Dagblaðið - 19.06.1981, Blaðsíða 2
7 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1981.
......... ' "
ff
ALGJÖR VILUMANNASAMKOMA ”
—segja f ararstjórar ferðaf élagsins Landf ara um hvítasunnusamkomuna í Þórsmörk
— Þetta er það versta sem við
höfum orðið vitni að á aevinni og var
þetta í einu orði sagt algjör villi-
mannasamkoma, sögðu þeir Guð-
mundur Bjarni Yngvason og Jón
Halldórsson, sem litu inn á ritstjórn
DB, um reynslu sína og samferða-
manna í Þórsmörk um hvitasunnuna.
Þeir félagar sem eru í forsvari fyrir
ferðafélagið Landfara , voru í Þórs-
mörk meö 130 manna hóp um hvíta-
sunnuna. í hópnum voru 7 gæzlu-
menn, sem áttu að aðstoða fólkið frá
Landförum, og voru þeir að sögn
þeirra félaga, nánast einu gæzlu-
mennirnir á svæðinu.
— Það var einungis í neyðartilvik-
um sem við gátum aðstoðað okkar
fólk, segir Guðmundur Bjarni.
— Allur tfminn fór í að verjast
ágangi ofurölvaðs fólks og hafa gát á
þeim sem fóru ruplandi og rænandi
um svæðiö. Löggæzla af hálfu
lögreglunnar var því sem næst engin
og engu líkara en að lögreglan hætti
sér ekki inn í Mörkina. 1 þau skipti
sem lögreglan kom, þá hélt hún sig á
syðri bakka Krossár, en hinum megin
við ána var eins og engin lög væru í
gildi önnur en lög frumskógarins, að
sögn þeirra félaga.
— Ég er viss um að það voru
Jón llalldórsson og Guómundur Bjarni Yngvason voru aó vonum óánæjjóir með löggæzluna á svæóinu.
DB-mynd KinarÓlason.
skipulagðir þjófaflokkar að starfi
þarna um helgina, segir Jón. — Þaö
var stolið öllu steini léttara og þeir
sem þarna voru að verki voru ekkert
að fela gerðir sínar.
Að sögn þeirra Guðmundar og
Jóns var stolið sjúkratjaldi frá Land-
förum aöfaranótt sunnudagsins.
Þeir tilkynntu lögreglunni um
hvarfið, en fengu þá þau svör að
lögreglumennimir gætu ekki komið
strax, þar sem þeir væru á fundi fyrir
hádegi. — Við biðum í fimm klukku-
tima eftir þeim, en þá gripum við til
okkar ráða. Við fundum líka þjófana
eftir nokkra leit, en þá var tjaldið
ónýtt. Líklega hafa fundarhöldin hjá
lögreglunni þá staðið enn.
En það var fleira sem þeim félögum
þótti miður fara í Þórsmörk um þessa
helgi. Gróðurspjöll voru geigvænleg
og fikniefnaneyzla virtist standa með
miklum blóma á svæðinu. öll hrein-
lætisaðstaða var vægast sagt ömurleg
og salerni ónothæf lengst af. Rusla-
pokar sáust varla, en Ferðafélag
íslands mun þó hafa reynt að bæta úr
þeim skorti. Fyrir þessa „glæsilegu”
aðstöðu þurfti hver maður að borga
20 krónur, en á svæðinu voru ekki
einu sinni skipulögð tjaldstæði, að
sögn þeirra Guðmundar og Jóns.
tutt og skýr bréf
Enn cinu sinni minna lcscnilailálkar DB ulla f>á. cr
hynniast scnda þœrrinum línu. aó láta lylfiia fulll nafn. ,
hcimilisfany. símanúmcr lef um þaó cr aö rœóa) oy <,
nafnnúmer. Þetta er litil fyrirhöfn fyrir hréfritara okkar
oy til mikilla þœyinda fyrir DB.
Lesendur cru jafnframt minntir á aó hrcfciya aó
vcru stutt oy skýr. Áskilinn erfuUur réttur til aó '
stytta hréfoy umoróa til aö spara rúm op koma
efni hetur til skila. Bréf œttu helzt ekki aó vcra
lcnyri cn 200—300 oró.
Simatími lcscndadálka DB cr milli kl.
13 ou /5 frá mánudöyum tilföstudaya.
A. —
v'
Efnum til keppni á milli Ijóðskálda
Þorsteinn Jónsson skrifar:
Hvers vegna efna ekki fjölmiðlarn-
ir til keppni á milli ljóðskálda? Eru
fjölmiðlarnir ekki allir á hrakhóium
með nýtilegt efni um þetta leyti árs og
hafa þeir ekki þörf fyrir forvitnilegt
efni? Væri ekki tilvalið einmitt nú,
þegar úir og grúir af þeim sem kalla
sig skáld og eru titlaðir sem slíkir, oft
af litlu tilefni, að efna til slíkrar
keppni? Þá þyrfti ekki lengur að efast
um það hver væru hin raunverulegu
ljóðskáld og þá þyrfti ekki að deila
við dómarann. Æskilegt væri að
þeir sem tækju þátt i slíkri keppni,
mættu ýmist syngja eða kveöa ljóð
sín og hver veit nema þarna kæmi
fram eitthvert feimið og óframfærið
stórskáldið.
Eurðuleg vinnu-
rögð í Svínahrauni
— Ekki svo dýrt, segir Rögnvaldur
Jónsson hjá Vegagerðinni
Eins og fram hefur komiö, hefur Bílaborg h.f. nú tekió aó sér umboð
fyrir hina vönduðu Bridgestone hjólbaröa. -
Bridgestone er stærsti dekkjaframleióandi í Japan og nota hinir
kröfuhöröu japönsku bílaframleiöendur Bridgestone sem „original”
dekk undir bíla síná.
25 ára reynsla Bridgestone á íslandi hefur sýnt þaö og sannað aö
Bridgestone hentar mjög vel íslenskum vegum.
Veljiö Bridgestone undir bílinn
Beinn sími dekkjasölumanna: 81923
Umboðsmenn um land allt.
BÍLABORG HF
Smióshöfóa 23, Sími: 81299
7878—0126 hrlngdl:
Ég var að koma aö austan, yfir
Svínahraunið og veitti þvi athygii að
þar stóðu vegaframkvæmdir yfir.
Mér fundust vinnubrögðin þó fremur
skrítin, því að þarnp lögðu menn slit-
lag yfir veginn á löngum kafla þar
sem málaðar höfðu verið akreina-
ínur fyrir aðeins einni viku. Nú
jykist ég vita að það kosti eitthvað að
mála þessar linur á slitlagið og þvi
spyr ég: Eru þetta forsvaranleg
vinnubrögð?
lögnvaldur Jónsson hjá Vegagerð
ríkisins sagði að þessar framkvæmdú
ættu sér sina eölilegu skýringar. Þaö
væri stefna Vegagerðarinnar að mála
eins mikið af akreinalinum á vorin og
tök væru á. Þegar línurnar á veginum
i Svinahrauni voru málaðar var ekk
vitað hvenær malbikunarvélar fengj
ust frá Reykjavikurborg. Vélarnai
fengust svo nú fyrir skömmu og þvi
var lagt slitlag yfir linumar
Rögnvaldur sagði að hér hefðu ekk
farið miklir fjármunir til spillis, þvi
að tiltölulega ódýrt væri að máli
miðlinu á vegi.
„Hiýtur að
kosta stórfé”
—segir Arnbjöm um f ramkvæmdir
Vegagerðarinnar í Svínahrauni
Arnblörn Leifsson hringdl:
—Eg vil taka undir það sem fram
hefur komið um vinnubrögð Vega-
gerðar ríkisins á veginum í Svína-
hrauni. Ég er búinn að fara þarna um
á hverri helgi i vor og sumar og hef
sjaldan séð önnur eins vinnubrögð.
Fyrst mála mennirnir akreinalínu á
veginn og i næstu viku setja þeir
slitlag yfir allt saman. Þetta hlýtur að
kosta stórfé.A.m.k.trúi ég ekki Ööru.
Raddir
lesenda
Raddir
lesenda