Dagblaðið - 22.06.1981, Síða 31
31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
Útvarp
Sjónvarp
MORGUNTÓNLEIKAR—útvarp í fyrramálið kl. 11,30:
Tónlist eftir
ragtimekonunginn
Scott Joplin
—Itzhak Perlman og André Previn leika saman á fiðlu og píanó
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Saia — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörðustíg 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
SÝNINGARSALUR
Lög eftir Scott Joplin verða leikin
á morguntónleikunum í fyrramálið.
Þeir sem það gera em Itzhak Perlman
og André Previn, báðir heimsþekktir
tónlistarmenn, og leika þeir saman á
fiðlu og pianó.
Scott Joplin hefur verið nefndur
konungur ragtime-tónlistar. Hann er
kunnastur ragtime-píanóleikara og
-höfunda. Hann fæddist i Texas árið
1868 og samdi á ævi sinni 39 ragtime-
lög og tvær ópemr auk þess sem hann
gaf út kennslubók. Hans þekktasta
verk er The Maple Leaf Rag sem
hann samdi árið 1899. Hann nefndi
verkið eftir samnefndum klúbbi í
Sedalia i Missouri þar sem hann vann
um tíma. Scott Joplin lézt árið 1917.
í hugum nútimafólks er Scott Jopl-
in liklega þekktastur fyrir að vera
höfundur tónlistarinnar úr myndinni
The Sting sem Robert Redford og
Poul Newman léku í.
Ragtime-tónlist er aðallega píanó-
jazz, komin frá bandariskum negr-
Scott Joplin (1868—1917).
um. Hún er frá þvi um 1870 en há-
marki vinsælda sinna náði hún um
síðustu aldamót.
Áður en tónlist Scotts Joplin
verður flutt heyrum við Josef Hála
leika Sjö tékkneska dansa á píanó
eftir Bohuslav Martinú.
-KMU
NOTAÐIR PJ BÍLAR
Seljum í dag:
SAAB 96 '71,2ja dyra, Ijósbrúnn,
SAAB 96 '72,2ja dyra, Ijósbrúnn,
SAAB 99 '73,2ja dyra, gulbrúnn, ekinn 66 þús. km,
SAAB 99 '74,2ja dyra, dökkblór, ekinn 141 þús. km,
SAAB 99 '77,2ja dyra, Ijósblár, ekinn 68 þús. km,
SAAB 99 '78,2ja dyra, rauður, ekinn 68 þús. km
SAAB 900 '79,3ja dyra, brúnn, ekinn 28 þús. km,
SAAB 900 EMS '79,3ja dyra, Ijósblár, ekinn 33 þús. km.
TOGGURHR
SAAB UMBOÐIÐ
BILDSHÖFÐA 16.
SIMI 81530
Samskipti íslendinga og Grænlendinga:
Samskipti þjóðanna
síðastliðin sexta'u ár
Samskipti íslendinga og Græn-
lendinga er efni erindis sem Gísli
Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri
flytur í útvarp í kvöld i tilefni heim-
sóknar grænlenzkra sveitarstjómar-
manna hingað til lands sem nú
stendur yfir.
Gísli mun einkum fjalla um sam-
skipti þjóðanna siðustu 60 ár og fer
ekki lengra aftur í tímann en til ársins
1915. Hann rekur samskipti þjóð-
anna á þessum tima i stómm drátt-
um, í atvinnumálum og menningar-
málum. í samtali við blaðamann
Dagblaðsins sagðist Gisli ætla að
enda þáttinn á því að fjalla um þau
nýju viðhorf sem eru að skapast í
samskiptum þjóðanna vegna sam-
eiginlegra fiskveiðihagsmuna.
Liklega er ekki á neinn hallað
þegar því er haldið fram að mestu
samskipti íslendinga við Grænlend-
inga undanfarna áratugi séu vegna
flugs sem islenzk flugfélög hafa ann-
azt fyrir aðila á Grænlandi vegna
ýmiss konar vísindarannsókna, ís-
könnunarflugs, sjúkraflugs o.fl. Á
tímabili var hér um mikil verkefni að
ræða og íslenzkir flugmenn voru tíðir
gestir á Grænlandi. Hin sfðari ár hafa
danskir aðilar yfirtekið mikið af
þessu flugi en þó er enn nokkuð um
það að islenzkir flugmenn sinni verk-
efnum á Grænlandi. Aðspurður
sagðist Gísli ekki ætla að fjalla um
þennan þátt samskiptanna enda væri
ekki hægt að koma öllu að i tuttugu
mínútna erindi.
Grænlenzku sveitarstjórnarmenn-
irnir eru 35 talsins frá 18 sveitar-
Samskipti íslendinga við næstu nágranna sína, Grænlendinga, hafa verið mjög
lítil en fara vaxandi.
félögum. Þeir komu til landsins um ennfremur samvinnuhreyflnguna.
helgina og verða hér til 28. júni. Þeir Samband íslenzkra sveitarfélaga ann-
kynna sér sveitarstjórnarmál, land- ast móttöku þeirra.
búnað, sjávarútveg og fiskiðnað, -KMU
koni
„„ksi.ríM"' ”if
keppnlhapP r rallVb,la 3
* fí/leira en *KOjii höggdeyfi
islandinotar ^ ^
Kauptu KO krafts «S .
isS^þla>fer^ið bm"
dasoSnjí,UU17auppt-Ver,U
is scm Pe,rbJl%,lagið huinn
undit
þaó borgarsig
ORVGGlS
SMYRILL HF.
Ármúla7 Reykjavík
Sími 84450
gfið
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bœtt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.