Dagblaðið - 22.06.1981, Blaðsíða 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JONÍ 1981.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast frá 1. júlí á Seyðis-
fjörð. Uppl. í síma 97-2428 eða 91-27022.
MMiBlADW'
vanta&r FRAMRUÐU?
FTF
Ath. hvort við getum aðstoóað.
Km ísetningar á staðnum.
BfLRÚÐAN ZSL*
INSTANT ÁLVINNUPALLAR
& SPANDECK BURDARPALLAR
Reynist rosalega vel. Léttur í meöförum. Fljótlegt að
setja upp og taka niður. Reynist mjög vel i notkun.
Ragnar Hafllðason, málaramelstari Hafnarfirði:
Öruggur og þægilegur, vegna léttleika auðveldur I
uppsetningu, fyrirferðarlltill I geymslu. Hver eining
aöeins 25 kg. Notkunarstaðir allar husaviögeröir stórir
salir. Aukin vinnuafköst um 40—50%.
Allar nánari upplýsingar hjá
PÁLMASON &VALSSON HF.
KLAPMRSTÍG16 S. 27745
3JA GÍRA BARNA-
0G FJÚLSKYLDUREIÐHJÓL
Hagstætt verfi
Heildsala — smásala
Opiðfrákl. 17.00-20.00
G. ÞÓRÐARSON
Sævangi 7 — P.O. Box 424 — Sími 53424.
222 Hafnarfjörður.
Frí Jónasl Haraldssyni, blaðamanni
Dagblaflslns, i fylgd með forsetanum:
„Kirkjur eru einu húsin þar sem
maður getur lagzt á glugga,” sagði
Vigdis Finnbogadóttir forseti um leið
og hún leyfði sér þann munað að kikja
á glugga á kirkjunni f Hvammi i
Dölum. „Mig langar að sjá altaris-
töfluna en ég hef helzt áhuga á þeim.
Það var meira að segja $yo þegar ég var
með dóttur mina á ferð þegar hún var
þriggja ára þá var hún orðin svo
hugfangin af þessari kirkjuskoðun
minni að þegar hún sá súrheystum
sagði hún: „Eigum við ekki að skoða
jtessa kirkju, mamma?”
Það var létt yfir fyrstu opinberu
heimsókn Vigdfsar Finnbogadóttur
innanlands en i gær og fyrradag sótti'
hún heim Dalasýslu. Sveinn bóndi
Bjömsson i Hvammi gat ekki opnað
kirkjuna fyrst í stað. Forseti lét það
ekki á sig fá og stakk neftnu að kirkju-
rúðu. Sveini bónda tókst þó að ljúka
upp kirkjunni með aðstoð borðalagðra
embættismanna þannig að betra tóm
gafst til skoöunar.
Vist er að Vigdís er ástsæl meðal
þegna sinna. Fáir tóku henni þó betur
en börnin. Kúasmalar ljómuðu þegar
svartur forsetabillinn fór um héraðið
og ullarvettlingar veifuðu til forsetans.
Það sér enda hver sjálfan sig i embætti
kúasmaia og fá sjálfan forsetann heim
á hlað. Það fer ekki á milli mála hvert
verður aðalefnið i ræsta bréfi til pabba
og mömmu.
Forsetalímúsfnan var raunar ekki
svört heldur brún, þvi þjóðvegirnir
settust á siður bllsins. Veðurguðimir
sendu forseta og föruneyti regn fyrri-
hluta laugardagsins þannig að vel
blotnaði. Það breyttist þó er á daginn
leið og sólin sást. Rigningin skapaði
forsetabflstjóranum ærin verkefni, þvi
þvo þurfti drekann á hverjum áningar-
stað.
Pétur Þorsteinsson sýslumaður Dala-
manna tók á móti forsetanum í Bröttu-
brekku og siðan var ekið að Lauga-
skóla með viðkomu á sögustöðum f
Haukadal. Fjölmörg börn fögnuðu
forsetanum er ekið var i gegnum
Búðardal. Vigdis sat sýslunefndar-
fund i Laugaskóia og skoðaði byggða-
Pétur Þorsteinsson sýslumaður Dalamanna afhenti forsetanum f gær ljósprcntun
Skarðsbókar í Skarðskirkju, fyrir hönd sýslunefndar Dalasýslu og Dalamanna. Þetta
er fyrsta eintak Ijósprentunarinnar, sem bundið er inn. Forseti íslands mun gefa
Noregskonungi slíka bók I haust. Á milli forseta og Péturs sýslumanns situr Elinborg
Magnussen á Skarði, 86 ára gömul.
safnið undir leiðsögn Magnúsar Gests-
sonar safnvarðar. Þá var ekiö um sögu-
slóðir Landnámu, Laxdælu og Sturl-
ungu.
Kirkjur eru einu húsin þar sem maður getur lagzt á glugga, sagði forsetinn og lét ekki
sitja við orðin tóm heldur kikti inn um glugga Skarðskirkju. Pétur sýslumaður Þor-
steinsson gerði slíkt hið sama.
Allir Dalamenn, sem vettlingi gátu
valdið, komu siöan saman með forseta
sinum um kvöldið í Dalabúð f Búðar-
dal. Vigdisi voru fluttar ræður, fyrir
hana sungið og Skjöldur Stefánsson
flutti forseta drápu að fornum sið.
Lengstur sólargangur var meðan
Vigdfs dvaldi I Dölum enda sagði
Skjöldur: „Sagt er nú að sólir tvær,
séuhéri Dölum.”
Sýslumaður færði forsetanum, fyrir
hönd sýslunefndar, að gjöf ljósprentað
handrít Skarðsbókar og Krístinn Jóns-
son oddviti Laxárdalshrepps afhenti
Vigdisi fagran fimm arma kertastjaka
úr Búðardalsleir. Stjakann geröu
hjónin Guðmundur Einarsson leir-
kerasmiður og kona hans Signý
Jörundsdóttir. Dalamenn binda miklar
vonir við þá auðiind, sem leirinn í
grennd við Búðardal er og er stjakinn
táknrænn um það.
„Á stórum stundum rignir á Dala-
menn,” sagði Þrúður Kristjánsdóttir
kennarí er hún bauð Vigdisi velkomna
og flutti henni kveðju Dalakvenna. Þá
skýrði Magnús Gestsson innihald
Skarðsbókar og Héraðskór Dalasýslu
söng undir stjórn Kjartans Eggerts-
sonar.
„Það kom aldrei annað til greina, en
að ég byrjaði í Dölum,” sagði Vigdís
Finnbogadóttir er hún þakkaði Dala-
mönnum vináttu og gestrísni. Hún
sagði að þegar hún þeyttist um, eins og
skessur forðum, á framboðsferða-
lögum síðasta sumar, hefði Dalasýsla
ein orðið útundan.
„Ég sé sýsluna með nýjum augum
og hef átt hér ljúfari stundir en i langan
tíma. Mér er efst í huga þakklæti fyrir
góðar gjafir ykkar, orð og undurfallega
gripi. Góðar eru gjafir ykkar, en meira
er um verð vináttan. Ég á ekkert annaö
að gefa á móti en vináttu. Þó langar mig
aö færa ykkur að gjöf þrjár trjáplönt-
ur, bömum hér í Búðardal, sem minna
okkur á varöveizlu tungu og menn-
ingar.”
Vigdis sagðist ekki vita hvernig
þakka ætti konungsgersemi sem
Skarðsbók. Hún færi til Noregs i opin-
bera heimsókn siðar á árinu og hefði
þegar ákveðiö að færa Noregskonungi
slíka gjöf.
, ,Ég bý við þann munað aö hlakka til
morgundagsins,” sagði Vigdis Finn-
bogadóttir.
-JH.
Kúasmalar íDölum fengu forsetann heim á Mað:
„Sagt er nú að sólir
tvær séu hér í Dölum”