Dagblaðið - 22.06.1981, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
EINS 0GISKEMMTI-
LEGRISKRANBÚÐ
Helgarnar eru að jafnaði sá tlmi
vikunnar sem fólki gefst helst timi til
að fylgjast vel með dagskrá útvarps
og sjónvarps — og gera allt það ann-
að, sem beðið hefur t lengri eða
skemmri tíma. Til að gerast nú ekki
þræli fjölmiðlanna er ágætt að líta
vandiega á dagskrá helgarinnar —
fyrirfram. Velja síðan og hafna og
láta tilviljunina um afganginn. Um
þess helgi var ég fegin að hafa komið
mér upp þessari reglu, annars hefði
ég líklega misst af þætti Sveins Ás-
geirssonar um galdrakarlinn Dunga-
non, eins og þegar þátturinn var
frumfluttur fyrir fimm árum. Þáttur-
inn var perla helgarinnar í ríkisfjöi-
miðlunum. Auðvitað var skaði að
viðtalið sem Sveinn tók við Dunga-
non 1955 I Kaupamannahöfn skyldi
ekki hafa verið varðveitt allt, en
Sveinn bætti það sannarlega upp með
þvi að segja frá þessum einstaka
sjálfskipaða íslenska hertoga, eins og
honum er vel lagið. Margt nýtt kom
fram í þessum þætti, sem ekki varð
fundið á frábærri sýningu á verkum
Dunganons 1976.
Oft finnst mér að útvarpsdagskrá á
einni rás, og örstuttur útsendingar-
tími sjónvarps, geri yfirbragð dag-
skrárinnar líkasta því að litið sé inn í
skemmtilega skranbúð. Reynt er að
koma sem allra mestu og fjölbreytt-
ustu efni fyrir á svo til engu plássi, og
stundum er af miklu hugrekki
blandað saman allra vönduðustu
dagskrárgerð og uppfyllingarefni,
sem kostar minna fé. Og sannast
sagna er blandan býsna skemmtileg,
það er prýöilegt að geta hlustað á
diskó, rokk og harmóníku i sama
danslagatímanum og prestvigslu
þegar maður rumskar morguninn
eftir, ef maður hefur smekk fyrir
hvoru tveggja. í skranbúðum fínnast
oft dýrmætir gripir og meðal þeirra
vil ég einmitt setja þáttinn um
Dunganon.
Helgarsjónvarpið byrjaði á annarri
perlu strax á föstudagskvöld (eftir
fréttir og Á döfínni.þátt sem ég ekki
skil). Það eru myndirnar hans Harold
Lloyd. Einu sinni fannst mér Chaplin
frábærastur, nú finnst mér Harold
Lloyd vera það. Aldrei of mikið af
Harold Lloyd!
Gigtarmyndin var góð, og á hana
hafa sjálfsagt margir horft án þess að
ætla þaö beinlinis. Smyglstefnan hjá
sjónvarpinu (að smygla góðu
fræðsluefni milli vinsælla þátta) er
kannski betri en margur hyggur.
En Veiðivörðurinn! Mér er sama
hvað myndin var merkileg, góð, vel
uppbyggð og sláandi um einhvern
andskotann: Hún var þrautleiðinleg.
Ég lýsi aðdáun minni á leikstjóranum
fyrir að hafa tekist að draga upp
svona glögga mynd af svona óþol-
andi fólki, en ég vildi óska að hann
nýtti hæfileika sína til að gera svolítið
skemmtilegri hluti. Ég viðurkenni að
það var glópska að horfa á myndina,
en satt að segja trúði ég ekki öðru en
úr myndinni rættist um síðir. Ég skil
núna mikilvægi setningarinnar í
biblíunni: Mikil er trú þín kona.
Ég hygg sjónvarpsgláp sé mikið á
föstudagskvöldum. Þá eru menn
hreinlega of lúnir til að hafa framtak
til að gera annað en að setjast við
kassann sinn. Nema auðvitað ungl-
ingarnir, sem geta allt. Á laugardag
hlustaði ég á mikið af léttri tónlist (og
smávegis af þungri i þeirri ágætu
laugardagssyrpu). Óskalögin, syrp-
umar og danslögin eru nytjahlutir í
skranbúðinni. Bráðnauðsynlegt efni.
Og mikið var gaman að heyra í
„söngkonunni” Florence Foster
Jenkins, ég vona að sem flestir hafi
heyrt í henni.
Svo var komið að spurningunni
stóru, er maður herra eða þræll fjöl-
miðlanna? Ég viðurkenni fúslega að
ég svífst nánast einskis til að fá að sjá
mitt ómissandi Löður. En —
stundum er maður að gera merkilegri
hluti og þá þarf mikinn skapgerðar-
styrk til aö muna að dagskráin er
fyrir þig, en ekki þú fyrir hana. Ég
sleppti Löðri og reyndar megninu af
þeirri ágætu laugardagsdagskrá sem
boðið var upp á i sjónvarpinu. En á
danslögin í útvarpinu hlustaði ég hins
vegar mér til ánægju, eins og venju-
lega.
Sunnudagurinn var fremur lá-
deyðulegur, f báðum miðlum. Þó var
gaman að morgunþætti Friðriks
Páls, eins og venjulega, þó ég sofnaði
aftur i lok þáttarins. Á fréttir
hlustaði ég auðvitað eins og flestir ís-
lenskir fréttasjúklingar. Þáttur
danska sjónvarpsins um Snorra
Hjartarson var eina sjónvarpsefnið
utan fréttanna, sem ég valdi úr dag-
skránni. Því sé ég ekki eftir. Smá-
snefill af gestsauga er gott, þó sumt
hafi verið klaufalegt hjá stjórnanda
þáttarins. í heild var þátturinn ein af
perlum helgarinnar. En væri ég 100%
Dani, heföi ég ekki horft.
Sumum finnst skranbúðir óttalega
ómerkilegt fyrirbæri. Það finnst mér
ekki. Það er ekki þar með sagt að
mann langi að kaupa allt sem í þeim
fæst. En innan um eru bæði perlur,
nytjahlutir og stórskemmtileg
skringilegheit.
Anna Ólafsdóttir Björnsson
blaðamaður
Kviknfiyndir
Veðrið
Gert er ráfl fyrir suflveatiagri átt
um ailt land í dag, rigning mafl
köflum á Suflur- og Vaaturiandl an
þurrt og hiýtt á Norflauaturlandl.
Klukkan 6 var eufleuðveatan 2,
rignlng og 8 atig í Reykjavfc, aunnan
4, aúid og 8 atig á Gufuakálum, aufl-
voatan 2, alakýjafl og 9 atig á Gahar-
vlta, sunnan 4, skýjafl og 12 stig á
Akureyri, k>gn, rigning og 8 stig á
Raufarhflfn, veatan 2, akýjafl og 13
stlg á Dalatanga, auflvestan 3, þoku-
mófla og 8 stig á Hflfn og auflvestan
5, rignlng og 8 atig á Stórhflffla.
I Þórshflfn var súld og 10 stig,
þokumófla og 10 stig í Kaupmanno-
hflfn, láttskýjafl og 13 stig I OskS,
helflskfrt og 13 stig í Stokkhólml, látt-
skýjafl og 11 stig f London, þoku-
mófla og 11 stig í Hamborg, skýjafl
og 9 stig f Parfs, helflakfrt og 17 stig f
Madrtd og láttskýjafl og 16 stig f
Ussabon.
Magnús ladriðason, sem lézt 27. mai
sl., fæddist 1. október 1948. Magnús
var félagsmaöur 1 JC Borg og var m.a.
um tima forseti deildarinnar, og gegndi
auk þess fleiri forystustörfum fyrir
félagið. Magnús rak verzlunina Áskjör
en áður var hann verzlunarstjóri hjá
Silla og Valda. Árið 1972 kvæntist
hann Erlu Lóu Jónsdóttur.áttu þau tvo
syni, en Magnús átti eina dóttur fyrir.
Magnús verður jarðsunginn í dag 22.
júní frá Dómkirkjunni í Reykjavík kl.
13.30.
Guðmann Magnússon fv. hreppstjóri,
Dysjum, sem lézt 11. júnl, sl., fæddist
5. desember 1908 að Dysjum I Garða-
hverfi. Foreldrar hans voru Magnús
Brynjólfsson og Ragnheiður Þor-
björnsdóttir. Árið 1925 lauk Guðmann
gagnfræöaprófi frá Flensborgarskóla.
Árið 1938 tók hann við búsforráðum af
föður sínum á Dysjum og hélt þeim
síðan. Árið 1943 varð hann hreppstjóri
í Garðahreppi og gegndi því embætti til
ársins 1976. Guðmann sat í hrepps-
nefnd fráárinu 1950 til 1966. Árið 1960
var hann kosinn í sóknarnefnd, þar átti
hann sæti þar til sl. vetur. Árið 1965
var Rotaryklúbbur Garða stofnaður og
var Guðmann einn stofnenda hans.
Árið 1937 kvæntist hann Úlfhildi
Kristjánsdóttur og áttu þau 6 börn.
Guðmann var jarðsunginn frá Garða-
kirkju sl. laugardag.
Lára Jónsdóttlr, sem lézt 13. júni sl.,
fæddist 1. marz 1915 I Vestmanna-
eyjum. Foreldrar hennar voru Ingi-
björg Theódórsdóttir Mathiesen og Jón
Hinriksson. Árið 1937 giftist Lára
Steindóri Steindórssyni og hófu þau
búskap í Reykjavík en fluttu skömmu
síðar til Vestmannaeyja. Þau áttu tvo
syni. Lára og Steindór slitu samvistum
eftir nokkurra ára búskap. Árið 1962
fór Lára til Svíþjóðar og lærði fót- og
handsnyrtingu. Við það starfaði hún í
Vestmannaeyjum og þegar hún fluttist
til Reykjavíkur vann hún á Hrafnistu
við starf sitt í 8 ár.
Stefán Stephensen frá Holti verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag
22. júní kl. 13.30.
Þórdis Sumarliðadóttir Ljósheimum 2,
sem lézt 13. júní sl., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag 22. júní kl. 15.
Páll Einarsson frá Þórisholti í Mýrdal
lézt 14. júní sl. Útförin fer fram frá
Reyniskirkju þriðjudaginn 23. júní kl.
13.30.
Hringur Vigfússon, Hringbraut 78
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. júní
kl. 13.30.
Þórður Kjartan Einarsson, Langholts-
vegi 63, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni í dag 22. júní kl. 15.
Knútur Bjarnason, Oddabraut 10 Þor-
lákshöfn, lézt 18. júní sl.
Pálina Magnúsdóttir, Hraunbraut 44
Kópavogi, lézt í Landspitalanum 18.
júní sl.
Guðný Sigurðardóttir, sem lézt á
Kristneshæli 18. júní sl., verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 23. júni kl. 13.30.
AA-samtökin
í dag mánudag veröa fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010)
græna húsiö kl. 14, 21 og kvennadeild uppi kl. 21.
Tjarnargata 3 (s. 91-16373) rauða húsiö kl. 18 og 21.
Langholtskirkja (opinn) kl. 21.
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39.........21.00
Dalvík, Hafnarbraut4...................... 21.00
Hafnarfjörður, Austurgata 10.............. 21.00
Hvammstangi, Bamaskóli.................... 21.00
Mosfellssveit, Brúarland.................. 21.00
Raufarhöfn, Hótel Norðurljós.............. 21.00
Selfoss, (99-1787) Selfossvegi 9.......... 21.00
Suöureyri Súgandafiröi, Aöalgata.......... 21.00
Vestm.eyjar, (98-1140) Heimagata 24 ...... 20.30
í hádeginu á morgun, þriðjudag, veröa fundir sem
hér segir: Tjarnargata 5, græna húsiö kl. 14,
Tjamargata 3, rauöa húsiö, samlokudcild kl. 12,
Keflavikurflugvöllur kl. 11.30.
Kvikmyndasýningar
í MÍR-salnum
Kvikmyndasýning veröur i MÍR-salnum Lindargötu
48 2. hæö mánudagskvöldið 22. júni kl. 20.30 i til-
efni þess aö rétt 40 ár eru liðin frá innrás þýzku nas-
istaherjanna i Sovétrikin. Sýndar veröa nýjar
sovézkar heimildarkvikmyndir með ensku tali, tvær
fyrstu myndimar úr nýrri myndaröð um ógnir striös-
ins og endurreisn og uppbyggingu í Sovétrikjunum
eftir aö sigur vannst. Myndaflokkurinn i heild nefn-
ist Þaö sem okkur er kærast en fyrsta myndin ber
heitið Fyrsti friðardagurinn og önnur myndin í
kapphlaupi viö timann. Lýst er óskaplegri eyöilegg-
ingu og stórfelldum vanda sem hvarvetna blasti viö
Sovétmönnum í striöslok en innrásarherirnir lögöu
1710 sovézkar borgir í rústir, 70 þúsund þorp og 32
þúsund verksmiðjur. 20 milljónir Sovétmanna létu
lífiö af völdum striösins. 1 kvikmyndunum lýsa
margir eigin reynslu og sagt er frá því hvernig endur-
reisnarstarfiö hófst, viöa jafnskjótt og innrásar-
liðið haföi verið hrakið á brott. Myndimar eru settar
saman úr gömlum og nýjum fréttamyndum og eru
stjómendur Igor Grígoriev, Ilja Gutman, Sedda
Pumpjanskaja og Tangis Semjanov.
Aögangur aö kvikmyndasýningunni i kvöld, 22.
júní, er ókeypis og öUum heimill.
Kvenfðlag Neskirkju
Jónsmessuferö verður farin miðvikudaginn 24. júni
nk. ef næg þátttaka fæst. Nánari upplýsingar fást
hjá Hrefnu i s. 13726 og Sigriði i s. 11079 fyrir
mánudagskvöld.
Tónleikar
Norskur kór syngur í Skál-
holtskirkju
Norskur kór, St. Laurentiuskórinn frá Lörenskog
viö Osló, er nú staddur hér á landi í boði Tónlistar-
skóla Rangæinga.
Kórinn mun halda hér ferna tónleika, fyrst í Skál-
holtskirkju sunnudaginn 21. júni kl. 16, þá að Hvoli
22. júní kl. 21, í Leikskálum Vik miðvikudaginn 24.
júni kl. 20.30 og að Iokum i Háteigskirkju fimmtu-
daginn 25. júni kl. 20. St. Laurentiuskórinn hefur á
16 ára starfsferli sínum farið víða um lönd i tón-
leikaferðir og hvarvetna hlotið hina beztu dóma.
Kórinn hefur einnig sungiö i útvarp og sjónvarp í
Noregi og út hafa veriö gefnar með honum hljóm-
plötur.
Söngskrá kórsins i Islandsferðinni er mjög
fjölbreytt og spannar yfir bæði andlegt og veraldlegt
efni. Kórmeölimir eru yfir 80 talsins. Einsöngvari er
sópransöngkonan EUsabeth Misvær Jahr. Stjóm-
andi er KjeU W. Christensen og undirleikari Robert
Robertsen.
Tilkyimiii^ar
Staða skyndihjðlpar rœdd
f Hrafnagilsskóla
Ráöstefna um stööu skyndihjálpar var haldin i
HrafnagUsskóla helgina 22.-24. mai sl. Markmiö
ráðstefnunnar var að efla samstööu skyndihjálpar-
kennara og leggja drög aö félagi þeirra. SUkt félag
hefur ekki verið starfandi þrátt fyrir mikinn fjölda
kennara, bæöi i almennri og aukinni skyndihjálp.
Ennfremur aö tryggja það að kennarar hafi aðgang
að þeim nýjungum sem fram koma hverju sinni.
Thor B. Eggertsson bauð gesti velkomna og sér-
staklega þá Gisla ólafsson, fyrrv. yfirlögregluvarð-
stjóra á Akureyri, sem var ráðstefnustjóri og Jón
Oddgeir Jónsson, fuUtrúa, sem var heiðursgestur
ráöstefnunnar og Flugleiða i þessu tilefni.
Síöan var stuttlega rakin saga skyndihjálpar á ís-
landi og las Jón Oddgeir nokkra kafla úr gömlum
handbókum um skyndihjálp. Elzta bókin sem Jón
Oddgeir kynnti var lækningakver eftir dr. Jón
Hjaltalin og var þaö útgefiö árið 1840. Þá fór fram
kynning á Björgunarskóla Landsambands hjálpar-
sveita skáta og koma fram að skólinn hefur útskrif-
aö 44 kennara i aukinni skyndihjálp.
Á laugardagsmorguninn voru haldnir fyrirlestrar
um mörg þau efni er varða skyndihjálp og skyndi-
hjálparkennslu. Eftir hádegi voru framsöguerindi
um stööu skyndihjálpar og lögö fram drög aö
kennarafélagi, siðan var starfaö í hópum og skiluöu
hóparnir áUti á sunnudagsmorgni.
Það var samdóma áUt ráðstefnugesta að stofna fé-
lag skyndihjálparkennara sem opið ■ yrði öUum
skyndihjálparkennurum. Ennfremur var talið nauð-
synlegt aö samræma kennslu i skyndihjálp um land
allt.
Þrjár eftirfarandi áskoranir voru samþykktar:
I. Ráðstefna um stöðu skyndihjálpar skorar hér
með a menntamálaráðherra og ráðuneyti hans að
taka föstum tökum kennslu i skyndihjálp í grunn-
skólum landsins, þannig að þeir ncmendur sem ljúka
grunnskólaprófi hafi alUr lokið námskeiði i skyndi-
hjálp I, þ.e. almennri skyndihjálp.
II. Ráðstefna um stöðu skyndihjálpar skorar hér
með á útvarpsráð að fræðsla í skyndihjálp verði
aukin til muna, bæöi i hljóðvarpi og sjónvarpi, með
innlendu og erlendu fræösluefni.
III. Ráðstefna um stöðu skyndihjálpar vill hvetja
Fræðslumyndasafn ríkisins til þess að sjá tU þess að
góðar fræðslu- og kennslumyndir séu tU tU afnota
við kennslu i skyndUtjálp.
Flóabáturinn Drangur
Grímseyjarferðir Drangs hefjast 19. júní nk. Farið
verður á þriöjud. 23. júnl — 18. ágúst og föstud.
(miðnætursólarferðir) 19. júní— 31. júU. Á þriðju-
dögum er farið frá Akureyri kl. 8 og komið til
Grimseyjar kl. 14. Farið verður til baka frá Grímsey
kl. 18 og komið tU Akureyrar um miðnætti. Á föstu-
dögum verður farið frá Akureyri kl. 15 og komið til
Grimseyjar kl. 21, þar verður gist um nóttina, siðan
verður farið til baka kl. 12 á laugardegi og komið tU
Akureyrar kl. 18. Hægt er að gista um borð i skipinu
og þar eru einnig veittar veitingar. Lika er hægt að
gista i FélagsheimUinu i Grimsey og hagt er að fá
veitingar þar, félagsheimUið er opið alla daga. Fólki
er bent á aö panta tímanlega hjá afgreiðslu Flóabáts-
ins aö Skipagötu 13 eða i s. 96-24088.
Fjölbrautaskólanum á
Akranesi slitifl
Fjölbrautaskólanum á Akranesi var slitið laugardag-
inn 23. maí 1981og lauk þar meö fjórða starfsári
skólans. Á skólaárinu brautskráöust 96 nemendur
frá skólanum; af heUbrigöissviði 2, Ustasviði 1, sam-
félagssviði (mála-, félags- og uppeldisbrautum) 10,
tæknisviöi 41, viðskiptasviði 29 og af raungrcina-
sviði 13 nemendur. Þar af luku 30 nemendur stúd-
entsprófi.
Skólameistari ólafur Ásgeirsson flutti yfirUts-
ræðu og kom fram i máli hans aö nemendur heföu
veriö 488 í vetur og kennarar aUs 52. Auk þess starf-
ar 9. bekkur grunnskóla I skólanum með 97 nem-
endur.
í janúarmánuði tók öldungadeild tU starfa 1 skól-
anum og cru nemendur þvi á sjöunda hundrað i
vetur. Stofnun öldungadeildar hefur verið baráttu-
mál skólans frá upphafi, áriö 1977, og eru miklar
vonir bundnar við fuUorðinsfræðsluna.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi starfar nú á 7 náms-
sviðum.
Viðurkenningu skólans fyrir bcztan námsárangur
hlaut Þorbjörg Skúladóttir nemandi á samfélags-
sviði, verðlaun úr sjóði EUnar írisar Jónasdóttur
hlaut Elln Ámadóttir nemandi á samfélagssviöi,
Björn Steinar Sólbergsson hlaut viðurkenningu fyrir
kunnáttu i tónlistargreinum og Víðir Bragason fyrir
ágæta kunnáttu i stæröfræði.
Viðurkenningu Trésmiðafélags Akraness fyrir
beztan árangur í framhaldsdeild l tréiðnum hlaut
Ingibjörg Reynisdóttir, Helgi Helgason rafvirki
hlaut viðurkenningu Félags íslenzkra rafvirkja.
Viðurkenningu Lionsklúbbs Akraness fyrir ötul
störf að leiklist og félagsmálum hlaut Jón PáU
Bjömsson, formaður leikklúbbs skólans.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
NR. 113-19. JÚNl 1981 gjaldayrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarlkjadollar 7406 7428 8,068
1 Stariingspund 14,344 14483 16J21
1 KanadadoKar 8,066 6,072 6,679
1 Dflnskkróna 04739 0,9766 1,0743
1 Norsk króna 14312 14346 14680
1 Smnskkróna ‘ 1,4444 1,4483 14931
1 Hnnsktmark 1,6483 14628 14181
1 Franskur franki 14789 14834 1,4117
1 Balg.franki 0,1866 0,1874 04061
1 Svissn. franki 3,6121 34218 34738
1 Hollenzk florina 2,7602 2,7678 34334
1 V.-þýzkt mark 3,0604 3,0687 34767
1 (tfltoklfra 0,00614 0,00616 040678
1 Austurr. Sch. 0,4332 0,4343 0,4777
1 Portug. Escudo 0,1160 0,1164 0,1280
1 Spánskur pasatj 0,0773 0,0776 0,0863
1 Japansktyen 0,03266 0,03274 0,03601
1 (rsktound 11,188 11,218 12440
SDR (sérstök dréttarréttindi) 8/1 8,4283 8,4616
- - - - • - Sknsvarí vagna gengisskráningar 22190.