Dagblaðið - 22.06.1981, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
(*
Iþróttir
Iþróttir
15
Iþróttir
Iþróttir
D
SKIPPER RADAR
□ 36 sm. LANGDRÆGNI
□ 5 Kw. SENDIORKA
□ 7” MYNDLAMPI
□ FÆRANLEGUR
HRINGUR (V.R.M.
□ ÁRS ÁBYRGÐ
□ HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
I LJOSATÖLUM
ÖLL VIÐGERÐA— OG VARAHLUTAÞJÓNUSTA
utiimii; a.jóasso.v hf.
BRÆÐRABORGARSTÍG 1 - SÍMAR 14135 - 14340
Meistarabeppnln virðist svo sannar-
iega vera gengin i Iið með Vikingum ef
marka má gang leiksins er þeir slgruðu
Skagamenn hér 6 Akranesi á laugardag
með einu marki gegn engu. En Akur-
nesingar geta iika sjálfum sér um
kennt. Því leikmönnum liðsins virðist
gjörsamiega fyrirmunað að skora mörk
um þessar mundir og eru leikirnir
orðnir flmm f röð án marka. Er þetta
nú farið að þjaka lelkmenn sem áhang-
endur liðsins.
Á 63. minútu leiksins ná Vikingar
einni af sfnum fáu sóknarlotum að
marki Akurnesinga i leiknum og er
knötturinn gefinn út á Þórð Marelsson
er reynir skot á markið rétt utan víta-
teigs. Fast skot hans iendir í vamar-
manni Skagamanna, Sigurði
Halldórssyni, og breytir um stefnu
framhjá Bjarna Sigurðssyni markverði
og í netið. Leikmenn Akumesinga
trúðu vart sínum eigin augum, enda
engin furða. Fram að marki Víkinga
hafði leikurinn verið algjör eign Skaga-
manna og um nær látlausa sókn hafði
verið um að ræða að marki Vfkinga
einkum í fyrri hálfleik. Þrivegis
nötruðu stangir Víkingsmarksins eftir
hörkuskot. Vítaspyrna fór forgörðum
auk þess sem Diðrik Ólafsson mark-
vörður Víkinga varði meistaralega
hvað eftir annað. Nær er vart hægt að
komast án þess að skora mörk.
Sókn Skagamanna
Skagamenn hófu leikinn af miklum
krafti og fyrsta marktækifæri þeirra
kom strax á 7. minútu er Guðbjörn átti
gott skot á markið en Diðrik var vel
staðsettur og varði vel. Fimm minútum
sfðar er Gunnar Jónsson með skot en
rétt framhjá. Á 21. minútu fá Skaga-
menn siðan dauðafæri. Júlíus Pétur
Ingólfsson, einn bezti leikmaður
Skagamanna í leiknum, á þá hörkuskot
i stöng en þaðan berst knötturinn til
Gunnars Jónssonar, sem á skot á
markið en nú i þverslána. Tveim
minútum síðar sendir Árni Sveinsson
góða sendingu á Gunnar Jónsson, sem
skýtur hörkuskoti á markið en Diðrik
ver meistaralega með þvi að slá knött-
inn í stöngina innanverða. Enn heldur
stórsókn Skagamanna áfram á 26. min.
sendir Júlíus Pétur góða sendingu inn á
Guðbjöm, sem kemst einn inn fyrir
vörn Víkinga leikur á Diðrik, en skot,
hans hafnar í hliðarnetinu. Á 40. mín.
fá Víkingar sitt fyrsta marktækifæri í
leiknum, en þá kemst Ragnar Gislason
í gott færi en Bjami markvörður
bjargar vel með úthlaupi. Þrem
mfnútum síðar fá Skagamen síðan víta-
spymu eftir að Ragnar Gislason hafði
stjakað við einum sóknarleikmanni
Skagamanna innan vítateigs. Guðbjörn
Tryggvason framkvæmdi vitaspyrn-
una, en spyrna hans var misheppnuð.
Laust skotið fór framhjá stönginni.
Þetta var siðasta tækifæri Skagamanna
í fyrri hálfleik og hefði ekki verið ósan-
gjarnt að þeir hefðu haft tveggja marka
forystu í hálfleiknum.
Skagamenn hófu siöari hálfleikinn af
sama krafti og þeir enduðu þann fyrri
og á 51. min. á Jón Alfreðsson hörku-
skot á markið frá vítateig en Diðrik
sveif í loftinu og varði knöttinn efst
upp í markhorninu, með því að slá
hann i horn. Stórkostleg markvarzla.
Upp úr hornspyrnunni skallaði siðan
Sigurður Halldórsson rétt yfir af mark-
teig. Upp frá þessu fór leikurinn heldur
að jafnast og eftir að Vikingar skoruðu
mark sitt léku þeir af enn meiri ákveðni
og gáfu Skagamönnum fá tækifæri til
gegnumbrota. En síðasta tækifæri
leiksins féll síðan Skagamönnum i hlut
tveim mínútum fyrir leikslok. Þá lék
Kristján Olgeirsson laglega i gegn um
vörn Víkinga og átti þrumuskot er rétt
strauk þverslána ofanverða. Ágætur
dómari leiksins Óli Ólsen flautaði síðan
til leiksloka og var fögnuður Vikinga
mikill þvi öliu ódýrari sigra fá þeir ekki
á hverjum degi en Skagamenn að sama
skapi vonsviknir.
Diðrik Ólafsson var langbezti leik-
maður Vfkinga i Ieiknum varöi hvaö
eftir annað stórkostlega, auk þess að
grípa vel innm i þegar þess þurfti með.
Jóhannes Bárðarson átti einnig góðan
leik. Mikill baráttuhestur. Aðrir leik-
menn liðsins sáust vart.
Hjá Skagamönnum var Július Pétur
Ingólfsson beztur, var mjög ógnandi og
átti góðar sendingar, Jón Alfreðsson,
Sigurður Lárusson og Guðjón Þórðar-
son áttu einnig góðan leik. Skagamenn
léku einn sinn bezta leik í sumar en það
vantar bara mörkin og meðan þau
koma ekki er sigurinn langt undan. -S.E
. Miklir tilburðir hjá tíuðbirni TrygRvasyni við vítateig Víkings en hann hafði ekki árangur sem erfiöi.
DB-mynd Mtí.
Iinuraprenti.
• Hægt að fá
straumbreyti
og hlaðanlegar
rafhlöður.
• Er forritað að fullu v Verð kr. 813,00
dagatal frá 1901—2099. þettaþýðir
að með einu handtaki er hægt að fá á strimli hvern mánuð fyrir síg á þessu timabili
• 1 árs ábyrgð og viðgerðarþjónusta.
CASIO-umboóið Bankastræti 8. Simi 27510. ATH. Vantar umboðsmenn um land allt.
Þórður Mareisson skoraði sigurmark
Viklngs á Akranesl.
Óskabyrjunin
nægði
Völsungi
— Uðið skoraði tvívegis
fyrstu 8 mín. og sigraði
ÍBÍ2-1 í 2. deild
Völsungur sigraði ísafjörð 2—1 i
hörðum leik á Húsavik i 2. deild á
laugardag. Ísfirðingar voru meira með
knöttinn i leiknum en fengu fá tæki-
færi til að skora. Húsvikingar fengu
betri færi og nýttu tvö f byrjun leiksins.
ísfirðingar hófu leikinn en Hörður
Benónýsson komst inn í sendingu.
Brunaði upp og skoraði og var þá ekki
nema um mínúta liðin af leiktímanum.
Á 8. min. var Olgeiri Sigurðssyni
brugðið innan vitateigs. Vítaspyma
dæmd á ÍBÍ, sem Olgeir tók sjálfur.
Sigurður Jónsson, markvörður ÍBÍ,
varði en eftir að dómari hafði ráðfært
sig við línuvörð, lét hann endurtaka
vitaspyrnuna. Dæmdi að Sigurður
hefði hreyft sig áður en Olgeir spyrnti.
Olgeir tók einnig síðara vítið og
skoraði þá.
Eftir þvi sem leið á fyrri hálfleikinn
fóru ísfirðingar að sækja í sig veðrið.
Voru mun meira með knöttinn en tókst
illa að skapa sér færi. Fljótlega I síðari
hálfleik tókst Haraldi Stefánssyni að
minnka muninn i 2—1. ÍBÍ fékk auka-
spyrnu. Gefið inn í teiginn og Haraldur
skoraði með þrumuskalla. Mikil harka
hljóp í leikinn eftir markið. Völsungar
ákveðnir að halda sínum hlut.
ísfirðingar meira með knöttinn en lítið
um færi. Dómarinn hafði nóg að gera.
Bókaði sjö leikmenn, þar af fimm úr
Völsungi. Það var harkan sjö, sem réð
ferðinni.
Hjá Völsungi átti Björn Ingimarsson
góðan leik í marki og Jón Gunnlaugs-
son skallaði flest frá, sem hátt flaug inn
í vitateiginn. Jón Oddsson lék ekki með
ÍBÍ og munaði um minna fyrir ísfirð-
inga. Hann var í landsliðinu í frjálsum í
Luxemborg. -hsím.
Iþróttir
Staðan
í 2. deild
Úrslit í leikjum 2. deildar um helgina
urðu þessi.
Völsungur — ÍBÍ 2- -1
ÍBK — Þróttur, Nes. 1- -0
Skallagr. — Þróttur, R 0—1
Haukar — Selfoss 1- -0
Staðan er nú þannig 1
Kefiavik 6 5 0 1 14—5 10
Reynir 5 3 2 0 6—1 8
Þróttur, R 6 3 2 1 7—2 8
ÍBÍ 6 3 2 1 9—6 8
Völsungur 6 3 12 11—8 7
Fylkir 5 2 12 4—5 5
Skallagrimur 6 2 13 5—6 5
Haukar 6 12 3 4—12 4
Þróttur, N 6 114 6—9 3
Selfoss 6 0 0 6 1—13 0
Elnn leikur verður í 2. delld i kvöld.
Þá lelka Fylkir og Reynir, Sandgerði,
id. 20 á Laugardalsvelii.
Meistaraheppnin geng
in í lið með Víkingum
— Mikill heppnissigur Víkinga gegn Skagamönnum á laugardag í 1. deild.
Skagamenn misnotuðu vítaspymu í leiknum