Dagblaðið - 22.06.1981, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22, JÚNÍ1981.
iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþrótt
Glæsilegt mark
færði Keflvík-
ingum sigur
II-deild,
Keflavikurvöllur
ÍBK:Þróttur N. 1:0 (1:0)
Magnús Garðarsson tryggðl ÍBK
sigurinn gegn Norðfjarðarþrótti með
einstaklega fallegu marki, rétt fyrir lok
fyrri hólfleiks. Magnús fékk luiöttinn
rétt við markteigslinu lét sig faiia ú
bakið og skoraði með hjólhestaspyrnu,
eins og hún er kölluð í knattspyrnu-
móli, alisendis óverjandi fyrir hinn
bróðsnjalla markvörð Þróttar, Ágúst
Þorbergsson, sem hafðl varlð mjög vel
allan fyrri hólflelkinn m.a. skot fró
Steinari Jóhannssyni, kollspyrnu fró
Birni Ingólfssynl, auk skota fró
Magnúsi Garðarssyni.
Þróttarar veittu heimamönnum
harða mótspyrnu á blautum grasvellin-
um fyrri hálfleikinn. ÍBK náði undir-
tökunum snemma í seinni hálfleik og
sótti linnulítið að marki austanmanna
en tókst ekki að skora þrátt fyrir gulUn
tækifæri. Segja má að um hálfgert ein-
vígi hafi verið að ræða á tnilli
Magnúsar Garðarssonar og Ágústar
markvarðar Þróttar, sem varði hvert
skotið af öðru af mikilli fimi auk þess
sem hann greip inn í leikinn með út-
hlaupum.
Þótt Magnúsi hafi ekki tekizt að
skora nema eitt mark, getur hann vel
við unað — það nægði. Hann var með
efnilegustu knattspyrnumönnum ÍBK, í
yngri flokkunum, en hætti í mörg ár.
Magnús hefur engu gleymt og ætlar að
verða ÍBK mikill styrkur. Auk hans
áttu þeir Gísli Eyjólfsson, sem var
potturinn og pannan í öllum aðgerðum
liðsins, Óskar Færseth, bakvörðurinn
sókndjarfi og Skúli Rósantsson, mjög
góðan leik. Annars var liðið nú eins og
svo oft áður mjög seint f „gang” og
„hitnaði” ekki fyrr en í seinni hálfleik.
Ekki bar einn af öðrum í Þróttar-
liðinu nema Ágúst markvörður svo og
Lárus Vilbergsson bakvörður sem er
mjög fljótur og laginn leikmaður með
góðar staðsetningar. Dómari var
Friðjón Eðvaldsson og dæmdi vel.
-emm.
VíkingurÓL
vann Reyni
Vildngur Ólafsvik sigraöi Reyni
Hellissandi með tveimur mörkum gegn
engu i 3. deild i gærkvöldi. Ekkert
mark var skorað i fyrri hólfleik, en f
þelm sfðari skoruðu Jónas Kristófers-
son og Gunnar Gunnarsson úr viti.
Graham sigr-
aði á US-open
Ástraliumaðurinn David Graham
sigraði ó opna US-golfmótinu i
Ardmore i Pennsylvanfu i gær. Lék
holurnar 72 ó 273 höggum, sjö undir
pari vallarins. t 2.-3. sæti urðu
George Burns, USA, og Bill Rogers,
USA, ó 276 höggum. Burns hafði
þriggja högga forskot ó Graham, sem
var i öðru sæti, þegar siðasti keppnis-
dagurinn hófst. Ástraiiumaðurinn lék
mjög vel alla keppnisdagana ó 68
höggum fyrsta daginn, sfðan 68, 70 og
67 höggum f gær.
Ótrúlegt
10 km hlaup
Brezldr hlauparar voru i fimm af sex
fyrstu sætunum i miklu 10 km hlaupi i
Prag ó laugardag. Keppnl var geysi-
hörð. Úrsllt.
1. Mike McLeod, Bretland, 27:59.38
2. Geoff Smlth, Bretland, 27:59.43
3. Nick Rose, Bretland, 27:59.68
4. A. Hagelsteens, Beigfu, 27:59.98
5. Julian Goeter, Bretland, 28:00.20
6. Stephen Jones, Bretland, 28:00.58
7. Sul. Nyambui, Tanzanfu, 28:01.19
8. Mohamed Kedir, Eþiópfu,28:01.67
9. Marttl Valnio, Finnl. 28:02.33
10. Antonio Prieto, Spóni, 28:02.71
11. Tolosa Kotu, Eþiópiu, 28:03.25 '
Jafnasta 10 km hlaup sögunnar.
Hreint ótrúlegt. Keppendur voru 27.
HIupu alllr langt Innan við 30 mfn.
Nyambui og Kedir héldu uppl
hraðanum lengstum.
Guðmundur Ásgeirsson markvörður bægir hættunni frá marki Breiðabliks, en athygli vakti að dæmt var brot á Magna Pétursson, þótt þvi virðist öfugt farið á myndinni.
Var markið ekki löglegt?
spurðu áhorf endur að loknum markalausum leik Vals og Breiðabliks
Var þetta ekki mark, og ef ekki ó
hvað dæmdi dómarinn? var spurning
sem vailargestur spurðl sjólfan sig að f
leik Vais og Breiðabliks f 1. deildinni i
gærkvöldi. Tilefni spurningarinnar var
atvik, er ótti sér stað undir lok ielksins.
Á 84. minútu lék Þorsteinn Sigurðsson
upp að endimörkum vallarins, og gaf
hóa sendingu að nærstöng Breiðabliks-
marksins. Guðmundur Ásgeirsson
markvörður greip boltann, en virtist
mlssa hann aftur fyrir sig og Hllmar
Sighvatsson renndi knettinum i tómt
marklð. Þorvarður Bjömsson dómari
dæmdi aukaspymu ó Val. Á hvað vissi
enginn. Rangstöðu, hendi, hrindingu?
Vfst er hins vegar að aldrel fór knöttur-
inn i mark annars hvors liðslns svo lög-
legt teldist. Úrsiitln 0—0 og lelkur þessi
verður að teljast með slakari leikjum
sumarsins.
Fyrirfram var búizt viö miklu af
liöunum en annað kom á daginn. Vals-
menn fengu ekki svo mikið sem eitt
marktækifæri f leiknum, Kópavogsbú-
arnir fengu þó tvö. Hiö fyrra kom
þegar á 12. minútu. Tómas Tómasson
fékk þá góöa sendingu á vinstri kantin-
um og renndi knettinum inn á Jón
Einarsson. En áður en Jón náði að
skjóta, var Sævar Jónsson miðvörður
Vals búinn að bjarga í horn. Var það
ekki í síðasta skiptið, sem stóratá
Sævars átti eftir að bjarga Valsmönn-
í aðeins eitt annað skipti reyndist
ástæða til að pára eitthvað i minnis-
blokkina i fyrri hálfleik. Þá var Ólafur
Bjömsson bókaður fyrir gróft brot.
Sama var uppi á teningnum i siðari
hálfleik. Knötturinn gekk andstæðinga
á milli eins og bolti i borðtennis, hvor-
ugt liðið gaf hinu nokkum frið til að
byggja upp og fyrir bragðið sá aðeins
eitt marktækifæri dagsins ljós i þeim
hálfleik. Á 53. mínútu prjónaði Jón
Einarsson í gegnum vörn Vals en missti
knöttinn of langt frá sér og Sigurður
Haraldsson markvörður bjargaði með
góðu úthlaupi. Lokakaflann skiptu
bæði liðin um leikmenn, hjá Val kom
Valur Valsson inn á fyrir Hilmar
Harðarson og Njáll Eiösson fyrir
Magna Pétursson. Hákon Gunnarsson
kom inn á fyrir Sigurjón Kristjánsson i
Hilmar sló boltann
—sagði Þorvarður Björnsson dómarí
„Hllmar sló boltann með hendi
og ég dæmdi þvi aukaspyrnu ó
Val,” sagðl Þorvarður Björnsson
dómari i samtali við DB eftlr
leildnn.
„Mér fannst þetta augljóst, enda
mótmæltu sóknarmenn Vals
ekkert. Það vom varnarmennirnir
sem það gerðu. Ég benti aldrei á
miðju, heldur var ég aðeins að
benda ó aukaspyrnu, enda var hin
hendin alltaf niðri,” sagöi Þor-
varður.
-SA.
liði Breiðabliks. En innákoma þeirra
breytti engu um gang leiksins. Hann
leið hægt og rólega út af og dó.
Breiðablik var sterkari aðilinn í
þessum leik. Leikgleðin stafar af
liðinu, en óþarfa harka setur ljótan
svip á leik þess. Án efa gæti Breiðablik
orðið enn betra ef ieikmenn þess
hugsuðu meira um boltann og minna
um andstæöinginn. Jón Einarsson fór
oft illa með fyrrum félaga sína í Val,
skildi Grim Sæmundsen stundum alveg
eftir. Þá em þeir samherjar Jón í
framlínunni, Helgi Bentsson og Sigur-
jón Kristjónsson snöggir og snarir þótt
ekki bæri erfiði þeirra árangur. 1 vörn-
inni var Ólafur Björnsson eins og her-
foringi. Tómas var einnig góður en
hinir jafnir.
Valsmenn geta þakkað Sævari Jóns-
syni stigið sem þeir hlutu. Hann átti
stórgóðan leik f hjarta varnarinnar.
Miðjan var óvenju dauf en hresstist
með innáskiptingunum undir lokin.
Þorsteinn Sigurðsson gerði marga lag-
lega hluti frammi en Hilmar Sighvats-
son hafði sig lítið i frammi.
Þorvarður Bjömsson dæmdi og varð
oft að grípa til flautunnar. - SA
Varð bandarískur meist-
ari í langstökki og 100 m
„Það er hægt að bæta þetta heims-
met en heimsmet liggja mér ekkl þyngst
ó hjarta núna — ég stefni aðeta* að þvi
að sigra,” sagðl Carl Lewis, kanda-
risld blökkumaðurinn, eftlr að hann
stökk 8.62 metra ó bandarfska
meistaramótlnu i frjólsum iþróttum i
Sacrametno i Kaliforniu, ó laugardag.
EKTACHROME
lílframköllun
SAMDÆGURS
EKTACHROME OG FUJICHROME E-6 litfilmur lagöar
inn fyrir hádegi, afgreiöast samdægurs.
Viö framköllum samkvæmt ströngustu körfum efna- og
vélaframleiöenda um gæöaeftirlit, m.a. með daglegum
„densitometer“-prufum.
Okkur þætti vænt um, ef þú vildir treysta okkur fyrir
dýrmætum filmum þínum.
Verslið hjá
fagmanninum
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 SÍMI 85811
Sigraði einnig i 100 m hlauplnu ó 10.13
sek. og þessl piltur, sem er að verða
tvftugur, hefur þvi slgrað f langstökid
og 100 m hlaupl ó tveimur landsmótum
f USA með hólfs-mónaðar mlllibili.
Slfkt hefur ekld skeð þar sfðan Jesse
Owens lék sama leik ó þessum mótum
fyrir 45 órum, eða 1936.
í undankeppni langstökksins á
laugardag stökk Lewis 8.73 m en
vindur var þá of mikill. í úrslitum var
árangur hans 8.62 m hins vegar
iögiegur. Annaö lengsta stökk, sem um
getur i langstökki. Aðeins heimsmet
Bob Beamon, 8.90 metrar, frá
ólympiuleikunum i Mexikó-borg 1968.
„Ég lagði ekki að mér ,” sagði
Lewis eftir að hann kom annar í mark
i undanrósum 100 m hlaupsins á 10.72
sek. Bandaríski knattspyrnugarpurinn
Herschel Walker var með beztan tíma
10.67 sek. Keppnin i langstökki og úr-
slit 100 m hlaupsins voru á sama tima.
Lewis stökk aðeins einu sinni áöur en
hann fór i rásblokkirnar i 100 m
hlaupinu. Hann náði ekki góðu við-
bragöi en geystist svo framúr keppi-
nautum slnum einum af öðrum.
„Þegar 80 metrum var lokiö var sigur-
inn i höfn og ég brosti, þegar ég komst í
fyrsta sætið”, sagði Lewis eftir
hlaupið. Hann sigraði á 10.13 sek.
Siðan hélt hann að langstökksgryfj-
unni, hafði stokkið 8.62 m i fyrstu til-
raun. Bjó sig undir að stökkva en hætti
svo við það. Hann þurfti þess ekki til
að sigra. Larry Myricks varð annar,
náði bezt 8.45 m, og ógnaði ekki sigri
Lewis. Hann náði þó sjöunda bezta
árangri i langstökki frá upphafi.
Að öðrum árangri á mótinu má
nefna að nýi heimsmethafmn I kringlu-
kasti, Ben Plucknett, sigraði í sinni
grein. Kastaði 69.02 metra. Tyke
Peacock sigraði í hástökki með 2.25 m.
Norðmaðurinn Richard Olsen
varðmeistari i sleggjukasti með 71.88
m. Stephanie Hightower sigraði f 100 m
grindahlaupi kvenna á 13.09 sek. og
Denise Wood í kúluvarpi. Varpaði
16.91 m. Evelyn Ashford sigraöi í 100
m hlaupi kvenna á 11.07 sek. og Greg
Foster i 110 m grindahlaupi karla á
13.39 sk. Sigurvegarar i einstökum
greinum — ekki þó Norðmaðurinn —
verða i liði Bandarikjanna 1 úrslitum
heimsbikarsins i Róm í september.
-hsim.