Gautaborg,
en von væri á h^fu i dag. Þvi væru
upplýsingar um tildrög hnífstung-
unnar óljós. Lögregluyfirvöld hefðu
hvorki tilkynnt ræðismanni né sendi-
ráði um atburðinn þar sem talið var
að Ingvar hefði fasta búsetu i
Sviþjóð.
Eftir því sem DB kemst næst var
hinn látni i heimsókn með norsku
konunni hjá sænskum hjónum w
deilur komu upp, með þeim af-
leiöingum aö norska konan stakk
Ingvar.
- JH
frjálst, nháð dagblað
ÞRIDJUDAGUR 16. JÚNt 1981.
Spáð
42,5%
verðhólgu
Vinnuveitendasambandið spáir þvi
að verðbólgan i ár verði 42,5 prósent,
frá ársbyrjun til ársloka. Meðaltals-
hækkun milli áranna 1980 og 1981
verði49,l prósent.
Gengi dollars verði í lok ágúst 7,60
krónur, 8,15 krónur í lok október og
8,70 krónur í janúar á næsta ári.
í spánni er reiknað með að verðlags-
hækkun á timabilinu 1. mai til 1. ágúst
verði 9,3%. Frá 1. ágúst til 1. nóvemb-
er verði hækkunin 9,8% og 10,4% frá
1. nóv. til 1. febrúar næstkomandi.
í greinargerð, sem fylgir spánni,
segir Vinnuveitendasambandið þó:
„Án frekari aðgerða, sem miða að
niðurskurði kostnaðarþátta fyrirtækja,
verður einungis um skammvinnan
árangur i viðureigninni við verðbólg-
una að ræða.” Bent er á, að verðbólgu-
hraðinn fer vaxandi undir lok ársins.
-HH.
Vinningur
vikunnar:
er Útsýnarferð
til Mallorka
Vinningur i þessari viku er
(Jtsýnarferð til Mullorka með
Ferðaskrifstofunni Útsýn, Austur-
strœti 17 Reykjavík. í vikunni
verður birt, a þessum stað í
hlaðinu, spurning tengd smáaug■
lýsingum Dagblaósins. Nafn hepp■
ins áskrifanda verður siðan birt
daginn eftir i smáauglýsingunum
og gefst honum tœkifœri á að svara
spurningunni. Fylgizt vel með,
áskrifendur. Fyrir nœstu helgi
verður einn ykkar glœsilegri utan-
landsferð ríkari.
c ískalt
beven up.
hressir betur.