Dagblaðið - 22.06.1981, Síða 32
Strand í miðjum skerja-
garöiniMti við Eyrarbakka
f imm manna áhöfn kom á gumbátnum í land
56 tonna eikarbátur frá Eyrarbakka
Jóhann Þorkelsson ÁR-24, strandaði í
morgun á landklöppunum í miðjum
skerjagarðinum utan Eyrarbakka.
Fimm menn voru á bátnum og komu
þeir í land í gúmbát skipsins. Engan
þeirra sakaði. j
Báturinn var að koma úr róðri, að
sögn Þórs Hagalin sveitarstjóra á
Eyrarbakka, er hann lenti þarna upp í
Ihvernig skipið lítur út,” sagði Þór.
M.b. Jóhann Þorkelsson er nýlegt
skip, smíðaður 1975 að því er skipa-
skráin segir. Hann var í eigu Bjarna og
Jóhanns Jóhannssona og landaði afla
sínum hjá Fiskiveri sf.
-A.St.
Það voru heldur göngumóðir herstöðvaandstœdingar, sem héldu útifund á Lœkjar-
torgi að aflokinni Friðargöngu frá Keflavik til Reykjavíkur á laugardagskvöldið.
Lögreglunni i Reykjavik reiknast til, að um eitt þúsund manns hafl verið á útifundin-
um. forsvarsmenn göngunnar segja fundarmenn hafa verið 3000—6000.
DB-myndir: Einar Ólason.
Göngumenn ánægðir
með þátttökuna
Talið er að um 570 manns hafi lagt
upp í friðargönguna frá hliðum Kefla-
víkurflugvallar um helgina. Gengið var
frá Keflavík til Reykjavíkur og þótti
gangan takast nokkuð vel, þrátt fyrir
fremur leiðinlegt veður. •
Það voru Samtök herstöðvaand-
stæðinga sem skipulögðu friðargöng-
una. Guðmundur Georgsson, fyrrver-
andi formaður samtakanna sagði í
morgun að menn væru fremur ánægðir
með þátttökuna.
Áður en lagt var upp frá hliðum
Keflavikurflugvallar flutti Bergljót
Kristjánsdóttir ávarp en gangan lagöi
síðan af stað um níuleytið að morgni
laugardags. Áð var við Vogastapa,
Kúagerði og Straum, en stuttir fundir
voru auk þess haldnir í Hafnarfirði og
Kópavogi. Til Reykjavíkur kom
gangan um tíu-leytið um kvöldið og var
þá haldinn útifundur á Lækjartorgi.
Ræðumenn voru Guðrún Helgadóttir,
alþingismaður og Jón Helgason, rit-
stjóri, en auk þess flutti ávarp Berit Ás,
sem er fulltrúi frá friðarhreyfingunni á
Norðurlöndunum.
-ESE
ÞRENNT JÁTAÐIHÚSBROT,
FJÁRSTULD OG BÍLÞJÓFNAÐ
Tveir piltar og stúlka voru hand- fyrirhúsinu.
tekin í gær og leiddi sú handtaka til Rannsóknariögreglumönnum tókst,
þess, að upplýst var innbrot i hús við aö því að DB var tjáð i morgun, að
Laugamesveg. Þar hafði peningum ná i allt þýfið. Bíliinn var eitthvað
verið stolið svo og bil sem stóð úti lítillega skemmdur. -A.St.
Ríkisútvarpið:
Atli Magnússon
dagskrárfulltrúi
Atli Magnússon hefur verið ráöinn Hörður Vilhjálmsson útvarpsstjóri
dagskrárfulltrúi i hljóðvarpinu. sagði i morgun að siðar i dag eða á
Hann er blaöamaöur á Timanum og morgun yrði ákveðið hver yrði afleys-
var áður á Alþýðublaðinu. Atli fékk ingafréttamaöur sjónvarps næstu 5
meðmæli Hjartar Pálssonar dag- mánuði. Arnþrúður Karlsdóttir
skrárstjóra tD starfsins og hiaut 6 lögreglumaður, umsækjandi um
atkvæði i útvarpsráði. Annar starfið, hlaut 4 atkvæði í útvarpsráði.
umsækjandi, Úlfar Bragason, hlaut 1 Bolli Héðinsson viðskiptafræðingur
atkvæöi. hlaut 3 atkvæði. -ARH.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1981.
Merkuráfangi
ífangelsismálum:
Fyrsti
fanginn
tekur
sveins-
próf
— refsivistinni varið til
iðnnáms
Tryggvi Rúnar Leifsson, 29 ára
gamall fangi á Litla-Hrauni, er fyrsti
maður sem varið hefur refsivistartíma
sínum til þess að ljúka brottfararprófi í
viðurkenndri iðngrein.
Prófskírteini hans var gefið út frá
Iðnskólanum á Selfossi hinn 12. júní
siðastUðinn í almennri rafsuðu.
Meistari hans og kennari var Birgir'
Baldursson. ÖIl gögn hafa borizt
réttum aðilum til þess að öðlast sveins-
próf. Eru þau öll með þeim hætti, að
sveinspróf Tryggva Rúnars verður gef-
ið út innan tíðar, samkvæmt áreiðan-
legum heimildum DB.
Ættingjar og vinir gátu samglaðzt
iðnsveininum í heimsóknartfmanum í
gær. Telur Tryggvi, að hann hafi með
þessum áfanga öðlast nýjan grundvöU
og öryggi í lifinu, sem áður hafi skort
og hefði betur komið fyrr.
-BS.
IVIKU HVERRI
Vinningur
vikunnar:
Tíu gíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vinningur í þessari viku er 10
gíra DBS eða Raleigh reiðhjól frá
Fálkanum, Suðurlandsbraut 8 i
Reykjavlk. í vikunni verður birt, á
þessum stað I blaðinu, spurning
tengd smáauglýsingum Dagblaðs-
ins. Nafn heppins áskrifanda
verður síðan birt daginn eftir I smá-
auglýsingunum og gefst honum
tœkifœri á að svara spurningunni.
Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir
nœstu helgi verður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli rlkari.
hressir betur.