Dagblaðið - 30.07.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JULl 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Brúðkaup aldarinnar í London í gær:
STÓRKOSTLEG FAGN-
AÐARLÆTI í LONDON
— „Lítið gagnar að leysa ef nahagsvandann ef staða f jölskyldunnar er ekki trygg,” sagði
erkibiskupinn af Kantaraborg við hjónavígsluna
Karl prins og Iafði Diana Spencer
hófu hjúskaparlif sitt á sveitasetri
undir strangri gæzlu öryggisvarða
eftir hið íburðarmikla brúðkaup i
gær, sem talið er að 700 milljónir
manna hafi fylgzt með í sjónvarpi.
Þremur fyrstu hveitibrauðsdögun-
um munu þau eyða á Broadlands-
herragerðinum, sem Mountbatten
heitinn lávarður átti. Þar dvöldu
einnig Elisabet drottning og maður
hennar, Philip prins, brúðkaups-
nóttina á sfnum tíma.
Á laugardag halda Karl og Diana,
sem nú ber titilinn prinsessa af
Wales, til Gfbraltar þar sem þau
munu stiga um borð í hina konung-
legu snekkju, Britanniu. Síðan tekur
við hálfs mánaðar sigling um Mið-
jarðarhaf.
Brúðkaupið 1 gær gekk snurðu-
laust fyrir sig. Meðal hinna 3.500
gesta í Sankti Páls dómkirkjunni í
London, þar sem athöfnin fór fram,
voru konunglegir gestir og aðrir leið-
togarerlendraríkja.
Hátíðahöldin voru mikil og vel
þegin tilbreyting fyrir brezku þjóðina
sem að undanförnu hefur verið þjök-
uð af stöðugum óeirðum í mörgum af
stærstu borgum landsins.
Áætlað er að 600 þúsund manns
hafi verið á leið brúðhjónanna frá
Buckingham-höll að Sankti Páls
dómkirkiunni.
Brúðarkjóll lafði Diönu Spencer
þótti mjög glæsilegur en fram að gift-
ingarathöfninni hafði útlit hans verið
varðveitt sem ríkisleyndarmál. Hann
var með átta m löngum sIóða úr
beinhvítu silki með gamaldags
knipplingum. Diana kom til kirkj-
unnar i glervagni, í fylgd með föður
sfnum, Spencer jarli.
Karl prins, sem klæddur var við-
hafnarbúningi sjóhersins, kom til
kirkjunnar i opnum vagni sem fjórir
gráir gæöingar drógu.
Það var dr. Robert Runcie, erki-
biskup af Kantaraborg, sem gaf
brúðhjónin saman. Hann sagði
meðal annars i ræðu sinni að lítið
gagnaði að leysa efnahagsvandamál
þjóðarinnar ef staða fjölskyldunnar
væri ekki tryggð. í fjölskyldunni
fælist framtíðin.
Gifurleg fagnaðarlæti lcváðu við
þegar brúðhjónin komu út úr kirkj-
unni. Þau héldu síðan til Bucking-
ham-hallar í opnum vagni. Brúð-
hjónin komu fjórum sinnum fram á
svalir Buckingham-hallar og veifuðu
til mannfjöldans.
Þau Karl og Diana munu eiga tvö
heimili. í London hafa þau stóra
ibúð i Kensington-höll. En sveita-
heimili þeirra verður Highgrove, niu
svefnherbergja hús, byggt á síðustu
öld. Húsið, sem Karl festi kaup á
siðastliðið ár, stendur i Gotswolds
Brúóhjónin ganga út úr Sankti Páls dómkirkjunni að iokinni hjónavfgslunni f gær. Lafói Diana Spencer ber nú titilinn prins-
essaafWales.
EUsabet drottning og maður hennar Philip prins voru að vonum i hátíðarskapi.
Karl og Diana ganga frá altarinu eftir að dr. Robert Runcie, erkibiskup af Kantaraborg, hafði gefið þau saman. Eins og sést
á myndinni var brúðarkjóllinn með löngum slóða, átta metra.
fyrir vestan London.
Þegar Karl tekur við konungdómi
er reiknað með aö titill hans verði
Karl konungur þriðji. Elfsabet
drottning, sem nú er 55 ára, mun vera
við mjög góða heilsu og Karl hefur
‘WZj
tjáð vinum sinum að hún hafi ekki f
hyggju að láta af embætti á næst-
unni.