Dagblaðið - 19.06.1981, Qupperneq 16
BÍLAR
DAOBLAÐIÐ. FÖSTUDAOUR19. JÚNÍ 1981.
ALÞÝÐUBÍLAR AUSTAN-
HAFS OG VESTAN
Sport í Sovét:
ZIS 112 ’52 model er þessi sovéski bíll og vélin 6 lítra (væntanlega V 8). Þessi
hryllingur var tveggja sæta og hugsaður sem kappakstursbíll.
Því er ekki að neita að eftir að hafa hlustað á gang 8 syl. vörubíla við höfn-
ina í Arkangelsk þá gæti manni dottið í hug að Rússar geti framleitt góða og
skemmtilega 8 syl. mótora. í Arkangelsk vakti það manni furðu hve margir af
vörubílunum við höfnina voru með 8 syl. bensínhreyfla, og ekki síður hve
gangur þeirra var þýður. Miðað við eyru min i Arkangelsk gæti þessi forljóti
rússi hafa verið býsna sprækur spyrnubill.
Krístinn Snæland
Traktor eða bfll?
Standard Vanguard '50. 1047 varð Standardinn fyrstur breskra bíla til að
koma með sjálfberandi boddí og seldist hann býsna vel. Vélin i 50 modelinu
var tveggja lítra, fjögurra syl. 68 hö. og var m.a. notuð í hinum þekkta og vin-
sæla sportbíl Triumph.
Standardeigendur á íslandi komust þó einnig fljótt að því að Ferguson trakt-
orinn, sem með bensínvél varð gífurlega vinsæll á íslandi, var einmitt með
þennan sama mótor. Varahluti í vélina var því auðvelt að fá en auk þess var
billinn bæði mjög rúmgóður og nýtískulegur. Hann er þó því miður algerlega
horfinn af götum hér nú.
Grfurlegar vinsældir:
Því verður ekki i móti mælt að fáir
eða engir bílar hafa notið slíkra vin-
sælda sem Volkswagen „bjallan”
svonefnda. Mér og sjálfsagt fleirum
áhugamönnum um bila er þetta ekk-
ert annað en sönnun þess hve al-
menningur yfirleitt hefur lítið vit á
bílum.
Volkswagen bjallan er einn af
ömurlegustu bílum sem framleiddir
hafa verið, loftkældur, kaldur og að
sumri fullur af ryki. Óöruggur í
akstri, laus í lausamöl og leitaði beint
í hálku út úr beygjunum, næmur
fyrir hliðarvindi og í flesta staði
óyndislegur bíll.
Þrátt fyrir að tæplega væri til and-
styggilegri bíll á sjötta áratugnum
tókst Þjóðverjum að vinna honum
þær vinsældir að enginn bíll var vin-
sælli á Islandi í þá tíð.
Ástæðan fyrir vinsældum Volks-
wagen var sú að ekkert umboð veitti
betri þjónustu en Hekla hf., sem
hafði og hefur umboð fyrir Volks-
wagen. Endursöluverð, þjónusta og
varahlutalager var betri en nokkurrar
annarrar gerðar bíla. Út á þetta tókst
Volkswagen að ná vinsældum, sem
ekkert umboð hefur náð enn þann
dag í dag. Því verður svo að bæta við
sannleikans vegna að Volkswagen
hefur í dag horfið frá því að fram-
leiða loftkælda hryllingsbíla og fram-
leiðir nú t.d. VW POLO, VW
DERBY, VW GOLF, VW JETTA,
VW SCIROCCO, allt vatnskælda
bíla með þrælvönduðum frágangi og
sérlega skemmtilegum aksturseigin-
. leikum. Svo einkennilegur er þó al-
menningur að þessir góðu bílar ná
ekki sömu vinsældum og hryllings-
bíllinn (VW bjallan).
Myndin sýnir 1500 til 2000
„bjöllur” halda uppá sölu milljón-
ustu „bjöllunnar”.
Kaiser — Volvo:
1952 voru fluttir hingað tU landsins nokkrir tugir Kaiser-Fraiser bUa en
þessir bilar voru bandarískir fólksbilar, 6 manna, settir saman í landi þess
trúarflokks sem kallast gyðingar og búa nú í ísrael.
Kaiserinn var mjög straumlínulagaður bill og með 6 syl. linumótor og hliðar-
ventlum. A.m.k. einn slíkur er til hér í mjög góðu lagi, en því er hans minnst
hér að ég hefi rekist á mynd af tilraunabU frá Volvo frá sjötta áratugnum, en sá
bUl er óneitanlega afar nákvæm stæUng á Kaiser 1952 model þó grillið sé að
vísu stolið frá Hudson. Volvo til heiðurs verður að viðurkenna að þessi þjófn-
aðartilraun var aldrei sett í framleiðslu enda ekki sæmandi Volvo. Engu að
síður er gaman að sýna lesendum þennan ,, Volvo”.
Kommabfll:
Vegna þess að Dagblaðið er óneitanlega blað allra landsmanna varð ég að koma með dæmi um bíl alþýðunnar i Sovét.
Þessi bíll sem sést hér heitir ZIS og er byggður á sjötta áratugnum í Sovét.
Þó að jafnrétti sé aðalsmerki þeirra félaganna í Sovét eru afar litlar líkur á að þessi glæsidreki hafi verið notaður til
þess að aka járnbrautarkerlingum heim úr vinnunni. Þessi dreki var notaður til þess að aka framámönnum í hinu stétt-
lausa sovéska þjóðfélagi til og frá vinnu og til þess að sýnast gagnvart erlendum sendimönnum.
Sýndarmennskan er í lagi í Kommó.
Loks má geta þess að bUlinn er ágæt eftirlíking Packard sem framleiddur hefur verið af kapítalistum i USA.
Ekki gúmmftókki:
Tékkar hafa komið við fslenska bilasögu a.m.k. aUt frá árinu 1946 er fyrstu
Skodamir og Tatrarnir komu hingað til landsins.
Tékkar höfðu þó framleitt bíla löngu áður og voru raunar með allt frá upp-
hafi bUaaldar og komu oft og einatt með merkar nýjungar. Boxermótorinn,
sem síðar var notaður m.a. í Volkswagen, varð fyrst tU í Tékkóslóvakíu og þá
notaður íTatra.
Til heiðurs tékkneskri bílaframleiðslu sýnum við hér „Blöðruskodann” frá
1952 sem fáir munu kalla fallegan bil en reyndist vel þvæUnn bUl og þoldi oft
með ágætum iU kjör.