Dagblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 1
9
r
i
1
/
• r
úháð
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1981 — 169. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-ADALSÍMl 27022.
Islendingur
ífangelsi
íMarokkó:
„Maðurinn fasr sömu umönnun og
aðstoð og islenzkur fangi fengi á
íslandi. Við útvegum honum lög-
fræðing og danski konsúllinn i Rabat
í Marokkó mun vitja hans,” sagði
Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, í samtali við
DB i morgun um mál tvítugs íslend-
ings sem situr i fangelsi í Marokkó.
Hefur hann verið þar í þrjár vikur.
Er talið vist, að Islendingurinn,
Fangelsinu er líkt við
Miðnæturhraðlestina
sem er úr Reykjavík, hafi verið
tekinn grunaður um brot á fikniefna-
löggjöf Marokkó. Eftir því sem bezt
er vitað er maðurinn í fangelsi i
bænum Chechauen, sem á góðum
landakortum er einnig kallaður
Xauen og er um það bil 80 km suður
af hafnarborginni Ceuta gegnt
Gíbraltar á suðurströnd Spánar.
„Ég veit ekki mikið um þetta
annað en að maðurinn situr þarna
inni en það er verið að reyna að
komast í samband við hann,” sagði
Marin Guðrún Briand de Crevecoer,
ræðismaður Islands í Malaga á
Spáni, þegar DB ræddi við hana i
morgun. ,,Mér hefur skilizt að í fylgd
með honum hafi verið íslendingur og
Spánverji, sem komust aftur til
Spánar á bílaleigubfl sem þeir voru á.
íslendingurinn er nú kominn aftur til
Noregs, þar sem hann er búsettur,”
sagði Marin Guðrún. Hún sagðist
telja aðstöðuna i fangelsinu afar
slæma.
íslenzka dómsmálaráðuneytið
hefur sent fyrirspurn um manninn til
Rabat með aðstoð Interpol en enn
ekkert svar fengið, að sögn Hjalta
Zóphaníassonar i dómsmálaráðu-
neytinu i morgun. Hjalti sagðist telja
að maðurinn gæti sloppið með sekt
en beðið væri eftir nánari upplýsing-
um að sunnan.
íslendingar hafa áður setið t þessu
fangelsi i Xauen og bera því afar
slæma sögu. Fangelsið mun vera
byggt fyrir um 40 fanga en þar eru
iðulega allt að helmingi fleiri í einum
sal. Lýsingar á fangelsinu minna
helzt á lýsingar i sögunni Miðnætur-
hraðlestin, sem nú er lesin í útvarp-
inu.
-ÓV
20 síðna skýrsla um ástand mjólkur og leiðir til úrbóta:
$ggp
Brúðkaup þeirra Karls og Dfönu f London f gær þótti takast með mikilli
prýði og vel standa undir nafni sem „brúðkaup aldarinnar”. Stórkostieg
fagnaðarlæti urðu þegar bróðhjónin komu út úr kirkjunni og mikið var um
dýrðir f London f allan gærdag, enda hafði dagurinn verið lýstur opinber
fridagur I Bretlandi. Myndin sýnir þau Kari og Dfönu meðan á athöfninni f
Sankti Páls dómkirkjunm stóð.
— sjá erlendar fréttir bls. 6—7.
Cargoluxmálið:
Pappírsfyrir-
tæki stof nuð
— til að fela hina réttu
eigendur?
Svo virðist sem einhver skrýtinn
feluleikur eigi sér stað i Luxemborg
um þessar mundir. Nýju hluthafarnir
í Cargolux, fyrirtækin Borsa og
Mettza, virðast ekki vera neitt annað
en pappírsfyrirtæki. Þau eru bæði
svo nýstofnuð að þau eru ekki enn
komin inn á prentaðar skrár hins
opinbera.
Sá grunur læðist nú að mönnum i
Luxemborg að Borsa og Mettza hafi
sérstaklega verið stofnuð til að eiga
hlut i Cargolux til að fela hina raun-
verulegu eigendur. Eru eigendur
Green Line Aviation oft nefndir i því
sambandi.
Green Line Aviation er flugfélag
með ýmiss konar flugstarfsemi í
gangi. Það er algerlega í eigu araba
en lögfræðingur nokkur i Luxemborg
er notaður sem leppur.
Green Line Aviation tengdist
Herculesmálinu sem upp kom í maí
sl. Eins og menn eflaust munn 'nerist
það mál um kaup Gaddafis lei ótoga
lýbísku byltingarinnar, á baiiuaa'.Lri
herflutningaflugvél. Þau kaup voru
gerð í gegnum Cargolux og Green
Line Aviation.
Sagt er að Green Line Aviation sé
stjórnað í gegnum Beirút í Líbanon
en fjármagnið komi frá Lýbíu.
Dagblaðið hefur frétt að nokkur
urgur sé í Luxemborg vegna nýju
hluthafanna í Cargolux. Þar í landi
hafa menn lengi gert sér vonir um
meirihlutaeign Luxemborgarmanna
sjálfra i Cargolux og þá verið rætt
um að Luxemborg fengi hlui Flug-
leiða i skiptum fyrii ,r kstrarstyrki
vegna Norður-Atlantshafsflugsins.
Tilkoma nýrra hluthafa hefur gert
þessar vonir að engu. . KMU
Orsakir að finna á öllum
stigum mjólkurvinnslunnar
Ljóst er að á hinum ýmsu stigum
mjólkurvinnslu er mörgu ábótavant.
Það kemur m.a. i ljós í 20 síðna skýrslu
sem samstarfshópur um mjólkurmál
hefur sent frá sér. Auk upptalningar á
þeim þáttum bendir hópurinn á ýmsar
leiðir til úrbóta.
Samstarfshópurinn var skipaður 1
framhaldi kvartana neytenda yfir
mjólkinni en hópurinn var skipaður
fulltrúum frá heilbrigðisráðuneytinu,
Heilbrigðiseftirliti rikisins, landlækni,
Matvælarannsóknum ríkisins og
Heilbrigðiseftirliti Reykjavikurborgar.
Aðeins var rannsakað sölusvæði 1,
en það er framleiðslusvæði Mjólkur-
stöðvarinnar i Reykjavik, Mjólkur-
samlags Borgfirðinga og Mjólkurbús
Flóamanna. Þó að aðeins sé rannsakað
þetta eina svæði leggur nefndin á það
rika áherzlu að ástandið sé ekki
óaðfinnanlegt á öðrum svæðum.
Hópurinn ber saman ísland og
Noreg i skýrslum sinum og kemur þar
fram að mjólk frá bændum er miklu
betri í Noregi en hér á landi. Telur
hópurinn aö gæðarýrnun mjólkurinnar
sé að verulegu leyti að finna i sæmu
ástandi og búnaði fjósa. Þá er nefndur
skortur á þrifnaði og aðhaldsleysi hjá
nokkrum framleiðendum sem geta
skemmt fyrir öðrum. Fyllsta ástæða
virðist vera til að endurskoða fram-
kvæmd eftirlits, sem dýralæknar eiga
að annast.
í mjólkurstöðvunum sjálfum er
einnig ýmsu ábótavant og telui
hópurinn upp nokkur dæmi hjá hverju
mjólkursamlagi. öll mjólkursamlögin
hafa forhitað mjólk en samkvægt
reglugerð er það óheimilt. Þá er einnig
bent á flutninga mjólkur sem ekki er
sem skyldi. Vantar þar mikið á
hreinlæti.
Hópurinn leggur til úrbóta að felld-
ar verði úr gildi allar undanþágur um
dagstimplun og á mjólkurbúðir verði
stimplaður gerilsneyðingardagur. Á
næstu vikum verða geymsluþolspróf og
verður slðan tekin ákvörðun um hvort
sölufrestur verði styttur enn frekar. Þá
er bent á nauðsyn þess að mjólk sé sótt
oftar til bænda og að góð og vond
mjólk blandist ekki.
-ELA
Miklu magni af
kartöflum hent:
Óætieða
skepnufóö-
urámark-
aðnum
— sjábls.4
48demókratar
gengutilliðs
viðReagan
— sjá erl. f réttir