Dagblaðið - 22.06.1981, Blaðsíða 19
19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1981.
G
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
3. deildin—3. deildin—3. deildin—3.deildin—3. deildin—3. deildin—3. deildin—3. deildin—3. deildin
Hörður Júlíuss. nefbrotn
aði og hlaut slæman skurð
—við það að skora sigurmark KS gegn Leiftrí
Einlr 18 leiklr voru lelknir i 3. deild-
inni um helgina en einum var frestað,
leik Leiknis og Austra. Þá var leik Vfk-
ings Ólafsvik og Reynis Hellissandi
frestað tll til sunnudagskvölds en hann
átti aö fara fram á laugardag. Sem fyrr
hefjum við hringferðina á suðvestur-
horninu og förum siðan norður og
austur eftlr iandinu.
A-riðill
Armann — Hveragerði 2—0
Ármenningar áttu mun meira í leikn-
um en hverjir skoruðu mörkin vitum
við ekki, þar eð ekki hafðist upp á nein-
um Ármenningi í gaer.
Grótta — Aftureldlng 1 —6 (0—0)
Gróttumenn sprungu i síðari hálf-
leik, eftir að hafa átt fullt eins mikið í
leiknum i þeim fyrri. Þá fengu þeir í
tvígang góð færi til að skora en mark-
vörður Aftureldingar, Rafn Thoraren-
sen, varði vel. I síðari hálfleik fór út-
haldsleysi Gróttumanna að segja til sín
og þá röðuðu Mosfellingar inn mörk-
um. Óskar Óskarsson gerði hið fyrsta
og Halldór Bjömsson, sem ásamt
Ágústi Jónssyni Gróttu, var bezti
maður Ieiksins, bætti við öðru. Aftur
skoraöi Óskar og Halldór einnig, og
Helgi Þór Eiríksson kom Aftureldingu
I 5—0. Rikharður Jónsson bætti einu
við áður en Einar Jónasson skoraði
mark Gróttu.
ÍK — Óflinn 4-0 (2-0)
Óðinsmenn eru óvanir að leika á
grasi og það kom berlega (Ijós i þessum
leik sem leikinn var á grasvelhnum í
Kópavogi. Framan af var leikurinn í
góðu jafnvægi en sfðan náði ÍK yfir-
höndinni. Kristján Hauksson kom ÍK í
1—0 er um hálftími var af leiknum og
Ólafur Petersen bætti öðru við fyrir
hlé. Óskar Guðmundsson skoraði síðan
glæsimark í upphafi siðari hálfleiks,
skot í þverslána og inn. Ólafur skoraði
síöan aftur fyrir ÍK áður en yfir lauk.
B-riðill
(R — Lelknir 1-210-1)
Þessi leikur var leikinn á Melavellin-
um á föstudagskvöldið. Björn Sigur-
björnsson skoraði eina markið í fyrri
hálfleik og Magnús Magnússon kom
siðan Leikni í 2—0. Markaskorara ÍR
höfum við ekki. Leikurinn þótti frekar
slakur, en Leiknir skárri aðilinn.
Viflir - UMFN 0-0
Víðispiltarnir töpuðu nú sínu fyrsta
stigi í riðlakeppninni gegn höfuðóvin-
inum, Njarðvíkingum, því jafntefli
varð 0—0. Greinileg spenna var á milli
liðanna enda máttu Njarðvikingar illa
við þvi að tapa leiknum og vera þar
með 4 stigum á eftir Víði. Eftir þennan
leik gera-þeir sér miklar vonir um að
jafna muninn þegar liðin reyna með sér
I Njarðvíkunum. Viðisliðið sótti öllu
meira í leiknum, sérstaklega undan
kaldanum í seinni hálfleik — en allt
Nú gátu ÍA-
menn skorað
Meistaraflokksmenn Akraness i
knattspyrnunni unnu öruggan sigur á
liði, sem þeir Karl Þórðarson, Pétur
Pétursson og Teltur Þórðarson léku
með ásmt gömlum ieikmönnum ÍA og
yngri leikmönnum, á grasveliinum á
Skipaskaga i gær. Úrsiit 6—2 fyrir
meistarafiokklnn. Guðbjörn Tryggva-
son skoraði fjögur af mörkunum,
Júlfus og Smári eitt hvor. Teitur
skoraði fyrir úrvalsliðið úr vitaspyrnu
og Karl Þórðarson fallegt mark.
Áhorfendur voru um 300 og skemmtu
sér vel.
kom fyrir ekki. Markvörðurinn og
UMFN vörnin stóðust allar árásir eða
Víðisskotin geiguðu.
Láttlr — Stjaman 3—5 (0—3)
Stjarnan hafði goluna í bakið I fyrri
hálfleik og skoraði þá þrjú mörk. Léttir
náði siðan að minnka muninn í 2—3
með mörkum Júlíusar Bernburg og
Stefáns Andréssonar, sem skoraði
með skalla. En Stjarnan var ekki á því
að skilja annað stigið eftir á Melavell-
inum og jók aftur forskot sitt. Sverrir
Gestsson skoraði þriðja mark Léttis en
fyrir Stjörnuna skoruðu Einar Pálsson
og Bragi Bragason tvö hvor og
Sigurður Harðarson eitt.
C-riðill
Bolungarvlk — Grundarfjörflur
4-0 (2-0)
Tveir leikir voru í c-riðli á föstudags-
kvöld og var þessi annar þeirra. Þetta
var jafn leikur þó svo Bolvíkingar
hefðu lengstum undirtökin í
honum. Hjörleifur Guðfinnsson
skoraði fyrsta markið og bróðir hans
Sigurður hið næsta. í síðari hálfleik
skoraði Unnsteinn Sigurjónsson bæði
mörkin en Unnsteinn kom inn á sem
varamaður. Talsmaður okkar i her-
búðum Bolvíkinga sagði að þeir hefðu
verið að spara Ieikmenn fyrir leikinn
við HV daginn eftir og þvi hefðu Bol-
víkingar ekki leikið á fullu og leyft
yngri piltum að spreyta sig I leiknum.
Raynir, Hnffsdal — HV 0-2 (0-0)
Þessi leikur var einnig leikinn á
föstudagskvöldið og lengi leit út fyrir
aö Haukar-Vísir myndi þurfa að sætta
sig við jafntefli. En Sæmundur Víg-
lundsson braut isinn um miðjan seinni
hálfleikinn og Elfs bróðir hans bætti
öðru marki við undir lokin, er hann
skoraði úr óbeinni aukaspyrnu. Bæði
liðin fengu fleiri góð færi þótt mörkin
yrðu aðeins tvö.
Reynlr, Hnffsdal — Grundarfjörflur
0-0
Hér var um einstefnu á mark Reynis
að ræöa þótt aldrei færi knötturinn inn
í markið svo löglegt væri kallað. Reynir
skoraði nefniiega eitt mark en dómar-
inn dæmdi það af þar sem hann taldi
að eitthvað hefði verið um hrindingar.
Næst þvi að skora komust Hnífsdæl-
ingar er markvörður Grundarfjarðar
sló knöttinn i þverslána og yfir.
Bolungarvik - HV 0-2 (0-0)
Þótt leikur þessi væri jafn, fór samt
aldrei mill mála að HV var sterkari
aðilinn. Elfs Viglundson skoraði fyrra
markið og Guðjón Böðvarsson hið
síðara. Þá skoraði Sæmundur Víg-
lundsson einnig mark en það var dæmt
af vegna rangstöðu. Fannst mörgum
það skrýtinn dómur.
D-riðill
KS — Lalftur 1-0 (1-0)
Sigurmarkið skoraði Hörður Júlíus-
son en það mark var dýru verði keypt.
Hörður skallaði knöttinn i netið en
beygði höfuðið aðeins niður og fékk
spark í andlitið. Nefbrotnaði hann og
auk þess fékk hann skurð sem þurfti 11
spor til aö sauma saman. En KS gera
sér vonir um að Hörður missi aðeins
einn leik úr 3. deildarkeppninni, leikinn
við Reyni, Árskógsströnd, á miðviku-
dag.
Tindaatóll - USAH 7-0
E-riðill
Dagsbrún - HSÞb 1-3 (1-1)
Hér áttu heimamenn við ramman
reip að draga og gestirnir gátu leyft sér
þann munað að brenna af víti. Jónas
Skúlason kom HSÞb í 1—0, en Dags-
brún jafnaði með sjálfsmarki. Zófanías
Árnason skaut þá að marki HSÞb en
boltinn hrökk I hné eins varnarmanna
liösins og þaðan í netið. í siðari hálfleik
kom Jónas Skúlason HSÞb i 2—1 auk
þess sem hann misnotaði fyrmefnt víti.
Ari Hallgrímsson innsiglaði sigur gest-
anna. Mörk HSÞb hefðu getað orðið
enn fleiri þvi liðið átti þrjú stangarskot.
Magni — Arroflinn 1—210—1)
Baldvin Þór Harðarson skoraði eina
markið i fyrri hálfleik en Hringur
Sveinsson jafnaði um miðjan seinni
hálfleik. Hafberg Svansson sá til þess
að Árroðinn fór með sigur af hólmi.
Annars þótti leikurinn frekar lélegur og
mörkin ekkert sérstakt augnayndi.
F-riðill
Höttur - EinharJI 0-7
Valur - UMFB 4-1 (2-1
„Ljómandi skemmtilegur en full-
harður leikur,” sagði tíðindamaður
okkar fyrir austan um þennan leik.
Þorbjörn Björnsson skoraði fyrsta
markið er hann kom UMFB yfir með
marki úr vftaspyrnu. Guðbergur
Reynisson var i heljarham í fyrri hálf-
leik er hann gerði bæði mörk Vals og
skaut auk þess i þverslá og yfir. Þá
brenndi Gústaf Ómarsson einnig af víti
í þeim hálfleik. í siðari hálfleik fengu
Valsmenn aftur viti. Sigurbjöm
Marinósson tók það og skot aði úr tvi-
teknu viti, markvörðurinn varði í fyrra
skiptið en hafði hreyft sig of fljótt.
Síðasta markiö var sjýfsmark.
G-riðill
Leiknir — Auatrl fraatafl
Slndrl — Súlan 6-2 (4-0)
Hornfirðingar fóru á kostum í fyrri
hálfleik og Súlan hafði ekkert í þá.
Ragnar Bogason skoraði fyrsta markið
og siðan þeir bræður Magnús og Dag-
bjartur Pálssynir sitt markið hvor.
Ragnar gerði siðan sitt annað mark rétt
fyrir hlé. Eftir að flautað hafði verið til
leiks á ný var röðin komin að Ágústi
bróöur Ragnars til að skora og Ragnar
skoraði þriöja mark þrennu sinnar
áður en yftr lauk. Mörk Súlunnar
gerðu Rúnar Arnarson og Óttar
Ármannsson.
Framleiðslustjóri
Höfum verið beðnir að leita eftir framieiðslustjóra að stóru fiskvinnslu
fyrirtæki á Suðvesturlandi.
Einungis maður með verulega reynslu kernur til greina.
Uppl. veita Sævar Hjálmarsson eða Gisli Erlendsson.
Qö
rekstrartækni sf.
Síðumúla 37 — Sími 85311
BYGGUNGKÓPAVOGI
Framhaldsaðalfundur
Byggung Kópavogi verður haldinn þriðjudaginn 23. júní í
Sjálfstæðishúsinu Hamraborg l, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin
/ðnaðarhúsnæði
óskast
strax, ca 75—150 fermetrar. Uppl. í síma
77235.
- SA
Kennarar
Handavinnukennara stúlkna vantar að Grunnskólanum í
Hveragerði. Uppl. gefa Bjarni Eyvindsson formaður skóla-
nefndar í síma 99-4200 og skólastjórarnir í símum 99-4326
og 99-4288.
LAUSARSTÖÐUR
V ið l'jölbraulaskólann á Sclfossi ern lausar lil umsóknar nokkrar kennarastöður. Kennsluj>reinar
eru: danska, enska, islenska, slaTðfræði, efnafræði, eðlisfræði, franska ok félajjsfræði.
I.aun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
I msóknir, ásaml ýtarlemiiji upplýsinjMim um námsferil o« störf skulu hafa borist menntamála-
ráðuneylinii, llverfisKötu (>, 101 Reykjavík. ívrir 15. júlí nk. — Umsóknareyðublöð fást í ráðuneyt-
Menntamálaráðuneytíð,
W.júní 1981.
Til félagsmanna
BSAB
Félagið hefur fengið úthlutað lóð undir fjölbýlishús í
öðrum áfanga nýs miðbæjar. Hér með er óskað eftir
umsóknum um íbúðir í þessum byggingaflokki sem verður
hinn 10. Samkvæmt lögum BSAB hafa félagsmenn sem
ekki eru íbúðareigendur forgangsrétt fyrir þeim sem eiga
hús eða íbúðir fyrir á félagssvæðinu. Þeir sem nú eru
félagsmenn í BSAB hafa forgangsrétt fyrir nýjum félags-
mönnum til 28. júní 1981. Skrifstofa BSAB að Síðumúla
34 verður opin daglega kl. 15—17 til að taka við
umsóknum.
Stjórn BSAB
HÓTEL HV0LSVÖLLUR
Bjóðum gistingu og fjölbreyttar reitingar
í mutsal og garðskála.
HAGSTÆTT VERÐ - VERIÐ VELK0MIN
HÓTEL HV0LSVÖLLUR
QQ 5351
5187