Dagblaðið - 19.06.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1981
DB á ne ytendamarkaði
Grindur fyrir sorppokana:
Tilvaldar fyrir
sumarbústaði
og einbýlishús
Árni l.on)> vinnur við að spraula priml tindir sorppoka mrð sérstöku plasti.
DB-mvndir Kinar Ólason.
Nútímalífi fylgir mikið sorp. Það
er orðið fjölþjóðlegt vandamál
hvernig eigi að losa sig við öll þau
ósköp af sorpi sem upp hlaðast. Hér
á landi er vandamálið enn ekki orðið
risavaxið en verður það ugglaust ef
svo heldur fram sem horfir í nokkra
áratugi í viðbót. En suður í Garðabæ
eru menn að vinna að því að gera
sorpið auðveldara viðfangs fyrir þá
sem málið snertir fyrst, einstakling-
ana.
í vélsmiðjunni Norma í Lyngási
hefur verið stofnuð sérstök deild sem
heitir Gljái. Henni er ætlað að fram-
leiða eingöngu hvers kyns grindur
undir sorppoka. Eru grindurnar úr
afgalvaniseruðu stáli með plasthúð.
Plasthúðinni er sprautað 'á grind-
urnar og þykir að henni mikil
framför því þá er minni hætta á að
pokarnir rifni.
Neytendasamtökin segja:
Ársábyrgð
ánfyrirvara
— lágmark að menn kynni sér lög
Frá Neytendasamtökunum:
í Dagblaðinu mánudaginn 15.
júní sl. var greint frá þeim reið-
hjólum sem hér eru á markaði. Þar
segir söluaðili einn, Hjólasport
Gnoðarvogi 44, að ábyrgð sé ekki á
þeim reiðhjólum sem hann selur,
önnur en að sýnilegir gallar séu
bættir.
Vegna þessa vilja Neytendasam-
tökin taka fram að samkvæmt
íslenzkum lögum hefur kaupandi rétt
til þess að bera fyrir sig galla á vöru
ef hann gerir það innan eins árs frá
því að hann fékk hlutinn í hendur.
Þessi fyrirvari söluaðila fær því ekki
staðizt. Það er lágmarkskrafa til inn-
flytjenda og söluaðila að þeir þekki
þau lög og reglugerðir sem þeim ber
að starfaeftir.
Grindina fyrir framan Árna er hægt að opna að framan til að ná út sorppokanum. Grindurnar á bak við eru hins vegar fyrst
og fremst ætlaðar inni við.
Nýrávöxtur:
Pomelo er bland
appelsínu og greips
Pomelo nefnist ávöxtur sem sagt
var frá á erlendu síðunni í blaðinu á
fimmtudag. Þá var þess getið að sá
ávöxtur væri ekki fáanlegur á
íslandi. Það er rétt um þessar
mundir. En hitt er líka rétt að síðast-
liðna tvo vetur hefur þessi ávöxtur
verið seldur hér að minnsta kosti í
höfuðborginni. Enn sem komið er
hefur hins vegar ekki verið hægt að
fá hann hingað að sumarlagi.
Það er heildverzlun Eggerts
Hitamælir í kælinn
Við litum í fyrri viku inn í Gljáa og
hittum þar að máli Árna Sigurjóns-
son forstjóra. Hann vinnur verkið
sjálfur við annan mann og stundum
þann þriðja þegar mikið liggur við.
„Við erum sifellt að reyna að
hanna fleiri gerðir sem henta betur
öllum aðstæðum. Ennþá framleiðum
við einungis grindur sem henta utan
dyra eða inni í sérstökum rusla-
geymslum. En það kemur vel til álita
að framleiða einnig grindur fyrir
venjuleg heimili, innandyra. ”
Grindurnar frá Gljáa eru einkum
keyptar fyrir sumarbústaði. Einnig er
nokkuð keypt af þeim fyrir einbýlis-
eða raðhús. Nú er Árni að semja við
fjölbýlishús i Kópavogi um kaup á
stærri grindum.
Verðið á grindunum er á milli 300
og 1200 krónur eftir stærð og þvi
hversu mikið er í þær borið. -DS.
Við höfum stundum brýnt fyrir
fólki hér á Neytendasíðunni að hafa
ekki of kalt og ekki of heitt í kæli-
skápum sínum og frystum. Sé of kalt
eyðist óþarfa orka og sé of heitt
skemmist maturinn. Nú hefur
Mjólkurdagsnefnd komið neytend-
um til hjálpar með því að flytja inn
og selja sérstakan hitamæli ætlaðan i
kæU og frysti. Mælirinn er úr plasti,
fyrirferðarlítill og mæUr frá 35 stiga
hita niður í 40 stiga frost. Hann
kemur til með að fást í vel flestum
matvöruverzlunum landsins og kosta
15 krónur. Er hann niðurgreiddur
eins og annað sem viðkemur
Mjólkurdagsnefnd.
-DS.
Kristjánssonar sem flutt hefur ávöxt-
inn inn og fengum við þar þær
upplýsingar að þetta væri kynblend-
ingur appelsínu og greip-ávaxta.
Bragð pomelo ávaxtarins er líkara því
sem er af greipi og er hann einkum
vinsæll meðal þeirra sem vilja halda í
við sig í hitaeiningum. Ávöxturinn er
yfirleitt borinn fram skorinn í hálft
eins og greipið og gjarnan snæddur
með öðrum ávöxtum. Hann er tölu-
vert mikið stærri en greipiðen jafn-
framt dýrari því í fyrravetur kostaði
hann 18—19 krónur kílóið.
Ávöxturinn var seldur í vetur í
Blómavali, Kornmarkaðnum og í
ávaxtabúðinni á Hlemmi. Hann er
væntanlegur aftur með haustinu.
-DS.
Upplýsingaseðill
til samanbuiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar
fjölskyldu af söniu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks----
Kostnaður í maímánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
m wí\x
i