Dagblaðið - 22.06.1981, Side 2
Er Landsbókasafnið
lokað almenningi?
Fróðleiksfús skrifar:
Laugardag einn fyrir stuttu hugðist
ég bregða mér á Landsbókasafniö við
Hverfisgötu en kom þar að lokuðum
dyrum. Við nánari eftirgrennslan
kom í ijós, mér til mikillar furöu, að
Raddir
lesenda
safnið er lokað á laugardögum og
sunnudögum og frá kl. 19 aðra daga
vikunnar. Ég komst því að raun um
að það á ekki fyrir mér að liggja að
komast í Landsbókasafnið, því að
það vill nefnilega svo til að ég stunda
mína vinnu eins og svo margir aðrir
og það lítur út fyrir að opnunartími
safnsins sé ekki miðaður við vinnandi
fólk. Þannig er safnið í raun og veru
lokað íslenzkum almenningi, þó að
það eigi að heita þjóðareign. Hvi má
þjóðin ekki komast inn i þessa eign
sína? Gera ráðamenn sér grein fyrir
þessu?
Sem íslendingur og áhugamaöur
um þjóðlegan fróðleik af ýmsu tagi
krefst ég þess að fá aögang,aö Lands-
bókasafninu og ég neita að sætta mig
við fáránlegan og næsta óskiljan-
legan opnunartíma safnsins. Hvers
virði er bókasafn sem er lokaö öllum
þorra almennings?
Hækkið laun lækna
—en skattieggið þá svo
Karl hringdi:
Ég vil koma á framfæri tillögu sem
ég held að gæti orðið til lausnar
læknadeilunni.
Mitt ráð er að iæknum verði greitt
það kaup sem þeir vilja hafa en síðan
verði settur á þá sérstakur skattur
sem mætti nefna „þrýstihópaskatt”.
Útkoman úr þessu yrði að læknarnir
hefðu góð laun, eftir sem áður, en
skatturinn yrði þrýstihópunum víti til
varnaðar.
Ég þykist vita að ef laun iækna
yrðu hækkuð eins og þeir hafa farið
fram á, án þess að ríkisvaldið að-
hefðist nokkuð, þá myndu allir hinir
hálaunahóparnir koma í einni bendu
áeftir.
Smurolían sem dregió
geturúr bensíneyóslu
bíla um 5-7%
Meírí smurhæfni,
minna slit,
minna eldsneyti.
OORANDA
Olís kynnir nýja smurolíu: Visco
Coranda með LHC.*
Visco Coranda tekur fram gæða-
flokki (gæðastandard) API - SF
sem vandlátir vélaframleiðendur
gera nú kröfur um.
Visco Coranda er fjölþykktarolía
10W/30.
Ný framleiðsluaðferð Visco
Coranda gerir mögulegt að nota
þynnri olíu en fyrr. Slíkt eykur
smurhæfni og minnkar mótstöðu í
vél. Þannig minnkar bensíneyðslan
verulega.
Visco Coranda er mjög hitaþolin og
heldur eiginleikum sínum við hinar
erfiðustu aðstæður.
Reynið Visco Coranda frá Olís.
* LHC (Lavera Hydrocracker Compon-
ent) er grunnolía sem BP hefur, eftir ára-
langar rannsóknir, tekist að vinna úr
hreinni jarðolíu.
m
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
Það eiga ekki allir jafnan aðgang að skruddum og skræðum Landsbókasafnsins,
cf marka má orð bréfritara.
JH, Hafnarfirði, skrifar:
Mig langar til að bera fram fyrir-
spurn varðandi framreiknun hús-
næðismálastjórnarlána. Eftir því sem
mér skilst, þá má einungis fram-
reikna vísitölutryggð lán sem tekin
eru eftir 1974. Gilda sömu lög um lán
Byggingarfélags verkamanna, eða má
framreikna þau hvort sem þau eru
vísitölutryggð eða ekki?
Ég vona að Húsnæðismálastofnun
sjái sér fært að svara þessu.
Hilmar Þórisson, deildarstjóri hjá
Húsnæðismálastofnun, gaf þær upp-
lýsingar að einungis mætti fram-
reikna vísitölutryggð lán. Eftir-
stöðvar af óvísitölutryggðum lánum
væru raunverulegar eftirstöðvar sam-
kvæmt skuldakvittun og legðust ein-
ungis vextir á þessi lán.
EINUNGIS MÁ
FRAMREIKNA
VÍSITÖLU-
TRYGGDLÁN
Fæstir þeirra sem fá lán til húsbygginga átta sig fullkomlega á verðbólguskógi
vfsitölunnar en upp þokast húsið ...