Dagblaðið - 22.06.1981, Page 22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
Menning Menning Menning Menning ]]
USTAVEISLAI AU.T SUMAR
Mob SKop, alþjóðleg sumarvinnustof a listamanna. fer fram á íslandi
„Mob Shop”, hvað er nú það?
Þetta hljómar eins og það gæti verið
samvinnufyrirtæki amerískra gangst-
era. Reyndar er þetta stytting á
Mobile Summer Workshop eða
sumarvinnustofu á hjólum sem er svo
aftur fyrirtæki sem Magnús Pálsson
myndlistarmaöur stendur að.
Fyrir nokkrum dögum kynnti
Magnús það fyrir blaðamönnum óg
skýrði hann frá því að norrænum
listamönnum og nokkru öðru erlendu
listafólki hefði verið boðið til lands-
ins til að vinna saman í sumar.
Aðdragandann kvað hann vera þann
að hann hafi lengi langað að rjúfa þá
listrænu einangrun sem Norðurlönd
hefðu búið við margt lengi, með þvi
að búa til aðstöðu til alþjóðlegrar
samvinnu listamanna hér á íslandi.
Hefðu norræni menningarsjóður-
inn og Alþingi Islendinga styrkt þessa
viðleitni hans sem svarar 150.000
krónum. Gistiaðstaða hefði fengist
fyrir listafólkið í Hjúkrunarskólan-
um og aðstaða til vinnu i Lauga-
gerðisskóla á Snæfellsnesi og Iðn-
skólanum í Reykjavík.
Meðal þeirra gesta sem koma til
þátttöku í Mob Shop má nefna
Frakkann Robert Filliou, ljóðskáld,
myndlistarmann og heimspeking með
meiru, Bandaríkjamanninn Philip
Corner, sem hefur fengist við tónlist,
gjörninga o.fl. (og spilaði á tónleik-
um Musica Nova fyrir stuttu) og leik-
konuna Rheu Graisner sem ætlar sér
að vinna með íslensku leiklistarfólki
meðan á Mob Shop stendur.
Einnig er von á gömlum íslands-
vini, Douwe Jan Bakker, myndlistar-
manni frá Hollandi og pólskum
Nokkrir þátttakendur I Mob Shop I ár: í fremrl röð f.v. Oddur Broddl, Phlllp Comer, Rhea Graisner, Beth Laurin, Michael Goldsteln, aftari röO f.v. Finn
Nielsen, Ólafur Lárusson, Helge Röed, Claes Tellvid, Asta Ólafsdóttir, Marianne Agren, Robert Filliou, Hákon Oddsson og Magnús Pálsson.
(DB-mynd Gunnar Örn)
hjónum, Teresu og Michal Tarkow-
sky sem fást við gerð tilraunakvik-
mynda. Ætla þau að gera hér a.m.k.
einamynd.
Á blaðamannafundinum voru
fiestir þessara gesta mættir, auk
hinna norrænu gesta: Helge Röed frá
Noregi, Beth Laurin frá Sviþjóð og
samlanda hennar Claes Tellvid og
Finn Nielsen frá Danmörku.
I Mob Shop verður væntanlega
lögð stund á myndlist af hefðbundn-
ara tagi, tónlist, uppákomur, gjörn-
inga. Landsins gögn og nauðsynjar
verða nýttar í listaverkum og rætt
verður um listir í nútíma þjóðfélagi.
Tóku aðstandendur fram að starfið
færi ekki bara fram í Reykjavík og á
Snæfellsnesi, heldur á ljósvakanum,
gegnum síma, og með hjálp póst-
þjónustunnar, við gerð á póstlist. Að
starfi loknu verður væntanlega gefin
út bók þar sem gert verður grein fyrir
gangi starfsins í sumar. Aðspurður
kvaðst Magnús Pálsson langa til að
framkvæma Mob Shop þrisvar sinn-
um, það ætti að nægja til að koma á
jafnvægi í listum Norðurlanda. - AI
Tónlist
EYJÓLFUR
MELSTED
Philip Corner að verki í stykkinu Vermont Summer.
(DB-mynd Gunnar Örn)
r 1 ■■ ..........—..
Nýlistartónleikar á Skerplu
Skerpla '81 Nýlistartónleikar í Norrnna húsinu
18.Júní.
Flytjondur: Philip Corner, planóleikari og Mal-
colm Goldstein, f ifliuleikari.
Verkefni: Gamelan Maya eftir Corner;
Soundings eftir Goldstein, Elementais eftir
Corner og Vermont Summer eftlr Goldstein.
Loks kom að því að nýlt yrði á
Skerplu. Til þess voru fengnir tveir
þekktir nýlingameistarar vestan um
haf, þeir Corner og Goldstein. Vel
jmátti greina að töluvert annar hópur
áheyrenda fyllti bekkina í Norræna
húsinu en á öðrum tónleikum Musica
Nova á þessari Skerpluhátíð. Var þar
í hópi margur þekktur nýlarinn en
konservatívir konsertfastagestir létu
sig vanta.
Útúrsnúningur
Fyrsta viðfangsefni Corners og
Goldsteins var Maya, þáttur úr lengri
bálki, einskonar hugleiðingu um
indónesísku gamellan hefðina, heit-
inn eftir söngkonu úr frans. Það er
ansi stórt upp í sig tekið að kenna
vesturlenska tónlist við gamellan. Þar
á milli er óralangur vegur, sem
með vibrató í fiðlunni en dempaður á
píanóinu. (Við frumflutninginn var
Cis leikið í fimm daga, en hér var
stykkið ekki nema korter). Það bar
vott um góða ögun og makalausa
samheldni þeirra félaga að haida út
að leika þetta svo samtaka, þótt ekki
væri nema í stundarfjórðung í þetta
sinn.
Heilsteypt og lifandi
Vermont Summer úr Árstíðum
Goldsteins reyndist rismesta og lang-
skemmtilegasta nýlingin á tónleik-
um þessum. Með náttúruhljóð eins
og fuglasöng og vatnsnið og ótal-
margt annað, sem bakraddir á
segulbandi, byggðu þeir félagar upp
heilsteypt og lifandi verk.
Corner og Goldstein eru óvenju-
legir hljóðgervinganýlarar að því
leyti að þeir kunna á þau hljóðfæri;
sem þeir „leika” á. Þeir eru í einu og
öllu samkvæmir sjálfum sér og sínum
prinsípum í list sinni. Annað sem
athygli vekur í nýlingum þeirra er hin
algjöra vöntun kakófóníunnar, eða
afskræmingarhljómsins. Samt eru
þeir engu minna frumlegir en flestir
aðrirnýlistarmenn. Þannig vænti ég
þess að þeir megi verða fyrirmynd
þeirra, sem hingað til hafa nýlt á
billegasta máta.
-EM
Michael Goldstein spilar á trébút.
(DB-mynd Gunnar Örn)
enginn skokkar á einni kvöldstund,
eða jafnvel mannsævi. Mér hefur
löngum fundist að við vesturlandabú-
ar ættum að láta austræna músík,
eins og gamellan i friði. Enda fór svo
að mér þótti Maya lítið annað en
þunnur gamellan útúrsnúningur.
Soundings reyndust dæmigerð
fyrir þá tegund hljóðgervrar nýl-
ingar, þar sem mónótón stigmögnun
hljóða virðist eina takmarkið.
Gott úthald
Elementals, uppbyggt af tóninum
A, sem var leikinn í hraðanum. um
það bil 50, plokkaður á hljóðfærin,