Dagblaðið - 22.06.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNf 1981.
(*
Erlent
Erlent
Eríent
Erlent
t)
Sídari umferð frönsku þingkosninganna ígær:
SÓSÍAUSTARINNSIGL-
UÐU STÓRSIGUR SINN
—Fengu hreinan meirihluta á þingi, sem táknar þáttaskil í frönskum st jómmálum
Ekki mun ofsagt að þáttaskil séu
orðin i frönskum stjórnmálum eftir
aö ljóst er orðið að Sósíalistaflokkur-
inn, flokkur Mitterrands nýkjörins
forseta, hefur hlotið hreinan meiri-
hluta á þingi 1 siðari umferö frönsku
þingkosninganna, sem fram fóru um
helgina.
Mið- og hægriflokkamir hafa nú
misst tökin á stjómartaumum
landsins i fyrsta skipti f meira en tvo
áratugi.
Eftir glæsilegan kosningasigur
sósíalistans Mitterrand i forseta-
kosningunum 10. mai siðastliðinn
hafa sósíalistar og bandamenn þeirra
úr flokki vinstri radíkala, MRG,
hlotið um 283 af 491 sæti á franska
þinginu.
Ekki var enn ljóst i morgun hver
hlyti ellefu þingsæti en það skijptir
engu máli, svo ótvíræð eru úrslit
kosninganna.
Það voru þó ekki aðeins mið- og
hægri flokkarnir sem biöu ósigur í
kosningunum. Ösigur Kommúnista-
flokksins var ekki minni. Hann
missti nú helming þingsæta sinna og
hefur nú aðeins 43 sæti á þingi.
Margir af forystumönnum flokksins
féllu út af þingi.
Georges Marchais, leiðtogi komm-
únista, sem hélt þingsæti sínu þrátt
fyrir háværa gagnrýni sem hann
hefur orðið fyrir innan flokks síns,
sagöi í gaér að kommúnista> ættu
heimtingu á að fá sæti f hinni nýju
ríkisstjórn iandsins. Um það atriði
mun talsverður ágreiningur í flokki
sósiaiista.
Mitterrand, forseti, hefur gefið til
kynna að hann vilji nánara samstarf
við vestrænar þjóðir og talið er að
kommúnistar fái þvi aðeins aðild aö
rikisstjórninni að þeir hverfi af
fylgninni við Moskvu i utanríkis-
málum, ekki sízt stefnunni gagnvart
Póllandi og Afganistan.
Mitterrand hefur lýst yfir stuöningi
sínum við það áform Nató að koma
upp nýjum eldflaugum i Evrópu sem
svari við SS-20 eldflaugum Sovét-
manna.
Kommúnistar halda því fram að
Mitterrand og Sósialistaflokkurinn
hefðu aldrei unnið þann sigur sem nú
er orðinn að veruleika ef ekki hefði
komið til stuðningur kommúnista.
Frambjóðendur þeirra drógu sig i'-hlé
í síðari umferð kosninganna i þeim
kjördæmum sem frambjóðandi
sósíalista hafði fengið fleiri atkvæði í
fyrri umferðinni. Þannig var tryggt
að atkvæði vinstri manna færu ekki
til spillis.
Búizt er við aö ákvörðun um
skipan hinnar nýju rikisstjómar verði
tekin innan tveggja sólarhringa.
Páflnn
afturá
sjúkra-
hús
Jóhannes Páil páfi ii. var að nýju
lagður inn á sjúkrahús á laugardag og
er búizt við að hann þurfi að dvelja þar
i hálfan mánuð.
Páfinn hefur stöðugt verið með háan
hita að undanförnu og vilja læknar
ganga úr skugga um hvað valdi. Lítil
skrifstofa hefur verið sett upp við
hliðina á sjúkrastofu páfa og þaðan
greina aðstoðarmenn hans honum frá
heiztu heimsviðburðum og ýmsum
atriðum i starfsemi páfagarðs.
Ljósmyndarí ákærður
fyrír eitt Atlanta-
bamamorðanna 28
Wayne Williams, 23 ára gamall
blökkumaður, ljósmyndari að atvinnu,
hefur verið ákæröur fyrir hið síðasta af
Atlanta-morðunum 28, er valdið hafa
mikilli skelfingu og óhug í Bandarikj-
unum á síðastliðnum 23 mánuðum.
Lögreglan hefur enn ekki viljaö lýsa því
yfir að hann sé grunaður um eitthvert
hinna morðanna.
Williams var ákæröur fyrir að hafa
myrt Nathaniel Carter, 27 ára gamlan
blökkumann. Lík hans fannst f Chatta-
hoochee-ánni fyrir vestan Atlanta hinn
24. mai síðastliðinn.
Williams hafði verið yfirheyrður af
lögreglunni tveimur dögum áður en Ifk
Carters fannst, og var tekinn að nýju,
3. júní síðastliðinn, til yfirheyrslu.
Lögreglan fylgdist stöðugt með ferðum
hans á þessu tímabili en allt þar til í
gærkvöldi sögðu yfirvöld að ekki væru
fyrir hendi nægilegar sannanir til að
unnt væri að handtaka WilliamsT'
Lögreglan vildi ekki skýra frá því í
gær hvaða atriði hafí leitt til handtöku
Williams en áður hafði einn rann-
sóknarlögreglumannanna skýrt frá þvi
aö smáir efnisþræðir er fundust á
heimili Williams væru eins og þræðir
þeir er hefðu fundizt á nokkrum lík-
anna. Þó lögreglan hafi í gær ekki
viljað tengja handtöku Williams við
nema eitt morðanna þá hefur því marg-
sinnis verið lýst yftr að morðið á Carter
sé greiniiega skylt a.m.k. þrettán hinna
moröanna.
Eins og sextán önnur fórnarlamb-
anna á lista lögreglunnar þá hafði
Carter verið kyrktur. Hann fannst
nakinn eins og sex önnur fórnarlamb-
anna og hann fannst i Chattahoochee-
ánni eins og fimm önnur fórnarlamb-
anna.
Maynard Jackson, borgarstjóri i Atl-
anta, Iýsti i gær yfir mikilli ánægju
sinni yfir handtökunni.
Wayne B. Wtllianu, 23 ára gamall ljós-
myndari, hefur verið iluerður fyrir eitt
Atlanta-morðanna.
Víðtæk leit
gerðað Bani-
Sadr forseta
— Ríkisútvarpið íTeheran neitar
f réttum um að forsetinn hafi sloppið
úrlandi
Byliingarstjórnin hefur nú skorað
á alla írönsku þjóðina að hefja leit að
Bani-Sadr, forseta landsins, sem ekki
hefur sézt í tólf daga. í umræðum um
mál Bani-Sadr um helgina komst
iranska þingið (Majlis) að þeirri
niðurstöðu að hann væri óhæfur til
að gegna forsetaembættinu.
Ríkisútvarpið í Teheran sagði í gær
að hinn 48 ára gamli forseti landsins
væri enn i fran og neitaði þar með
erlendum fréttum um að honum
hefði tekizt að flýja land.
,,Við biðjum alla þjóðina um að
handtaka hann hvar sem til hans
kann að sjást,” sagði Ali Qoddusi,
sakfóknari byltingarstjórnarinnar í
gæf.
Saksóknarinn sagði að Bani-Sadr
ætti yfir höfði sér ákæru fyrir að
hafa hvatt pólitíska hópa til að
standa gegn löglegum stofnunum og
kerfi hins islamska lýðveldis og að
hafa hvatt fanga til að hefja mót-
mælasvelti.
Handtökuheimildin var gefin út
þremur klukkustundum eftir að
íranska þingið hafði samþykkt með
177 atkvæðum gegn einu að Bani-
Sadrværi óhæfur.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
í þinginu gera Khomeini erkiklerki
fært að víkja þessum fyrrum skjól-
stæðingi sínum úr embætti. Bani-
Sadr hlaut 75 prósent greiddra
atkvæða í forsetakosningum í íran í
fyrra, hinum fyrstu í sögu þjóðar-
innar.
Eiginkona forsetans var handtekin
á laugardag eftir götubardaga milli
stuðningsmanna og andstæöinga
Bani-Sadr. Hún var skömmu síðar
látin laus. Talið er að 25 manns hafi
Iátizt í þeim átökum. Byltingar-
stjórnin tilkynnti síðan að 15 „gagn-
byltingarsinnar” hefðu verið teknir
af lífi vegna þátttöku í óeirðunum.
Sadat
stjórnar-
andstööuna
Sadat, Egyptalandsforseti, sakaöi i
gær stjórnarandstöðuflokkana i
Egyptalandi um að hvetja til átaka á
milli kristinna manna og múslima í síð-
ustu viku. Tíu manns létu lífið i átök-
unum og 55 særðust.
Hann sagði að kommúnistar og
sósfalistar hefðu átt þátt i óeirðunum
til að sýna fram á að öryggisgæzlu i
Egyptalandi væri áfátt.
gagnrýnir
Brady er
ennþáá
batavegi
James Brady, blaöafulltrúi Reagans
Bandarikjaforseta, sem særðist mjög
alvarlega í tilræðinu við forsetann 30.
marz siðastliðinn, hefur létzt mikiö en
er á stöðugum batavegi. Frá þessu
greindi yfirlæknir sjúkrahússins, þar
sem Brady liggur, fyrir skömmu. Brady
er orðinn fær um að taka þátt i lengri
samtölum þegar sá gállinn er á honum.
Hann þreytist hins vegar fljótt vegna
hinna piörgu skurðaðgerða sem hann
hefur orðið að gangast undir. Vonir
standa til að hann geti, þegar fram liða
stundir, haft einhver not af vinstri
handleggnum sem hefur verið lamaöur
síðan Brady fékk skot í gegnum
höfuðið.
Átskóla-
systursína
,,Mig hefur alltaf dreymt um að borða
ungastúlku.”
Með þessari einu setningu útskýrði
Isei Sagawa, 32 ára gamall japanskur
listastúdent í Paris, óhugnanlegt morð
sem hann framdi á Renee Artewelt, 25
ára gömlum samstúdent sínum.
Sagawa skaut vinstúlku sína eftir
rifrildi þeirra í milli, hlutaði líkið í
sundur með búrhníf og hélt beztu bit-
unum eftir í kæliskáp sínum. Hina
hluta líksins flutti hann í ferðatöskum
út i Boulogne-skóg. Síðan sneri hann
heim til íbúðar sinnar og steikti og
borðaði beztu bitana af vinstúlku sinni.
Japaninn hefur verið settur í geð-
rannsókn.